Morgunblaðið - 08.04.2000, Síða 50
50 LAUGARDAGUR 8. APRÍL 2000
MARGMIÐLUN
MORGUNBLAÐIÐ
Tölva í hvert
hreysi?
Tölvuvœðing vestrænna þjóðfélaga hef-
ur vissulega valdið byltingu. Hins vegar
ferþvífjarri, enn sem komið erað
minnsta kosti, að sú bylting nái til allra
þjóðfélagsþegna. I Bandaríkjunum hafa
menn afþví æ meiri áhyggjur að tölvu-
væðingin myndi gjá á milli þeirra sem
hafa aðgangað nýjustu tækni oghinna
sem hafa ekki tækifæri til að færa sér
þessa tækni í nyt.
CLINTON Bandaríkja-
forseti hefur lýst
áhyggjum sínum
vegna þessarar þró-
unar og viU nota millj-
arða dollara til að tryggja fólki með
lægstu tekjumar aðgang að Net-
inu. Forsetinn segir takmarkið að
netaðgangur verði jafn algengur
og sjálfsagður og símanotkun.
Clinton verður tíðrætt um
tæknigjána og ýmist lýsir hann því
yfir, að hann vilji tryggja tölvu í
hverja skólastofii, eða að hann vilji
UUUADC tryggja tölvu á
■ itWIWIfr hvert heimili.
Þð verður
a.m.k. eitt höf-
uðverkefiia
hansáþessu
síðasta ári í embætti að brúa
tæknigjána, aðþvi er hann hefur
marglýst yfir. A næstunni ætlar
hann að ferðast til þeirra staða
Bandaríkjanna, þar sem fæstir
hafa netaðgang og hvetja íyrirtæki
til að styðja við bakið á einstakling-
um sem vilja aka á upplýsinga-
Eftlr Hönnu
Katrínu
Friðriksen
hraðbrautinni.
Auðvitað er ekki nema gott eitt
um það að segja að Bandaríkja-
forseti hvetji til þess að allir skóla-
nemendur hafi aðgang að tölvu.
Það er meira að segja í hans valdi
að tryggja að svo verði. Upp-
hrópanir um tölvu á hvert heimili
eru hins vegar hæpnari. Þetta er
nefnilega allt spuming um peninga
eins og fyrridaginn. Það smáatriði
kemur ekki í veg fyrir að forsetinn,
forsetaframbjóðendumir A1 Gore
og George Bush og alls konar tals-
menn tölvulyrirtækja tjái sig fjálg-
lega um tæknigjár og brúarsmíði.
Það er meira að segja þörf á
snjöllum brúarsmiðum í gósen-
landi tölvutækninnar, sjálfum Kís-
ildal í Kalifomíu, þar sem eigendur
og stjómendur tölvufyrirtækja
hafa innantökur vegna of mikils
auðs, eins og frægt er orðið. I þess-
um sama dal er hins vegar að finna
fólk, sem á vart tíl hnífs og skeiðar.
Það var heldur hlálegt að fylgjast
með fréttum á dögunum um „tölvu
á hvert heimili“ þegar í sömu
fjölmiðlum var skýrt frá kjarabar-
áttu húsvarða í Kísildal. Fyrir
nokkrum áram duttu að vísu marg-
ir úr þeirri stétt í lukkupottínn, því
nýstofnuð tölvufyrirtæki létu
starfsmenn sína, hvaða starfi sem
þeir gegndu, gjaman fá hlutabréf í
íyrirtækjunum og þau bréf hafa
oftar en ekki margfaldast í verði.
Bn eins og víðar þýddi hin óhjá-
kvæmilega og margblessaða þróuh
á vinnumarkaði að stofnuð vora
fyrirtæki, sem sáu úm viðhald og
þrif í fyrirtækjunum. Þau réðu svo
starfsmenn á fostum húsvarðarlús-
arlaununi og það þarf engum að
koma á óvart að í hópi húsvarðanna
era 95% af suður-amerísku bergi
brotnir.
Stéttarfélag húsvarða birti á
dögunum niðurstöður könnunar
sem gerð var meðal félagsmanna.
