Morgunblaðið - 27.01.2000, Side 32
32 FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Montreal. AFP, AP.
Ráðstefna Sameinuðu þjóðanna um erfðabreytt matvæli í Montreal
Líkur á samkomu-
lagí hafa aukist
MARGT bendir til að samkomulag
sé hugsanlegt á ráðstefnu Samein-
uðu þjóðanna um líftækniiðnað og
erfðabreytt matvæli í Montreal í
Kanada. Kom það fram í máli aðal-
samningamanns Bandaríkjanna í
gær en Bandaríkin og fimm önnur
ríki komu í veg fyrir árangur af
sams konar ráðstefnu í Kólumbíu
fyrir ári.
„Við erum mjög hlynntir reglum,
sem vemda umhverfið án þess að
leggja hömlur á viðskipti með mat-
væli, og teljum að samkomulag um
það geti tekist,“ sagði David Sanda-
low, aðalsamningamaður Bandaríkj-
anna á ráðstefnunni, og Richard
Ballhorn, aðalsamningamaður Kan-
ada, sagði að viðræðumar gengju
mjög vel. Fulltrúar ýmissa þróunar-
ríkja, þar á meðal Kína og Indlands,
vora þó ekki jafn ánægðir og sögðu
að í málamiðlunartillögunum væri
ekki tekið á áhyggjum þeirra af
erfðabreyttum matvælum.
A ráðstefnunni hefur mikið verið
um það deilt hvemig unnt sé að
ganga úr skugga um að erfðabreytt
matvæli séu hættulaus og vilja sum
ríki hafna þeim með öllu þar til sann-
að hefúr verið að óhætt sé að neyta
þeirra. Afstaða Bandaríkjamanna
hefur hins vegar verið sú, að verslun
með erfðabreytt matvæli skuli heim-
il þar til sannað hafi verið að þau séu
hættuleg.
Sandalow og fulltrúar hinna ríkj-
anna fimm, Kanada, Argentínu,
Chile, Umguay og Astralíu, lýstu
því þó yfir í fyrradag að þeir gætu
fallist á einhvers konar varúðarregl-
ur hvað varðaði erfðabreytt matvæli.
Pá sagði Sandalow að væntanlegar
reglur um öryggi erfðabreyttra mat-
væla ættu að hafa sama gildi og al-
þjóðlegir sáttmálar. Með því var
hann að sefa ótta Evrópumanna við
að Bandaríkjamenn krefðust þess að
reglur Heimsviðskiptastofnunarinn-
ar, WTO, yrðu einar látnar ráða
ferðinni. Öryggisreglumar um
erfðabreyttu matvælin og reglur
WTO yrðu sem sagt jafn réttháar,
en sumir fulltrúar þróunarríkjanna
vilja að öryggi umhverfisins verði
rétthærra viðskiptahagsmunum.
I málamiðlunartillögunum, sem
Bandaríkjamenn styðja, munu
reglumar um öryggi erfðabreyttra
matvæla aðeins taka til alþjóðlegra
umhverfismála en eftir sem áður
getur hvert ríki verið með sínar eig-
in reglur hvað þetta varðar.
Kanadamenn tala máli
Bandaríkj amanna
Ráðstefna SÞ í Montreal er haldin
í anda samþykktarinnar um líffræði-
legan fjölbreytileika en Bandaríkja-
þing hefur aldrei fallist á hana.
Bandaríkjamenn em því í raun ekki
fullgildir þátttakendur og eiga því
engan fulltrúa í eiginlegum samn-
ingaviðræðum. Þess vegna reiða
þeir sig á Kanadamenn og fulltrúa
hinna ríkjanna fjögurra eða Miami-
hópinn, sem svo er kallaður. Hefur
það vakið óánægju meðal sumra
Kanadamanna, sem saka Kanada-
stjórn um að vera aðeins málpípa
Bandaríkjastjórnar.
Umræða um þessi mál er mikil í
Bandaríkjunum og einnig í Kanada
þar sem samtök heilsuverslana hafa
krafist þess af stjómvöldum að
erfðabreytt matvæli verði sérstak-
lega merkt. Þá ætla þessar verslanir
sjálfar að auðkenna þær vörur sínar
sem ekki innihalda erfðabreytingar
af neinu tagi.
