Morgunblaðið - 27.01.2000, Side 63

Morgunblaðið - 27.01.2000, Side 63
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR 2000 63 FRÉTTIR Námskeið í ilmolíu- fræðum Á VEGUM Lífsskólans, Vesturbergi 73, verður haldið fimm daga nám- skeið frá 12. til 16. febrúar í Aroma- ilmolíumeðferð til lækninga. Kennarar verða dr. Erwin Har- inger, prófessor við Háskólann í Miinchen og Margrét Demleitner, þerapisti við háskólasjúkrahúsið í Munchen. Dr. Erwin Haringer er starfandi læknir og hefur lagt stund á rannsóknir á lífeðlisfræði gagnvart lyktnæmi og ilmi. Hann hefur ritað mörg vísindarit um liti og ilm og far- ið víða um heim með fyrirlestra, seg- ir í fréttatilkynningu. Lífsskólinn verður með helgar- námskeið í vetur í sogæðanuddi og ilmolíumeðferð. Einnig verða nám- skeið í reikiheilun. Upplýsingar um námskeiðin verða veittar í Lífsskól- anum eftir kl. 19 á kvöldin. Dr. Erwing Haringer og Margrét Demleitner sem kenna í febrúar. Bækur um sjálfs- víg o g líf aðstand- enda eftir það LANDLÆKNISEMBÆTTIÐ hefur hvatt til umræðu um þunglyndi. Inn í þá umræðu hef- ur komið umfjöllun um sjálfsvíg. Fræðslu- og þjónustudeild kirkjunnar vill vekja athygli á tveim bókum sem geta komið að gagni í þessari umræðu. Um er að ræða hefti sem heit- ir „Um sjálfsvíg“ og er álit Þjóðmálanefndar kirkjunnar sem kom út 1997. Dr. Pétur Pétursson fjallar um trúarlega og siðferðislega afstöðu til sjálfsvíga og um hlutverk kirkj- unnar gagnvart sjálfsvígum ásamt sr. Árna Pálssyni og sr. Jóni Bjarman. Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson fjallar um sjálfsvíg í ljósi fimmta boðorðsins og sr. Sig- urður Pálsson ritar hvatningu til skólayfirvalda. Þá er erindi sem Guðrún Eggertsdóttir djákni flutti í apr- íl 1997 sem nefnist „Sjálfs- vígL.hvað svo?“ en hún er einn- ig höfundur bókar með sama titli. Sú bók fjallar um líf ætt- ingja þess sem fallið hefur fyrir eigin hendi og hvað sé til ráða fyrir þá sem eru í þeirri erfiðu og oft vonlausu aðstöðu. Hún gerir grein fyrir sögulegu sam- hengi sjálfsvíga en fjallar einnig um aðstandendur, líðan þeirra og tilfinningar. Þá er einnig fjallað um í hverju stuðningur vina og ættinga getur falist. Bækurnar fást í flestum bóka- búðum. Stjórn Félags íslenskra barnalækna Dómarar nýti sér Barnahúsið MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi ályktun stjórnar Fé- lags íslenskra barnalækna vegna Barnahúss: „Kynferðislegt ofbeldi gegn barni er alvarlegt afbrot sem yfir- leitt hefur varanleg áhrif á sálar- heill þess. Til þess að draga úr af- leiðingum verknaðarins er mikil- vægt að sem best sé hlúð að þessum ungu einstaklingum. Því er mikilvægt að þannig sé um hnútana búið að rannsókn málsins auki ekki á þá neikvæðu reynslu sem barnið hefur þegar orðið fyrir og að það fái þá bestu uppbyggjandi meðferð og ráðgjöf sem völ er á. Svonefnt Barnahús hefur nú verið starfrækt í rúmt ár. Því er ætlað að vera vettvangur rann- sókna og meðferðar barna sem orðið hafa fyrir kynferðislegu of- beldi. Þar starfar sérþjálfað starfsfólk, sem m.a. hefur hlotið þjálfun í skýrslutöku af börnum undir þessum kringumstæðum. Þar er auk þess aðstaða til læknis- skoðunar sem tveir sérfróðir lækn- ar annast. Barnahúsi er komið fyr- ir í venjulegu íbúðarhúsi og er leitast við að hafa umhverfi barn- anna sem hlýlegast. Á fyrsta starfsári hússins komu þangað 125 börn í rannsóknarviðtal, 27 börn fengu læknisskoðun og 54 börn fengu áframhaldandi meðferð og ráðgjöf. Því er ljóst að mikil þörf er á þessari starfsemi og hefur starfsfólk hússins nú þegar öðlast mikla þjálfun í meðferð þessara erfiðu mála. Starfsemi Barnahúss þykir til fyrirmyndar og hefur vakið athygli í nágrannalöndum okkar. Með breytingu á lögum um með- ferð opinberra mála í maí sl. er yf- irheyrsla yfir börnum, sem grunur er á að hafi orðið fyrir kynferðis- legu ofbeldi, nú á ábyrgð dómara. Tilgangur þessarar lagabreytingar var að koma í veg fyrir að börn þyrftu að gefa skýrslur bæði á rannsóknarstigi og fyrir dómi. Hins vegar hefur hún orðið til þess að skýrslutakan hefur í auknum mæli farið fram í dómshúsum frek- ar en í Barnahúsi. Málum sem vís- að er til Barnahúss hefur því farið mjög fækkandi ög komið hefur til tals að leggja það niður. Stjórn Félags íslenskra barna- lækna harmar að sú sérfræðiþekk- ing sem fyrir hendi er í Barnahúsi skuli ekki vera nýtt sem skyldi við skýrslutöku á börnum, sem grunað er að hafi orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi. Mikilvægt er að þessar yfir- heyrslur verði áfram í höndum eins þjálfaðs starfsfólks og kostur er. Til þess að sem mest reynsla fáist í meðferð þessara mála er æskilegt að hún sé á einum stað. Jafnframt er ótvíræður kostur fyr- ir barnið að yfirheyrsla, læknis- skoðun og meðferð fari fram í sama umhverfi og helst á sama tíma. Hvetur stjórnin því dómara landsins til að nýta sér þá aðstöðu, sérfræðiþekkingu og reynslu sem fyrir hendi er í Barnahúsi og tryggja þannig áframhaldandi starfsgrundvöll þess.“ ^tflhreÍIT og vönduð hreínlætístæki Glæsileg hreinlætistæki Ifö Cera. Innbyggt frárennsli auðveldar þrif. Tvlvirkur skolhnappur, hægt er að velja um 3ja eða 6 lítra skol. Ifö - Sænsk gæðavara T€Í1GI Smíðjuvegi 11 • 200 Kópavogur Sími: 564 1088 • Fax: 564 1089 Fást i byggiogaYðrvrerslmmm om lanð ail í nýskráninga og/eða breytínga vegna símaskrár 2000 er mánudaginn 31. janúar. Nánarí upplýsingar veitir skrífstofa símaskrár, Síðumúla 15, ísíma 550 7050. bjór varalitur skósverta egg síróp tómatsósa... Sjáðu auqlýsi auglysinguna

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.