Morgunblaðið - 01.04.2000, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 01.04.2000, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið/Jón Svavarsson Sigursveit MR skipa Svanur Pétursson, Hjalti Snær Ægisson og Sverrir Teitsson. MR-sigur áttunda árið í röð MENNTASKÓLINN í Reykjavík sigraði Menntaskólann við Hamra- hlíð í úrslitaviðureign spurninga- keppni framhaldsskólanna Gettu betur í gærkvöldi. Þetta er átt- unda árið í röð sem MR ber sigur úr býtum í keppninni. Sigursveit MR skipa Svanur Pétursson, Hjalti Snær Ægisson og Sverrir Teitsson. Keppnin fór fram í Valsheimil- inu fyrir troðfullu húsi. Sigurveg- ararnir hlutu að launum Hljóð- nemann, farandbikar keppninnar sem Björn Bjarnason menntamála- ráðherra afhenti þeim. Sementsverð lækkar um 6% Skoða samein- ingu með jákvæðu hugarfari „SAMEINING þessara tveggja banka er auðvitað stór tíðindi," segir Pálmi Jónsson, formaður bankaráðs Búnaðarbankans, um þær viðræður sem nú eiga sér stað á milli íslands- banka og FBA um sameiningu bank- anna. Pálmi segir að þessi tíðindi kalli á að aðrir möguleikar séu skoðaðir, þar á meðal hugsanleg sameining Búnaðarbanka og Landsbanka. „Mín skoðun er sú að það beri að skoða það með jákvæðu hugarfari," sagði Pálmi. Aðspurður hvort ástæða væri til að flýta þessum athugunum og undir- búningi sagðist Pálmi telja rétt að gefa sér einhvem tíma í að skoða þessi mál. „Ég vil ekki setja nein tímamörk um þau efni,“ sagði Pálmi. Bankaráð Landsbankans kom saman sl. fímmtudag þar sem fjallað var um samruna á fjármálamarkaði í framhaldi af yfirlýsingu bankastjóra FBA og íslandsbanka. í yfirlýsingu bankaráðsins segir að ef til samein- ingar milli Islandsbanka og FBA komi blasi sá kostur við að sameina Landsbanka og Búnaðarbanka. Að sögn Pálma verður ekki haldinn fundur í bankaráði Búnaðarbankans fyrr en í annarri viku aprílmánaðar, en Pálmi er nú staddur erlendis. -----++-4----- Samið um flóttamenn FÉLAGSMÁLARÁÐHERRA, Páll Pétursson, hefur ákveðið að ganga til samninga við bæjarstjóm Siglu- fjarðarkaupstaðar um að taka á móti 20-25 flóttamönnum frá Krajina-hér- aði fyrrverandi Júgóslavíu. Ráðuneytið auglýsti í janúar sl. eftir áhugasömum sveitarfélögum til að taka á móti flóttamannahópi og var umsókn Siglufjarðarkaupstaðar eina umsóknin sem barst. DANSKA sementsverksmiðjan Aal- borg Portland AS hefur hafið fram- kvæmdir í Helguvík við birgða- og afgreiðslustöð fyrir sement. Pétur Jóhannsson, hafnarstjóri Hafnarsamlags Suðumesja, segir að framkvæmdum við stöðina verði lok- ið í haust, en að fyrii-tækið muni hefja innflutning og sölu á sementi í VERÐ á sementi lækkar frá og með deginum í dag um 6% að meðaltali. Þar með hefur raunverð á sementi frá Sementsverksmiðjunni hf. lækk- að um 16-17% á sextán mánaða tímabili, en verðið var lækkað um 6-7% í desember 1998. Verðlag í landinu hefur hækkað á þessu tíma- bili um 4-5%, sem ekki hefur skilað sér í hækkuðu sementsverði. Að sögn Gylfa Þórðarsonar, framkvæmdastjóra Sements- maí. „Þarna verða byggðir birgða- tankar og þjónustustöð. Fram- kvæmdir eru byrjaðar og verða í gangi í allt sumar og lýkur líklega í haust. í maí munu þeir byrja að flytja inn sement í pokum og selja og verður það geymt í vöruhúsi í Njarð- vík til að byrja með,“ segir Pétur Jó- hannsson. verksmiðjunnar hf., hefur aukin hagræðing í rekstri Sements- verksmiðjunnar á síðustu árum skilað sér í betri afkomu og kemur það neytendum til góða með lækk- andi sementsverði. Framleiðslugeta verksmiðjunnar hefur verið nýtt til fulls