Morgunblaðið - 01.04.2000, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 01.04.2000, Blaðsíða 64
64 LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2000 J?----------------------- UMRÆÐAN SKOÐUN MORGUNBLAÐIÐ -1 A að hengja lögmann fyrir biskup? FRÚ Margrét Kjartansdóttir, sem flytur inn inn vörur frá þrælaríkinu Indl- andi, spyr mig: „Har- aldur skrifar í grein *%inni að við ættum að kaupa indverskum börnum frelsi. Hvem- ig eiga þau viðskipti að fara fram?“ Enn- fremur spyr hún: „ Er ekki nær að hjálpa Indverjum að hjálpa sér sjálfir og það ger- um við með því að eiga við þá viðskipti og efla atvinnulíf þeirra en ekki með því að kaupa þeim frelsi, hvað sem það nú er Ég tel rétt að árétta það, að það er herra Karl Sigurbjörnsson bisk- up, sem sem biður íslenskan al- rnúga að hjálpa til við að kaupa ••sfendlandsbörnum frelsi. Frú Mar- grét á því að spyrja biskup um þetta en ekki mig. Ég hefí tekið undir sjónarmið biskups og bent á auðvelda leið til þess að fá fé til verksins. Það er að hætta við að senda forseta lýðveldisins til þessa þrælaríkis og nota ætlaðan farar- eyri til að kaupa þrælunum frelsi. Haraldur Blöndal Jafnframt hefi ég sagt, að það eigi ekki að hafa viðskipti við þetta þrælaland. I fréttum útvarps fyrir skömmu var sagt frá því, að ofsóknir gegn kristnum mönn- um færðust í aukana á Indlandi og væri al- gengt, að nunnum væri nauðgað og prestar drepnir. I fyrri grein minni lýsti ég því, hvernig örlög- um ekkna er háttað, og hvernig stór hluti þjóðarinnar er af trúarástæðum ekki talinn til manna. I mörg ár höfðu íslendingar ekki viðskipti við Suður-Afríku vegna stefnu þess ríkis í kynþáttamálum. Hvítir Suður-Afríkumenn voru englar í viðskiptum sínum við svarta meðbræður sína miðað við framkomu Indverja við sína með- bræður. Ég efa það ekki, að það er hægt að finna 20 þús. manna borg í 900 millj. manna ríki, þar sem vesöldin blasir ekki við öllum. Þó grunar mig, að ef frú Margrét færi í Indland Hætta á við að senda forseta lýðveldisins til þessa þrælaríkis, segir Haraldur Blöndal, og nota ætlaðan farar- eyri til að kaupa þrælunum frelsi. skúmaskot í þessari húsgagnaborg sinni, myndi hún finna þar lítil þrælabörn, sem höfð eru til að raspa eða rífa lit, eins og íslenzkir sakamenn á Brimarhólmi. Frú Margrét er með þá bábilju, að Indverjar þurfí á hjálp að halda frá Vesturlöndum. Það er mikill misskilningur. Indverjar búa í auð- ugu landi og hafa öll efni til að skapa gott þjóðfélag. Þeir búa t.d. við svo mikla tæknikunnáttu, að þeir eiga sér kjarnorkuvopn, sem þeir smíðuðu til þess að kasta á granna sína Pakistana. Það sem heftir för þeirra til betri lífskjara er, að þeir hafa kosið sér lífsháttu, sem felur í sér mannfyrirlitningu og mannhatur. Þess vegna eigum við ekki að hafa viðskipti við þessa menn. Eftirfarandi sjónarmið Margrét- ar á þjóðkirkjunni má hún hafa fyr- ir sjálfa sig: „Prestar þeirra ráðast ekki á fólk og þurfa ekki að biðjast opin- berlega afsökunar á framferði sínu, svo ég tali nú ekki um biskupa og ekki liggja þeir í brennivíninu." Höfundur er lögmaður. „ Alspilaborgin hrunin - fjárfestar snúa við blaðinu