Morgunblaðið - 08.04.2000, Síða 56

Morgunblaðið - 08.04.2000, Síða 56
MORGUNBLAÐIÐ 56 LAUGARDAGUR 8. APRÍL 2000 /f11 1 ...............'■■■■■ MINNINGAR ÁRNIBJÖRGVIN HALLDÓRSSON + Árni Björgvin Halldórsson hæstaréttarlögmað- ur fæddist á Borg í Bakkagerði á Borg- arfirði eystra 17. október 1922. Hann lést á sjúkrahúsinu í Neskaupstað 31. mars síðastliðinn. Foreldrar hans voru Halldór Ásgrímsson frá Grund í Borgar- firði eystra, f. 17. apríl 1896, d. 1. des- ember 1973, og kona hans Anna Guðný Guðmundsdóttir frá Hóli í sömu sveit, f. 7. desember 1895, d. 20. nóvember 1978. Halldór var kaup- félagsstjóri á Borgarfirði og síðar á Vopnafirði og alþingismaður í rösk 20 ár. Anna Guðný var barna- kennari á Borgarfirði og á Vopna- firði í nær 40 ár. Árni Björgvin var elstur fimm sona þeirra Halldórs og Önnu. Þeir voru Ásgrímur Helgi, f. 1925, d. 1996, Ingi Bjöm f. 1929, Guðmundur Þórir, f. 1932, og Halldór Karl, f. 1937. Eftirlifandi eiginkona Áma er j Kristín Gissurardóttir hjúkrunar- kona, f. 15. mars 1921, dóttir hjón- anna Gissurar Filippussonar renn- ismiðs á Seyðisfirði og Rannveigar Gunnarsdóttur húsfreyju. Ámi og Gína gengu í hjónaband 31. desem- ber 1949. Ámi stundaði nám í Alþýðuskól- anum á Eiðum. Hann varð stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri 1944 og lauk embættisprófi í lög- fræði frá Háskóla íslands 1949. Hann stundaði nám í skattaút- reikningi við skóla IBM í Kaup- ■r- mannahöfn og Álaborg vorið og fyrrihluta sumars 1953. Ámi varð héraðsdómslögmaður 1954 og hæstaréttarlögmaður 1966. í námshléum á æskuárum sínum stundaði Árni al- menna vinnu til sjós og lands eins og títt var. Að loknu embætt- isprófí, starfaði hann sem fulltrúi á Lög- fræðistofu Áka Jak- obssonar hrl. og Krist- jáns Eiríkssonar hrl. í Reykjavík frá 1949 til 1950. Hann hóf störf á Skattstofu Reykjavík- ur 1950, varð fulltrúi skattstjóra 1952 og gegndi því starfi til 1958. Þá tók hann við starfi skrifstofustjóra Húsnæðismálastofnunar ríkisins og gegndi því á árunum 1958 til 1962. Árni hóf rekstur eigin lög- fræðistofu í Reykjavík frá 1962 til 1974. Hann sérhæfði sig í skatta- rétti, en verkefni fyrir Austfirð- inga voru alla tíð snar þáttur í rekstri stofunnar. Þetta varð til þess að hann flutti sig um set og hóf rekstur lögfræðistofu á Egils- stöðum árið 1974 og rak hana til ársloka 1998. Ámi gegndi fjölda félags- og trúnaðarstarfa. Meðal þeirra má nefna að hann var fulltrúi Verka- mannafélags Vopnafjarðar á Al- þýðusambandsþingum 1944-46; fulltrúi félags róttækra stúdenta í Stúdentaráði Háskóla íslands 1947-48, í milliþinganefnd í skatta- málum 1958. Hann var virkur í fé- lagsstarfi og bæjarmálum í Kópa- vogi á fyrstu árum sveitarfélagsins og gegndi þá trúnaðarstörfum fyrir bæjarfélag- ið. Hann sat í yfirkjörstjórn Kópa- vogs á 6. áratugnum, kjörinn í yfír- kjörsljóm Reykjaneskjördæmis 1959, 1963 og 1967, í landskjör- sfjóm 1971, 1974, 1978 og 1983, í yfírkjörsfjóm Austurlandskjör- dæmis 1995 og 1999. Hann