Morgunblaðið - 08.04.2000, Side 34

Morgunblaðið - 08.04.2000, Side 34
34 I.AUGAUDAOÚR 8. APRÍL 2000 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Spurning um að velj a og hafna Þegar flestir vinir Hildar Elínar Ólafs- dóttur hófu menntaskólanám hleypti hún heimdraganum og hélt til Hollands, þar sem hún stundaði dansnám í Konunglega lista- háskólanum í Haag í þrjú ár. Margrét Sveinbjörnsdóttir hitti stúlkuna, sem er nýorðin tvítug og er komin á samning hjá Rínaróperunni í Þýskalandi. , Morgunblaðið/Ásdís Hildur Elín Olafsdóttir bregður á leik fyrir ljósrayndarann. „SAMKEPPNIN er rosaleg. Við vorum yfir 100 stelpur sem fórum í inntökuprófið - en ekki nema tvær sem fengum vinnu,“ segir Hildur El- ín Ólafsdóttir, sem hefur dansað við Rínaróperuna í Diisseldorf og Duis- burg frá þvi í ágúst síðastliðnum og hefur þar samning út næsta starfsár. „Fyrst var ég með svokallaðan byrjendasamning en svo var ég svo heppin að það vantaði fólk í ákveðin hlutverk, þannig að ég fékk mjög mikið að gera strax á fyrstu vikun- um. Mér var bókstaflega hent inn á sviðið í sýningu sem ég hafði aldrei séð áður. Þannig að ég fékk heilmik- ið að gera og betri samning í kjöl- farið. Ég var mjög heppin,“ segir Hildur, sem er ákveðin í að standa sig og sýna að hún sé traustsins verð. Var „sett“ í danstíma Hún steig sín fyrstu spor í ball- ettnum þegar hún var sex ára gömul. Þá byrjaði hún í danstímum hjá Guð- björgu Björgvinsdóttur. „Foreldrar mínir „settu“ mig í danstíma eins og það er kallað. Eiginlega hafði ég ekkert gífurlegan áhuga í upphafi en var þó alls ekki þvinguð," segir Hild- ur og hlær við tilhugsunina um að það hafi verið foreldrar hennar sem ýttu henni af stað út á dansbrautina. „Mamma og pabbi hafa verið í sam- kvæmisdönsum og eru mikið dans- áhugafólk og við systurnar byrjuð- um saman í ballett. Seinna fann hún sér önnur áhugamál en ég hélt áfram." Þegar Hildur var 13 ára var hún búin að ákveða að halda áfram frek- ara dansnámi. Hún vissi af öðrum ís- lenskum stúlkum sem höfðu farið í skóla erlendis. „Þá kviknaði hug- myndin um hvort ég ætti að gera það líka. Mér fannst svo gaman að dansa að ég gat ekki hugsað mér að hætta. Svo þegar kom að menntaskóla gerði ég mér grein fyrir að ég gæti ekki stundað dansinn eins og mig langaði ■til. A þessum tíma var Tom Bosma gestakennari í Listdansskóla ís- lands en hann var líka kennari í Kon- unglega listaháskólanum í Haag. Hann hvatti mig til að fara út og taka inntökupróf og líka kennararnir mínir heima. Flestir vinir mínir fóru í MR og eru að ljúka stúdentsprófi núna í vor en hjá mér var þetta spurning um að velja og hafna. Ég gæti alltaf farið í bóknám seinna. Akvörðunin var dálítið erfið en samt frekar skýr, vegna þess að mig lang- aði virkilega til að gera þetta. Eg ákvað að láta bóknámið bíða og freista þess að komast út til frekara dansnáms. Ég ákvað líka að ef ég kæmist ekki inn í góðan skóla, myndi ég frekar vilja einbeita mér að ein- hverju öðru,“ segir Hildur. Skemmst er frá því að segja að veturinn sem hún var í 