Morgunblaðið - 27.01.2000, Blaðsíða 22
22 FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson.
Segja má að þessi litfagri kvöldroði um þorrakomuna vitni um þá góðu tíð sem í vændum er skv. veðurspá
manna á Austurlandi. Kvöldroðanum var ávallt talið fyigja úrkomulaust veður eins og eftirfarandi spak-
mæli ber vitni um: „Kvöldroðinn bætir og segir satt. Morgunroðinn vætir og mígur í hatt.“
Veðurspámenn á Austurlandi
Vaðbrekku, Jökuldal - Veðurspá-
menn á Austurlandi virðast vera
sammála um að veturinn í vetur
verði góður. Haft var samband við
nokkra þeirra og þeir spurðir álits
á þeim hluta vetrarins sem eftir
er. En allir höfðu þeir orð á því að
það sem af væri hefði ekki komið
þeim á óvart.
Bjöm Andrésson í Fellabæ segir
að spjólítið eða spjólaust verði í
allan vetur. Bjöm, sem er fyrrver-
andi bóndi í Njarðvík við Borgar-
fjörð eystra, segir að sig dreymi
venjulega í hlöðu heima í Njarðvík
um vetumætur og geti af því
dregið hvemig veturinn verði. Svo
var þó ekki í þetta skipti en vetur-
inn leggst vel í Bjöm engu að síð-
ur og segir hann að ekki verði
vemlegar skoddur í vetur. Hann
vildi ekki spá í vorið að svo stöddu.
Sigurjón Guðmundsson á Eir-
íksstöðum segir að veturinn verði
góður að mestu, þó komi verri
kaflar inn sem ekki verði þó svo
slæmir þegar öllu er á botninn
hvolft.
Siguijón segir að þorrinn verði
góður, hann var einnig búinn að
Spáð góð-
um vetri
segja fyrir um hláku um þorra-
komuna, og telur að vorið geti
orðið gott.
Eldri kona sem ekki vill Iáta
nafns síns getið segir að sig hafi
dreymt mikið af dökku fé sem þýði
að veturinn verði góður, sérstak-
lega þijár fyrstu vikur þorra, en
þó komi þrisvar él á þeim tíma og
það sem eftir lifir vetrar verði
frekar gott og nær auð jörð.
Bræðumir Aðalsteinn og Hákon
Aðalsteinssynir frá Vaðbrekku
em sammála í sínum spám enda
aldir upp saman og má ætla að
þeir leggi sama gmnn að sínum
spám.
Þeir spá góðum vetri og að það
verði mikil suðvestanátt í vetur.
Þó veðurstofan sé að spá norðan-
skoti um næstu helgi segir Hákon
að sú spá muni gufa upp. Þeir
segja að Þorrinn verði góður en þó
megi búast við hreti síðast á Þorr-
anum. Mars verður umhleypinga-
samur með lítilsháttar éljagangi,
þó engin harðindi verði þá. Apríl
verður góður með ríkjandi sunn-
anáttum en gæti orðið hvasst með
köflum. Fyrripartur mai verður
kaldur en það verði glimrandi bati
síðast í mai. Júní verður hlýr og
góður og góð heiskapartíð í júlí.
Aðalbjöm Kjerúlf á Amheiðar-
stöðum spáir góðri tíð fram í
mars, og hann sagði til um kuld-
ana fyrr í vetur og hlákuna um
Þorrakomuna.
Þorgrímsstaðabræður í Breið-
dal Gunnar og Hh'far Erlingssynir
spá léttum vetri, Gunnar segir að
hann hafi sagt strax í haust að það
yrði léttur vetur þar til sól færi að
hækka á lofti. Þeir bræður spá
mest mánuð í senn en fundu þó á
sér að þessi vetur yrði góður.
„Þorrinn verður góður ef þessi
vika endar vel veðurfarslega,"
segir Gunnar. Síðan verður gott
áfram í vetur. Aðspurðir um vorið
segja þeir að vorið verði kalt og
gróður komi seint. Sumarpáskar
viti ekki á gott reynslan sýni að oft
fylgi þeim slæm tíð.
Nýjar hurðir á
Landakirkju
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Onnur útskoraa hurðin á Landakirkju.
Vestmannaeyjum - Við
hátíðarmessu í Landa-
kirkju á sunnudaginn
voru vígðar nýjar hurðir
á kirkjuna. Hurðirnar
eru gefnar af Kvenfélagi
Landakirkju en Sigurð-
ur Sigurðsson skar út í
tré myndir á hurðirnar
og gaf kirkjunni verk
sín. Séra Kristján
Björnsson sóknarprest-
ur sagði í stólræðu sinni
sögu myndanna sem
prýða hurðirnar og
blessaði síðan hurðirnar
ogþá sem um þær fara.
