Morgunblaðið - 08.04.2000, Síða 30

Morgunblaðið - 08.04.2000, Síða 30
30 LAUGARDAGUR 8. APRÍL 2000 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ 43% styðja Mori RÍKISSTJÓRN nýskipaðs for- sætisráðherra í Japan, Yoshiros Moris, nýtur stuðnings um 43% japanskra kjósenda, samkvæmt nýrri skoðanakönnun. Könnunin er sú fyrsta sem gerð er í Japan eftir að Mori tók við embaetti síð- astliðinn miðvikudag. í hlið- stæðri könnun sem gerð var í byijun mars mældist stuðningur við ríkisstjóm fyrrverandi for- sætisráðherra Japans, Keizo Obuchi, um 41%. Japanska Kyodo-fréttastofan gerði könn- unina og var úrtakið 1.000 manns. Handtekin vegna fóstur- eyðingar ÞRÍTUG kona í Afríkuríkinu Malawi, sem varð bamshafandi í kjölfar nauðgunar, hefur verið handtekin vegna þess að hún gekkst undir fóstureyðingu. Talsmaður lögreglunnar í Mal- awi tjáði fréttamanni AFP- fréttastofunnar í gær að konan gæti átt yfir höfði sér allt að fimm ára fangelsi. Lög í landinu heimila aðeins fóstureyðingu ef meðganga ógnar lífi móður. Konunni var nauðgað af tveimur innbrotsþjófum á heimili henn- ar. Þeir ganga enn lausir. Meirihluti hlynntur afsögn Weizmans MEIRA en helmingur ísraela er því fylgjandi að forseti landsins, Ezer Weizman, segi af sér vegna hneykslismála sem hann er flæktur í, samkvæmt nýrri könnun. ísraelska lögreglan hef- ur lýst því yfir að ekki sé tilefni til að lögsækja Weizman fyrir að hafa þegið háar fjárhæðir að gjöf frá frönskum kaupsýslumanni á þeim tíma þegar hann sat á þingi. I könnun sem gerð var á vegum ísraelska dagblaðsins Yedioth Ahronoth kváðust 56% aðspurðra hlynnt því að Weiz- man segði af sér, 43% vildu að hann sæti áfram og 1% svaraði ekki. Úrtakið var 509 manns og reiknast skekkjumörk vera 4,5%. „Batseba“ var með berkla KONAN sem sat fyrir hjá hol- lenska málaranum Rembrandt þegar hann málaði Batsebu hina fógru var ekki með brjósta- krabbamein, eins og ýmsir hafa hingað til talið. Astralskur lækn- ir á eftirlaunum, Robert Boume, heldur því nú fram að útvöxtur á bijóstum fyrirsætunnar hafi verið afleiðing berkla. Verkið var málað árið 1654 og er myndefhið sótt í gamla testa- mentið. Ýmsir læknar hafa hald- ið því fram að greinilegt sé að fyrirsætan hafi verið illa haldin af brjóstakrabbameini. Boume, sem ritar grein í nýjasta hefti New Zealand Joumal of Surg- ery, heldur því hins vegar frám að kona gæti ekki lifað með krabbameinsæxli af því tagi sem sumir hafa þóst greina á brjóst- um Batsebu. Talið er að fyrir- mynd Batsebu hafi verið ást- kona Rembrandts en vitað er að hún lést níu ámm eftir að mynd- in var máluð. Kosningabaráttan í New York Hillary yfir í skoðana- könnunum New York. AFP, The Daily Telegraph. HILLARY CLINTON, forsetafrú Bandaríkjanna, sem er í framboði til setu í öldungadeild Bandaríkjaþings fyrir New York-ríki, mælist nú með meira fylgi en aðalkeppinautur hennar, Rudolph Guiliani borgar- stjóri. Samkvæmt nýrri skoðana- könnun sem birt var á miðvikudag nýtur Hillary nú fýlgis 49% kjósenda í sambandsríkinu en Guiliani 41%. Talið er að niðrandi ummæli Giuli- anis um Patrick M. Dorismond, sem óeinkennisklæddur lögreglumaður skaut til bana fyrir skömmu þótt maðurinn væri óvopnaður, hafi dregið úr vinsældum hans. Mál blökkumannsins Amadou Diallo, sem einnig var óvopnaður, hefur ýtt undir ásakanir um að lögreglulið borgarinnar sé haldið kynþáttafor- dómum, að sögn The New York Tim- es. Nokkrir lögreglumenn skutu hann og báru