Morgunblaðið - 08.04.2000, Side 24
24 LAUGARDAGUR 8. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Morgunblaðið/Kriatján
Helga Guðmundsdóttir, formaður KA, Steinunn Sigfúsdóttir, MA, Stefán
Sæmundsson, forvarnafulltrúi MA, Karen Malmquist, forvarnafulltrúi
VMA og Guðný Jóhannsdóttir, VMA, kynntu efni borgarafunds um fíkni-
efnavandann sem haldinn verður í Gryfjunni í VMA á þriðjudagskvöld.
Skref í baráttu
gegn vímutengdri
æskumenningu
BORGARAFUNDUR um fíkni-
efnavandann, félagslíf og forvamir
verður haldinn á Akureyri næst-
komandi þriðjudag, 11. apríl í Gryfj-
unni í Verkmenntaskólanum á Ak-
ureyri og hefst hann kl. 20. Sólveig
Pétursdóttir dómsmálaráðherra
flytur ávarp á fundinum. Fundurinn
er fyrsta stóra skrefið í baráttu
gegn fíkniefnum og vímutengdri
æskumenningu á Akureyri en að
henni stendur breiðfylking skóla-
manna, uppalenda og yfirvalda í
bænum.
Á fundinum munu, auk dóms-
málaráðherra, skólameistarar fram-
haldsskólanna flytja ávörp, þá verða
forvarnir í framhaldsskólum kynnt-
ar og munu forystumenn í skólafé-
lögum kynna félags- og skemmtana-
líf ungmenna. „Að lenda á glap-
stigum“ er yfirskrift erindis Hildar
Jönu Gísladóttur háskólanema og
þá fjallar Daníel Snorrason, fulltrúi
hjá rannsóknardeild lögreglunnar,
um eiturlyfjabylgjuna á Akureyri.
Kjartan Ólafsson kynnir nýjar
neyslutölur úr 10. bekk og tengsl
neyslu við uppeldishætti og tóm-
stundir. Þá verður fjallað um aðhald
og aðstoð foreldra og formaður KA,
Helga Steinunn Guðmundsdóttir
segir frá samstarfi félagsins og Ak-
ureyrarkirkju í forvarnamálum.
Rætt verður um félagsmiðstöðvar
og þá greinir Kristín Sigfúsdóttir
formaður áfengis- og vímuvama-
nefndar frá því sem bæjarfélagið
hefur gert í forvarnamálum. Að er-
indum loknum verða umræður og
fyrirspurnir.
Forsvarsmenn fundarins kynntu
efni hans á blaðamannafundi í gær,
en þar kom fram í máli Stefáns Þórs
Sæmundssonar, forvarnafulltrúa í
Menntaskólanum á Akureyri, að sí-
felldar áfengisauglýsingar og áreiti
í þá veru að lokka ungt fólk til að
neyta áfengis, en slíkt hafi verið
mjög áberandi í vetur, hafi hrist upp
í mönnum. Eftir að markvisst var
farið að vekja athygli á ástandinu
hafi það skánað til muna. „Við sáum
að hægt er að hafa áhrif með því að
ræða hlutina opinberlega í stað þess
að tuða sífellt um þessi mál í eigin
barm,“ sagði Stefán.
Þær Steinunn Vala Sigfúsdóttir,
fráfarandi formaður Hugins, skóla-
félags MA og Guðný María Jó-
hannsdóttir, formaður Þórdunu,
skólafélags MA sögðu á fundinum
að mikil pressa væri á ungt fólk að
neyta áfengis og almennt þætti það
fremur hallærislegt að sækja áfeng-
islausar skemmtanir.
Byggingafulltrúinn á Akureyri segir málið að
Helgamagrastræti 10 algjörlega sérstakt
Um ítrekuð brot að ræða
á byggingareglugerðum
JÓN Geir Ágústsson, bygginga-
fulltrúi Akureyrarbæjar, sagði að
ekki væri nokkur vafi á því að
sumir íbúar bæjarins væru að
fást við byggingaframkvæmdir í
óleyfi. Hins vegar sé þetta mál í
Helgamagrastræti 10 algjörlega
sérstakt af tveimur ástæðum -
fyrir það fyrsta sé umfangið mik-
ið og í öðru lagi sé um ítrekaðan
brotaviija að ræða hjá viðkom-
andi húseiganda.
„Þarna hefur verið komið á
staðinn oftar en einu sinni og
maðurinn stöðvaður, eigendum
hafa verið skrifuð bréf og sýslu-
manni hefur verið skrifað bréf
um ólögmætar framkvæmdir á
lóðinni. Það er hins vegar ekki
hægt að neita því að þ tta mál
hefur dregist allt of mik 3 í með-
förum hjá Akureyrarbæ. En að
láta sér detta í hug að svona
verði látið óátalið lýsir ótrúlegri
vanþekkingu eða vanhugsun. Eg
get heldur ekki skilið hvaða hvat-
ir liggja að baki svona framferði."