10. bekk brá hún sér út til Hollands, tók inntöku- prófið og fékk skólavist í Konung- lega listaháskólanum í Haag, þar sem hún hóf nám haustið 1996 og lauk því sl. vor með HBO-gráðu í listdansi. Hún varð ekki fyrir von- brigðum með vistina þar. „Þetta er mjög strangur skóli og sá besti í Hollandi fyrir klassískan ballett," segir hún og ber kennurunum vel söguna. Fjórir Þjóðverjar í hópi 55 dansara Hún bjó hjá hollenskri fjölskyldu og lagði stund á hollensku í kvöld- skóla meðfram dansnáminu. Þegar hún fékk starfið hjá Rínaróperunni flutti hún til Dússeldorf, þar sem hún býr í fyrsta sinn ein í íbúð. Hún segir ekki mikið fara íyrir þýsku- námi, þar sem af 55 dansara hópi séu ekki nema fjórir Þjóðverjar. Sam- skiptamálið í vinnunni sé því enska en þó segist hún vera farin að skilja þýskuna ágætlega. Við Rínaróperuna er dansflokkur, óperuhópur og hljómsveit og er sýnt í tveimur húsum, í Dússeldorf og í Duisburg, sem er um 30 km frá Dús- seldorf. „Það eru sett upp níu mis- munandi verk á hveiju leikári og á þessu hálfa ári sem ég hef verið þarna erum við þegar búin að frumsýna sjö. Óperuhúsið í Dússel- dorf tekur um tólfhundruð manns í sæti og þar er nánast alltaf uppselt. Listdansstjórinn heitir Youri Vámos og hann er líka aðaldanshöfundur flokksins," segir Hildur. Frá því hún hóf störf við Rínaróperuna hefur hún dansað í Carmina Burana, Róm- eó og Júlíu, Draumi á Jónsmessu- nótt, Hnotubrjótnum, Þyrnirósu - Síðustu keisaradótturinni, Óþelló og U(h)r Instinkt. Á næstunni mun hún ennfremur taka þátt í söngleiknum My Fair Lady í Dússeldorf, þar sem hún kemur til með að „syngja eitt- hvað smá“ eins og hún orðar það sjálf. Fólk vill sjá meira af nútímadansi Hildur gerir ráð fyrir að vera í Þýskalandi næsta árið að minnsta kosti. „Svo sé ég bara til. Ég væri til í að spreyta mig meira á nútíma- dansi í framtíðinni," segir hún. „Ég fékk mjög stranga klassíska þjálfun í skólanum í Haag, en þar voru líka mjög góðir „modern“-tímar og kenn- arar sem vöktu áhuga minn enn frekar í átt að nútímadansi. Skólinn er í samvinnu við Nederlands Dans Theater, sem er eitt stærsta og besta nútímadansleikhús í Evrópu, við lærðum efnisskrána þaðan og fengum kennara þaðan. Það eru eig- inlega engir flokkar lengur sem eru bara með klassískan ballett. Fólk vill líka sjá meira af nútímadansi núna. Hann er mjög skapandi og honum eru engin takmörk sett - það er endalaust hægt að bæta einhveiju nýju inn í hann. Vinnan sem ég er í núna við Rínaróperuna er í rauninni frekar klassísk, þó að nútímadansinn fljóti með. Ég fæ að dansa þessa sí- gildu balletta, eins og Þyrnirósu og Hnotubrjótinn, og mér finnst það mjög gott tækifæri," segir Hildur. Aðspurð hvort hún sjái fyrir sér að koma heim og dansa með Islenska dansflokknum vill hún ekki útiloka neitt. Hún sá á dögunum uppsetn- ingu Jochens Ulrich á Goðsögnun- um. „Sú sýning kom mér skemmti- lega á óvart. Ég hef ekki séð sýningu hjá dansflokknum síðan ég flutti út fyrir fjórum árum og hann hefur breyst mjög mikið síðan. Þau eru að gera góða hluti og ég væri alveg til í að dansa með þeim einhvern tíma.