Morgunblaðið - 01.04.2000, Blaðsíða 68

Morgunblaðið - 01.04.2000, Blaðsíða 68
68 LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2000 MORGUNBLAÐIÐ MÚSÍKTILRAUNIR Söngvan Raddlausrar raddar á flugi. Söngvari Ecko stöð sig sérdeilis vel. Ljósmynd/Erna Björt Liðsmenn Kraumfengins stóðu sig allir með prýði. Gítarleikari Decadent Podunk var í miklu stuði. Skörungur magnaði upp svart- málmsstemmningu. Afró-menn létu hyóðfærin tala. Liðsmenn Smarty Pants fóru á kostum í stælum. Dissan Bunny tapaði söngvaran- um óforvarandis. Landsbyggðar- rokkið lifír góðu lífi TONLIST Tónabær Siðasta undanúrslitakvöld Músíktil- rauna, haldið í Tónabæ sl. fimmtu- dagskvöld. Þátt tóku Kraumfeng- inn, Skörungur, Decadent Podunk, Ntfrissan Bunny, Raddlaus rödd, Ecko, Smarty Pants, Opium og Afró. SÍÐASTA tilraunakvöld Músítkil- rauna er helgað hljómsveitum utan af landi, enda hægast fyrir þær að taka þátt þá ef þær komast í úrslit á annað borð. Hljómsveitimar voru víða að líkt og jafnan, frá Eskifirði/ Reyðarfirði, Dalvík, Akranesi, Húsa- vík, Keflavík, Sauðárkróki, Laugar- vatni, ísafirði, Ólafsfirði og Akur- eyri, en léku flestar keimlíka tónlist, rokk í þyngri kantinum. Fyrsta sveit á svið, Kraumfeng- inn, stakk reyndar nokkuð í stúf, lék Mezzofortefönk með skólabókarsóló- um. Liðsmenn stóðu sig allir með prýði þó lögin hafi verið heldur átakalaus, sérstaklega var hljóm- borðsleikarinn öflugur. Skörungur sem kom næstur stakk einnig í stúf, en ekki bara við hljóm- sveitirnar þetta kvöld heldur allar aðra sveitir músíktilrauna þetta árið. Hann lék einskonar dauðatölvupönk, og nýtti hljóðsmala og trommuheila, en talsvert hefði tónlistin orðið magnaðri ef hann hefði haft öfluga hljómsveit á bak við sig. Hann stóð sig þó með prýði og magnaði upp slíka svartmálmsstemmningu að þegar aðstoðarkona hans henti til áheyrenda samanbrotnum bréf- sneplum með auglýsingu hljómsveit- arinnar hrukku þeir upp til handa og fóta af ótta við að verið væri að dreifa yfir þá einhverju djöfullegu. Decadent Podunk setti síðan í rokkgír, kom vel æfð til leiks og ákveðin. Liðsmenn héldu sig við klassíkt þungarokk og gerðu það vel með öguðum gítarleik og kraftmikl- um söng, sérstaklega í öðru lagi sínu sem var hreint afbragð. Næsta sveit á eftir, Dissan Bunny, var ekki eins vel undir tilraunirnar búin og þannig var fyrsta lag sveitar- innar hálfkarað, eiginlega ekki nema langur inngangur að lagi. Ekki bætti úr skák að gítar var allt of lágt stillt- ur framan af laginu. Það verður að segja þeim Dissan Bunny-félögum til málsbóta að þeir stóðu uppi söngv- aralausir rétt fyrir tilraunirnar sem hefur eflaust sett undirbúning í upp- nám. Þeir þurfa þó að búa sig mun betur undir tónleikahald, skerpa á lagasmíðum og henda út öllum óþarfa flækjum og æfa vel og lengi. Raddlaus rödd tók þátt í síðustu tilraunum. Sveitin hefur ekki lagt mikla rækt við æfingar síðan þá, þó gítar- og trommuleik hafi farið mjög fram. Það vantaði fyllingu í leik sveitarinnar og bassaleikur var full firumstæður. Söngur var líka ómót- aður og ekki nóg að syngja eins og Óttarr Proppé til að verða góður. I síðasta laginu komst söngvarinn þó á visst flug, en ekki víst að telja megi það sveitinni til tekna. Lokalagið var endalaust og að það hafi verið sæmi- lega áhugavert í upphafi var það orð- ið eins og leiður gestur í lokin. Eftir hlé birtust á sviði aldursfor- setar tilraunanna að þessu sinni, Smarty Pants, og fóru á kostum í stælum. Tónlistin var kraftmikið pönkað rokk, verulega vel flutt á köflum, en söngurinn leiðigjarnt ösk- ur sífellt í sömu tónhæð. Þeir félagar sýndu mikið æðruleysi þegar gítar- strengur slitnaði í miðju lagi og eins og sönnum rokkurum sæmir var ekkert verið að stoppa, bara spýtt í lófana og ætt áfram. Ópíum var öflugasta hljómsveit kvöldsins, sú sem best var undirbúin með útpæld lög og massífa keyrslu. Söngvari sveitarinnar var vel fjöl- breyttur, trymbillinn öflugur og traustur og bassaleikarinn fór á kostum. Ekki má svo gleyma gítar- parinu sem spilaði sem einn maður með risagítar. Ecko breytti heldur betur um stíl og stefnu í dagskránni; í stað mylj- andi rokks kom grípandi gítarpopp, ágætlega gert. Lög sveitarinnar voru prýðilega samin, þó það sé hjá- kátlegt að heyra fermingarunglinga syngja um ástarævintýri fyrir átta árum. Söngvari sveitarinnar stóð sig sérdeilis vel, mikið efni. Afró kom síðust á svið og byrjaði leik sinn á að slíta streng. Það kallaði á stutta töf, en svo var haldið af stað að nýju í ágætis keyrslu. Tvö fyrstu lögin voru án söngs og heldur and- litslaus fyrir vikið. Þriðja lag sveitar- innar var best, en í því voru líka nokkrar viðeigandi söngrokur. Frammistaða Smarty Pants skil- aði þeim sigursætinu úr sal, en dómnefnd sendi áfram Ópíum og Decadent Podunk. Árni Matthíasson Langur laugardagur LINSAN Laugavegur 8 • 551 4800
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.