Morgunblaðið - 27.01.2000, Síða 50

Morgunblaðið - 27.01.2000, Síða 50
MORGUNBLAÐIÐ 50 FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR 2000 < ............. MINNINGAR UNNUR » GUÐMUNDSDÓTTIR + Unnur Guðmunds- dóttir fæddist í Reykjavík 16. aprfl 1915. Hún lést á Landakoti 18. janúar síðastliðinn. Foreldr- ar hennar voru Þór- unn Stefanía Blöndal Ketilsdóttir, f. 20. aprfl 1881, d. 11. des. 1958, og Guðmundur Ámason, f. 4. nóv. 1878, d. 6. sept. 1938. Systkini Unnar voru fímm: Hólmfríður, f. 8. des. 1905, d. 28. nóv. 1924; Stefam'a, f. 28. júlí 1907, d. 10. ágúst 1912; Guðjón, f. 2. jan. 1909, d. 15. des. 1940; Stefán, f. 30. júlí 1912, d. 27. ágúst 1975; og Sverrir (tvíbura- bróðir Unnar), f. 16. aprfl 1915, d. 2. mai 1932. Hinn 30. mars 1946 giftist Unn- ur Kristni Eysteinssyni vélfræð- ingi, f. 5. júlí 1911 íVestmannaeyj- um. Foreldrar hans voru Þorgerður Jóhanns- dóttir, f. 13. ágúst 1888, d. 3. aprfl 1952, og Eysteinn Gunn- arsson, f. 14. júlí 1874, d. 23. nóv. 1958. Unnur og Kristinn eignuðust tvö böm. 1) Þórunn Sjöfn, f. 30. júní 1946, maki Halldór Melsted módelsmið- ur, f. 9. júlí 1946. Börn þeirra eru þijú: a) Unnur, f. 26. aprfl 1966, sambýlismað- ur Benedikt Sveins- son. Þau eiga einn son, Björn. b) Páll, f. 16. júlí 1970. Hann á eina dóttur, Þórdísi. Sambýliskona er Hulda Karlsdóttir. c) Kristinn, f. 30. nóv. 1971. Sambýliskona Bryn- dís Axelsdóttir. 2) Þorgeir Sverr- ir, f. 11. okt. 1958, járnsmiður. Útför Unnar fer fram frá Foss- vogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Af eilífðar ljósi bjarma ber, sem brautina þungu greiðir. <í Vort líf, sem svo stutt og stopult er, það stefnir á æðri ieiðir. Og upphiminn fegri en augað sér, mót ölium oss faðminn breiðir. (EinarBen.) Eftir því sem árin líða eru það fleiri vinir og vandamenn, sem kveðja okkur, það er lífsins gangur. Andlát Unnar Guðmundsdóttur frænku minnar kom ekki á óvart, því heilsu hennar hafði hrakað mikið sl. ár. Það er þó svo að þegar dauðinn kveður dyra, er það okkur alltaf erf- . i itt og hugurinn fyllist söknuði og trega. Unnur var innfæddur Reyk- víkingur og ólst upp í Grjótaþorpinu. A þeim tíma var mikill samgangur milli fólks og flestir þekktust meira eða minna í gamla miðbænum. Það var fróðlegt að heyra hana segja frá uppvaxtarárunum í Grjótaþorpinu og því fólki sem þar bjó. Hún fylgdist vel með því og afkomendum þess, því hún hafði mildnn áhuga á fólki og þekkti marga. Lífsbaráttan var hörð hjá mörgum á þessum árum og fór fjölskylda Unnar ekki varhluta af því. Foreldrar hennar slitu samvist- um og ólust börnin upp hjá móður sinni, Þórunni Ketilsdóttur, sem með hörku og dugnaði hélt heimilinu sam- an. Það voru þó fljótt höggvin skörð í barnahópinn, því þrjú dóu ung úr berklum, Stefanía fimm ára, Hólm- fríður 19 ára og Sverrir, tvíburabróð- ir Unnar, 17 ára. Þetta var á þeim ár- um þegar berklaveiki var algeng hér á landi. Bróðir hennar, Guðjón, lést einnig á besta aldri frá konu og ung- um bömum. Þessi systkinamissir var Unni sár og minntist hún þess oft. Það hefur áreiðanlega hjálpað henni mikið hversu glaðlynd og jákvæð hún var. Unnur var falleg og fíngerð kona og mjög hlýr persónuleiki, svo fólk laðaðist að henni. Aður en hún giftist vann hún lengst af í Félags- bókbandinu og lét hún alltaf vel af þeim vinnustað. Eftir að hún stofnaði til hjúskapar með eftirlifandi manni + Ástkær faðir okkar, stjúpfaðir, tengdafaðir, afi og langafi, KOLBEINN GUÐMUNDSSON frá Kílhrauni, Hrafnistu, Reykjavík, sem lést sunnudaginn 23. janúar, verður jarðsunginn frá Laugarneskirkju föstudaginn 28. janúar kl. 15.00. Kristleifur Kolbeinsson, Stefanía Erla Gunnarsdóttir, Kjartan Kolbeinsson, Helga Haraldsdóttir, Guðmundur Kolbeinsson, Kolbrún Jóhannsdóttir, Marteinn Guðlaugsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, INGIBJÖRG RAGNA ÓLAFSDÓTTIR, Fannborg 9, Kópavogi, sem lést á gjörgæsludeild Landspítalans mánudaginn 24. janúar, verður jarðsungin frá Kópavogskirkju föstudaginn 28. janúar kl. 15.00. Frímann Árnason, Guðrún Ágústa Árnadóttir, Kristmundur Jónasson, Ragna Kristmundsdóttir, Bjarni V. Halldórsson, Árni Jónas Kristmundsson, Snædís Kristmundsdóttir, Martha Guðrún Bjarnadóttir. sínum, Kristni Eysteinssyni, gerðist hún heimavinnandi húsmóðir að þeirra tíma sið. Það var mikil gæfa fyrir þau bæði að öriögin skyldu leiða þau saman. Þau voru einstaklega samrýnd hjón alla tíð. Kristinn hefur staðið sig eins og hetja í veikindum hennar sl. ár, svo og börnin þeirra tvö, Þórunn og Þor- geir Sverrir. Þau hafa líka mikið að þakka, því hún var mikil húsmóðir og umvafði fjölskyldu sína. En um- hyggja hennar náði einnig til ætt- ingja og vina, hún vildi öllum gott gjöra. Unnur var mikil handavinnukona, saumaði út og prjónaði og allt var jafn fallegt sem hún gerði. Hún var einn af stofnendum Handprjónasam- takanna og prjónaði mikið fyrir þau. Lopapeysumar hennar vom mjög eftirsóttar. Hún var mikill náttúm- unnandi og ferðuðust þau Kristinn mikið um landið. Þau fóm einnig töluvert til útlanda meðan heilsan leyfði og nutu þess mjög. Ég minnist margra góðra stunda á hinu vistlega heimili þeirra Unnar og Kristins, þangað var alltaf gott að koma. Einnig þakka ég áratuga sam- fylgd og vináttu, sem ekki gleymist. Ég votta Kristni, bömum og dóttur- bömum dýpstu samúð mína og vona að minningin um góða eiginkonu, móður og ömmu, verði þeim huggun harmi gegn. Sigríður Jakobsdóttir. BRYNHILDUR JÓHANNESDÓTTIR + Brynhildur Jó- hannesdóttir fæddist í Hafnarfirði 30. apríl 1937. Hún lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur 11. jan- úar si'ðastliðinn og fór útför hennar fram frá Kópavogs- kirkju 17. janúar. Brynhildur, eða Binna, eins og hún var jafnan nefnd, var glæsileg og hjartahlý kona. Hún var með ein- dæmum bóngóð og allt- af tilbúin til að greiða götu allra sem henni tengdust. Þar réð umhyggjan ferðinni, rík og án nokkurra skilyrða. Jákvæði, bjartsýni og hlýja vom ær og kýr Binnu. Þeir lyndiseiginleikar hennar smituðu svo sannarlega út frá sér. Brosið hennar bjarta bægði burtu áhyggjum og þreytu og smit- andi hláturinn var ekki skorinn við nögl. Sömu sögu var að segja af kræsingunum og móttökunum öllum á heimili þeirra hjóna á Akureyri. Þangað var alltaf gott að koma. Mér er sérstaklega minnisstætt þegar við fluttum norð- ur árið 1988 og ég var að segja Magnúsi frá fyrirhuguðum flutning- um en þá var hann að- eins þriggja ára. Þá sagði hann strax: „Til ömmu Binnu og Magn- úsar afa,“ og Ijómaði allur og gerði það alla tíð síðan þegar hann var að fara til ömmu og afa. Við viljum að leiðar- lokum þakka Binnu fyrir allt sem hún gerði fyrir okkur mæðginin, allt sem hún gaf okkur og við munum búa að lengi. Magnúsi, börnum, tengdabömum og bamabörnum sendum við hugheilar samúðar- kveðjur. Sorgoggleðiauðurer öllum þeimsemvilja. Ég á margt að þakka þér þegar leiðir skilja. (Hulda.) Ingibjörg Sólrún Ingimundardóttir, Magnús Blöndal Jóhannsson. + Guðrún Þorbjörg Svansdóttir fæddist í Reykjavík 3. október 1950. Hún lést á líknardeild Landspítalans 17. janúar síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Laugar- neskirkju 25. janúar. Minningar um elsku systur mína streyma fram í hugann. Um kraftmikla systur sem hnuplaði eggi frá hænsnabóndanum, nágranna okkar í Soga- mýrinni. Henni fannst rauðan úr egginu góð og þótt hún væri aðeins fimm ára kunni hún að bjarga sér. Hún var grallari í eðli sínu og fór ekki troðnar slóðir. Seinna lærði hún að bera virðingu fyrir eignum ann- arra og vildi helst ekki skulda nein- um neitt. Dugnaðurinn