Morgunblaðið - 08.04.2000, Side 74
74 LAUGARDAGUR 8. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Baráttan harðn-
ar á Reykjavík-
urskákmótinu
SKAK
Reykjavíkur-
skákm óti ð
ÖNNUR umferð á Reykjavíkur-
skákmótinu var tefld í Ráðhúsi
Reykjavíkur sl. fimmtudag.
Sterkustu menn mótsins eru fam-
ir að tefla innbyrðis og baráttan
harðnar.
Helgi Ólafsson tefldi mjög vel í
erfiðri vörn gegn gamla ljóninu,
Viktor Kortsnoj, og stóð jafnvel
betur, þegar jafnteflið var samið.
Þröstur Þórhallsson og Timman
sömdu um skiptan hlut í skák, þar
sem jafnvægið raskaðist aldrei
verulega.
Hannes Hlífar Stefánsson vann
Jón Viktor Gunnarsson í flókinni
skák. Helgi Áss Grétarsson varð
að sætta sig við jafntefli gegn
Sarbok.
Á mótinu tefla þrír komungir
erlendir skákmeistarar, sem þeg-
ar hafa sýnt að þeir kunna ýmis-
legt fyrir sér. Enski alþjóða-
meistarinn, Luke McShane, 16
ára, rúllaði bandaríska stór-
meistaranum, Larry Christian-
sen, upp í 2. umferð, og stórmeist-
aramir.Grisjúk (Rússlandi), 16
ára, og Bu, (Kína), 14 ára, hafa
einnig unnið báðar skákir sínar.
Meðal annarra athyglisverðra
úrslita má nefna:
Jonkman vann Ehlvest,
Salmensuu vann Miles.
Efstu menn, eftir 2.umferð:
l.-ll. Short (Engl.), deFirmian
(Bandar.), Hannes Hlífar, Bu
(Kína), Conquest (Engl.), Wojtk-
iewicz (Póll.), Oral (Tékkl.),
Jonkman (Holl.), Grisjúk (Rússl.),
McShane (Engl.) og Salmensuu
(Finnl.), 2 vinninga hver.
Við skulum nú sjá sigurskák
Benedikts Jónassonar gegn al-
þjóðlega meistaranum, Anatolíj
Bykhovsky frá Rússlandi. Rúss-
inn hefur í fjölda ára verið einn af
aðalþjálfurum unglinga í Rúss-
landi, áður í Sovétríkjunum. Hann
er þjálfari hins bráðefnilega Gris-
júks.
Hvítt: Benedikt Jónasson
Svart: Bykhovskíj
Spænski leikurinn
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4.
Ba4 Rf6 5. 00 Be7 6. Hel b5 7.
Bb3 d6 8. c3 00 9. h3 Rd7
Þessi leikur er ekki eins vinsæll
og 9. - Ra5,9. - Rb8 eða 9. - h6.
10. d4 Bf6 11. a4 -
Önnur leið er 11. Be3 Ra5 12.
Bc2 Rc4 13. Bcl Bb7 14. b3 Rcb6
15. Be3 exd4 16. cxd4 c5 o.s.frv.
11. - Bb7 12. axb5 axb5 13.
Hxa8 Dxa8 14. Ra3 Ba6
Eftir 14. - b4 15. Rc4 bxc3 16.
bxc3 Ra517. Rxa5 Dxa5 er staðan
í jafnvægi.
15. Bd5 Rb6 16. dxe5
Rxd5?!
Það er varasamt fyrir svart að
láta biskupinn á f6 í uppskiptum,
því að eftir það verður kóngstaða
hans illa varin.
Sjálfsagt var að leika 16. - dxe5.
17. exf6! Rxf6 18. Bg5 Rd7 19.
Rd4 Rxd4 20. cxd4 b4?!
