Morgunblaðið - 01.04.2000, Síða 61

Morgunblaðið - 01.04.2000, Síða 61
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2000 61 UMRÆÐAN 62% nýrra verkefna í sinni dagskrá. Af öllum þeim mikla fjölda sam- taka og stofnana sem Reykjavik menningarborg og starfsfólk henn- ar hefur unnið með, er sérstök ástæða til að nefna samstarf við fyr- irtæki og og við sveitarfélög lands- ins. Byggðar voru upp nýjar starfsað- ferðir til að tryggja að það mikla fjármagn sem fyrirtæki leggja í ein- stök verkefni eða dagskrána í heild, skili þessum fyrirtækjum því sem til er ætlast. Enginn vafi er á að þetta samstarf við atvinnulífið á eftir að skipta verulegu máli á næstu árum, en aldrei fyrr hefur svo mikið fjár- magn fengist til menningarstarf- semi frá fyrirtækjum og nú. Samstarf við sveitarfélög hefur einnig verið yfirgripsmikið og eru þessi verkefni glæsilegur vitnis- burður um þann mikla kraft og sköpunargleði sem býr í íslending- um. Þegar er farið að undirbúa áframhald þessara verkefna, sem eru afar kærkominn hluti dagskrár- innar og mikil lyftistöng í heima- byggð. Listastofnanir ríkis og borgar og ýmsar sjálfstæðar menningarstofn- anir leggja metnað sinn í nýsköpun og krefjandi verkefni á árinu, en mikilvægt er að ekki sé grafið und- an starfsemi þeirra þótt mikil fjölg- un verði á ýmsum öðrum listvið- burðum. Ný verkefni, utan stofnana, hafa iðulega skyggt mjög á listastofnanir sem fyrir eru og hef- ur sú orðið reynslan í mörgum fyrri menningarborgum. Þessar stofnan- ir, sem bera uppi menningarstarf borganna, eiga að verða sterkari eftir árið og samstarf við hinar menningarborgirnar upphafið að enn frekari útrás íslenskra lista- manna. Framtíðarsýn Borgirnar 9 kynna hver aðra með myndarlegum hætti og sú kynning nær langt út fyrir borgarmörkin. Þannig fær Reykjavik kynningu ekki aðeins í Avignon eða Santiago, heldur einnig um allan Spán og Frakkland. Aðrar stórþjóðir sem ekki eiga menningarborg árið 2000 einsog t.d. Bretar, Þjóðverjar og jafnvel Bandaríkjamenn hafa sýnt menningarborgunum mikinn áhuga. Umfjöllun í erlendum fjölmiðlum um Reykjavík hefur verið meiri en nokkru sinni og kvarta t.d. norrænu sendiráðin í London undan því að meira sé fjallað um ísland í breskri pressu þessa mánuði en öll hin Norðurlöndin til samans. Samvinna við ferðaaðila og utanríkisþjónust- una hefur verið mikil og verður mjög umfangsmikil nú í vor og sum- ar. Enn er of snemmt að spá hver aukning kann að verða á árinu á ferðamönnum en víst er að nánast allt hótelrými í höfuðborginni er upppantað út árið. Tölur ársins um aukinn ferðamannastraum segja þó lítið ef umfjöllun erlendra fjölmiðla er ekki jákvæð og ef gestum sem koma er ekki vel sinnt. ísland á menningarári á ekki vera eins og yf- irfullt afmælisboð þar sem enginn má vera að því að sinna neinum. Megintilgangur þessa verkefnis er því ekki að fjölga ferðamönnum, heldur að bæta ímynd lands og þjóðar, draga fram það besta í menningu okkar og stuðla þannig að betri ferðamennsku til frambúðar. Svo sem fyrr hefur komið fram er það markmið okkar hjá Reykjavík menningarborg að nýta sem allra best það erlenda samstarf og þá