var til- nefndur af hálfu landeigenda við Laxá og Mývatn í sáttanefnd, sem lauk skaðabótaþætti Laxármála 1975. Árna og Gínu varð sex barna auðið, barnabörnin eru áfján og barnabarnabörnin eru fimm. Böm þeirra eru: 1) Gissur Þór, tré- smíðameistari á Hallormsstað, f. 1948, maki Stefanía Steinþórsdótt- ir, myndlistamaður og kennari. Böm þeirra eru þijú: Rannveig, f. 1970, hún á eina dóttur, Hreftiu Rós Helgadóttur, f. 1991. Steinþór Hannes, f. 1979, Árni Krislján, f. 1982.2) Halldór, efna- og hagfræð- ingur í Reykjavík, f. 1950, maki Þórunn S. Einarsdóttir félagsráð- gjafi. Böm þeirra eru fimm: Ámi Björgvin, f. 1972, kvæntur Krist- ínu Bjarnadóttur, þau eiga eina dóttur, Bryndísi Ingu, f. 1999, en fyrir átti Árni eina dóttur, Karínu Hem, f. 1990. Móðir Sonja Péturs- dóttir. Margrét Herdís, f. 1974, sambýlismaður Sverrir Eiríksson, Einar Egill, f. 1979, Steinn f. 1989 og Kristín f. 1991. 3) Þórhallur, trésmiður á Egilsstöðum, f. 1952, maki Guðlaug Bachmann, sjúkra- liði. Dætur þeirra eru fjórar: Kristúi, f. 1973, hún á eina dóttur, Margréti Halldóru Harðardóttur, f. 1996, Rannveig, f. 1974, hún á einn son, Kolbein Þór Nökkvason, f. 1998, Anna María, f. 1979, og Guðný Rós, f. 1993. 4) Gunnar, myndlistamaður í Reykjavík, f. 1955, maki Jóhanna Pálmadóttir sjúkraþjálfari. Dætur þeirra eru tvær: Margrét, f. 1987, og Brynja Sigríður, f. 1994. 5) Anna Guðný hjúkrunarfræðingur, f. 1956, fyrr- um maki Sigurður Grétarsson tæknifræðingur. Dætur þeirra em Þórunn Gréta, f. 1981, og Kristín Ama, f. 1984.6) Rannveig, dómrit- ari, f. 1958, fyrrum maki Finnur N. Karlsson framhaldsskólakennari. Dætur þeirra eru tvær: Gunnhild- ur, f. 1977, gift Miroslaw Luczynski, og Anna Berglind, f. 1985. títför Áma fer fram frá Egils- staðakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 11. Jarðsett verður á Borgarfirði eystra. Heiðursmaðurinn Ami Halldórs- son í Runu er fallinn frá. Runa er sælureitur á Borgarfírði eystra, sem Ámi reisti sér á yndisfogmm stað. Þangað leitaði Ami jafnt til að gleðj- ast og til að slaka á frá amstri dagsins og hvergi leið honum betur. Klakkur er nafn á færeysku fleyi sem hefur eins og Runa verið hluti af Ama sl. 25 ár. Bátinn keypti Ámi í Færeyjum og víst er að enginn bátur ■ var betri né fegurri í huga hans. Ami var mikill fjölskyldumaður, hann og kona hans Rristín Gissurardóttir eignuðust 6 böm og em afkomend- urnir orðnir 29 talsins. Öll fjölskyldan hefur notið Runu með Áma og ófáar em minningar, þegar stórfjölskyldan var þar saman- komin að sumarlagi. Ami opnaði okk- ur ævintýraheim sem er ströndin milli Borgafjarðar og Loðmunda- fjarðar, Víkumar, Blábjörgin, að ekki sé minnst á Sæluvoginn, sem var nær heilagur staður í huga Áma. Eftir slíkar sjóferðir var nýveiddur þorsk- ur settur í pott og veislu slegið upp fyrir allan hópinn. Oft var mikið um að vera í Runu og mörg handtök unn- . in undir styrkri stjóm Ama, því að mörgu þarf að huga á stóra heimili. Kynni mín af Ama og Gínu konu hans