við að þeir hefðu haldið að maðurinn væri að seilast í skammbyssu í jakkavasa sínum. Við- brögð Giulianis, sem tók upp hansk- ann fyrir lögreglumennina, mæltust illa fyrir hjá blökkumönnum og fleiri minnihlutahópum. í byrjun mars mældist fylgi Hill- ary í hliðstæðri könnun vera 41% en Guiliani naut þá fylgis 48% kjósenda. Hillary nýtur mun meira fylgis en Guiliani í New York-borg en þar hef- ur forsetafrúin nær þrefalt fylgi á við keppinautinn. Borgarstjórinn er hins vegar vinsælli utan borgar- markanna meðal kjósenda í norður- hluta ríkisins en þar er munurinn samt orðinn afar lítill. Talið er að hækkandi tíðni morða í New York geti tryggt Hillary sigur- inn. Morðtíðni í borginni hefur vaxið um 12% á fyrsta fjórðungi þessa árs. Guiliani hefur hingað til notið vin- sælda meðal íbúa rOdsins vegna áherslu sinnar á aukna og hertari löggæslu. Á valdatíma hans hefur morðtíðnin lækkað um allt að 50%. Talsmaður borgarstjórans benti í gær á að aukningin á fyrsta ársfjórð- ungi þessa árs hefði öll átt sér stað í einu hverfi, Bronx en í könnunum segist nú aðeins um helmingur kjós- enda hafa trú á því að stefna Giuliani í afbrotamálum sé rétt. Meirihlutinn telur auk þess að stefna hans hafi ýtt undir lögregluofbeldi. Hillary hefur m.a. haldið því fram í kosningabaráttunni að aukið ör- yggi á götum úti í New York hafi verið dýrkeypt og að harka lög- reglunnar ætti eftir að hafa nei- kvæðar aukaverkanir. Tölur sýna hins vegar að ofbeldisglæpum hefur fækkað mikið í borginni undanfarin ár eins og í mörgum stórborgum vestanhafs. Reuters Hillary Clinton sést hér tilkynna framboð sitt til setu í öldungadeild Bandaríkjaþings í febrúar síðastliðnum. „Blóðugi sunnudagurinn“ 1972 Var McGuinness fyrstur til að skjóta? Kapphlaupið um kortlagningu genamengis mannsins Craig Venter lýsir yfir „sigri44 Ixiqdonderry. The Daily Telegraph. NYJAR vísbendingar hafa komið fram sem benda til þess að Martin McGuinness, einn af helstu leiðtog- um Sinn Fein á Norður-Irlandi, hafi komið af stað blóðbaðinu í London- derry 1972 sem nefnt hefúr verið „Blóðugi sunnudagurinn". 14 manns féllu þá í átökum óbreyttra borgara og breskra hermanna. Málið hefur oft verið notað í áróðri Irska lýðveldishersins, IRA, sem sönnun þess að breska herliðið á Norður-Irlandi hafi ekki hikað við að myrða óbreytta borgara. Sinn Fein er stjómmálaarmur IRA og fylla hann harðlínumenn úr röðum þeira kaþólikka sem krefjast þess að Norð- ur-írland verði sameinað írlandi. Liðlega helmingur íbúa héraðsins er mótmælendatrúar og vill áfram sam- band við Bretland. Skýrslan er hluti af gögnum sem liðsmenn svonefndrar Saville-rann- sóknar á atburðunum 1972, er nú stendur yfir, hafa safnað. McGuinn- ess hefur fordæmt skýrsluna um þátt hans sjálfs sem byggist á upplýsing- um frá bresku leyniþjónustunni og segir hann að hún sé „hræðilegt bull“. Þar er sagt frá yfirheyrslu yfir uppljóstrara innan raða IRÁ, er gekk undir dulnefninu Infliction (refsing). „Martin McGuinness viðurkenndi í samtali við Infliction að hann hefði sjálfur verið fyrstur til að skjóta (úr Thompson-vélbyssu) úr Rossvill- íbúðunum í Bogside en skothríðin var undanfari „Blóðuga sunnudags“- málsins", segir í skýrslunni. Leiðtogar Sinn Fein vísa ávallt á bug að þeir gegni hlutverkum í IRA en andstæðingar þeirra em á öðra máli, segja að McGuinness sé í reynd einnig meðal ráðamanna hryðju- verkasamtakanna. Fram hefur kom- ið að 1972 var hann í sendinefnd