Eitraður maís
Margir hafa áhyggjur af hugsan-
lega óhollum áhrifum erfðabreyttra
matvæla á neytendur en mestur ótti
er þó við að erfðabreyttar nytja-
jurtir geti valdið stórslysi í náttúr-
unni. Þær geti auðveldlega dreifst
og hugsanlega útrýmt öðram teg-
undum og með kynblöndun valdið
ónæmi fyrir skordýraeitri í jurtum
sem almennt er litið á sem illgresi.
Rannsókn, sem gerð var við Corn-
ell-háskólann í Bandaríkjunum á síð-
asta ári, leiddi í ljós að erfðabreyttur
maís er eitraður fyrir keisarafiðrildi.
Er það vegna þess, að nú framleiðir
hann sitt eigið skordýraeitur.
Inflúensulyfið
„relenza“
Varað
við hlið-
arverk-
unum
FRAMLEIÐENDUR in-
flúensulyfsins relenza, sem
nýkomið er á markað á Islandi,
hafa skrifað öllum heimilis-
læknum í Bretlandi bréf, þar
sem athygli er vakin á því að
notkun lyfsins geti valdið önd-
unarerfiðleikum hjá einstaka
sjúklingum.
Glaxo Wellcome, lyfjafyrir-
tækið sem framleiðir lyfið,
bendir á að þeir sem þjáist af
astma og/eða lungnasjúkdóm-
um geti orðið fyrir hliðarverk-
unum af því að taka inn in-
flúensulyfið, en það er gefið inn
í munnúðaformi.
Fyrirtækið sagði að í Banda-
ríkjunum hefði komið í ljós að
hliðarverkunareinkenni hefðu
komið fram hjá um tíu manns af
þeim á að gizka 500.000 sem
notað hefðu lyfið fram að þessu
þar í landi.
Ertu að byggja • viltu breyta • þarftu að bœta ?
16-40%
Veggflísar
DÆMI: 15x20 sm. • 3 gerðir.
Verðáður. Nú ^
1.565,- " 939,;
Plastparket
DÆMI: “HOME” •
Eik, beyki, kirsuberja & merbau.
Nú.
IW6%
Veggdukar
verð frá. ^ ay
67 sm.
pr.m.
Z$-56%
Veggfóður & borðar
verðfrá. Q S\
OÁUj~a
tftik 96%
Golfflisar
DÆMI: Marmo 31x31 sm, 3 litir, ítalskar gæðaflísar.
Verð áður. Nú
2.095,- 999j;
16-46%
Gólfdúkur
DÆMI: sommer “goid" gæðadúkur
Verð áður.
í.m- M 866,-,
Slabbmottur £r dreglar
16% afsláttur
Bútar Er afgangar
allt að 76% afsláttur
Rósettur £r skrautlistar
19% afsláttur
Fiberstrigi Filtteppi n m,
19% afsláttur 199,-,m
Hillupappír Voxdúkar
19% afsláttur 19% afsláttur
rúllan.
16-99%
19-91%
Málningardeild
Golfteppt
DÆMI: Derby lykkjuteppi.
'áður. Nú.
1.190,- 797 ~ *****717 -
PLUS-IO innimálning, 4 nr, Hvítir imr.
Gœðamálning frá Málningu hf.
Verð áður. Nl-, _ _ _ _
3.099,- 1.980,-„
16-96%
Mottur
Gólflökk, 5 ltr.,3 litir.
Stanáará litir; 2,5 itr.,10 imr.
^1,863,-,,
3 348 -
+* • Dós
Bjóðum 4 t'egundir afgœðn málhirigu.
LUO^
Líttu inn, við tökum vel á móti þér.
amiw
éMnííké BOEN15™, Norskt gæðaparket.
EIK RUSTIC EIK NATUR RAUÐ EIK NATUR RAUTT BEYKI • STRUKTUR LJÓST BEYKI • STRUKTUR ASKUR SCANDIC MERBAU SELECT verð pr. m2 J.190r 1.99Ó,- 1.996,- 1.196,- 1.196,- 1.696,- 1.696,-
Grensásvegi 18 • Sími 581 2444. Opið: Mánudaga til föstudaga frá kl. 9-18.
Laugardaga frá kl. 10-16 & sunnudaga frá kl. 11-15 (málningardeild).
Takið málin með, það flýtir afgreiðslu.
Góð greiðslukjör.
Raðgreiðslur til allt að 36 mánaða.
'wsT