Þar kom fram að tekjur heimila
húsvarða ná aðeins 2/3 af þeim
telqum sem teljast lágmarks-
upphæð tíl að framfleyta 4 manna
fjölskyldu. Húsnæðið er oft ekki
beysið. 133% tilvika hafa bömin
ekld eigið herbergi og þurfa að
sofa inni í stofu og 12% húsvarð-
anna búa í einu herbergi, bflskúr
eða hjólhýsi.
Núna er þessi láglaunahópur að
undirbúa mikla kröfugöngu í lok
apríl, til að leggja áherslu á kröfur
sínar um launahækkun. Þeir vilja
hækka um rúmlega 90 krónur á
klukkustund, en sem stendur eru
launin um 560 krónur á klukku-
stund.
Talnaglöggir menn hafa reiknað
það út, að það taki risafyrirtækið
Sun Microsystems tæpa mínútu að
afla tekna til að mæta launahækk-
unum 50 húsvarða sem starfa hjá
fyrirtækinu. Hjá öðra fyrirtæki,
Silicon Graphics, væri hægt að afla
tekna fyrir launahækkun 10 hús-
varða á sléttri mínútu og stórfyrir-
tækið Cisco Systems, sem hefur
120 húsverði í byggingum sínum
vítt og breitt um dalinn, væri tæp-
ar 3 mínútur að afla teknanna.
Sömu talnaglöggu mennirnir hafa
hins vegar reiknað út, að launa-
hækkunin myndi gera fjögurra
manna fjölskyldu, sem nú hírist í
tveggja herbergja íbúð, mögulegt
að flytja í þriggja herbergja. Það
verður fróðlegt að sjá hvemig hús-
vörðunum famast í kjarabaráttu
sinni í Kísildal.
í kjölfar svona frétta læðist
óhjákvæmilega að manni sá gran-
ur að það geti reynst þrautin
þyngri að koma tölvu í hvert hús.
Hugmyndir um „átak“ í þessa
vera, því auðvitað þarf að hrinda
„átaki“ af stokkunum eins og ávallt
í þjóðþrifamálum, virðast heldur
óljósar. Forsetinn ætlar ekki að
láta aka heilu bílförmunum af tölv-
um í fátækrahverfin, enda væri
slíkt óhemju dýrt og illframkvæm-
anlegt. Frekar á að veita fyrirtækj-
um skattaafslátt ef þau gefa tölvur.
Svo á að þjálfa kennara og setja
upp tölvuver í samfélögum sem
dregist hafa aftur úr í tæknikapp-
hlaupinu, svo dæmi séu nefnd.
Svo má ekki gleyma að taka með
í reikninginn, að því fer fjarri að öll
heimili vflji tölvu, eða hafi að
minnsta kosti aðra forgangsröð en
Clinton og félagar. Þetta hljómar
ábyggilega sérkennflega í eyrum
innvígðra netveija, en samt er það
svo að sumt fólk hefur það bara
bærilegt án nettengingar og aðrir
setja ofar á forgangslistann smá-
atriði eins og boðlegt húsnæði,
mat, aðgang að heflsugæslu og
góða almennamenntun.
Clinton hefur sagt að netað-
gangur sé eitt af helstu mannrétt-
indamálum 21. aldarinnar. Stjóm-
málamönnum finnst líka
ábyggilega slagorðið „tölva á hvert
heimili" flott og bjóða af sér þokka
hinna veraldarvönu. Það er gott og
blessað, en öllu verra er ef þetta
þýðir úreldingu gömlu slagorð-
anna; „mannsæmandi laun fyrir þá
verst stöddu“ eða „tiyggja skal að-
gang allra að heilsugæslu" áður en
skilaboð þeirra verða að veruleika.
Lengi von á einum
Pað þóttu mikil tíðindi
þegar ný betaútgáfa af
Navigator 6 barst á
Netið. Arni Matthías-
son sótti sér eintak og
segir að vafrinn hleypi
nýju lífí í vafrasam-
keppni.
