Morgunblaðið - 27.01.2000, Síða 29

Morgunblaðið - 27.01.2000, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR 2000 28 ÚRVERINU Morgunblaðið/Árni Sæberg Skipverjar á Óðni festa landfestar í gærmorgun. I dag eru liðin 40 ár frá því landfestar skipsins voru festar í fyrsta sinn í Reykjavíkurhöfn. fer vissulega eftir því hvernig er hugsað um skipið. Reyndar má segja að ekki hafi mikið verið endur- nýjað í þessu skipi, skrokkur og yf- irbygging eru upprunaleg. Eins er vélbúnaðurinn upprunalegur en öllu þessu hefur verið haldið mjög vel við og er í góðu standi og eru vélarnar komnar tvöfalt fram yfir þann tíma sem framleiðandinn lofaði. Vita- skuld hefur ýmislegt verið endur- nýjað, enda komnar fram margar nýjungar í siglingatækjum og fjarskiptatækjum, en vissulega eld- ist skipið eins og annað og sjálfsagt kemur að því að Óðni verður skipt út fyrir nýtt skip. En hann er enn í fullu fjöri. Hann hefur staðið af sér ýmsa hildarleiki, þar á meðal þrjú þorskastríð og hefur verið farsælt skip og reynst afskaplega vel. Skipið hefur sál, manni líður vel þarna um borð og þykir orðið vænt um skip- ið.“ Greint var frá heimkomu Óðins í Morgunblaðinu 28. janúar 1960. All- margt fólk hafði safnast saman á Ingólfsgarði og fylgdist með þessari fyrstu innsiglingu skipsins í Reykja- víkurhöfn. Þegar landfestar höfðu verið bundnar í fyrsta sinn gekk þá- verandi dómsmálaráðherra, Bjarni Benediktsson, um borð ásamt fylgd- arliði og skoðaði skipið í fylgd Eiríks Kristóferssonar skipherra og Pét- urs Sigurðssonar, þáverandi for- stjóra Landhelgisgæslunnar. Ráð- herrann ávarpaði áhöfn Óðins og bauð þá velkomna til landsins. Sagði hann það fagnaðarefni að nýtt skip hefði bæst við hinn litla flota gæsl- uskipa sem samboðið væri hinum vösku mönnum er sækja sjóinn til að gæta þar lífshagsmuna þjóðarinnar. „Gifta fylgi hinum nýja. glæsta Óðni og megi hann koma rammefldur og heill á húfi úr hverri raun,“ sagði ráðherrann meðal annars. Þúsund fyrir- spurnirtil Utflutningsráðs Á SÍÐASTA ári afgreiddi Útflutn- ingsráð með formlegum hætti rétt tæpar 1.000 fyrirspurnir tengdar sjávarútvegi, þar af voru rúmlega 400 tilkomnar í gegnum NAS-verk- efnið. Eru þá eru ótaldar fyrir- spurnir sem fara beint til viðkom- andi fyrirtækja sem þátt taka í verkefninu. Erlendar fyrirspurnir voru um helmingur eða 500.1 flest- um tilvikum voru hinir erlendu að- ilar að leita eftir upplýsingum og tengslum við íslenska fiskseljend- ur, véla- og tækjaframleiðendur fyrir fiskvinnslu og framleiðendur fiskibáta. Einnig var töluverður fjöldi fyrirspurna sem vörðuðu sjávarútveg á íslandi almennt, s.s. um kvótakerfið, aflatölur, eignar- hald erlendra aðila og fleira. íslensku fyrirspurnirnar beind- ust oftast að öflun upplýsinga og tengsla við einstök erlend fyrirtæki og markaði. NAS-mappan, sem ásamt NAS- vefnum (www.nas.is) er helsta kynningargagn Útflutningsráðs á íslenskum sjávarútvegsfyrirtækj- um, var í síðustu viku send til 140 erlenda sjávarútvegsfyrirtækja sem flest eru starfandi í Noregi, Færeyjum, Rússlandi og á Bret- landseyjum. Þau íslensku fyrirtæki sem þátt taka í NAS-verkefninu og áhuga hafa á að fá lista yfir við- komandi erlendan markhóp geta sett sig í samband við Útflutnings- ráð. Framundan er svo frekari dreif- ing og kynning á sjávarútvegssýn- ingunum „Fishing 2000“ í Glasgow og „Boston Seafood" í Boston. Flestar heimsóknir frá Bandaríkjunum Notkun erlendra aðila á NAS- vefnum er stöðugt að aukast og er greinilegt að vefurinn er orðinn fastur viðkomustaður margra er- lendra aðila sem þurfa að leita upp- lýsinga um fyrirtæki og sjávarút- veg á íslandi. Flestar heimsóknir til NAS-vefjarins á árinu 1999 komu frá Bandaríkjunum, næst í röðinni voru Bretland, Kanada, Þýskaland, Noregur, Færeyjar, Svíþjóð, Grænland og Danmörk. Minni umferð, en þó nokkur, var frá t.d. Hollandi, Japan, Rússlandi, Finnlandi, Kína, Malasíu o.fl. Gardinueíni frá 100 kf. metrinn Tilbúnir kappar frá 400 kr. metrinn 3ja m breitt voal 520 kf. metrinn Handklæði J00 kf. stykkið Falleg ný tvíofin efni - 20% afsláttur og margt fleira. GARDLSUBUÐIIS Skipholti 35 - simi 553 5677 Opið ki. 10-18 Opið laugardaga kl. 10-14 anuar Klukkan 17:00 mánudaginn 3I. janúar eru síðustu forvöð að panta auglýsingu í Símaskrá 2000. Forðist biðraðir og gangið frá auglýsingapöntunum tímanlega. NYJUNG... Sjáðu auqlýsi auglysinguna

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.