Morgunblaðið - 27.01.2000, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR 2000 33
ERLENT
Bosníu-Serbinn Dusan Tadic hlustar á dómsorð dómara í áfrýjunarmáli
sínu fyrir stríðsglæpadómstólnum í Haag.
Fangelsisdómur
yfír Bosníu-
Serba mildaður
Haag. AFP, AP.
ÁFRÝJUNARDÓMARAR stríðs-
glæpadómstólsins í Haag styttu í
gær fangelsisdóm yfir Bosníu-Serb-
anum Dusan Tadic um fimm ár og
dæmdu hann í 20 ára fangelsi. Þar
með lauk fyrsta og langvinnasta
stríðsglæpamáli heims frá réttar-
höldunum í Niirnberg og Tókýó eft-
ir síðari heimsstyrjöldina.
Sex ár eru nú liðin frá því Tadic
var handtekinn í Múnchen. Dóm-
stóllinn dæmdi hann fyrst í 20 ára
fangelsi í júlí 1997 fyrir stríðsglæpi
og glæpi gegn mannkyninu. Fang-
elsisdómurinn var síðan þyngdur í
nóvember sl. eftir að saksóknararn-
ir fengu að bæta við ákærum sem
fallið hafði verið frá. Tadic var þá
dæmdur í 25 ára fangelsi en hann
áfrýjaði dómnum.
Dómarinn Mohammed Shaha-
buddeen, sem kvað upp dóminn,
sagði að þótt glæpir Tadics væru
„óumdeilanlega viðbjóðslegir“ hefði
fangelsisdómurinn verið mildaður
vegna þess að hinn ákærði hefði
verið tiltölulega lágt settur meðal
þeirra Serba sem bera ábyrgð á
stríðsglæpunum í Bosníu.
Saksóknarar gagnrýna
niðurstöðuna
Saksóknarai-nir í málinu gagn-
í'ýndu niðurstöðu áfrýjunardómar-
anna og sögðust ekki hafa búist við
því að dómurinn yrði mildaður.
„Við erum hins vegar fegnir því að
þessum mjög svo langdregnu rétt-
arhöldum skuli nú vera lokið,“
sagði talsmaður saksóknaranna.
Réttarhöldin hófust í maí 1996 og
forseti dómstólsins, Frakkinn
Claude Jorde, sagði að mál Tadics
hefði dregist á langinn vegna þess
að það væri fyrsta málið sem dóm-
stóllinn hefði tekist á við og hefði
haft mikið fordæmisgildi.
Tadic, öðru nafni Dusko, er 44
ára fyrrverandi kráareigandi. Hann
var í varaliði lögreglunnar og
dæmdur fyrir pyntingar og morð á
múslímum og Rróötum í fangabúð-
um í Bosníu.
Hatch dreg-
ur sig í hlé
Washington. AFP.
ORRIN Hatch, öldungadeildarþing-
maður repúblikana, hefur ákveðið að
draga sig út úr forkosningum
Repúblikanaflokksins vegna forseta-
kosninganna í haust.
Hatch hlaut aðeins 1% í fyrstu for-
kosningunum sem haldnar voru í
Iowa á mánudag. Hann segist þó
ekki telja kosningabaráttu sína hafa
verið tíma- eða peningaeyðslu, því
hún hafi haft jákvæð áhrif á kosn-
ingaumræðuna.
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
stofnaði dómstólinn árið 1993 til að
fjalla um mannréttindabrot sem
framin voru í átökunum í gömlu
Júgóslavíu. Þetta er í annað sinn
sem dómstóllinn kveður upp dóm í
áfrýjunarmáli. Áður hafði hann
mildað fangelsisdóm yfir Bosníu-
Króatanum Drazen Erdemovic,
sem var dæmdur í fimm ára fang-
elsi í stað tíu ára fyrir morð á músl-
ímum. Hann hefur afplánað dóminn
í Noregi frá 1998.
Viðræður um myndun hægristjórnar í Austurríki
Viðvörunum rignir
yfir Austurríkismenn
Vín. AFP, Reuters, AP.