IRA er fór með Gerry Adams, leiðtoga Sinn Fein, til viðræðna við þáverandi Reuters Martin McGuinness, einn af leið- togum Sinn Fein á Norður-ír- landi, er nú sagður hafa átt þátt í að koma af stað mannvígum „Blóðuga sunnudagsins“ 1972. innanríkisráðherra Breta, William Whitelaw, í London. Sinn Fein sagði í yfirlýsingu að McGuinness myndi „fagna tækifæri" til að bera vitni um atburðina í Bogs- ide-hverfinu í Londonderry. Á hinn bóginn segja talsmenn rannsóknar- innar að hann hafi í engu svarað mörgum tilmælum þeirra um að bera vitni. Fari svo að hann mæti á fund með rannsóknarmönnum myndi McGuinness í fyrsta sinn verða yfir- heyrður um þátt sinn í starfi IRÁ og gætu þá fengist miklar upplýsingar um hryðjuverk IRA síðustu þrjá ára- tugina. McGuinness er nánasti samstarfs- maður Gerrys Adams og var um hríð ráðherra kennslumála í samsteypu- stjóm héraðsins. Hún var leyst frá störfum nýlega vegna ágreinings um afhendingu vopna IRA. í opinberu rannsókninni á blóð- baðinu í Bogside er reynt að grafast fyrir um orsakir þess að til svo mann- skæðra átaka kom. Hermennimir hafa varið sig með því að skotið hafi verið á þá og þeir goldið í sömu mynt. Berlín. Morgunblaðið. BANDARÍSKA líftæknifyrirtækið Celera Genomies hefur að sögn forstjóra þess og stofnanda, Craig Venter, lokið kortlagningu um 99% alls genamengis mannsins. Ollu þessi tíðindi um 80% hækkun hlutabréfaverðs í Celera á fimmtu- dag og í viðskiptum í kauphöllinni á Wall Street héldu í gær hlutabréf í mörgum líftæknifyrirtækjum áfram að hækka þrátt fyrir þá verðlækkun sem orðið hefur að undanförnu á bréfum í hátæknifyr- irtækjum á Nasdaq-listanum. Með tilkynningu Venters um árangur Celera lauk í raun kapp- hlaupi um að ljúka kortlagningu erfðamengis mannsins, sem hófst fyrir alvöru þegar Celera hóf í september í fyrra að nota ofurtölv- ur og sérþróaðan vélabúnað til verksins. Samkeppnin stóð aðal- lega á milli Celera og Human Gen- ome Project (Hugo), sem er verk- efni sem alþjóðlegur hópur vísinda- manna kemur að og nýtur rausn- arlegs fjárstuðnings frá stjóm- völdum í Bandaríkjunum og fleiri löndum. Byrjað var að vinna að kortlagningu genamengisins þegar Human Genome Project var hleypt af stokkunum fyrir tíu ámm. Næst á dagskrá Celera er nú að raða öllum hinum u.þ.b. 100.000 genum mannsins í rétta röð og skilgreina hlutverk hvers og eins þeirra. Fyrirtækið hyggst í komandi rannsóknum ennfremur einbeita sér að því að safna upplýsingum um erfðafræðileg afbrigði. Þá stendur einnig til að kortleggja genamengi músa, sem þykir mikil- vægt þar sem mýs em mikið notað- ar til læknisfræðilegra tilrauna í því augnamiði að þróa lyf og lækn- ingaaðferðir við sjúkdómum í mönnum. Göran Persson forsætisráðherra EMU örugg höfn fyrir Svía GÖRAN Persson, forsætisráðherra Svíþjóðar, segir að Svíar þurfi á aðild að Efnahags- og myntbandalagi Evrópu (EMU) að halda til að girða fyrir áföll þegar hægir á vexti sænsks efnahagslífs. „Fyrr eða síðar mun hagsveiflan hníga,“ sagði Pers- son í viðtali við fréttamann AFP- fréttastofunnar. ,Á slíkri stundu er hættulegt fyrir lítið hagkerfi að standa eitt síns liðs. Það er megin- ástæða þess að við viljum leita skjóls í öruggri höfn, ef svo má segja.“ í síðasta mánuði ákvað yfirstjóm sænska Jafnaðarmannaflokksins að beita sér fyrir aðild landsins að EMU þótt skiptar skoðanir séu um málið innan ríkisstjórnarinnar.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.