ÞÓ NETSCAPE Navigator hafi
ekki verið fyrsti vafrinn þá var
hann sá fyrsti sem eitthvað kvað að
og náði á skömmum tíma gríðar-
legri útbreiðslu. Microsoft var ekki
viðbúið Netinu á sínum tíma en
keypti sig inn með því að kaupa
vafra frá öðra fyrirtæki, endur-
nefna hann og breyta og endurbæta
talsvert. Fyrir ýmsar sakir náði það
síðan yfirhöndinni, meðal annars
með aðferðum sem það var dæmt
fyrir í rétti vestan hafs á dögunum,
en Netscape fór halloka og var á
endanum selt AOL netþjónustunni.
Síðan hefur hægt veralega á þró-
un vafra Netscape, en fyrirtækið
gaf þróun hans frjálsa, þ.e. heimil-
aði öllum sem vildu að eiga við
grannkóðann, meðal annars til að
reyna að flýta fyrir vinnunni. Sam-
hliða því var gömlu útgáfunni, 4,
haldið við, en öðra hvora hafa kom-
ið út punktaútgáfur af henni og nú
hægt að fá 4.7. Á sama tíma hefur
Intemet Explorer farið í 5.5 og
munurinn á vöfranum orðinn all-
mikill. Vegna fjölda galla í Net-
scape Navigator / Communicator
4.7 er svo komið að Internet
Explorer er almennt talinn talsvert
betri vafri, en svar Netscape við því
var svo að hlaupa yfir fimmtu út-
gáfu vafrans og senda frá sér
fyrstu kynningarútgáfu af vafran-
um sem kallast Netscape 6.
Mjög frábrugðinn
fyrri gerðum í útliti
Þeir sem fylgst hafa með þróun
Netscape 6 síðustu mánuði hafa
getað sótt sér framstæðar prufuút-
gáfur af vafranum, reyndar allt frá
því í nóvember 1998, og þannig séð
hvemig miðaði og hvað nýtt væri í
aðsigi. Þeir verða því ekki mjög
undrandi þegar þeir berja augum
vafrann nýja, enda svipar honum í
flestu til svonefndrar Mozilla-út-
gáfu sem sækja hefur mátt á vef-
setur mozilla.org. Aðrir reka vænt-
anlega upp stór augu, enda er
Netscape 6 mjög frábrugðinn fyrri
gerðum vafrans í útliti og uppsetn-
ingu.
Vafrar hafa farið álíka leið og
annar hugbúnaður, orðið sífellt
stærri og stærri og gert æ rneiri
kröfur til vélakosts notenda.
Netscape 6 snýr þeirri þróun við,
enda er hugbúnaðurinn talsvert
minni en aðrir vafrar en þó öflugri.
Þetta náðist fram með því að end-
urskrifa þann hluta vafrans sem sér
um að birta vefsíður og Netscape-
menn kalla Gecko, en með því móti
náðist líka að auka hraðann tals-
vert. Þó erfitt sé að alhæfa um
slíkt, því lokagerð Netscape 6 kem-
ur ekki á markað fyrr en í haust, er
ljóst að vafrinn nýi er talsvert
hraðvirkari en eldri gerðir Net-
scape-vafra og einnig mun hraðvir-
kari en Intemet Explorer 5.5.
í nýju útgáfunni er einnig skilið
á milli birtingarhluta og viðmóts
vafrans og því auðvelt fyrir fyrir-
tæki og einstaklinga að breyta við-
mótinu og útliti eftir því sem þeim
sýnist sjálfum. Einnig verður í fyll-
irigu tímans hægt að sækja sér
myndaskrár til að breyta útlitinu,
líkt og hægt er með NeoPlanet
vafrann.
Verulega endurbætt pdstforrit
Með Netscape Communicator
hefur fylgt þokkalegt póstforrit, en
er veralega endurbætt í nýju gerð-
inni. Þannig er í því nú stuðningur
við mörg netföng, sem alsiða er að
menn komi sér upp af ýmsum
ástæðum. Vestan hafs þykja tíðindi
að Netscape 6 styður póstsnið
AOL, en kemur varla að miklum
notum hér á landi.