síðustu þrjú árin og að sögn Gylfa er gott útlit fyrir yfirstand- andi ár. Sementsverksmiðjan hf. seldi rúmlega 130 þúsund tonn af sem- Hann segir að tankarnir sem þama verði byggðir muni taka um þrjú til fjögur þúsund tonn og að sementið verði flutt hingað með skipum frá sementsverksmiðjunni í Álaborg. Sementið verður fyrst og fremst selt til steypustöðva hér á landi sem munu nota það til steinsteypuframleiðslu. enti á síðasta ári, sem er mesta sala á einu ári í ellefu ár, eða frá 1988. Gylfi segir að gera megi ráð fyrir að salan í ár verði á bilinu 120-130 þúsund tonn. „Árið fór vel af stað og salan í janúar reyndist vera sú næstmesta sem um getur í þeim mánuði frá upphafi. Salan í febrúar og mars var hins vegar með dræm- ara móti, enda viðraði illa til steypuvinnu um allt land,“ sagði Gylfi. Fyrsta skák Kasparovs gegn Kortsnoj GARRÍJ Kasparov mætir Viktor Kortsnoj í fyrstu umferð Heims- mótsins í skák sem hefst í Salnum í Kópavogi klukkan 13 í dag. Keppt er í tveimur riðlum. í A- riðli tefla Jóhann Hjartarson, Hann- es H. Stefánsson, Jón L. Árnason, Alex Wojtkiewicz, Ivap Sokolov og Viswanathan Anand. í B-riðli tefla Helgi Ólafsson, Jan Timman, Viktor Kortsnoj, Garríj Kasparov, Friðrik Ólafsson og Margeir Pétursson. Undanúrslit og úrslit fara fram á morgun, sunnudag. Gögn í Geirfínns- málinu berast ráðuneyti GÖGN í Geirfinnsmálinu eru farin að berast dómsmálaráðuneytinu eftir að ráðuneytið fór þess á leit við m.a. embætti ríkislögreglustjór- ans og sýslumanninn í Keflavík að embættin leituðu gagna sem tengd- ust málinu og afhentu ráðuneytinu. Frá sýslumanninum í Keflavík hefur borist mappa sem inniheldur afrit af skýrslum sem teknar voru við rannsókn málsins og frá ríkis- lögreglustjóra hafa komið gögn- sem embættið taldi að gætu komið ráðuneytinu að gagni. Aðdragandi þess að ráðuneytið óskaði eftir gögnunum var sá að Magnús Leópoldsson fór fram á, á grundvelli breytinga á lögum um meðferð opinberra mála í fyrravor, opinbera rannsókn á tildrögum þess að hann var grunaður um aðild að hvarfi Geirfinns Einarssonar. Farið var fram á að ríkissaksóknari fyndi gögn í málinu sem afhent voru á skrifstofu ríkissaksóknara hinn 5. janúar árið 1976. Lögmaður Magnúsar, Jón Stein- ar Gunnlaugsson, telur að í um- ræddum gögnum kunni að leynast þýðingarmiklar upplýsingar um málið. ----------------- Tilkynninga- kerfi sannaði gildi sitt NEYÐARSENDING frá sjálfvirku tilkynningakerfi Tilkynningaskyld- unnar leiddi til eftirgrennslanar eftir smábátnum Sædísi SF sem sökk suður af Selvogi í fyrrakvöld. Eiríkur Þorbjörnsson, verkefnis- stjóri hjá Tilkynningaskyldunni, segir kerfið hafa sannað gildi sitt. Farið var að svipast um eftir Sædísi SF þegar neyðarsending barst í gegnum sjálfvirkt tilkynn- ingakerfi Tilkynningaskyldunnar. Kerfið hefur enn ékki verið tekið opinberlega í notkun en það verður væntanlega nú í apríl. „Kerfið styttir viðbragðstíma úr 6 til 12 klukkustundum í 1 til 2 klukkustundir ef óhöpp verða á sjó. Þetta er fyrsta kerfi sinnar tegundar í heiminum og er að mínu mati eitt mesta framfara- skref sem stigið hefur verið í ör- yggismálum sjómanna,“ segir Eir- íkur. Smábáturinn Dodda NS sökk einnig á Selvogsgrunni í fyrra- kvöld. Ekki var sjálfvirkur tilkynn- ingaskyldubúnaður um borð í Doddu. Lögreglan í Grindavík hefur óhöppin til rannsóknar en rannsóknanefnd sjóslysa mun einnig skoða málið. Danska sementsverksmiðjan Aalborg Portland AS Hefja sölu á sementi hér á landi í maí Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.