al- þjóðlegu athygli sem verkefnið býð- ur upp á. Hefur árangur á því sviði orðið mun meiri en menn þorðu að vona. Því má þó aldrei gleyma að verkefnið er fyrst og síðast ætlað ís- lendingum sjálfum, til að lífga hér upp á gráan hversdaginn, opna gátt- ir út í heim, setja alþjóðlega mæli- stiku á íslenskt listalíf og bjóða landsmönnum upp á gróskumikið og metnaðarfullt menningarlíf. Reykjavík menningarborg er því ekki átaksverkefni heldur langtíma- markmið, tækifæri sem getur fært þjóðinni allri ríkulega uppskeru um ókomin ár. Höfundur er stjónuindi Reykjnvíkur menningnrborgar Evrópu árið 2000. Fj ölmiðlalekandi Heilbrigðiseftirlitsins ÉG VIL byipa á því f.h. svínabúsins að Vallá, að biðja íbúa Grundarhverfis afsök- unar á því að það skyldi gerast að urðunarstað- ur svína skyldi opnast og valda þeim óþæg- indum. Við erum virkilega leið yfir þessu og treystum því að slíkt gerist aldrei framar. En þetta voru nánast eins og náttúruhamfar- ir og um tíma var þessi litli sakleysislegi lækur orðinn að stórfljóti. Við hér að Vallá höf- um í gegnum tíðina reynt að ganga þokkalega um og lagt okkur fram við það að mæta þeim skilyrðum, sem okkur hafa verið sett. Þó hefir stund- um læðst að okkur sá grunur að jafn- ræðisreglur stjórnsýslunnar lægju urðaðar á einhverjum pólitískum urðunarstað þar sem hræ hugsjóna og viðleitni til góðra verka liggja. Það væri óskandi að einhver kraftur hleypti úr þeirri fjöldagröf. Viðbrögð stjómkerfisins við fyrir- huguðum framkvæmdum okkar að Melum í Melasveit voru eins og mað- ur gæti ímyndað sér að Talebanar afgreiddu beiðni kvenfélags um að fá að stofna lestrarfélag. Það yrði of langt mál að fara út í hér en setning- in að ofan segir töluvert. Það er aug- ljóst að andstaða yfirvalda gagnvart uppbyggingu að Melum hefir stór- skaðað fyrirtæki okkar og gert okk- ur geysilega erfitt fyrir. Geir Gunnar Geirsson Vegna þess hve upp- bygging á Melum hefir tafist, höfum við þurft að halda mun fleiri dýr hér en ella hefði verið. Þessvegna fylltist safn- þróin miklu fyrr. Við þurftum að létta á henni og því ókum við á mel í Saltvík og hann var ófrosinn. Almannavarnir og björgunarsveitir hafa haft Saltvík til æfinga og starfsmanni búsins var kunnugt um að í viku 12 ættu að fara fram æfingar og þess- vegna bar hann haug- inn á takmarkað svæði. DV skýrir frá því að Heilbrigðis- eftirlitið hafi áminnt svínabændur á Kjalarnesi fyrir sóðaskap og það að bera á frosna jörð. Var eigandi Stjömugríss nefndur til sögunnar. Áminningin barst í formi bréfs nokkram dögum eftir að DV birti greinina. Reyndar viðurkenndi Heilbrigðis- eftirlitið að bréfið hefði fyrst verið sent á rangan aðila en það leiðrétt seinna. En það var ekki ein báran stök. I asahláku og leysingum mánudaginn 27. mars gerist það, sem fyrst er nefnt í þessari grein, sem sagt að urðunarstaður rofnar og hræ fljóta fram og niður í fjöra. Ljóti kallinn á fjósbitanum var kominn og nú var hann alveg að rifna úr velsæld. Auð- vitað fengu fjölmiðlar sinn skerf og nú síðast í kvöldfréttum Ríkissjón- Svínahræ Það er augljóst að and- staða yfírvalda gagnvart uppbyggingu að Melum hefír stórskaðað fyrir- tæki