“ Kaflaskil fremur en endalok Nú er það staðreynd að starfsfer- ill dansara er stuttur, a.m.k. miðað við aðrar starfsstéttir. Hvernig skyldi sú framtíðarsýn hugnast Hildi nú í upphafi ferilsins? „Maður veit það frá upphafi að dansferillinn er stuttur og þess vegna er um að gera að gera sitt besta, njóta þess og ná sem mestum árangri sem fýrst. Þó að það sé frekar sorglegt hefur það líka jákvæðar hliðar, því þá er líka hægt að gera eitthvað annað í lífinu. Ég vil gera þetta meðan ég er ung, en um leið og ég fer að finna að ég get ekki gert hluti jafnvel og áður held ég að ég muni frekar vilja hætta og fara að læra eitthvað annað,“ seg- ir Hildur og kveðst munu líta á lok dansferilsins, þegar þar að kemur, sem kaflaskil í lífinu fremur en enda- lok. „Sem stendur líður mér mjög vel í starfínu sem ég er í - þetta er það sem mig dreymdi um og ég er mjög heppin að fá þetta tækifæri núna,“ segir hún. Hvað er að vera maður? KVIKMYNDIR S a ni h T ó i ii FLAWLESS ★★ Leikstjóm og handrit: Joel Schumacher. Aðalhlutverk: Robert De Niro, Philip Seyraour Hoffman, Daphne Rubin-Vega, Skipp Sudd- uth og Barry Miller. MGM 1999. WALT Koontz er öryggisvörður á eftirlaunum með glæstan feril að baki. Hann er þó ekki sérlega opinn maður, og leiðist mjög dragdrottn- ingin Rusty, sem býr í sama húsi og hann, auk skarkalans og píku- skrækjanna sem vinkonum hennar fylgja. Þegar hann fær hjartaáfall og lamast að hluta, leitar hann til Rusty með söngtíma í huga sem gætu hjálpað honum með talað mál. Það eru stórleikararnir Robert De Niro og Philip Seymour Hoffman sem leika aðalhlutverkin. De Niro þekkja allir og Hoffman er sérlega sterkur leikari sem sannar sig betur með hverju hlutverki sem hann tek- ur sér fyrir hendur. Þeir félagar standa sig ágætlega í þessari kvikmynd, sem reyndar býð- ur ekki upp á mikið, þar sem pers- ónur þeirra eru alltof klisjukenndar og grunnar. Mér finnst of mikil áhersla lögð á hetjuskap Walts og því eru ekki gerð nógu skýr skil að Rusty er kona í karlmannslíkama. Þama er hins vegar efni í mjög sterkt drama og miklar tilfinningar. Svo er píanóið hennar Rusty ramm- falskt og það finnst mér ekki auka á trúverðugleikann. De Niro minnir stundum óneitanlega á persónuna sem hann lék í rnyndipni Awaken- ings og Hoffman er eitt handapot, þótt heildarkarakterinn sé vel skap- aður hjá þeim báðum. Af einhveijum furðulegum ástæð- um hefur Schumacher smeygt glæpasögu inn í þetta annars mann- lega drama. Hún þjónar lengst af engum tilgangi í sögunni og er bara pirrandi útúrdúr. Hvernig hún gerir það síðan að lokum er hins vegar fyr- irsjáanlegt frá upphafi. Myndin hefði orðið mun áhuga- verðari og Sehumacher hefði neyðst til að dýpka persónurnar ef öll mynd- in, og ekki síst hápunktur hennar, hefði snúist um mannleg átök. Það er samt einn punktur sem kemst ágætlega til skila, og það er spumingin: Hvað er að vera maður? Hvor er meiri maður, öryggishetj- an eða dragdrottningin? Og það er skemmtilega gert að þessir tveir menn, sem allir, þ.