Jón Geir sagði húseigandinn
væri byggingatæknifræðingur að
mennt og hafi að auki unnið hjá
embætti byggingafulltrúa. En
þarna væri verið að brjóta lands-
lög og að innan bæjarkerfisins
hafi komið til umræðu að leggja
fram kæru á húseigandann. Hann
sagði að lögin væru sett til að
gæta öryggis íbúanna en ekki til
þess að stríða einhverjum bygg-
ingameisturum eða fólki sem
væri að byggja í óleyfi í skjóli
myrkurs.
Töluverð umræða hefur verið
um samþykkt bygginganefndar
frá því í vikunni, þar sem hús-
eigandanum að Helgamagra-
stræti 10 er gert að rífa þær hús-
eignir á lóð sinni sem ekki hefur
fengist leyfi fyrir, samtals um
100 fermetrar, fyrir 15. júní nk.
Þó kemur til greina að húseig-
andinn fái stöðuleyfi fyrir hluta
umræddra bygginga, um 40 fer-
metra steyptan sólskála, sem
framarlega sem lögð verði fram
viðeigandi gögn. Jón Geir sagði
að húseigandinn þyrfti einnig að
leggja fram aðalteikningar af
sjálfu íbúðarhúsinu fyrir 15. maí.
nk. en skýringateikningar beri
það með sér að þar hafi heldur
ekki verið farið að settum
reglum. Geri hann það ekki verði
lagðar á hann dagsektir upp á 50
þúsund krónur á dag. „Málið er
víðtækt og alvarlegt fyrir þessa
aðila.“
Framkvæmdir
í skjóli myrkurs
Jón Geir sagði það alrangt sem
fram hafi komið hjá eiganda
hússins að hann hafi sótt um leyfi
fyrir sólskálanum en ekki fengið
svar. „Maðurinn lagði inn um-
sókn og teikningar (í maí 1993)
en teikningarnar voru á þann veg
að ekki var hægt að taka þær
fyrir. Honum var þá sagt það
margoft að legði hann fram full-
gildar teikningar og samþykki
samliggjandi lóðareigenda, þar á
meðal Akureyrarbæjar, væri
hann með samþykki fyrir sólskál-
anum. Það gerði hann hins vegar
aldrei þrátt fyrir hafa verið með
samþykki lóðareigenda á Holta-
götu 7 og 9. Það eru hrein ósann-
indi að húseigandinn hafi ekki
vitað hvað hann átti að gera til að
öðlast þetta leyfi og það geta
ýmsir vottað.“
Jón Geir sagði að fólk héldi að
erfitt væri að fá leyfi fyrir fram-
kvæmdum, sem sé í flestum til-
fellum misskilningur, og að það
sé einnig oft og tíðum misskiling-
ur að fólk sé að spara peninga
með því að ráðast í framkvæmdir
án leyfis.
„Þetta verður til þess að skjóli
myrkurs, gjarnan á haustnóttum,
hefjast húsbyggingar á ólíkleg-
ustu stöðum. Fólk þarf hins veg-
ar að skilja það að byggingalög
er sett til að gæta hagsmuna og
öryggis fólksins en það vill oft
gleymast. Það vill því oft verða
eins konar þjóðarsport hjá fólki
að reyna að komast hjá því að
tala við þá sem eiga að sinna
byggingaeftirliti. Auðvitað geta
ýmsar ástæður legið að baki því
að fólk er að gera þetta svona en
maður heyrir það stundum að
fólk sé að hæla sér af því að hafa
komist framhjá byggingaeftirlit-
inu.“
Auðvelt að
fá leyfi
Jón Geir sagði að í langflestum
tilfellum væri auðvelt að fá leyfi
fyrir skynsamlegum verkum og
það sem meira sé, að það kosti
ekki krónu að leita til bæjarins
með erindi. Einu gjöldin séu fast-
eignagjöld ef byggingar fara yfir
ákveðna stærð og hæð.
„Byggingafulltrúar í landinu
vinna eftir ákveðnum lögum og
það eru sveitarfélögin sem eru
ábyrg fyrir því byggingafulltrúar
geti sinnt sínum störfum. Bygg-
ingameistarar þurfa líka að vinna
eftir þessum lögum og þar eru
þeirra starfsréttindi í veði. I
Helgamagrastræti 10 er það hins
vegar eigandi hússins sem hefur
það fyrir „hobbí“ að brjóta lög,
sem getur orðið ansi dýrkeypt.