hófust fyrir rúmum 28 áram þegar ég kynntist syni þeirra, Hall- dóri. Ég hefði ekki getað óskað mér betri tengdaforeldra. Gestrisni var þeim í blóð borin, þau voru höfðingjar heim að sækja. Þegar gest bar að garði, vora kræsingar drifnar á borð og sajgnameistarinn og ættfræðingur- inn Ámi Halldórsson kominn í essið sitt. Engan hefí ég þekkt, sem kunni jafn margar sögur af ýmsum atburð- um og fólki og hann tengdafaðir minn. Sagnalist hans var einstök, hann flétt- aði saman atburði svo úr varð ein heild, talaði fagurt íslenskt mál og þreyttist aldrei á að segja frá, fræða og útskýra. Ættfræðiþekking Áma var einstök. Hann var sérfræðingur í ættum Austfírðinga og gat rakið þær fram og tál baka. Skarpar gáfur, ótrú- legt minni og tilfinning fyrir íslenskri tungu þurfti til að tileinka sér þá frá- sagnalist og ættfræðiþekkingu, sem vora meðal aðalsmerkja Áma. Ekki var það síðri eiginleiki Áma hvursu mikill mannvinur hann var og tók jafnan málstað þeirra sem áttu undir högg að sækja í þjóðfélaginu. Ami var lögfræðingur og var þar ör- ugglega á réttri hillu, þar gat hann nýtt alla sína bestu kosti, greind, minni og manngæsku. Jafnframt því að minnast Áma sem önnum kafins lögfræðings, er jafn skýr í huga mér minning um mann sem lét sig hag fjölskyldunnar miklu varða og átti það jafnt við um unga sem aldna. Hann lagði sitt af mörkum til að fjöl- skyldan gæti notið samvista og var hrókur alls fagnaðar þegar veislu var slegið upp. Ámi var öðlingur sem ég tel mig lánsama að hafa átt samleið með. Síðustu mánuðimir vora Ama oft erfiðir. Hann fann lífsþrótt sinn þverra. „Ég finn feigðina nálgast,“ sagði hann, þegar hann dvaldist hjá okkur nú í byijun mars. Að geta ekki skroppið niður í Runu þegar hugur hans stóð til þess, var ekki að hans skapi. Hann var maður ósérhlífinn og var ekki tilbúinn að gefast upp. Ami og Gína hafa að undanfomu búið hjá Önnu Guðnýju dóttur sinni í Fellabæ. Hún lét breyta húsnæði sínu til að þau gætu haft sitt afdrep hjá sér og dætrum sínum. Það hljóta samt að vera erfið skref að leysa upp heimili sitt sem byggt var upp á langri ævi, en Ámi hefði vart getað átt betra ævi- kvöld en þar. Hann sagði oft að þegar honum liði ekki nógu vel, breyttist allt þegar hún Anna Guðný kæmi til sín, þá vissi hann að hann var í öraggum höndum. Öll fjölskyldan metur mikils þá ástúð og umhyggju sem Anna Guðný hefur sýnt foreldrum sínum á liðnum áram, það er ómetanlegt. Elsku Gína, megi góður guð vera með þér og blessa minningu Áma Halldórssonar lögmanns og Runu- bónda. Þérunn S. Einarsdóttir. Hafið bláa hafið hugann dregur. Hvað er bak við ystu sjónarrönd? Þangað liggur beinn og breiður vegur. Bíða mín þar æskudraumalönd. Beggjaskautabyr bauðstméraldreifyr. Bruna þú nú, bátur minn. Svífðu seglum þöndum, svífðu burt frá ströndum. Fyrir stafni haf og himinninn. (ÖmAmarson.) Mig rak á fjörar fjölskyldunnar í Kópavogi fyrir rúmum þrjátíu áram, er ég kynntist syni þínum Gissuri. Mér var tekið vel, en mér leist