á m. þeir sjálfir, álíta gjörólíka, eiga svo margt sam- eiginlegt að tilfinningalega eru þeir næstum sama manneskjan. Þeir eru hégómagjamir og sterkir, en em báðir sviknir í ástum og láta ganga yfir sig, þeir em einmana og þeir em hræddir. Þetta finnst mér skemmti- leg hugmynd, sem hefði mátt vinna betur með í mannlegu átökunum sem vantar. Sum atriðanna era samt býsna góð. Bæði sterk og oft fyndin og sæt, en... mikið hefði nú samt verið gam- an að sjá þessa sterku gæja takast á við hlutverk og sögu sem þeir hefðu skilað frá sér með skínandi glans. Hildur Loftsdóttir N^jar bækur • ÆTTJARÐARLJÓÐ á atómöld er heiti nýrrar hljóð- bókar þar sem Matthías Johannessen flytur fmmort Ijóð. Hljóðbókin hefur að geyma safn nýn-a ljóða úr sam- nefndri bók sem út kom á liðnu hausti ásamt ljóðum úr þremur eldri bókum skálds- ins, en þær eru Borgin hló, Jörð úr ægi og Hólm- göngu- Ijóð. Hljóð- bókin er bæði gef- in út á geisla- diski og snældu. í kynningu segir: „I yngri jafnt sem eldri ljóðum Matthíasar er stíll hans myndrænn og líkingarnar beinskeyttar. Hér er á ferð áleitinn og djúphugull skáld- skapur sem býr yfir mikilli fegurð en á um leið brýnt er- indi við samtímann og flutn- ingur skáldsins á ljóðum sín- um eykur enn áhrifamátt þeirra.“ Utgefandi er Vaka- HelgafeU. Verð: 2.490 kr. M-2000 nlr ^ írl Lnfllt Laugardagur 8. apríl Myndlistarsvning ■ Gallerí i8. Catherine Yass. Nýlegt verk sem vak- * ið hefur mikla athygli er sería af átta ljósa- kössum með myndum af baðhúsi í Baden-Baden. Sýningin er ein af þeim sem eru sameiginlega á dag- skrá Gallerí i8 og Menningarborg- arinnar. Hún stendur til 7. maí. www.i8.is. Mokka kaffi Grænlenskir túpilakar. í tengslum við Grænlenska daga opnar á Mokkakaffi sýningin Túp- ilakar. Sýningin stendur til 8. maí. www.nordice.is. Fræðasetrið, Garðvegi 1, Sand- gerði kl. 15 Ævaforn húsagerð á Reykja- nesi. Mannlíf við opið haf er yfirskrift dagskrár sem Fræðasetrið í Sand- gerði gengst fyrir. Að þessu sinni flytur Þorvaldur Friðriksson fyrirlestur um keltneska húsagerð og fornminjar undir yfirskriftinni Ævaforn húsa- gerð á Reykjanesi, hvað segir hún okkur um uppruna íslendinga? Dagskráin er hluti af samvinnu- verkefni Menningarborgar og sveitarfélaga. www.sandgerdi.is. íslenska óperan kl. 14. Sæbúar - söngleikur Söngleikurinn Sæbúar er saminn af Ólafi B. Ólafssyni fyi’ir nemend- ur í Öskjuhlíðarskóla. Leikstjóri er Pétur Eggerz og hönnun búninga annaðist Katrín Þorvaldsdóttir. Miðasala er í Öskjuhlíðarskóla og við innganginn í íslensku óper- unni. Gallerí Sævars Karls Norrænar myndskreytingar. Norrænir myndskreytarar frá öllum Norðurlandaþjóðunum kynna afrakstur sinn í Galleríi Sævars Karls. Sýningin stendur til 14. apríl. Kringlan, kl. 12. í kynningum sem Menningar- borgin stendur fyrir í Kringlunni á laugardögum fáum við að kynnast kunnasta dægurlagasöngvara Grænlands, Rasmus Lyberth. www.nordice.is. Dagskrárnar Menningarborgar- árinu. www.reykj avik2000.is. I ;

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.