Ef byggingafulltrúar verða þess
áskynja að verið sé að brjóta lög
er það skylda þeirra að tilkynna
það og það er skylda sveitarfé-
lagsins að fjarlægja byggingar
sem ekki fæst leyfi fyrir. Ef
sveitarfélagið lætur hjá líða að
rífa viðkomandi hús skal Skipu-
lagsstofnun ríkisins láta fjarlægja
húsin á kostnað sveitarfélagsins."
Morgunblaðið/Margit Elva
Hákarl veiddist við
Kirkjustarf
AKUREYRARKIRKJA: Fjölskyldu-
guðsþjónusta kl. 11 á morgun,
sunnudag. Bama- og unglingakór
kirkjunnar syngur. Léttar veitingar
eftir guðsþjónustu Þá verður einnig
opnuð sýningin „Tíminn og trúin“
þar sem sjö listakonur sýna verk sín.
Fundur æskulýðsfélagsins í kapellu
kl. 17. Biblíulestur á mánudagskvöld
kl. 20 í umsjá sr. Guðmundar Guð-
mundssonar. Morgunsöngur í
kirkjunni kl. 9 á þriðjudagsmorgun.
Mömmumorgunn í Safnaðarheimili
kl. 10 til 12 á miðvikudag.
GLERÁRKIRKJA: Bamasam-
vera og messa kl. 11 á morgun,
sunnudag. Sameiginlegt upphaf, for-
eldrar hvattir til að mæta með böm-
unum. Vænst er þátttöku ferming-
arbama. Fundur æskulýðsfélagsins
kl. 20 um kvöldið. Kyrrðar- og til-
beiðslustund kl. 18.10 á þriðjudag.
Hádegissamvera kl. 12 til 13 á mið-
vikudag. Léttur hádegisverður í
safnaðarsal að helgistund lokinni.
Opið hús fyrir mæður og börn alla
fimmtudaga frá kl. 10 till2.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnu-
dagaskóli kl. 11 á morgun, sunnu-
dag. Samkoma í umsjá unglinga kl.
17. Heimilasamband á mánudag kl.
15. Súpa, brauð og biblíufræðsla kl..
19 á miðvikudagskvöld.
KAÞÓLSKA KIRKJAN: Messa í
dag, laugardag kl. 18 og á morgun,
sunnudag kl. 11 í tórkjunni við Eyr-
arlandsveg 26.
SJÓNARHÆÐ: Sunnudagaskóli í
Lundarskóla kl. 13.30 á morgun,
sunnudag. Almenn samkoma sama
dag á Sjónarhæð kl. 17. Barnafund-
ur kl. 18 mánudag.
LIÐLEGA fimm metra hákarl
veiddist um fjórar og hálfa sjó-
mflu suðaustur af Grímsey í vik-
unni. Hákarlinn hafði flækt
sporðinn í þorskanetum á 220
faðma dýpi en var dreginn upp
Iifandi. Það voru þeir feðgar
Henning Jóhannesson og Jóhann-
es Henningsson á bátnum Birni
EA 221 sem veiddu skepnuna. Að
sögn Jóhannesar eru þeir búnir
að verka hákarlinn og hlakka til
Grímsey
að borða hann á næsta þorra.
Ungi maðurinn á myndinni
heitir Arnar Pálmi Guðmundsson
en hann skoðaði hákarlinn í bak
og fyrir og spáði mikið í hvers
megnug slík skepna er.
Morgunblaðið/Kristján
Sr. Gunnlaugur Garðarsson
spjallar við nemendur.
Kristnihátíð
barnanna í
Glerárkirkju
KRISTNIHÁTÍÐ bamanna hefur
staðið yfir í Glerárkirkju síðustu
daga og hafa böm úr skólum í sókn-
inni, Glerárskóla, Giljaskóla og Síðu-
skóla komið í heimsókn í kirkjuna og
spjallað við sóknarprestinn sr. Gunn-
laug Garðarsson um kristnitökuna
og kristna trú. Börnin hafa lagt sitt
af mörkum en þau hafa útbúið margs
konar listaverk sem tengjast efninu
og komið fyrir í fordyri kirkjunnar og
era til mikillar prýði. Sr. Gunnlaugur
sagði að um væri að ræða samstarfs-
verkefni kirkju og skóla og hefði það
verið einkar ánægjulegt að taka á
móti hinum stóra bamahópum,
I tengslum við kristnihátíð bam-
anna í Glerárkirkju kom Furðuleik-
húsið í heimsókn og sýndi leikritið
„Frá goðum til Guðs“ við góðar und-
irtektir áhorfenda.