ekkert á þig, kreijandi mann um svör og skoðanir á öllum málum. Mér var orða vant og stundum var ég reið þér. Tímar hafa liðið og ég svo sannanlega lært að meta þig. Höfðingi varst þú heim að sækja og gestrisni ykkar Gínu einstök. Þú varst þá faðir stórrar fjölskyldu með langan vinnudag að draga björg í bú. En hafið, bláa hafið huga þinn dró og þegar þið fluttust austur eignaðist þú þinn sælureit í þínum æsku- draumalöndum. Ást þín á hafinu og Borgarfirði eystra nær öragglega út fyrir líf og dauða. Arni, ég þakka þér allar sjóferðim- ar á Klakki, sem þú fórst frá Runu með afabömin þín, þar sem þú kennd- ir þeim að veiða og sigldir með þau inn á Sæluvoginn í sólskini til að sjá skuggana og fuglana í björgunum. Þar var þín kirkja. Bömin mín minn- ast sælustunda í Runu þar sem drakkið var Færeyjamalt og étið skerpikjöt. Þar var gert að fiski og afi hámaði í sig hákarl, drakk Hvannar- ót, át súrmat, soðna þorska og sagði sögur. Frásagnarhæfileiki þinn og áhugi fyrir að miðla menningararfinum, sagnarandanum, til annarra var óvenjulegur. Þú varst hrókur alls fagnaðar þar sem komið var saman. Þú barst um- hyggju fyrir afkomendum þínum. Þú varst ráðgjafi allrar þinnar stóra fjöl- skyldu. Þú varst sannur í því sem þú tókst þér fyrir og skófst ekki utan af neinu. Missir okkar er mikill og þessi orð fátækleg. Þakka þér. Nú sé ég þig fyrir mér svífa á Klakki seglum þönd- um, glaðan og reifan, burt frá strönd- um. Fyrir þínum stafni er hafið og himinninn. Hljót þú beggja skauta byr. Hittumst handan við sjónarrönd. Sissa. Elsku besti afi. Á hveiju sumri beið ég þess að ég kæmist með þér í Runu að mála Klakk. Manstu þegar ég skrapaði, pússaði og málaði Klakk al- veg ein og við voram bæði svo stolt af mér. Svo þegar þú dróst mig inn í eld- hús í kaffihlé og þá var amma búin að útbúa rúgbrauð með mikilli kæfu, skera niður í litla bita sem ég borðaði svo með tannstöngli. Mikið fannst okkur Klakkur fínn eftir þessa ferð okkar og ömmu niður á Borgarfjörð. Þú hafðir líka oft orð á því við mig að hann hefði aldrei verið jafn glæsileg- ur og þá. Eitt sinn þegar við voram bara tvö í Runu þá tókum við svo vel til í litlu torfgeymslunni. Þegar þú hélst að ég heyrði ekki til sagðirðu við Magnús í Höfn að ég væri kannski aðeins of ýt- in við þig að halda áfram með verkið. Eftir það reyndi ég að halda aftur af mér við að reka þig út en mér þótti bara svo gott að vinna með þér. Með stuðningi og hvatningu hvort annars komum við ýmsu í verk saman og eftir á voram við alltaf jafn ánægð hvort með annað, skrappum inn og verðlaunuðum okkur með hefðbundn- um „afamat“, súrmat, skerpikjöti, sölvum, Earl-Gray tei og öðra slíku. Þú hafðir svo gaman af því hvað ég var lítil þegar mér fór að líka matur- inn þinn og alltaf varstu að leyfa mér að smakka einhvem nýjan (e.t.v. heldur gamlan) mat. Helst vildi ég fara ein með þér í Runu, það var svo kyrrt og notalegt þegar við sátum tvö ein við gluggann og horfðum út á sjóinn. Sjórinn er þinn, elsku