Þegar forritið er ræst í fyrsta
sinn birtist síðan sem verið er að
skoða í glugga hægra megin en
vinstra megin er annar gluggi með
flýtitilvísunum og síðulista. Þann
lista er hægt að sníða til og laga að
vild, meðal annars láta hann hverfa
með einum smell. I glugganum má
birta ýmsar upplýsingar um vefset-
ur og hluta úr vefsíðum ef vill,
þannig að nánast er sem viðkom-
andi sé með tvo vafra opna í einu.
Sum fyrirtæki hafa þegar hannað
síður sem birtast sem sérstakir
reitir í þessum hliðarglugga.
Þar sem hugbúnaðurinn var gef-
inn öllum frjáls til breytinga og
þróunar tóku menn upp stuðning
við opna staðla og þannig styður
Netscape 6 fyllilega HTML 4.0,
CSSl, CSS2 að mestu leyti og
XML 1.0. Einnig er svo um hnút-
ana búið að einfalt er að laga vafr-
ann að öðram stýrikerfum og má
nefna að Linux útgáfa hans var til-
búin um leið og Windows útgáfan.
Mjög hefur verið deilt á vafrafram-
leiðendur fyrir að bæta tögum inn í
HTML síðulýsingarmálið, enda
kepptust um tíma Netscape og
Microsoft um að bæta við sérkenni-
legum tögum. í nýja vafranum er
aftur á móti aðeins stuðningur við
viðurkennd tög úr HTML og þann-
ig skilur vafrinn ekki ýmis gömul
Netscape tög sem ekki hafa hlotið
almenna viðurkenningu og ekki
sitthvað sem Microsoft hefur reynt
að lauma inn í HTML.
Þó enn sé talsverð vinna eftir við
Netscape 6 má segja að vafrinn sé
mikils vísir og hleypi nýju lífi í
vafrasamkeppni sem skilað hefur
hundraðum milljóna netnotenda
framúrskarandi ókeypis hugbúnaði.
Aðrir vafrar
FLEIRIVAFRAR eru fáan-
legir en Intemet Explorer
og Netscape Navigator. Op-
era heitir vafri af norsku
bergi brotinn sem seldur er
á Netinu, en einnig eru til
fleiri ókeypis vafrar, þar á
meðal NeoPlanet sem býður
upp á ýmsa skemmtilega
möguleika.
NeoPlanet er ekki bein-
linis vafri, enda krefst hann
þess að Internet Explorer sé
upp settur á viðkomandi
tölvu. NeoPlanet tekur síð-
an völdin af Explorer og
nýtir sér lykilþætti hans til
að lesa vefsíður. Helstu
breytingamar em að við-
mótið er talsvert frábmgðið og
einnig að hægt er að breyta því
i veigamiklum atriðum með þvi
að sækja sér svonefnd skinn.
Þannig getur áhugasamur
breytt viðmóti vafra síns til að
minna á uppáhalds íþróttafélag
hans, eða teiknimyndapersónu,
eða einfaldlega valið sér vírað
eða sýrt útlit. Einnig em í
NeoPlanet talsverðar endur-
bætur til þess fallnar að auð-
velda mönnum að nota Netið og
vefinn, til að mynda bættir leit-
armöguleikar með svonefndri
Flyswat-viðbót, samskipta-
möguleikar em auknir, auð-
veldað að taka við fréttarásum í
sérglugga og svo má telja.
Utgáfa 5.1 af NeoPlanet kom
út nýverið og felur í sér póst-
forrit, spjallforrit, skilaboða-
þjón, leitarvél og svo má telja.
Hægt er að sækja sér ókeypis
útgáfu af NeoPIanet á slóðinni
www.neoplanet.com/ og
skinnasafnið er á sama stað.
Opera 4 vafrinn er nú í beta-
prófun og áhugasamir geta sótt
sér kynningareintak á slóðina
www.opera.com. Þar er einnig
hægt að nálgast lokaútgáfu 3.62
sem skoða má án endurgjalds
en kostar frá 1.500 til 3.000 kr.
eftir notkun. Opera vaframir
em til fyrir Windows, EPOC,
BeOS og Linux, en Linuxútgáf-
an er alfa-útgáfa. Væntanlegar
em útgáfur fyrir MacOS og
OS/2.