Morgunblaðið - 08.04.2000, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913
84. TBL. 88. ÁRG. LAUGARDAGUR 8. APRÍL 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Rússar enn æfareiðir vegna samþykktar Evrópuráðsins
Hernaðinum haldið
áfram í Tsjetsjníu
Moskvu. AP, AFP.
Starfs-
mönnum
greitt fyr-
ir barn-
eignir
Tokýó. AFP.
Leikfangaframleiðandi nokk-
ur í Japan hefur gripið til
óvenjulegra ráða til að fjölga
viðskiptavinum sínum. Fyrir-
tækið býður nú starfsmönnum
sínum tæpar sjö hundruð þús-
und krónur fyrir hvert barn
sem þeir eignast umfram tvö.
Fyrirtækið Bandai Co. Ltd,
sem m.a. á heiðurinn af sýnd-
argæludýrinu Tamagotchi,
ákvað í síðasta mánuði að
greiða hverjum þeim starfs-
manni, sem eignaðist meira
en tvö börn, eina milljón jena
eða um 700.000 kr. fyrir hvert
barn.
„Við viljum að starfsmenn-
irnir geri sér grein fyrir því
að viðskiptavinir okkar eru
börn,“ sagði Yusuke Fukuda,
einn yfirmanna fyrirtækisins.
Barnmargar, japanskar fjöl-
skyldur verða æ fágætari, að
sögn Fukuda, sem sagði að
það væri þó undir starfsfólk-
inu komið hvort það vildi eiga
meira en tvö börn.
Samkvæmt upplýsingum
japanska heilbrigðisráðuneyt-
isins fæddust 93.862 börn í
Japan á sl. 12 mánuðum og er
sú tala einn tuttugasti af þeim
1.901.440 börnum sem fædd-
ust í landinu fyrir 24 árum en
japanskar konur eignast nú
að meðaltali 1,38 börn.
AP
Shevardn-
adze í kosn-
ingaham
FORSETAKOSNINGAR eru í
Georgíu á morgun og sækist Eduard
Shevardnadze, núverandi forseti og
fyrrverandi utanríkisráðherra Sov-
étríkjanna, eftir embættinu öðru
sinni. Helsti andstæðingur hans er
Dzhumber Patiashvili eins og í kosn-
ingunum 1995 en þá fékk Shevadn-
adze 74% atkvæða. Hér hefur mynd
af honum verið sett upp í glugga
hárgreiðslustofii í höfuðborginni,
Tbilisi, og á henni segir að nú verði
skorin upp herör gegn þeim marg-
víslegu meinum sem hrjá samfélag-
ið f þessu fyrrverandi Sovétlýðveldi.
ÍGOR ívanov, utanríkisráðherra
Rússlands, sagði í gær, að Rússar
myndu halda áfram hernaði sínum í
Tsjetsjníu hvað sem liði refsiaðgerð-
um Evrópuráðsins en Vladímír
Pútín, forseti landsins, boðaði áætl-
un um frið í landinu í næstu viku.
Tsjetsjneskir skæruliðar héldu því
fram í gær að þeir hefðu setið fyrir
og fellt 70 rússneska hermenn fyrir
nokkrum dögum.
Javier Gama, utanríkisráðherra
Portúgals, og Javier Solana, tals-
maður Evrópusambandsins, ESB, í
utanríkis- og varnarmálum, voru í
gær í Moskvu til viðræðna við rúss-
neska ráðamenn og fögnuðu þeir yf-
irlýsingunni um friðaráætlunina.
Vestrænar ríkisstjórnir hafa hvatt
Rússlandsstjóm til að semja um frið
í Tsjetsjníu og skorað á hana að leyfa
rannsókn á mannréttindabrotum
sem þar hafa verið framin.
Banna ferðir til Tsjetsjníu
Rússar hafa brugðist mjög hart
Pútín boðar þó
áætlun um frið í
næstu viku
við samþykkt Evrópuráðsins í
Strassborg í fyrradag en þá voru
þeir sviptir atkvæðisrétti og hvatt til
að þeir yrðu reknir úr ráðinu kæmu
þeir ekki á vopnahléi og hæfu við-
ræður við skæruliða í Tsjetsjníu.
ívanov, utanríkisráðherra Rúss-
lands, sagði að samþykkt Evrópu-
ráðsins hefði þau áhrif ein að gera
viðræður milli vestrænna ríkja og
Rússa erfiðari en ella en Rússar
myndu halda Tsjetsjníustríðinu
áfram svo lengi sem þurfa þætti. Þá
hafa Rússar einnig bannað sendi-
nefndum frá aðildarríkjum Evrópu-
ráðsins að koma til Tsjetsjníu.
Skæruliðar í Tsjetsjníu halda þvi
fram að þeir hafi fellt 70 rússneska
hermenn fyrir nokkrum dögum er
þeir sátu fyrir þeim við bæinn Mesk-
er-Yurt, 15 km suðaustur af Grosní.
Hafa Rússar staðfest að árásin hafi
verið gerð en segjast ekki hafa misst
nema einn mann.