afi, þú kenndir mér að skilja hann og meta. Það var æðislegt að sjá hvað sjórinn hafði góð áhrif á þig og hve vænt þér þótti um hann. Alltaf hljómaði „blásturshljóðfærið" þitt, eins og þú kallaðir andardrátt- inn, betur þegar þú varst í sjávarloft- inu. Það var svo yndislegt þegar þú og amma fluttuð inn til okkar og ég geymi alltaf góðu minningamar um þennan dýrmæta tíma sem við áttum öll saman. Þó að við værum ekki alltaf sammála um hvemig ætti að raða í ís- skápinn og hvaða útvarpsrás ætti að hlusta á þá tókst þér alltaf að telja mér trú um að þín leið væri betri. Þú komst alltaf með svo góð rök á móti mínum aumu afsökunum að ég varð að láta undan. Þínar leiðir vora líka alltaf betri þar sem þú hugsaðir alltaf allt til enda og hafðir ráð við öllu. Fyrir fyrstu jólin ykkar á Ullar- tanganum var ég að fletja út laufa- brauðskökur. Þú sást að ég var orðin eitthvað þreytt á vinnunni og af ein- stakri hjartahlýju fórstu inn í stofu og sóttir bók um Þóranni formóður mína og last um hana fyrir mig þangað til verkinu lauk og auðvitað fannst mér verkið ganga miklu hraðar þegar þú varst til staðar. Alltaf sýndirðu mér hvað þú hafðir mikinn áhuga á Gáska mínum. Þú varst svo fús að skutla mér í hesthús- in og sækja mig þangað aftur og þú varst alltaf að spyija mig hvemig litla greyinu mínu liði. Mér finnst svo leið- inlegt að hafa ekki getað tekið þig með mér á hestbak eins og þig langaði svo til að gera. Þú gafst mér alltaf góð ráð um hvemig ég ætti að siða Gáska minn og kenndir mér svo margt. Það er sárt að hugsa til þess að þegar ég kem aftur til Egilsstaða verði enginn afi á heimilinu. Við höf- um átt sama heimilið í tæp tvö ár og höfum við umgengist hvort annað nánast á hveijum degi þangað til að ég flutti á Selfoss. Það var svo erfitt að vera svona langt frá þér þegar ég vissi af þér veikum á sjúkrahúsinu á Norðfirði. Ég gat ekkert gert til að hjálpa þér eins og þegar þú hóstaðir á nóttunni heima. Þá gat ég komið til þín og reynt að gera það sem í mínu valdi stóð til að þér liði betur. í þetta sldptið var það eina sem ég gat gert að koma til Egilsstaða, hitta þig og sýna þér þannig hvað mér þykir vænt um þig. Þetta reyndist vera síðasta skiptið sem ég hitti þig. Eftir þetta talaði ég einu sinni við þig í síma en þá var röddin þín svo veik og ólík þér. Þú varst alltaf svo sterkur og hraustur og lést ekkert stoppa þig. Okkur gekk alltaf svo vel að vinna saman og við skemmtum okkur svo vel saman. Þú sagðir mér frá svo fyndnu fólki og hvað þú mundir allt og vissir mikið. Oft spurði ég þig: „Afi, veistu allt?