ÁLVERSFARSINN á Austur- landi tók nýjan snúning um miðja þessa viku. Opnað var inn í bakher- bergi fjárfesta sem nú hafa koll- varpað stóriðjudæmi ríkisstjórnar- innar í einu vetfangi. Fljótsdalsvirkjun sem lagt hefur undir sig þjóðmálaumræðuna í mörg ár og upptók tíma Alþingis fyrri hluta vetrar hefur nú yerið sett til hliðar og "%r væntanlega brátt úr sögunni. I hennar stað er teflt fram umdeildri Kárahnjúkavirkjun til að þjóna 240 þúsund tonna byrjunaráfanga í risaálverksmiðju við Reyðarfjörð. Valgerð- ur iðnaðarráðherra gekk fram í sviðsljósið og hneigði sig fyrir hönd Halldórs Ás- grímssonar. Umhverfisráðherrann sást hins vegar hvergi, enda ekki bergnumin af Eyjabökkum. Nýtt sjónarspil er að hefjast, en á engu traustari grunni en hið fyrra. Spila- þorg stóriðjunnar eystra er að farynja. Reiknistokkur fjárfestanna Tvö og hálft ár eru liðin frá því að formaður Framsóknarflokksins kynnti Austfirðingum fagnaðarer- indi sitt um risaálbræðslu. Álíka lengi hefur verið tekist á um kröf- una um að farið verði að leikreglum og Fljótsdalsvirkjun sett í lögform- legt umhverfismat. Á þetta máttu ráðherr- amir ekki heyra minnst, handjárnuðu þá sem þeir komu höndum yfir á Alþingi og kvörnuðu út úr Samfylkingunni sér til stuðnings. Nú, aðeins þremur mánuðum eft- ir sögulega atkvæða- greiðslu í þinginu, er hið ómögulega í einu vetfangi í lagi, ekki fyrir tilverknað ráð- herranna heldur eftir að peningamenn tóku upp reiknistokkinn. Eyjabakka verður hægt að friðlýsa og frekari bollaleggingar fara í mat lögum samkvæmt. I stað 2003 nefn- ir forstjóri Landsvirkjunar nú árin 2007 eða 2008 að hægt verði að ræsa virkjun til að knýja álverksmiðju! AHa orkunýtingu í endurmat Búið er að fara hroðalega með Austfirðinga í þessu sjónarspili og setja um leið Island allt á annan Hjörleifur Guttormsson Mikið úrval af fallegum rúmfatnaii \ Skólavörðustíg 21, Reykjavík, síini 551 4050 Bókhaldskerfi ^l KERFISÞRÓUN HF. http://www.kerfisthroun.is/ Álver Gömul orðtæki ganga nú, segir Hjörleifur Guttormsson, í endur- nýjun lífdaga - ekki er öll vitleysa eins! endann. Nú er brýnt að linni og bætt verði fyrir þann skaða sem hlotist hefur. Stóriðjuhugsuninni þarf að víkja til hliðar og setja öll orkunýtingaráform í rækilegt end- urmat, m.a. með vetnissamfélag 21. aldar í huga. Gripið verði strax til verndaraðgerða á Eyjabakkasvæð- inu og stefnt að stofnun Snæfells- þjóðgarðs hið íyrsta. Hlúa þarf að víðtækri nýsköpun í atvinnulífi á öllu Austurlandi og leggja fé í sam- göngubætur sem um munar með jarðgöngum á tveimur stöðum, þ.e. milli Héraðs og Vopnafjarðar og miðsvæðis á Austfjörðum. Framsóknarforystan suður? Brýnt er að treysta félagslega stöðu landsbyggðarinnar og hverfa í því samhengi frá óheillavænlegri breytingu á kjördæmaskipan. Ef fyrirliggjandi tillögur meirihluta kosningalaganefndar ná fram að ganga hverfur Austfirðingafjórð- ungur af sjónarsviðinu í fyrsta sinn frá þjóðveldisöld. Endileysa þessa máls birtist mönnum í togstreitunni um hvorum megin hryggjar Austur-Skaftafells- sýsla eigi að liggja. Það er nú í há- mælum að framsóknarforystan hafi sveiflað mörkum Suðurlands