I samtali við Morgun-
blaðið sagði Séra
Kristján að Kvenfélagið
hefði aflað fjár til hurða-
kaupanna með vorsöfn-
un sinni á síðasta vori
hjá einstaklingum og
fyrirtækjum. Hann
sagði að Tréverk í Eyj-
um hefði verið fengið til
að smíða hurðirnar, sem
eru gegnheilar eikar-
hurðir, en leitað hafi
verið til Sigurðar til að
fá hann til að skera út
myndir í hurðirnar. Sig-
urður hafí tekið verkið að sér og síð-
an ákveðið að gefa vinnu sína við
það til minningar um föðurafa sinn
og -ömmu, Séra Oddgeir og Önnu
Guðmundsen, en Séra Oddgeir var
prestur á Ofanleiti í Eyjum í yfír
þrjátíu ár.
Sex tréskurðarmyndir Sigurðar
prýða hurðirnar, þrjár fulningar á
hvorri hurð, og er myndefnið sótt í
stórbrotna kirkjusögu Eyjanna og
guðspjöllin. Séra Kristján sagði að
tveimur myndum sem nú væru á
hurðunum yrði skipt út fyrir aðrar
sem Sigurður er með í útskurði og
ætlunin væri að þær myndu eftir
það prýða veggi kirkjunnar.
Hann sagði að hurðirnar væru
miklir kjörgripir sem án efa yrðu
meðal ómetanlegra hluta Landa-
kirkju í framtíðinni. Kristján sagði
ekki vanþörf á góðum hurðum í
Landakirkju því kirkjusókn væri
góð og margir færu því um þessar
hurðir og nefndi því til stuðnings að
á síðasta ári hefðu 20.000 manns
verið skráðir þátttakendur í helgi-
haldi í kirkjunni.
Messan í Landakirkju á sunnu-
daginn varð enn tilkomumeiri og
hátíðlegri fyrir þær sakir að kóra-
mót kirkjukóra Kjalarnesprófast-
sdæmis var haldið í Eyjum um
helgina. Þar voru kórarnir að æfa
dagskrá vegna fimm kristnitökuhá-
tíða sem haldnar verða í prófast-
sdæminu á árinu, en fyrsta hátíðin
verður í Garðabæ um næstu helgi.
130 manna kór söng því við mess-
una og sagði Séra Kristján að söng-
ur þessa stóra kórs hefði gert
stundina enn hátíðlegri og tilkom-
umeiri.
Að lokinni messunni bauð Kven-
félag Landakirkju upp á kaffí og
hurðartertu, en tertan, sem gerð
var af Arnóri bakara, var í líki hurð-
ar Landakirkju. Sagði séra Kristján
að tertan hefði verið falleg eins og
hurðirnar en líka afar bragðgóð.
Kátir kinda-
karlar í nýjum
fjárhúsum
Laxamýri - Ný
fjárhús hafa verið
tekin í notkun á
bænum Heiðarbót í
Reykjahverfi hjá
Jóni B. Gunnarssyni
og sonum hans, sem
keypt hafa jörðina.
Heiðarbót var áð-
ur í eyði en þeir
feðgar hafa, auk
þess að byggja fjár-
húsin, komið sér
upp hesthúsi og
gert upp gamla
íbúðarhúsið á staðn-
um, sem var í mikilli
niðurníðslu.
Sauðfé og hestar
eru áhugamál feðg-
anna og státa þeir af
hárri meðalvigt
dilka og hundrað
prósent tvílembi.
Jón hefur um árabil
stundað fjárbúskap
á Húsavík sem
tómstundabóndi og
er því ekki nýgræð- Feðgamir Gunnar Jónsson, til vinstri, og Jén B.
ingur í greininni. Gunnarsson í nýju fjárhúsunurn á Heiðarbót.
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Ragnhildur Jónsdóttir í Fagradal og Karl Pálmason í Kerlingadal með
útigangsána, sem er í góðum holdum þrátt fyrir harðan vetur.
Tveggja vetra ær
heimt af fjalli
Fagradal - í byijun þorra rakst
fréttaritari á einmana kind austan
við Háfell á Múlakvísl, sem af ein-
hverjum ástæðum hefur ekki fund-
ist þegar verið var að smala í haust.
Hringt var hið bráðasta eftir hjálp
og kom Karl Pálmason í Kerlinga-
dal með hund og kerm. Vel gekk að
handsama kindina sem er tveggja
vetra og er frá Kerlingadal. Ærin
er í mjög góðum holdum þrátt fyrir
snjóþungan vetur í Mýrdalnum.
Bæjarstjóri
Hornafjarðar
hættir störfum
BÆJARSTJÓRI Hornafjarð-
ar, Garðar Jónsson, hefur sagt
starfi sínu lausu frá og með 1.
febrúar nk. Ástæður uppsagn-
arinnar má einvörðungu rekja
til persónulegra aðstæðna,
segir í fréttatilkynningu. Garð-
ar mun gegna starfi bæjar-
stjóra á Hornafirði þar til nýr
bæjarstjóri kemur til starfa.