FRELSISFLOKKUR hægrimann-
sins Jörgs Haiders (FPÖ) og Þjóð-
arflokkur austurrískra íhaldsmanna
(ÖVP) héldu í gær áfram skipuleg-
um viðræðum um myndun nýrrar
ríkisstjórnar í Austurríki, en stjórn-
arleiðtogar ísraels og Svíþjóðar og
áhrifamenn í stjórnmálum margra
annarra landa lýstu áhyggjum af
mögulegri stjórnarþátttöku Frelsis-
flokksins.
Líkurnar á að stjórn flokkanna
tveggja komist á laggirnar jukust í
gær, þegar Viktor Klima, kanzlari
og leiðtogi jafnaðarmanna, lýsti því
yfir að tilraunir hans til að mynda
minnihlutastjórn myndu greinilega
engan árangur bera. Sagðist Klima
munu skila stjórnarmyndunarum-
boðinu á fundi með Thomas Klestil
forseta í dag, fimmtudag, eftir heim-
komu sína til Vínar af ráðstefnu um
helfararmál sem fram fór í Stokk-
hólmi í gær. Peter Westenthaler,
framkvæmdastjóri Frelsisflokksins,
sagði í gær að eðlilegt væri að Klest-
il færði þá Haider stjórnarmyndun-
ammboðið, þar sem FPÖ væri ann-
ar stærsti flokkurinn.
Ehud Barak, forsætisráðherra
ísraels, tjáði fréttamönnum á
Stokkhólmsráðstefnunni að ríkis-
stjórnarþátttaka Haiders eða sam-
herja hans væri „mjög alvarlegt
mál“ og yrði til þess að Israel endur-
skoðaði samskipti sín við Austurríki.
Göran Persson, forsætisráðherra
Svíþjóðar, sagði við sama tækifæri
að flokkur á borð við Frelsisflokk
Haiders ætti ekki heima í ríkisstjóm
neins Evrópusambandslands.
Stefnubreyting FPÖ forsenda
stjórnarsamstarfs
Wolfgang Schússel, leiðtogi Þjóð-
arflokksins, sagði eftir fyrstu við-
ræðulotuna við Frelsisflokksmenn
að samsteypustjórn þeirra yrði að
vera jákvæð í garð Evrópusamvinn-
unnar. Vísaði Schússel með þessu til
neikvæðs áróðurs Haiders í garð
Evrópusambandsins (ESB), sem
m.a. var áberandi fyrir kosningarn-
ar í byrjun október sl. Frelsisflokk-
urinn hefur haldið því fram að með
ESB-inngöngu grannríkja Austur-
ríkis í Mið- og Austur-Evrópu sé von
á því að flóðbylgja ódýrs vinnuafls
skelli á Austurríki og geri fjölda
Austurríkismanna atvinnulausa.
Haider, sem varð fimmtugur í
gær, hefur tekið fram, að hann sæk-
ist ekki eftir setu í ríkisstjórninni
heldur kjósi hann frekar að vera
áfram fylkisstjóri í Kámten.
í skoðanakönnun sem niðurstöður
vom birtar úr í Neue Kronen-Zeit-
ungí gær lýstu 35% aðspurðra Aust-
urríkismanna sig fylgjandi myndun
hægristjórnar. 32% álíta réttast að
AP
Jörg Haider, leiðtogi Frelsis-
flokksins, brosir eftir fund með
þingmönnum flokksins í Vín.
boðað yrði til kosninga á ný, en sam-
kvasmt nýjustu könnunum myndi
FPÖ hagnast mest á því og verða
stærsti flokkurinn með um eða yfir
30% atkvæða. Aðeins 17% telja
minnihlutastjórn jafnaðarmanna
fysilegan kost. Einnig virðist Wolf-
gang Schússel, sem að öllum líkind-
um yrði kanzlari í samsteypustjórn
ÖVP og FPÖ, mega hafa áhyggjur
af persónulegum vinsældum sínum.
Aðeins 15% sögðust vilja sjá hann í
sæti ríkisstjórnarleiðtogans.
Síðustu dagar útsölunnar
Glæsilegt lokatilboð
Þú kaupir eina flík á útsölunni og önnur fylgir í kaupbæti
(aðeins greitt fyrir dýrari flíkina). Tvenn jakkaföt á verði einna,
tvær skyrtur á verði einnar o.s.frv. Gríptu tækifærið - tvisvar!
íerra
GARÐURINN
KRINGLUNNI
Þau eru komin aftur...
Sjáðu
auqlýsi
augiysinguna