austur að Lónsheiði þegar fjárfestarnir sýndu þeim á spilin og álborgin hrundi. Gömul orðtæki ganga nú í endumýjun lífdaga - ekki er öll vit- leysa eins! Höfundur er fyrrverandi alþingismaður. Frelsi SÉRSTAKT væri ef ekki kæmu fram mis- munandi sjónarmið við samningsgerð af svip- uðum toga og nýi bú- vörusamningurinn er. Þar eru mörg efni til úrlausnar og enn fleiri til álita. I raun takast þar á tveir stríðir straumar, frelsis og forsjár. Frjálsræði hefur jafnan átt sterk- ar rætur í hugskoti ís- lenska bóndans. Það ræðst af samskiptum hans við landið og fjöl- breytilegan starfs- vettvang. Hér er m.a. að finna skýr- inguna á að bændur margir hverjir hafa látið sér lynda þótt þeir byggju við eitthvað lakari kjör en gerðist meðal skyldra starfshópa. Forsjárhyggjan handhæg lausn Það er alkunna að þegar vanda ber að höndum í einstökum grein- um atvinnulífsins er forsjárhyggjan þekkt leið til úrlausnar. Að hverfa frá slíkum áherslum hefur ekki reynst á allra færi, raunar langt því frá, en eins og dæmin sanna og ís- lensk hagsaga staðfestir hefur jafn- an fengist skjótur árangur þegar vilji og þrek hefur verið fyrir hendi til að kasta forræðishyggjunni fyrir róða. Nærtækasta dæmið hér um er efnahagsbatinn á síðasta áratug, þar sem Davíð Oddsson lýsti í upp- hafi yfir að sjóðatímabilinu væri lokið. Stærsti kostur frjálslyndra hug- mynda er hversu einfaldar og auð- skildar þær jafnan eru. Þessar staðreyndir eiga ekki síður við í landbúnaði en í öðrum greinum. I ljósi þess er nauðsynlegt að horfa til nýja búvörusamningsins, en þar var ráðum frjáslyndra hugmynda og sjálfræðis um frjáls viðskipti í framleiðslu sauðfjárafurða í raun hafnað. Eins var um þær áherslur að stuðningur ríkisvaldsins færi í enn ríkari mæli til bænda og að komið væri á virku markaðsstarfi fyrir sauðfjárafurðir hér á landi, en sérstaklega þó erlendis. Þessar mikilvægu áherslur og aðrar af sama toga nutu auðvitað ekki náðar forsjárhyggjunnar. Hún fór líka með sigur af hólmi. Svarti milljarðurinn Einn milljárð þurfti til að stöðva þá óhæfu að sauðfjárbændum væri heimilt að njóta þess frelsis sem í því felst að eiga viðskipti sín á milli með framleiðslurétt. Svoleiðis kúnstum ber forræðishyggjunni að hafa gát á. Nauðsynlegt er að leit- ast við að meta hvernig þessi millja- rður skilar sér inn í hagkerfi sauð- fjárræktarinnar, jafn mikið fé og hér er á ferðinni. Af þeim 45 þús- und ærgildum sem þessi milljarður á að kaupa út úr sauðfjárframleiðsl- unni verður 25 þúsund ærgildum úthlutað aftur til baka. Þessi endur- úthlutun nemur ca. 108 millj. króna, en það gerir 7% aukningu miðað við þær beingreiðslur sem eftir lifa að loknum uppkaupunum. Væru þess- ar greiðslur skoðaðar í samhengi við afkomu í sauðfjárbúskap, eins og verið hefur í þessari búgrein á síðustu árum, má fá góða mynd af þeirri arðsemi sem felst í samning- num. Til nánari skýringar er auð- velt að skoða afkomu í sauðfjárbú- skap árið 1998, þ.e. síðasta ár sem afkomutölur liggja fyrir um sam- kvæmt niðurstöðum Hagþjónustu landbúnaðarins. Á þessu ári hafði kaupmáttur launagreiðsluvísitölu lækkað frá árinu 1991, þegar