Morgunblaðið - 01.04.2000, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2000 39
NEYTENDUR
Margrét Rögnvaldsdóttir hjá Whittard of London var að kynna nýja sælkeralínu frá
Skotlandi. Um er að ræða sultur, sósur, sinnep, hunang, mauk, ávexti, edik, olíur og
smákökur og hægt er að velja úr yfír 50 tegundum. Meðal annars eru þar nýjungar eins
og sinnep með sólþurrkuðum tómötum og tómatamauk með kryddi.
FrábíAíi
auðvelffl||
Það tekur uðeins.4’
gimilegaoajÉ^
Stcinn
Systumar Ásdís og Hildur Einarsdætur hjá fyrirtækinu Heimapizzu vom að kynna ofn
til að baka í pítsur. Það tekur um fjórar mínútur að baka 12 tommu pítsu með þessum
hætti og einnig er hægt að hita upp frosnar pítsur. Þá er líka hægt að baka brauð eins og
pítubrauð, naanbrauð og tortillur í pítsuofninum.
Sýningin Matur 2000 stendur fram á sunnudag
200 fyrirtæki sýna
vörur o g þjónustu
Harðfískflögur, sinnep
með sólþurrkuðum
tómötum, jalapeno-
ostastangir og ferskt
sushi er meðal nýjunga
á sýningunni Matur
2000 sem nú stendur
yfír um helgina.
Það eru hátt í 200 fyrirtæki sem
sýna vörur og þjónustu á sýning-
unni Matur 2000 sem stendur yfir í
Tennishöllinni í Kópavogi og lýkur
á sunnudagskvöld. Auk þess sem
gestum sýningarinnar gefst kostur
á að kynna sér nýjungar geta þeir
bragðað á ýmsu góðgæti eins og
fersku pasta, nýbökuðu brauði,
kökum og nýlöguðu kaffi. Boðið er
upp á sýnikennslu í blómaskreyt-
ingum og haldnar verða tískusýn-
ingar á samkvæmisfatnaði og fatn-
aði fyrir brúðkaup. Þá munu
gestakokkar elda fyrir gesti og
svara spurningum.
Keppt í framreiðslu sjávarrétta
í tengslum við sýninguna fer
fram keppni á ýmsum sviðum á
vegum fagfélaga og koma sumir
keppendur og dómarar erlendis
frá.
A sýningunni verður haldin
keppni menningarborga Evrópu
árið 2000 í framreiðslu sjávarrétta.
Alls keppa fimm um þennan titil.
Þá verður einnig keppt um titiiinn
„Matreiðslumaður ársins 2000“ og
að þessu sinni eru það átta mat-
reiðslumenn sem keppa um þann
titil.
Norðurlandamót vínþjóna verð-
ur einnig haldið í tengslum við sýn-
inguna svo og keppni barþjóna og
framreiðsluþjóna.
Kökuskreytingakeppni
Þá verður sérstök kökuskreyt-
ingakeppni auk þess sem bakara-
nemar halda keppni.
Kjötiðnaðarmenn kynna úrslit í
keppni kjötiðnaðarmanna.
I íyrsta skipti er nú haldið ís-
landsmót kaffibarþjóna og er úr-
slitakeppnin haldin á sýningunni.
Nokkur áhersla er lögð á brúð-
kaup, boðið verður upp á sýningu á
fatnaði fyrir brúðkaup og sett verð-
ur upp brúðkaupsveisla á sýning-
unni í dag, laugardag, þegar nýgift
hjón koma beint úr kirkjunni og
bjóða gestum sínum til veislu.
Bjarni Óskarsson hjá Sælkerabúðinni var að kynna ýmsar nýjungar
eins og t.d. ferskt sushi, svo og frosið, sem kemur tilbúið til neyslu.
Á vegum Snæfisks var verið að
kynna frosnar sósur sem seldar
eru í „dropum" í kílóavís. Sós-
umar em spánskar og tilbúnar
til neyslu þegar þær þiðna.
kynna harðfiskskífur fyrir
Gullfisk, sem tók þrjú ár að
þróa í samvinnu við Rann-
sóknastofnun fiskiðnaðarins.
Nýjungar hafa verið að bætast í Pastó línuna að undanförnu, til dæm-
is tortellini með grísakjöti og reyktri skinku. Á myndinni em, frá
vinstri, Ragnar M. Kristjánsson, Jón Ingi Ólafsson og Jón Vilhjálms-
son, en að sögn þeirra em ýmsar fleiri nýjungar væntanlegar.
Morgunblaðið/Golli
Matreiðslumaðurinn Peter Manina kom hingað til lands frá Italíu til
að kynna fyrir gestum sýningarinnar vömr frá Sacla en það em m.a.
pastasósur, rautt og grænt pestó og siðan það sem kallast L’Anti-
pastó og em t.d. sólþurrkaðir tómatar, villtir sveppir, kryddlegin
þistilhjörtu, grænar og svartar ólífur, svo og blönduð paprika.
Það er ekki bara matvara á sýningunni Matur 2000. Fyrirtækið Blóm
og list er með lagt á borð fyrir brúðkaup. I dag, laugardag, verða
nýgift hjón gestir á sýningunni og halda þar veislu sína.
RÝMINGARSALA
Mikil verðlækkun
T.d. borðstofuborð m. 6 stólum og skenki:
Áður 260.000 kr., nú 159.000 kr.
Opið þessa helgi
frá kl. 12-16
Euro og Visa raðgreiðslur
ANTIIC GALLERY
Vegmúla 2, sími 588 8600