Svartur hefði átt að leika 20. -
He8 (ekki 20. - h6? 21. Bxh6 gxh6
22. Dg4+, ásamt 23. Dxd7), 21.
Dg4 Rf8, ásamt b4 og Bb7 o.s.frv.
21. Rc2 b3?
Betra var að leika 21. - Hb8 22.
Dg4 Ri8 o.s.frv.
22. Rb4Bb7 23.Dg4!-
23. - Da4
Svartur hefði getað truflað
sóknaraðgerðir hvíts með peðs-
fórn, 23. - f5!?
24. Bh6 g6 25. Hcl! Hc8 26. d5
Rf6
Ekki gengur 26. - Dxb4 27.
Dxd7 Dxe4 28. Hxc7 Hxc7 29.
Dd8+ og mátar. Þegar svarti
riddarinn hreyfir sig vofir hótunin
D-h4-f6-g7 yfir svarti.
27. Dh4 Re8 28. De7 Rg7 29.
Hxc7 og svartur gafst upp. Hann
á enga vöm, t.d. 29. - Hf8 (29. -
Hxc7 30. Dxc7 Db5 31.Rc6) 30.
Hxb7 Dal + 31. Kh2 Dxb2 32. Rc6
Dc2 33. I)xf8+ Kxfó 34. Hb8+
mát.
Bragi Kristjánsson
Styrkja Augndeild
Landspítalans
í GRAFARVOGI era starfandi
tveir Lionsklúbbar, Fold og
Fjörgyn, sem verða 10 ára í vor.
Þeir hafa ákveðið að leggja Augn-
deild Landspítalans lið með kaupum
á tæki sem kostar 1,7 milljónir kr.
Eitt af meginverkefnum Lions-
hreyfingarinnar er vöm gegn
blindu í heiminum.
Tækið er notað til þess að mæla
getu sjónhimnunnar hjá fólki og við-
brögð augans við Ijósi sem er grand-
vallaratriði varðandi sjónskynjun.
Með tækinu er hægt að greina mjög
snemma ef um ákveðna hrömunar-
sjúkdóma er að ræða, til dæmis í
augnbotnum. Eins nýtist tækið vel
ef fylgjast þarf með ákveðnum sjúk-
dómi eins og sykursýki en sá sjúk-
dómur fer meðal annars illa með
augun, segir í fréttatilkynningu.
Einnig opnar það möguleika á víð-
tækari rannsóknum á ýmiskonar
sjúkdómum sem valda blindu.
Fjármagnað með happdrætti
Til þess að fjármagna tækjakaup-
in að hluta til ákváðu klúbbarnir
Fold og Fjörgyn að fara af stað með
happdrættissölu. Happdrættinu var
hleypt af stokkunum þegar nýja
Nóatúnsbúðin í Grafarvogi var opn-
uð og vora undirtektir Grafarvogs-
búa strax mjög góðar. Gefnir voru
út 2000 miðar sem seldir era á 1.000
kr. hver.
Vinningar era eftirfarandi: 1.
vinningur: Daewoo Matiz SE frá
Bílabúð Benna að verðmæti 900.000
kr., 2. vinningur: Flugfarseðlar fyr-
ir tvo til Evrópu í beinu áætlunar-
flugi Flugleiða, 3.-12. vinningur: 10
vinningar Ut að borða frá Naustinu.
Verðmæti 10.000 kr. hver, 13.-22.
vinningur: 10 vinningar. Vöraúttekt
í Nóatúni. Verðmæti 5.000 kr. hver.
Dregið verður 18. apríl 2000. Aðeins
er dregið úr seldum miðum og eru
vinningar skattfrjálsir.
Lionsklúbbamir verða um helg-
ina með miðasölu í Kolaportinu þar
sem bíllinn verður til sýnis og eining
í Blómavali við Sigtún, einnig á
handverksmarkaðnum, Garðatorgi,
þegar hann verður opnaður laugar-
daginn 14. apríl.