Bandaríkin
Tekju-
tenging
ellilauna
afnumin
BILL Clinton, forseti Banda-
ríkjanna, undirritaði lög í gær
sem afnema tekjutengingu op-
inberra ellilauna. Að auki vígði
hann nýja þjónustu, vefsíðu þar
sem fólk getur séð það svart á
hvítu hver ellilaunin þess verða.
Afnám tekjutengingarinnar
þýðir að Bandaríkjamenn á
aldrinum 65 til 69 ára missa ekki
einn dollara af ellilaununum fyr-
ir hverja þrjá, sem þeir vinna
sér inn. Að sögn CNTV-frétta-
stöðvaiinnar hafa ellilaunin ver-
ið skert með þessum hætti frá
upphafi eða síðan í kreppunni
miklu. Þá var reynt að koma eft-
irlaunaþegum út af vinnumark-
aði vegna mikils atvinnuleysis
en nú er það vinnuaflsskortur
sem hrjáir efnahagslífið. Þar að
auki er breytingin rökstudd
með því að heilbrigt efnahagslíf
geti ekki verið án þeirrar þekk-
ingar og reynslu sem fólk, sem
er komið eða að komast á eftir-
launaaldur, búi yfir.
Árið 1930 voru 54% karl-
manna 65 ára og eldri úti á
vinnumarkaði en eru nú um
16%. Afnám tekjutengingar
kostar alríkið umtalsvert fé en
hagfræðingar hafa reiknað út að
það muni fá það aftur og meira í
auknum sköttum af atvinnu-
tekjum eftirlaunaþeganna.
AP
Mikill mannfjöldi hefur verið fyrir utan núverandi heimili Elians Gonzalez á Miami síðustu daga til að koma í
veg fyrir að hann verði afhentur föður sínum. í gær ákváðu yfirvöld að hann skyldi fá son sinn eftir helgi.
Samtök Kúbumanna á Miami hótuðu átökum og mótmælum vegna Elians
Olía lækkar
London. AFP.
Ættingjum
skipað að af-
henda drenginn
Washington, Miami. AP, AFP.
STJÓRNVÖLD í Bandaríkjunum
fullvissuðu í gær Juan Miguel
Gonzalez, föður kúbverska drengs-
ins, sem nú er hjá ættingjum sínum
á Miami, um að hann fengi son sinn
aftur. Skipuðu þau jafnframt svo
fyrir að ættingjarnir afhentu hann
föður sínum snemma í næstu viku.
Þeir, sem eru andvígir því að dreng-
urinn fari aftur til Kúbu, hafa hótað
að koma í veg fyrir það með valdi.
„Ég mun fá son minn aftur,“
sagði Juan Miguel Gonzalez að
loknum fundi með Janet Reno,
dómsmálaráðherra Bandaríkjanna,
í Washington í gær. Samtök manna
af kúbverskum ættum hafa hins
vegar hótað að efna til mótmæla og
stöðva umferð til og frá Miami-flug-
velli þegar Juan Miguel kemur
þangað og auk þess að slá hring um
húsið þar sem drengurinn, Elian
Gonzalez, býr nú.
Ættingjar drengsins hafa boðist
til að leyfa þeim feðgum að hittast
svo fremi faðir hans komi einn á
þann fund en hann hafnar því og
sakar ættingja sína um að hafa not-
fært sér drenginn með óskamm-
feilnum hætti.
Óttast fordæmið
Samtökin, sem berjast gegn þvi
að Elian fari aftur til Kúbu með föð-
ur sínum, halda því fram að Fidel
Castro, forseti Kúbu, hafi neytt
hann til að krefjast forræðis jdir
syni sínum en því neitar hann harð-
lega. Segist hann hafa annast hann
ekki síður en móðir hans en hún
drukknaði ásamt fleira fólki er þau
reyndu að komast til Bandaríkj-
anna á litlum báti. Elian komst lífs
af.
Bandarísk yfirvöld hafa miklar
áhyggjur af þessu máli. Fái Juan
Miguel Gonzalez ekki son sinn mun
það gera Bandaríkjamönnum sjálf-
um erfitt fyrir að heimta börn sín
aftur. Mál, sem varða 1.100 banda-
rísk börn erlendis, eru nú til með-
ferðar hjá yfirvöldum.
OLÍUVERÐ lækkaði í gær og hafði
þá ekki verið lægra síðan í janúar.
Fyrst eftir að OPEC, Samtök ol-
íuútflutningsríkja, ákváðu í mars að
auka olíuvinnsluna lækkaði verðið
fremur lítið enda var þá enn mikil
óvissa um birgðastöðuna víða. Á
þriðjudag var tilkynnt að í Banda-
ríkjunum væru birgðir meiri en
búist hafði verið við og virðist sem
markaðurinn telji að enginn skortur
verði á olíu á næstunni. Verðið fyrir
Brent-olíu var í gær rúmir 23 doll-
arar fatið en rúmir 25 fyrir viku.
MORGUNBLAÐH) 8. APRÍL 2000