Morgunblaðið - 01.04.2000, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 01.04.2000, Blaðsíða 34
34 LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2000 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Tsjetsjenskir skæruliðar veita enn harða mótspyrnu í Suður-Tsjetsjníu 39 rússneskir hermenn innikróaðir Moskva, Urus-Martan. AP, AFP. ENN geisa bardagar milli tsjetsj- enskra uppreisnarmanna og rúss- neskra hermanna í fjalllendi Suður- Tsjetsjníu. Yfirmenn Rússa hafa staðfest að 39 hermenn séu inni- króaðir af uppreisnarmönnum og hafi ekki tekist að rjúfa einangrun þeirra. Hermennirnir eru hluti 49 manna herflokks sem u.þ.b. 150 uppreisnar- menn veittu fyrirsát á miðvikudag. Upphaflega var hermt að tekist hefði að bjarga 16 hermönnum en í gær til- kynnti talsmaður rússneskra stjóm- valda í málefnum Tsjetsjníu, Sergei Yastrzhembsky, að einungis hefði tekist að frelsa sex og að vitað væri að fjórir hermenn hefðu fallið í bar- dögum. Ónefndur rússneskur her- maður sagði fréttamanni rússnesku RTR-ríkissjónvarpsstöðvarinnar hins vegar að átta lík rússneskra hermanna hefðu sést nálægt staðn- um þar sem umsátrið átti sér stað. Fyrirsátin á miðvikudag er eitt fjögurra hliðstæðra tilvika sem upp hafa komið á síðustu vikum. Atvikið þykir sýna að rússneski herinn sé berskjaldaður fyrir árásum upp- reisnarmanna í fjöllunum og að átök- unum sé langt því frá lokið. Á sama tíma og hernaður Rússa verður fyrir áföllum ræða ráðamenn í Kreml um pólitíska framtíð Tsjetsj- Tsjetsjenskar konur hjálpast að við að endurbyggja Reutcrs aðaljárnbrautarstöðina í Grosní í gær. níu. Nikolai Koshman, einn æðsti fulltrúi rússneskra stjómvalda í mál- efnum Tsjetsjníu, sagði í gær að hann og Vladimír Pútín forseti hefðu rætt þann möguleika að koma á beinni stjóm forsetans í héraðinu. „Unnt verður að efna til kosninga í héraðinu eftir tæp tvö ár, jafnskjótt og reglu hefur verið komið á.“ Mary Robinson, yfirmaður mann- réttindamála hjá Sameinuðu þjóðun- um, kom til Tsjetsjníu í gær og mun m.a. annars kynna sér fangabúðir þar sem uppreisnarmenn em hafðir í haldi. Ymis mannréttindasamtök hafa haldið því fram að rússneskir fangaverðir stundi það að pynta fanga reglulega. Óbirt skýrsla styður kröfur um lokun Sellafield Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. ÓBIRT skýrsla sérfræðinga á veg- um OECD um endurvinnslu kjam- orkuúrgangs sýnir að endurvinnsla eins og sú, sem fer fram í Sellafield- verinu á vegum British Nuclear Fuels, BNFL, felur aðeins í sér mjög litla endumýtingu kjamorkuúr- gangs og veldur meiri mengun en að geyma úrganginn án endurvinnslu. Um leið er hún stuðningur við sjón- armið íslendinga, Dana og fleiri landa, sem hafa leitast við að fá Sellafield-verinu lokað vegna geisla- virkrar mengunar við strendur Dan- merkur, Noregs, íslands og í norður- höfum. Skýrslan, sem var kynnt á blaða- mannafundi Greenpeace í Kaup- mannahöfn í gær, hefur ekki enn verið gerð opinber en Helen Wall- ace, vísindamaður hjá Greenpeace í London, sagði að skýrslunni hefði verið lekið til samtakanna og þau ákveðið að kynna efni hennar. Gordon MacKerron, yfirmaður orkurannsóknadeildar Sussex-há- skóla í Bretlandi, hefur farið yfir skýrsluna fyrir Greenpeace og segir að í henni séu tölur sem sýni að mengun af völdum geislunar sé 80 prósent hærri við endurnýtingu en ef kjarnorkuúrgangurinn væri geymdur á viðunandi hátt. Bæði Wallace og MacKerron segj- as vonast til þess að röksemdir Fjölmennt fylgdarlið með föður Elians Washington, Havana. AP VERÐI af heimsókn Juan Miguel Gonzalez, fiiður kúbanska flótta- drengsins, Elians Gonzalez, til Bandarikjanna mun um 30 manna fylgdarlið verða í för með honum. Stærð hópsins hefur vakið undr- un bandarískra yfirvalda, en auk föðurins og annarra ættingja er á Iistanum að finna rúman tug skólabarna og sérfræðinga á borð við sálfræðinga og