Morgunblaðið - 27.01.2000, Page 30
30 FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
4
ERLENT
Oveður í austurhluta Baiidaríkjanna
Réttað í máli fyrrverandi forsætisráðherra Pakistans
Versta veður
Samstarfsmaður Sharifs
l
*
i
i
I
r
i morg ar
P. Reuters.
Washington. AFP, AP, Reuters.
STÓRHRÍÐ og hvassviðri hafa
valdið vandræðum víða á austur-
strönd Bandaríkjanna og hafa op-
inberar skrifstofur í Washington
og víðar verið lokaðar síðustu tvo
daga. Veruleg röskun hefur orðið
á flugsamgöngum og miklar raf-
magnstruflanir.
Snjórinn er víða 60 sm djúpur
og hefur hann skaflð í mikla
skafla, sem lokað hafa vegum.
Eru að minnsta kosti fímm dauðs-
föll rakin til veðursins auk þess
sem fimm ára gamallar stúlku er
saknað f Massachusetts. Er óttast,
að hún hafi fallið i á.
Mestu snjóþyngsli
frá árinu 1927
Veðrið hefur slæmt allt frá
Maine til Suður-Karólínu og í
Norður-Karólínu og í Virginíu var
lýst yfír neyðarástandi vegna
snjóþyngslanna. Hafa þau ekki
verið meiri þar frá árinu 1927.
Kom veðrið jafnvel veðurfræð-
ingum í opna skjöldu og er það
versta á þessum slóðum í mörg
ár. Þá er það líka óvenjulegt
hvað kuldakastið nær yfír stórt
svæði.
Áhyggjur
af flóðum
Sums staðar í New Jersey,
Delaware og Pennsylvaníu var
skafrenningurinn svo mikill, að
ekki sá út úr augum og óttast var
einnig, að álandsvindurinn ylli
flóðum með ströndinni.
í flughöfnum á þessu svæði
öllu var hundruðum eða þúsund-
um flugferða aflýst og nokkuð
var um, að lestarferðir legðust af
vegna veðursins.
Aflýsa varð sumum íþrótta-
kappleikjum vegna veðurs og í
sumum rfkjanna lá allt skólahald
niðri. Enn var spáð snjókomu í
gær í Pennsylvaníu og norður úr.
ber vitni gegn honum
Karachi, íslamabad. AFP.
MIKILVÆGASTA vitni ákæru-
valdsins í máli Nawaz Sharifs, fyrr-
verandi forsætisráðherra Pakistans,
vitnaði gegn honum í gær þegar rétt-
arhöldin yfir honum hófust. Nokkr-
um klukkustundum áður hafði her-
foringjastjómin, sem steypti Sharif
af stóli í október, rekið forseta
hæstaréttar og fimm aðra dómara
réttarins vegna þess að þeir neituðu
að sverja henni hollustueið.
Sharif er sakaður um mannrán,
morðtilraun, flugrán og hermdar-
verk og var leiddur fyrir dómstól
sem fjallar um mál meintra hryðju-
verkamanna. Bróðir hans og fimm
aðrir háttsettir embættismenn hafa
einnig verið ákærðir. Þeir segjast all-
ir vera saklausir af sakargiftunum.
Mikill öryggisviðbúnaður var við
dómhúsið þegar hinir ákærðu voru
fluttir þangað í brynvögnum.
Sharif er sakaður um að hafa reynt
að hindra að flugvél með Pervez
Reuters
Nawaz Sharif fluttur í brynvagni úr dómhúsi í Karachi.
Musharraf yfirhershöfðingja og tæp-
lega 200 aðra farþega fengi að lenda
á alþjóðaflugvellinum í Karachi
nokknim klukkustundum fyrir
Svona var ástandið í gær í Jacksonville í Norður-Karólínu en þar og í Virginíu hefur verið lýst yfir neyðarástandi vegna mestu snjóþyngsla frá 1927.
valdarán hersins. Flugvélin kom frá
Sri Lanka og gat ekki lent á flugvell-
inum fyrr en herinn hafði lagt hann
undir sig. Musharraf tók völdin í sín-
ar hendur nokkrum klukkustundum
síðar og lét handtaka Sharif.
Sharif á yfir höfði sér dauðadóm
verði hann fundinn sekur.
Sagður hafa látið loka
flugvellinum
Gamall samstarfsmaður Sharifs,
Aminullah Chaudhary, fyrrverandi
yfirmaður flugmálastjórnar Pakist-
ans, var fyrsta vitni ákæruvaldsins
og sagði að Sharif hefði skipað sér að
hindra að flugvélin lenti í Pakistan.
Chaudary var í fyrstu ákærður fyrir
aðild að málinu en féllst á að bera
vitni gegn Sharif til að fá sakarupp-
gjöf og er nú mikilvægasta vitni
ákæruvaldsins.
Chaudhary sagði að Sharif hefði
sagt sér að loka flugvellinum í Kar-
achi og skipa flugmanni vélarinnar
að fljúga henni til Miðausturlanda.
Chaudhary kvaðst hafa reynt að
hringja í Sharif þegar ljóst var að
flugvélin myndi hrapa innan nokk-
urra mínútna vegna eldsneytisskorts
ef hún fengi ekki lendingarleyfi í
Karachi. Honum hefði þá verið sagt
að Sharif væri upptekinn. Chaud-
hary talaði þá við hermálafulltrúa
Sharifs, sem sagði honum að leyfa
flugvélinni að lenda, láta brynvagna
umkringja hana, heimila henni að
taka eldsneyti og skipa flugmannin-
um að fljúga henni til Sameinuðu
arabísku furstadæmanna.
Áður en réttarhöldin hófust hafði
herforingjastjómin fyrirskipað öll-
um dómuram æðstu dómstóla lands-
ins að sverja henni hollustueið til að
treysta tök sín á dómsvaldinu. For-
seti hæstaréttar og fimm aðrir dóm-
arar réttarins neituðu að sverja eið-
inn og voru því reknir í gær og nýir
dómarar skipaðir.