Morgunblaðið - 08.04.2000, Page 35

Morgunblaðið - 08.04.2000, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. APRÍL 2000 35 LISTIR Finnur Bjarnason gestur á lokatónleikumTríós Reykjavrkur og Hafnarborgar á þessum vetri Söngur, selló og slagharpa Morgunblaðið/Jim Smart Tríó Reykjavíkur, Peter Máté, Guðný Guðmundsdóttir og Gunnar Kvar- an, ásamt gesti sínum, Finni Bjarnasyni tenórsöngvara. SÍÐUSTU tónleikar vetrarins í tón- leikaröð Tríós Reykjavíkur og Hafn- arborgar verða annað kvöld kl. 20. Á efnisskrá kennir margi'a grasa en sérstakur gestur tríósins verður Finnur Bjamason tenórsöngvari. Tónleikarnir leggjast vel í Finn. „Það er heiður að fá að syngja með Tríói Reylqavíkur og feta þar með í fótspor margra góðra söngvara. Það hefur verið mjög gaman að æfa með þessu góða tónlistarfólki og ég hlakka til tónleikanna.“ Hann segir það með því skemmti- legra sem hann gerir að syngja með kammerhópum en því miður gefist ekki til þess nægur tími. „Ég tók þessu tækifæri því opnum örmum og þess má geta að ég fæ annað tækifæri á kammertónlistarhátíðinni á Kirkju- bæjarklaustri í sumar. Annars eru þetta yfirleitt öfgamar í báðar áttir, annaðhvort heil hljómsveit eða bara píanó.“ Finnur byrjar á því að syngja tvö lög úr ljóðaflokki eftir Haydn og önn- ur tvö úr ljóðaflokki eftir Beethoven. „Það era engin ósköp til af tónbók- menntum fyrir rödd og þessa sam- setningu á hljóðfæram en meðal þess besta era breskar þjóðlagaútsetning- ar eftir Beethoven og Haydn. Ég hef aldrei heyrt þetta á tónleikum og hygg að þetta sé mjög sjaldan flutt," segir Finnur. Næst syngur hann Þrjá rökkur- söngva eftir John Speight. „Þetta ágæta tónskáld okkar var söngkenn- ari minn og þegar ég hélt burtfarar- tónleika í Islensku óperunni á sínum tíma skrifaði hann þetta fyrh- mig. Ég valdi þrjú ljóð eftir eitt af mínum upp- áhaldsskáldum, Snorra Hjartarson, og John tónsetti þau fyrir rödd, píanó og selló. Þessi fallegu lög hafa ekki verið flutt síðan en pössuðu vel inn í efnisskrána nú.“ Loks syngur Finnur nokkur af ást- sælustu sönglögum Griegs, svona „til að hygla þessum ágæta frænda okk- ar“. Hann hefur ekki sungið mikið eftir Grieg en hlakkar til að glíma við tónskáldið. „Það era þarna perlur innan um, eins og Váren og Jeg elsker dig. Tilvalið efni til að fagna vorinu." Lög fyrir selló og pianó Á efnisskrá era einnig nokkur þekkt lög fyrir selló og píanó sem Gunnar Kvaran sellóleikari tríósins segir hafa verið valin með hliðsjón af sönglögunum. Þar á meðal er Svanur- inn eftir Saint Saéns. „Svanurinn er hluti af stærra verki, Hátíð dýranna, sem samið var fyrir tvö píanó og hljómsveit. Þegar Saint Saéns lést var farið að glugga í hans pappíra og kom þá í ljós að þetta verk hafði hann samið til að gera góðlátlegt grín að vinum sínum. Þama era fílar, asnar og hvaðeina en svanurinn var sjálfs- mynd tónskáldsins. Hann kemur því vel út úr þessu," segir Gunnar hlæj- andi. Gabriel Fauré samdi mikið fyrir selló og píanó og á tónleikunum verð- ur leikið hans frægasta verk fyrir þessa hljóðfæraskipan, Elegie. Á efnisskrá er einnig Rondo eftir Luigi Boccherini. „Hann var geysi- lega frægur sellóleikari á sinni tíð, átjándu öld, og samdi mikið af verk- um fyrir selló, meðal annars tíu kon- serta, og hafði líka mikla þýðingu fyrir þróun hljóðfærisins. Rondo er útsetning á síðasta kaflanum úr þekktasta strengjakvintett sem Boccherini samdi fyrir tvær fiðlur, víólu og tvö selló. Þess má raunar geta að hann varð fyrstur í sögunni til að semja kvintett þar sem í voru tvö selió.