þjóð- arsáttin gekk í garð, um 19,9% mið- að við 7% hækkun beingreiðslna hefði lækkun launagreiðsluvísitöl- unnar orðið 13,5%. Hallarekstur hefði því, miðað við framangreindar forsendur, minnkað um ca. þriðj- ung. Það má því segja að árangur þessa samnings sé í því fólginn að Rasshandar- samningur Þess gætti nokkuð á Búnaðarþingi þegar samningurinn var þar til umræðu að heldur væri af hendi ríkisins smátt skammtað. Það gagnstæða kom fram hjá öðrum að óraunhæft hefði verið að búast við hærri greiðslum af hendi hins opin- bera. Lang mikilvægasta áherslan sem fram kom á þinginu um samn- inginn var að í honum kæmi ekki fram markaðssýn. Hér er um grundvallaratriði að tefla. Það er algörlega ljóst að greiðslur frá rík- inu bæta ekki stöðu þessarar grein- Búvörusamningur Tækifæri til að laga bág kjör bænda hefur nú verið sleppt, segir Egill Jónsson, en þær leiðir valdar sem eiga rætur í forræðishyggju og stjórnsýslu þar sem fjármuna er illa gætt. ar umfram beinar greiðslur nema þær greiði fyrir framþróun í grein- inni. Tvær stórar ákvarðanir eru teknar í þessum samningi kostaðar af opinberu fé, sem beinlínis hindra framþróun. Annars vegar er rúm- lega 200 milljónum kr. árlega varið til stuðnings við sláturleyfishafa. Greiðsla nú sem fyrr slævir mark- aðsvitund og dregur úr sölu og svo er það uppkaupa milljarðurinn. Hann hindrar frjáls viðskipti innan greinarinnar með rétt til beingr- eiðslna, eins og áður hefur verið fjallað um. Það verður því að vera hugfast öllum þeim sem ábyrgð bera á þessum samningi eða hags- muna eiga að gæta að alfarið hafi verið valdar þær leiðir við útdeil- ingu þess mikla fjár sem helst ork- uðu til kjarabóta fyrir sauðfjár- bændur nema síður væri. Hvað um frjálsu viðskiptin? Nú er sagt að tími frelsins í viðskiptum með framleiðslurétt sé í nánd, þeg- ar uppkaupa milljarðurinn er búinn að fá sitt. Hér er að ýmsu að hyggja. Forsjárhyggjan kann nefnilega ýmislegt fyrir sér og veit sem er að oft gagnast vel að beita krók á móti bragði. Því að fyrir liggur að á fimm síðari árum samn- ingsins rýrnar verðgildi þessa framleiðsluréttar um rúmlega fimmtung. Að auki er komin til sög- unnar ný viðmiðun í stjórn fram- leiðslunnar, sérlega þóknanleg for- æðishyggjunni sem öllu ræður á þessum bæ. Svo að komist verði hjá öllum getgátum í þessum efnum er gott ráð að spyrjast fyrir á hinum almenna fjármagnsmarkaði hvert gengi þeirra hlutabréfa yrði sem hefðu þá lögbundnu kvöð á sér að verðgildi þeirra lækkaði árlega um rúm 4% og allt eins væri líklegt að eignin sem stæði fyrir bréfum þess- um yrði verðlaus að fimm árum liðnum. Svarið vefst tæpast fyrir nokkrum manni.Það ætti því að vera öllum ljóst að við þessar að- stæður er frjálst framsal, ef um það er á annað borð hægt að tala við þessar aðstæður, því miður ekki lík- legt til árangurs í framþróun sauð- fjárbúskapar í framtíðinni. Hrútasýninga andakt eða forsjá minnka hallarekstur í sauðfjárbúskap um þriðjung frá því sem hann var á síðasta ára- tug. Hér verður svo öðrum látið eftir að meta hversu þessi nið- urstaða er metnaðar- full. Egill Jónsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.