geðlækna. Að sögn kúbvcrsku ríkisstjórnarinnar kemur ekki til greina að fækka fylgdarmönnunum. „AHir á listan- um eru ómissandi eigi barninu að líða vel í sínu fyrra fjölskyldu- og skýrslunnar muni vega þungt á fundi OSPAR-nefndarinnar í Danmörku í sumar, þar sem mengunin frá Sella- field verði til umræðu. Skýrslan, þrýstingur frá kjarnorkuverum í Þýskalandi og Japan, sem eru óánægð með viðskiptin við BFNL, og mótmæli Dana og Islendinga gegn verinu auka líkumar á að end- urvinnslunni verði hætt. Lengi í smíðum Skýrslan, sem um ræðir, er skrif- uð af sérfræðingum Kjarnorkustofn- unarinnar, NEA, á vegum OECD. Hafist var handa við hana að undir- lagi OSPAR-nefndarinnar 1994, en hún hefur enn ekki verið birt. OSP- AR-nefndin er grundvölluð á OSP- AR-sáttmálanum, sem gerður var 1992, og er nefndinni ætlað að hafa eftirlit með og stuðla að reglum um Norðaustur-Atlantshafið. Aðilar að sáttmálanum eru ísland, Belgía, Bretland, Danmörk, Finnland, Frakkland, Holland, Irland, Lúxem- borg, Noregur, Portúgal, Spánn, Sviss, Sviþjóð, Þýskaland og Evrópusambandið, ESB. Þótt liðin séu sex ár síðan hafist var handa við skýrslugerðina hefur hún enn ekki verið lögð fram. Green- peace hefur náð í uppkast að skýrsl- unni þar sem öll meginrökin virðast þegar hafa verið dregin saman. félagslega umhverfi," sagði í til- kynningu stjórnarinnar. Yfirvöld í Bandaríkjunum kanna nú vandlega vegabréfalöggjöfina enda gilda strangar reglur um vegabréfsáritanir Kúbveija og því ekki víst að öllum förunautum Ju- an Miguel Gonzalez verði hleypt Spurð af hverju skýrslan hefði enn ekki verið birt sagði Wallace að það væri hugsanlega sökum þess að Bretar og Frakkar hefðu ekki haft mikinn áhuga á að skýrslunni yrði lokið og hún lögð fram. Endur- vinnsluver hliðstætt Sellafield er starfrækt í La Hague í Frakklandi. Næsti fúndur OSPAR verður í Kaupmannahöfn í júní. Enn er ekki Ijóst hvort skýrslan verður lögð fram á þeim fundi. Með birtingu skýrsl- unnar nú hyggst Greenpeace vænt- anlega þrýsta á um að skýrslan verði lögð íyrir fundinn. Endurvinnsla kjarnorku- úrgangs deyjandi grein MacKerron, sem hefur verið sér- fræðingur ýmissa breskra þing- nefnda og fleiri aðila um kjarnorku- mál, benti í gær á að tveir möguleikar væru á meðhöndlun kjarnorkuúrgangs. í fyrsta lagi að geyma úrganginn, í öðru lagi að end- urvinna hann, eins og gert væri í Sellafield. Iðulega væri talað um að úrgangurinn væri þá endumýttur en orðið „endumýting" væri hins vegar rangt. í raun væri aðeins mjög lítill hluti úrgangsins endumýttur, svo nær væri að tala um endurvinnslu. Að mati MacKerrons eru í skýrsl- unni tölur, sem sýna á óyggjandi hátt að meiri mengun fylgir endur- inn í landið. Tilkynnt var fyrr í vikunni að Gonzalez hefði hug á að koma til Bandaríkjanna og dvelja hjá syni sinum er bandariskir dómstólar kvæðu upp úrskurð sinn. Fidel Castro vill að feðgarnir og föruneyti dvelji á heimili sendi- manns Kúbu í Washington. vinnslunni en geymslu og nefndi þar að mengun við endurvinnslu væri 80 prósent meiri en við geymslu. Greenpeace heldur því fram að mengunin við verið sé svo mikil að hafsbotninn þar megi flokka sem kjamorkuúrgang. I nágrenni við verið er hærri tíðni hvítblæðis meðal bama en annars staðar í Bretlandi. í skýrslunni er bent á að hugsan- lega muni finnast leið í framtíðinni til að minnka mengun við endurvinnslu. Þessa röksemd sagði MacKerron að væri erfitt að fallast á og hún virtist helst til þess fallin að draga úr öðr- um upplýsingum í skýrslunni um hið vafasama við endurvinnslu. Eldsneytið, sem Sellafield fram- leiðir er aðeins nýtanlegt í tiltölulega fáum kjarnorkuverum. Wallace benti á, að nýjasta breska kjarn- orkuverið væri ekki hannað til að skila úrgangi, sem yrði endumýttur, heldur ætti að geyma hann. Sökum niðurskurðar í kjarnorkuvopnum er enginn hörgull á eldsneyti í kjarn- orkuver, heldur er