Morgunblaðið - 01.04.2000, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 01.04.2000, Blaðsíða 42
Associated Press í Bandaríkjunum færist í vöxt að MS-sjúklingar og fleiri fái kannabis en margir þeirra halda því fram að efnið lini þjáningar þeirra. Um þetta er þ<5 víða hart deilt. Á myndinni reykir bandarísk stúlka, Sandra Rocha, (t.v.) marijúana-pípu en hún þjáist af MS og hefur fengið sérstakt skír- teini afhent frá lögregluyfirvöldum í bænum Eureka í Kaliforníu sem staðfestir að henni sé heimilt að neyta efnisins. Stjórnvöld í Bretlandi Kannabis verði löglegt lyf Medical News Today. BRESK stjómvöld munu á næst- unni lögleiða notkun kannabis í læknisfræðilegum tilgangi. Fólki sem þjáist af MS og öðrum sjúkdóm- um sem valda miklum kvölum verður leyft að nota efnið. Endanlegt samþykki verður veitt í kjölfar tilrauna á fólki sem búist er við að staðfesti kosti kannabis. Rannsóknir á músum, sem gerðar voru við University College í Lond- on, leiddu í ljós að efnið getur dregið úr sumum af kvalafullum einkennum MS og komið í veg fyrir verki og skálfta í vöðvum. Tilraunum verði flýtt Fjórir þingmenn Verkamanna- flokksins hafa lagt til að ríkisstjórnin veiti þetta leyfi, tilraunum á fólki verði flýtt og lögreglu gefin fyrir- mæli um að láta það óátalið að fólk með MS, alnæmi eða gigt noti kannabis samkvæmt læknisráði til að draga úr kvölum. Þingmennimir sögðu að sjúkling- ar ættu ekki að „neyðast til að kaupa ólögleg lyf eða eiga sífellt yfir höfði sér ákæru“. Sjúkt fólk og dauðvona ætti ekki að lenda í fremstu víglínu í baráttunni við eiturlyf. Vilja þing- mennirair að fólki verði leyft að nota hrákannabis uns þróað hefur verið lyf úr virku efnunum í því. Mun skaðlegra en tóbak Bresk heilbrigðisyfirvöld hafa þó efasemdir um notkun hrákannabis vegna þess að sum efni í því eru skaðleg. Tjörumagn í því er þrisvar sinnum meira en er í venjulegum síg- arettum og nýleg rannsókn bendir til þess að ef reyktir eru fjórir kanna- bisvindlingar valdi það jafn miklum lungnaskaða og ef reyktar eru tutt- ugu sígarettur. Nýrnaígræðsla án blóðgjafar MAÐUR sem af trúarástæðum getur ekki þegið blóð gekkst ný- lega undir aðgerð þar sem nýra úr konu hans var grætt í hann, að því er breska ríkisútvarpið, BBC, greindi frá. Óvenjulegt er að eigin- kona geti gefið manni sínum líf- færi, en einnig var óvenjulegt við að bæði hjónin, Alf og Marie Hoyle, gátu ekki þegið blóð við að- gerðina, þar eð þau eru Vottar Jehóva, sem af trúarlegum ástæð- um mega ekki þiggja blóð. Aðgerðin fór fram á St. James- sjúkrahúsinu í Leeds, þar sem læknar hafa verið að þróa aðgerðir án blóðgjafa. Er blóð sjúklingsins sjálfs varðveitt eftir því sem kost- ur er, og því veitt aftur inn í líkam- ann á meðan á aðgerðinni stendur. Bæði hjónin eru á góðum batavegi, en ef neyðarástand hefði skapast á meðan aðgerðinni stóð hefðu bæði hjónin getað látist þar eð ekki hefði verið hægt að bjarga þeim með blóðgjöf. Þessi aðferð er oft notuð við að- gerðir í Bandaríkjunum, t.d. við hjartaaðgerðir, en í Bretlandi eru svona flóknar aðgerðir sjaldan gerðar án blóðgjafar. Einn lækn- anna, sem tók þátt í aðgerðinni, Steve Pollard, hefur áður fram- kvæmt lifrarígræðslu án blóðgjaf- ar. Vottar Jehóva segja að í Bibl- íunni séu að minnsta kosti 400 til- vitnanir þar sem bann sé lagt við því að þiggja blóð. Pollard sagðist vita að á sumum sjúkrahúsum myndu menn ekki vera reiðubúnir til að framkvæma aðgerðir með þessum hætti. „En við erum ekki að taka áhættuna, það eru sjúk- lingarnir sem taka hana.