Morgunblaðið - 08.04.2000, Side 41

Morgunblaðið - 08.04.2000, Side 41
I MORGUNBLAÐIÐ VIK m fD LAUGARDAGUR 8. APRIL 2000 41 hreyfingum og viðbrögðum. Þannig nær eldra fólk ekki sömu hámarkshjartsláttartíðni við áreynslu og yngra fólk. Vöðvasam- dráttur verður hægari og stafar það meðal annars af því að fækkun verð- ur á einni af tveimur tegundum vöðvaþráða, snörpu tegundinni. Taugaþræðir eru umvafðir efni sem kallast myelín. Myelín sér til þess að hraða flutningi taugaboða. Ef myelín verður fyrir hrömun, eins og gerist gjaman með hækkandi aldri, hægir á taugaleiðni. Af þessu leiðir að aldraðir ganga hægar og hlaupa hægar en yngra fólk. Til að mynda er stór hluti aldr- aðra svo hægur í hreyfingum að hann kemst ekki yfir götu á grænu Ijósi, þótt að frískir séu. Síðan em margir eldri borgarar með sjúkdóma og á lyfjum sem hægja enn á við- brögðum. Þessi viðbragðsseinkun kemur einnig fram í því hvemig fólk bregst við byltum. Um sextugt nær fólk að rétta út höndina við byltu og verjast þannig, en þeir sem eru óheppnir brotna á úlnlið. Þeir sem eru 15 árum eldri ná ekki að setja höndina jafn langt og geta því brotn- að á upphandlegg. Þeir sem em enn eldri eða meira lasburða ná alls ekki að bera fyrir sig höndina og brotna því eða merjast á mjöðm. Einnig verða margvíslegar breyt- ingar í miðtaugakerfi aldraðra, þó að þeir sé frískir. Taugafmmum í mið- taugakerfi fækkar og þéttni á ýms- um af boðefnum heilans minnkar. Við þetta hægir á allri úrvinnslu heil- ans. Mikill breytiieiki er milli aldraðra einstaklinga. Mjög frískt eldra fólk, sem þjálfar sig líkamlega og viðheld- ur andlegu atgervi með lestri, tján- ingu og hvers konar virkni, getur verið betur á sig komið en margur sá sem yngri er. En jafnvel þetta frísk- asta eldra fólk hefur þó óumdeilan- lega ákveðnar aldurstengdar breyt- ingar sem hægja á tauga- og vöðvaviðbrögðum. Hvemig skynja menn hraða tím- ans með hækkandi aldri? í því er mikill breytileiki meðal aldraðra og vaxandi með hækkandi aldri. Böm upplifa tímann þannig að hann sé lengur að líða en þeir sem fullorðnir era. Frísku og önnum köfnu fóki á miðjum aldri finnst tíminn fljúga áfram. Hver tímaeining hjá ungri manneskju er stærra hlutfall af æv- inni en sama tímaeining hjá eldra fólki og kann það að skýra upp- lifunina að nokkra leyti. Hins vegar kann upplifunin einnig að tengjast þeim verkefnum sem manneskjan tekur sér fyrir hendur. Þegar komið er á eftirlaun setjast sumir í helgan stein í orðsins fyllstu merkingu, en aðrir taka upp marg- vísleg áhugamál. Þeir sem fylla tíma sinn með viðfangsefnum tjá sig gjaman um að tíminn líði hratt, en þeir sem sitja í iðjuleysi kvarta oft um það hve tíminn sé lengi að líða. inni, líðan ykkar og fegurðinni sem virðist allt um kring vísar til trúar- legs innsæis. Annar draumurinn er einnig tengdur trúarlegum táknum. Marg- arma kertinu (alþjóðlegt), austrinu sem uppruna trúar, stúlkunni dökku sem tengingu og pabbanum sem ím- ynd klerks. Þriðji draumurinn líkist fyrsta nema hvað þar era skoðuð spor genginna kynslóða og farið inn gang tímans til að skynja stuðning þess við kirkju og helgihald. Þegar draumamir þrír era skoð- aðir kemur í ljós að þessar vanga- veltur um trú og helgihald eiga sér langan aðdraganda og þú ert meir og meir að ná tökum á óljósum hug- renningum þínum um hvað sé raun- veruleg trú, hvaðan sá