þvert á móti til gífurlegt magn af eldsneyti og end- umnna eldsneytið er dýrara. Framleiðslan hleðst upp Um fjárhagslegar forsendur rekstrarins í Sellafield sagði Wallace að erfitt væri að fá innsýn í þær, en endurvinnslan gæti tæplega skilað hagnaði nema þá hugsanlega vegna þess að japanska, svissneska og þýska stjómin gerðu samninga við bresku stjómina á áttunda áratugn- um um endurvinnslu, sem eru enn í gildi. Aðeins lítill hluti af endur- unnum úrgangi Sellafield er seldur og mestur hluti framleiðslunnar hleðst upp. Það bætir ekki úr skák að BNFL heíúr glatað trúnaðartrausti viðskiptavina sökum svindls, sem kom upp í haust. Bandaríkjastjóm hefur lýst því yfir að hún efist um að BNFL verði treyst fyrir verkefnum í Bandarílgum. Sellafield er hins vegar miklu um- fangsmeira en endurvinnslan ein- göngu. Þar em að sögn MacKerron mörg hundmð geymslubyggingar, sem hýsa geislavirkan úrgang og verið mun því verða starfrækt um ófyrirsjáanlega framtíð. Þar em í geymslu 60 tonn af geislavirkum úrgangi, sem er mesta safn þeirra efna utan hergagnageymslna. End- urvinnslan væri hins vegar deyjandi ferli, sem alls staðar væri verið að hverfa frá sökum mengunar. „Það er bara spuming um hve hratt hún deyr út,“ sagði MacKerron. AP Elian Gonzalez brosir til fjölmiðla og Kúbverja f Miami, en áfram er deilt um hvort Elian skuli til Kúbu eða vera um kyrrt í Bandaríkjunum. Olíuverð hækkar eftir lækkun VERÐ á hráolíu fór yfir 25 doll- ara fatið í London í gær og er hækkunin rakin til óvissu um birgðir þrátt fyrir ákvörðun OPEC, Samtaka olíuútflutn- ingsríkja, um að auka vinnsl- una. I Bandaríkjunum fór verð- ið í tæpa 27 dollara. Á markaðnum er nú almennt tal- ið, að nokkur tími muni líða áð- ur aukins framboðs frá OPEC- ríkjunum taki að gæta og þang- að til að minnsta kosti muni olíuverðið verða á bilinu 24 til 26 dollarar. OPEC ætlar að auka framboðið um rúmlega 1,4 millj. fata á dag og Mexíkó og Noregur, sem era utan samtak- anna, um 250.000 föt samtals. Á móti kemur, að eftirspurnin hefur aukist mikið og eykst enn er vorar á norðurhveli og birgð- ir hafa sjaldan verið jafn litlar. Frændi Jiangs sakað- ur um svik TAI Zhan, frændi Jiang Zem- ins, forseta Kína, hefur verið sakaður um að svíkja út á ann- að hundrað milljóna ísl. kr. Er hann sagður hafa falsað innsigli fasteignafyrirtækis og sett 45 húseignir þess að veði fyrir bankaskuld. Kom málið fyrir rétt í september en kommún- istaflokkurinn í Yangzhou batt enda á réttarhöldin í október. Var því borið við, að starfsleyfi fasteignaíyrirtækisins hefði verið afturkallað. Stórrán í Danmörku TVEIR vopnaðir menn komust burt með um 90 milljónir ísl. kr. er þeir rændu póstbíl í Hillerod á Sjálandi í gærmorgun. Er þetta annað mesta rán í danskri sögu. Kemur það á óvart hvað mikið fé var verið að flytja í póstbílnum og er nú verið að kanna það mál. Ekki var um að ræða brynvarða bifreið enda fáar shkar í Danmörku, heldur bara venjulegan bíl og ómerkt- an. Þá era ökumenn á þessum bílum aldrei vopnaðir. Mesta rán í Danmörku var framið í nóvember 1988 er fimm menn rændu um 130 millj. ísl. kr. á aðalpósthúsinu í Kaupmanna- höfn. Margir vildu selja nýra FJÖLDI manna hefur gefið sig fram í Bretlandi og boðist til að selja úr sér annað nýrað fyrir 117 millj. kr. Kaupandinn heitir Mick Taylor, 26 ára gamall, en hann hefur þjáðst af nýrna- bresti frá 11 ára aldri. Tvisvar hefur verið grætt í hann nýra en líkaminn hafnaði því fyrra eftir ár og því síðara eftir þrjú og hálft ár. Nú bíður hann eftir nýju nýra og var svo heppinn að vinna um 480 millj. ísl. kr. í lottóinu. Bresk lög banna hins vegar sölu á líffæram og Taylor hefur því dregið tilboðið til baka. Hafa margir, ekki síst læknar, hneykslast á tilboðinu og alveg sérstaklega á því fólki, sem er tilbúið til að selja úr sér líffærin.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.