“ Þá verður leikið eitt af vinsælustu lögum Sergeijs Rakhmanínovs, Vocalise. „Þetta er ein af perlum Rakhmanínovs og er bæði til fyrir fiðlu og píanó og selló og píanó. Báðar útsetningar era mjög fallegar. Þekkt- ust er Vocalisan þó sennilega í útsetn- ingu Stokovskíjs fyrir rödd og strengjasveit." W.H. Squire á líka verk á efnis- skránni, Tai'antelle. „Squire var mjög þekktur sellóleikari í Bretlandi á síð- ari hluta mtjándu aldar og samdi mik- ið af smálögum fyrir selló og þetta er eitt af þeim þekktustu," segir Gunn- ar. Peter Máté, píanóleikari tríósins, mun síðan flytja verkið Sonata per pianoforte eftir John Speight. „Þetta er verk í ijóram köflum sem samið var að minni beiðni fyrir tveimur ár- um og framflutt í febrúar síðastliðn- um í Salnum. Sónatan er í gömlu formi en með nýstárlegum hætti, eins og tónskáldið segir sjálft," segir Peter og bætir við að það sé mikilvægt bæði fyrir flytjanda og höfund að verkið sé flutt aftur svo skömmu eftir fram- flutning. „Það hjálpar manni að kynn- ast verkinu betur.“ Njrjar bækur • ÓTROÐNAR slóðir - Leiðbein- ingar um þróunarstarf er eftir Guð- rúnu Kristinsdóttur dósent við Kennaraháskólann. Þetta er hand- bók fyrir kennara þar sem leiðbeint er um þróunarstarf og getur hún einnig nýst skyldum starfsstéttum, segir í fréttatilkynningu. Þróunarstarf fer víða fram í skól- um enda hefur mönnum lengi verið Ijós þörfin á símenntun og breyting- um í skólastarfi. Á síðari áram hefur einstaklingum, kennarahópum og skólum fjölgað sem vinna að þróun- arverkefnum. í ritinu er leiðbeint um hvemig fylgja má eftir hugmynd að breyt- ingum, gera vinnuáætlun, standa að framkvæmd verkefna, leggja á þau mat, gera skýrslu og miðla reynslu af nýbreytnistarfinu til annarra. Guðrún Kristinsdóttir er dósent við Kennaraháskóla Islands. Hún hefur víðtæka reynslu af ráðgjöf við einstaklinga, stofnanir og stjórnend- ur og hefur m.a. haft með höndum ráðgjöf við þróunarstarf á vegum endurmenntunardeildar Kennara- háskóla íslands. Útgefandi er Rannsóknarstofnun Kennaraháskóla íslands. Ritið er33 bls. • HEIMSPEKI og börn er eftir bandaríska heimspekinginn Gareth B. Matthews í þýðingu Skúla Páls- sonar. Bókin er ætluð foreldrum, kenn- uram og öðram sem vinna með börn- um og lýsir höfundurinn heimspeki- legum samtölum við þau. Fyrst er lýst hæfileika barna til að undrast, en hann er undirrót vís- indalegrar hugsunar. Höfundurinn sýnir hvemig leikgleði barna getur komið fram í heimspekilegri sam- ræðu, hvemig þau hafa yndi af tví- ræðni, þversögnum og afstæðum hugtökum. Sérstakur kafli er helg- aður Piaget, þeim sálfræðingi sem einna mest áhrif hefur haft á hug- myndir fræðimana og uppeldisstétta um vitsmunalegan þroska barna og setur Matthews fram ákveðna gagn- rýni á Piaget, segir í fréttatilkynn- ingu. Gareth Matthews er bandarískur prófessor í heimspeki sem hefur sér- stakan áhuga á heimspekilegri hugs- un barna. Hann hefur fjallað um barnabækur í tímaritið Thinking og hefur að auki skrifað tvær bækur um svipað efni, Samræður við börn og Heimspeki bemskunnar. Útgefandi erSóleyehf. Bókin er 134 bls. IÐNÚ sér um dreifingu. Af hverju ekta fjórhjóladrifsjeppa? Jimny er ódýrasti alvöru jeppinn á markaðnum og eins og aðrir jeppar frá SUZUKI er hann grindarbyggður og með hátt og lágt drif. Grindarbygg- ing Jimny gefur honum ótvíræða kosti umfram jepplinga með sídrifi, dregur t.d. úr veghljóði og gerir það mjög einfalt að hækka hann upp. Með Jimny færð þú ekta jeppa á verði smábíls.Auk þess er rekstrar- kostnaðurinn líka eins og á fólksbíl, hann eyðir litlu, tryggingar eru ódýrar og bifreiðaskattur lágur miðað við aðra alvöru jeppa. Þetta telur allt. Jimny - ekta jeppi TEGUND: VERÐ Jimny JLX 1.3 1.459.000 KR. Sjálfskipting 130.000 KR. SUZUKIBILAR HF Skeifunni 17. Sími 568 51 00. www.suzukibilar.is Ólafur J. Kolbeins Sölufulltrúi IRJLL sn iní jtil Éjju SUZUKI SÖLUUMBOÐ: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, slmi 431 28 00. Akureyri: BSA hf., Laufásgötu 9, slmi 462 63 00. Hafnarfjörður: Guðvarður Elíasson, Grænukinn 20, simi 555 15 50. Hvammstangi: Bila- og búvélasalan, Melavegi 17, simi 451 26 17. Isafjörður: Bilagarður ehf.,Grænagarði, simi 456 30 95. Keflavfk: BG bllakringlan, Grófinni 8, simi 421 12 00. Selfoss: Bilasala Suðurlands, Hrlsmýri 5, simi 482 37 00.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.