“ Fótkuldi og járnskortur Magnús Jóhannsson læknir svarar spurningum lesenda Fyrir nokkru var birt spurning um hand- og fótkulda og í svar- inu voru raktar ýmsar hugsan- legar ástæður fyrir honum. Síðan þetta svar var birt hefur mér borist vitneskja um að hand- og fótkuldi geti stafað af járnskorti. Jámskortur er algengt vandamál og þess vegna er ástæða til að lýsa honum nánar. Járn er nauðsynlegt fyrir líkamann til að mynda blóðrauða sem flytur súrefni og kolsýru um blóðrásina en það er einnig nauð- synlegt fyrir ýmis ensím eða efnahvata til að þeir starfi eðli- lega. Járnskortur leiðir til blóð- leysis en vegna ensímanna veld- ur hann ýmsum öðrum einkennum í líkamanum. Heild- armagn járns í líkamanum er 2-4 g og er meira magn í körlum en konum. Mikill meirihluti þessa járns er í blóðrauðanum í rauðu blóðkornunum eða 70-95% af heildarmagni í líkamanum. Af- ganginn er að finna í ýmsum frumum víðs vegar í líkamanum. Eðlilegt er að líkaminn tapi um 1 mg af járni á sólarhring, einkum í frumum sem losna af húðinni og úr þekju meltingarfæranna, og þetta þurfum við að bæta okkur upp með fæðunni. Það magn sem konur tapa með tíðablæðingum skiptir miklu máli og er að meðaltali sem svarar 0,7 Blóðleysi mg á sólarhring. Sumar konur tapa þó mun meiru eða allt að 5 sinnum þessu magni og getur það auðveldlega leitt af sér jára- skort. Á Vesturlöndum er talið að allt að 25% kvenna á bam- eignaaldri séu með járnskort. Járnskortur er því langalgeng- asti hörgulsjúkdómur sem við þekkjum. í flestum tilfellum staf- ar járnskortur af langvarandi blóðmissi, með tíðablóði, blæð- ingu í meltingarfærum eða þvag- færum. Við blæðingu í meltingar- færum verður saurinn dökkur eða jafnvel kolsvartur og við blæðingu í nýrum eða annars staðar í þvagfærum verður þvag- ið rautt eða brúnt. Miklu sjaldn- ar stafar járnskortur af aukinni þörf, t.d. þegar einstaklingurinn vex hratt eða á síðari hluta með- göngu, eða af minnkuðu frásogi frá meltingarfærum, t.d. eftir brottnám magans eða við vissa meltingarfærasjúkdóma. Járn- skortur vegna lélegrar fæðu er þekktur en er ákaflega sjaldgæft fyrirbæri. Sum einkenni járn- skorts eru vegna járnskortsblóð- leysisins en önnur eru vegna áhrifa á ensím og má nefna fölva, þreytu, minnkað úthald, særindi í munni og tungu, kyngingar- örðugleika, aflagaðar neglur og hand- og fótkulda. Járnskort er tiltölulega auðvelt að greina með blóðrannsókn og ef hann er til staðar er mikilvægt að finna or- sökina sem oft er langvarandi blæðing eins og áður greinir. Ef um blóðtap er að ræða verður að stöðva það og síðan gefa járn. Járn er best að gefa til inn- töku, oftast á töfluformi, og einn- ig er gott að neyta járnríkrar fæðu eins og t.d. sláturs og lifrar. Þeir sem ekki þola járntöflur geta þurft að fá sprautur. C- vítamín í hóflegu magni (t.d. 100 mg á dag) eykur nýtingu járns úr fæðu og töflum og er því gott að taka það með. • Á NETINU: Nálgast má skríf Aíagnúsar Jtf/iannssonar um lækn- isfræðileg efni á heimasíðu hans á Netinu. Slóðin er: http:// www.hi.is/~magjoh/ Lesendur Morgunblaðsins geta spurt lækninn um það sem þeim liggurá lijarta. Tekið erá móti spurningum á virkum dögum milli klukkan 10 og 17 ísíma 5691100 og bréfum eða súnbréfum merkt: Vikulok. Fax 5691222. Einnig geta lesendur scnt fyrirspumir sínar með tölvupósti á netfang Magnúsar Jóhannssonar elmag- (ShotmaU.com
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.