raunveruleiki sé sprottinn og hvert leiðin liggi nú við trúarleg tímamót. •Þeirlesendursem viljx fá dmumn sfna birta og ráðna sendi þá með fullu nafni, fæðingnr- degi og ári ásamt heimilisfangi og dulnefni til birtingar til: Draumstafír Morgunblaðið Kringlunni 1 103 Reykjavfk eða á heimasíðu Draumalandsins http://www.dreamland.is Andleg líðan spilar hér einnig inn í. Þeir sem era daprir og niðurdregnir upplifa tímann þannig að hann sé lengi að líða, öfugt við þá sem era virkir eða jafnvel ofvirkir. Tíminn er afstæður og erfitt að skilja tímann og upplifa hann. Það getur því verið gagnlegt að tala ann- ars vegar um tíma alheimsins frá „Miklahvelli" til okkar dags, stjarn- fræðilegan tíma, og hins vegar tím- ann eins og við upplifum hann sem manneskjur. Samhengi tíma og ald- urs hefúr verið manneskjunni hug- leikið allt frá fyrstu skráðu heimild- um. I austrænum hefðum hafa kenningar um líffræði elllinar og tímann tengst heimspekilegum kenningum um lífið. Þetta kemur vel fram í taóisma þar sem áhersla er lögð á það að hramleiki ellinnar sé ekki óumflýjanlegur og sé á ábyrgð einstaklingsins. I búddisma sem þróaðist fyrst- á Indlandi og barst síðan yfir til Kína og flestra annarra Asíulanda era aðrar hugmyndir ríkjandi um ellina og tímann. Samkvæmt kenningum búddisma er lífið þjáning, þar sem elli, hrumleiki og dauði eru all- sráðandi. Til þess að draga úr þján- ingum lífsins þarf manneskjan að vera sérstaklega meðvituð eða íhug- ul í þessu lífi og hinu næsta. Þá mun hún loks komast að því að þjáningin er skynvilla og komast á stig tíma- lausrar visku sem er ótrafluð af elli- nni. Hippokrates, faðir vestrænnar læknisfræði, talaði um lífið sem fjög- ur þrep: barnæsku, unglingsár, full- orðinsár og elli. Hvert stig ævinnar svaraði til eins af fjóram líkamsvess- um, sem vora um aldir grandvöllur læknisfræðilegrar hugsunar á Vest- urlöndum. Samsvöranin við fjórar árstíðir er augljós. Fyrir siðaskiptin er líklegt að lífaldur hafi skipt litlu máli af því að fæstir vissu hversu gamlir þeir vora. Eftir siðaskiptin komu fram ný hugtök og tíminn var eitt slíkt mikilvægt hugtak. Þá var farið að virða tímann sem mikilvæga mannlega eign og það hvernig fólk verði tímanum réð því hvort það teldist lifa góðu og happadrjúgu lífi eða ekki. Jafnframt varð tíminn erki- óvinur mannsins og hver klukku- stund minnti manninn á að lífið er endanlegt. Kapphlaupið við tímann hófst og er það mikill streituvaldur í nútímasamfélagi. Nú hefur tekist að lengja líf ávaxtaflugu um 40% með því að breyta erfðavísum sem skrá fyrir virkni afoxunarkerfisins, en það hindrar að vefir hrömi við það að súrefni gangi í samband við þá. Einnig hefur tekist að greina gen í litlum ormi (C. elegans), sem ákveð- ur tímalengd þá sem ormurinn getur legið í dvala, en það er leið ormsins til að veijast óhagstæðum lífsskil- yrðum. Með því að hafa áhrif á lengd dvalans mátti lengja líf ormsins. Ef það tekst að greina langlífisgen í mönnum og hafa áhrif á þau til líf- slengingar mun upplifun mannsins á tímanum enn breytast. Sú upplifun mun samt alltaf vera breytileg milli einstaklinga og eftir æviskeiðum og tengjast meðal annars andlegri líðan og virkni einstaklingsins á efstu ár- um. Pálmi V. Jónsson læknir, dósent við læknadeild Háskóla íslands Sjá heimildaskrá á vefsíðu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.