og sjálfsbjargarvið- leitnin vora ávallt fyrir hendi, hvort heldur hún var bamfóstra í Sví- þjóð, bóndakona og barnakennari fyrir norðan eða skrifstofu- mær og síðar skrif- stofustjóri hjá Rann- sóknarráði ríkisins. Hún komst fljótt að því að vandamálin era til að leysa þau og átti auðvelt með að tileinka sér nýjungar. Það vafð- ist ekki fyrir henni að læra flóknar skipanir setningatölvunnar á skömmum tíma þegar ég þurfti einu sinni á hjálp að halda. Þannig man ég hana, ávallt fremsta í flokki, með góðar einkunnir, ferskar hugmyndir og tilbúna að takast á við ný verkefni og vandamál. Og þegar hún fékk sitt stærsta verkefni fyrir rúmu ári kom ekki annað til greina en það yrði unnið og leyst. „Þetta verður allt í lagi,“ sagði hún. Hún var ákveðin í að sigrast á sjúkdómnum og gerði sitt besta eins og endranær. Uppgjöf var ekki hennar sterka hlið. Eins og gömlu hetjumar stóð hún meðan stætt var. Hún er hetjan mín og ég veit að hún spjarar sig í nýjum heimkynnum. Ég mun ávallt sakna hennar. Krislján. Þær gleymast ekki stundimar sem ég átti með elsku mágkonu minni á heimili hennar, þar sem ást hennar á strákunum sínum og Múllu og Skottu, kisunum sem hún bjarg- aði af götunni, leyndi sér ekki. Heim- ilið bar handbragði hennar gott vitni, um natni og smekkvísi þar sem smá- atriðin skiptu máli hvort sem um var að ræða útsaum, málun mynda eða hvað annað sem hún vann í höndun- um. Samt hafði hún góðan tíma til lest- urs góðra bóka sem hún fékk jafnvel á Netinu ef þær vora ekki fáanlegar á bókasafninu. Það var gaman að hlusta á hana segja frá því sem hún var að lesa eða heyra sögur af ferða- lögum sem fjölskyldan hafði farið í. Allt þetta verður geymt í minning- unni um hana, um þrautseigjuna og dugnaðinn sem hún sýndi í veikind- um sínum. Megi hún hvíla í friði, guð geymi hana og styrki hennar nánustu. Edda. Ég sagði stelpunum mínum, Sól og Emblu, að Guðrún frænka væri dáin. Fyrst var smáþögn, svo spurði önnur þeirra hvort Guðrún væri þá orðin engill. Ég jánkaði því. „Þá kemur hún til okkar þegar við sofum og passar okkur - af því Guðrún er svo góð!“ sagði sú stutta þá alveg sannfærð. Þær vora miklar vinkonur Guð- rúnar, heimsóttu hana reglulega síð- ustu mánuði og héldu mikið upp á þessa sterku konu. Ég vildi að ég gæti sagt það við hana beint en nú verður þetta að duga: Takk fyrir allt sem þú varst og allt sem þú gerðir. Takk fyrir allar minningar sem þú skilur eftir. Þú varst alveg ótrúlega sterk. Sunna. GUÐRÚN ÞORBJÖRG SVANSDÓTTIR EINAR ÞORSTEINSSON Persónuleg, alhliða útfararþjónusta. Sverrir Olsen, Sverrir Einarsson, útfararstjóri útfararstjóri Útfararstofa íslands Suðurhlið 35 ♦ Sími 581 3300 Allan sótarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is/ + Einar Þorsteinsson fæddist í Reykjavík 17. aprfl 1950. Hann lést í bflslysi 6. janúar síð- astliðinn og fdr útför hans fram frá Laugameskirkju 18.janúar. Minn vinur, nú legg ég ljóðið mitt, við leiði þitt orpið moldu. Og vitund min hneigir höfuð sitt, svo þjálparvana að foldu. Því sorglegar spumingar setjast að í sálarkytrunni minni: Hvað er Sá Hæsti að hafast að, með heimkölluninni þinni? Að skiija þær furður er skelfmg bágt og skáldunum vex yfir höfuð: Er sólin í hafdjúpi liggur lágt, sem löngum var geislum stöfúð. Ég kann ekki annað en þakka þér, með þessum fátæku orðum, því mér var svo kært að kynnast þér og kætast sem vinur þinn forðum. Ég græt, og ég legg við leiði þitt, mitt Ijóð handa minningu þinni. Ein kveðja sem hrærir hjarta mitt, og hljótt er í kirkjunni minni. Og þar sem ég græt við þinn grafarbarm, ég gægist til óþekktrar tíðar, þá finn ég til vissu, sem hægir harm: - Við hljótum að finnast síðar. Grétar Kristjónsson. AraLöng

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.