okkar, segir Geir Gunnar Geirsson, og gert okkur geysi- lega erfítt fyrir. varps þann 29. mars fær undirritað- ur þau skilaboð frá umhverfisdeild Heilbrigðiseftirlits Rvk. að það krefjist skýringa hvers vegna starfs- menn í Sorpu kannist ekki við að hafa móttekið lífrænan úrgang frá svínabúinu að Vallá. Ef starfsmenn Sorpu kannast ekki við svínahræ í þeim lífræna úrgangi, sem frá okkur berst, er það væntan- lega fyrir það að tiltölulega lítil van- höld era á búinu og því fer lítið fyrir hræjum. Allur lífrænn úrgangur fer héðan í gámum og hefir gert um langa hríð. Ef til vill var urðað hér á Vallá eft-“ ir að það var bannað skv. reglugerð, menn haf ekki talið það stóra synd á meðan aðilum í rekstri er mismunað eins og raun er. Það má svo deila um hvort það sé rétt hjá heilbrigðisyfirvöldum að við- hafa þessa aðferð við förgun lífræns úrgangs frá landbúnaði og slátur- húsum. Auðvitað ætti að brenna allan h'f- rænan úrgang frá spítölum, rann- sóknarstofum og landbúnaði og banna endurvinnslu á hræjum til fóðurgerðar. í Bretlandi er slíkt. bannað vegna ótta við að sýkingar berist frá hráefni í fóðrið og að al- varlegir sjúkdómar framkallist. Það, sem að ofan greinir, er svar mitt til umhverfisdeildar Heilbrigð- iseftirlits Rvk. Ég bið Morgunblaðið að birta þetta svar mitt vegna þess að þessi deild Heilbrigðiseftirlitsins vill hafa þennan hátt á og sendir öll skilaboð frá sér í fjölmiðlum áður heldur en hún leitar skýringa frá þeim, sem ásakaður er. Þetta er hvimleitt til að byrja með en ef til vill venst þetta, því flestu má víst venj- ast svo gott þyki. Höfundur er bóndi á Vallá. I Mk. ÞITT FE Maestro hvarsem ÞÚ ERT a irriR UÓSTÍONI uósgnsu í GRAÐUM RAHUADA LÍFltMI RAIHLOÐO MUDUi! 626 nm. 24° víður 1 X Lithium CR-2032 124 klst. M'FÍLSlHíj GLÍILÍK 605 nm. 15° mjór 1 X Lithium CR-2032 124 klst. GUJLUií 590 nm. 15° mjór 1 X Lithium CR-2032 124 klst. 525 nm. 30° víður 1 X Lithium CR-2032 200 klst. 500 nm. 30° víður 2 X Lithium CR-2016 12- 14klst. . 470 nm. 30° víður 2 X Lithium CR-2016 12 - 14 klst. 6500 kelvin 20° mjór 2 X Uthium CR-2016 12 - 14 klst. INHtÁRÁÚttm ??? ??? 1 X Lithium CR-2032 ??? UTSÖIUST; BENSÍNSTÖÐIN ÍSAFIRÐI DROPINN KEFIAVÍK A HLAÐ SF. HÍÍSAVÍK J&J Kjarnanum Selfossi PÓLARIS EHF. AKUREYRI SJÓBÚÐIN AKUREYRI SMUR OG DEKK HORNá__ VERSLUNIN BLÁFELL GRINDAV VEEDIKOFINN Egilsstaðir VERSLUNIN VÍK NESKAUPST4 VERSLUNIN ALDAN SANDC RÁS EHF. ÞORLÁKSHÖFN ÁRBÆJARBLÓM HRAIJNB/ ÁSTUND AUSTURVERI BÍLABÚÐ BENNA VAGNHÖI BÍLANAUST VERSLANIR ELLINGSEN GRANDAGARÐI GÍSLI JÓNSSON EHF. BÍLDS GUÐMUNDUR HERMANNSSC ÚRSMIÐUR SMÁRANUM Heimskringlan Kringll HESTAVÖRUR SÍÐUMÚLA HLAÐ SF. BÍLDSHÖFÐA INTERSPORT BÍLDSHÖFÐA J. VILHJÁLMSSON BYSSUS MARKIl) ÁRMÚLA MERKÚR HF. SKÚTUVOGI NANOQ KRINGLUNNI POIARIS KÓPAVOGI RAKARASTO FAN HÓTEL ! SELECT SMÁRANUM SELECT SUÐURFELL SELECT VESTURLANDSVtí< SPORTBÚÐIN TÍTAN SI TOKYO GARÐABÆR TÖLTHEIMAR FOSSHÁLSI ÚTILÍF GLÆSIBÆ VEIÐIHORNIÐ HAFNá VI IÐIVON MÖRKIN VESTURRÖST LAUGAVFG ■M . Dreifing Veiðihúsið Sakka Hólmaslóð 4 101 : SÍMAR 898 4047 • 562 Fax 562 1095 Netfang vs.palli@xnet.i
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.