“ En þá hlóstu bara að mér. Ég er ennþá sannfærð um að þú vitir allt. Þú fræddir mig svo mikið og gerðir svo miklar kröfur til mín í skól- anum en varst líka alltaf ánægður og stoltur þegar ég kom heim með ein- kunnimar mínar. Ég vildi bara að þú hefðir séð mig klára grunnskólann. Sem betur fer þurftirðu ekki að liggja lengi veikur á sjúkrahúsi. Hjartað þitt vissi að þú vildir ekki daga, þú vildir líf. Þegar hjartað vissi að tíminn væri kominn þá hlýddi það sldpun þinni og hætti að slá. Ég veit að þetta var það sem þú vildir og það er ég svo ánægð með en samt finnst mér svo erfitt að geta ekki hitt þig aft- ur. Ég veit að þér mun líða vel hjá ömmu á Sólbakka og byl mínum. Þið passið hvert annað fyrir mig. Afi minn, ég geri mitt besta á loka- prófunum mínum og ég geri það bara fyrir þig og mig. Þú átt hug minn all- an og munt alltaf eiga. Þú gafst mér svo margt sem ég er svo þakklát fyrir að eiga, en það besta eru þó allar stundimar okkar saman og góðu minningamar. Eins og Ámý vinkona mín segir: „Guð tekur þá til sín sem honum þykir vænt um!“ Ég ætla að senda þér þessa vísu sem þú kenndir mér og við fóram svo oft með saman: Fagurterífjörðum, þá frelsariiui gefur veðrið blítt Heyiðgræntígörðum, grös og heUagfiski nýtt. En er vetur að oss fer að þreyja, þá veit ég ei um veraldarreit, verrisveit. Mennogdýrþádeyja. Ég skal geyma litla leyndarmálið okkar alla tíð eins og þú baðst mig um að gera. Snegglan þín, Kristín Ama. Elsku afi minn. Þegar ég kvaddi þig fyrir tveimur vikum, þá hugðum við ekld á lengra ferðalag en á Norð- fjörð. Ég var sannfærð um að fá þig heim aftur áður en langt um liði. And- lega varstu eins og þú áttir að þér að vera, þú gerðir grín að því sem gert var og engin ástæða til annars en að trúa því að þú hristir veikindin af þér eins og þú hefur alltaf gert. Og það þráðirðu sjálfur, lífslöngunina vantaði ekki því hugur þinn leitaði til Borgar- fjarðar eystra, æskustöðvanna þinna sem þú elskaðir. Aðeins fáeinum dög- um áður en þú fórst sagðirðu við mig að brátt kæmi betri tíð með blóm í haga og með hækkandi sólu héldirðu þangað aftur. Þú bast allar þínar von- ir við Borgarfjörð og um leið og þang- að kæmi batnaði allt. Allar mínar dýrmætustu bemsku- minningar, sem og vafalaust allra bamabamanna þinna, tengjast Runuferðunum með þér. í Runu varstu kóngur í ríki þínu, þar sem þú sast við borðið undir baðstofuglugg- anum og lagðir kapal, hlustaðir á guf- una og drakkst hvannarrót, Runu-te, færeyjaöl eða blessað brennivínið. En yfirleitt höfðu menn margt fyrir stafni þegar þangað kom, það þurfti m.a. að slá flötina, huga að kolluvar- pinu, dytta að húsinu og mála Klakk, fallegustu fleytu í heimi. Ekkert þótti mér meira spennandi en ævintýrasiglingamar á Klakki í Sæluvoginn, þar sem þú kenndir okk- ur að veiða á handfæri og blóðga fisk- inn. Þér þótti ég nú fara heldur klaufalega að, „enda svoddan óttaleg- ur Héraðsmaður“. í þínum augum var það síðasta sort að hafa aldrei migið í saltan sjó, að geta ekki sporð- rennt rúgbrauði með gommu af smjöri, söltuðu selkjöti, súrmat, hrá- um sjófuglaeggjum, fiski eða feitu kjöti. Því miður stóðst Héraðsmaður- inn aldrei manndómsprófið nema að litlum hluta. Mælskuhæfileikar þínir vora takmarkalausir og þekking þín á hin- um ótrúlegustu þáttum sögunnar kom sífellt á óvart. Þú varst ávallt fús
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.