ÁG-Mótor-
sport
frumsýn-
ir bíla
VERSLUNIN ÁG-Mótorsport var
opnuð í gær, fóstudag, á Tangar-
höfða 8-12.Verslunin sérhæfir sig í
aukahlutum fyrir götubíla. Vegna
opnunar ÁG Mótorsport verður bíla-
sýning í dag, laugardaginn 8. apríl,
kl. 10-17.
Þar verða tveir Ford Escort
crossworth rally bílar, Toyota Celica
rally bíll, Honda Jordan F1 götubíll,
Toyota Corolla með tveimur vélum
Þetta er framsýning á öllum þessum
bílum, segir í fi-éttatilkynningu
Einnig verða Audi TT, Benz clk,
Subaru Legasy, Subara Impreza
rally og götubíll Alfa 156, Fiat
Bravo, Mazda F V6, keppnis
go-kartbílar og fleira.
I versluninni verður allt á boðstól-
um fyrir keppnismanninn hvort sem
er fyrir rall eða go-kart en aðal-
, áhersla er lögð á götubílinn.
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Bogi Árnason verslunarstjóri og Gísli Ólafsson, starfsmaður ÁG-
Mótorsports.
Kynningar-
fundur Asa-
trúarfélagsins
ÁSATRÚARFÉLAGIÐ býður til
kynningarfundar laugardaginn 8.
apríl kl. 14 um heiðinn sið og starf-
semi Ásatrúarmanna. Félagið hefur
fest kaup á húsnæði á þriðju hæð að
Grandagarði 8 í Reykjavík og verður
fundurinn haldinn þar. Húsið verður
opnað kl. 13.
Á sama tíma verður opnuð mynd-
listarsýning á verkum Hauks Hall-
dórssonar. Þetta era myndverk sem
sækja innblástur í hið foma dagatal
íslendinga. Einnig verða seldar á
staðnum Prímrúnir Hauks, sem eru
rúnatákn fyrir afmælisdaga, sérstök
rún fyrir hvem dag ársins ásamt
rúnaspá.
Erindi flytja: Jörmundur Ingi:
Heiðinn Siður og tengslin við fortíð-
ina, Dagur Þorleifsson: Þjóðartrúar-
brögð og alþjóðleg trúarbrögð og
Guðrún Kristin Magnúsdóttir: Goð-
sagnir og nútímavísindi.
Að loknu kaffihléi verða umræður
þar sem ræðumenn og fleiri sitja fyr-
ir svöram.
Kringlu-
vinir taka
til starfa
ídag
KRINGLUVINIR er nýr fjöl-
skylduklúbbur sem stendur öllum
Kringlugestum til boða. Lögð er
áhersla á fjölbreytta dagskrá þar
sem skemmtun og fræðsla ráða ríkj-
um.
Fyrsta uppákoman á vegum
klúbbsins verður laugardaginn 8.
aprfl kl. 10.30 á Stjömutorgi, veit-
ingasvæði Kringlunnar en síðan
verður haldið áfram alla laugardaga
fram á sumar. Nauðsynlegt er að
mæta eilítið fyrr eða uppúr kl. 10 til
að koma sér fyrir því dagskráin hefst
klukkan 10.30 og stendur í um
klukkutíma, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Einnig segir: „Venni og Snælda
verða í forsvari fyrir klúbbinn en
hann er hjólasendill í Kringlunni og
Snælda er besta vinkona hans sem
passar upp á að hann geri ekki vit-
leysur. Venni tekur nefnilega upp á
mörgu og er dálítið utan við sig. Þess
vegna þarf Snælda að passa upp á
Venna því hún er svo klár.
Meðal efnis á laugardaginn verður
þrautaleikur, Draumasmiðjan kem-
ur í heimsókn með atriði úr leikritinu
„Ég sé“ eftir Margréti Pétursdóttur,
Þórunn Lárasdóttir frá Þjóðleikhús-
inu sýnir atriði úr Landkröbbum eft-
ir Ragnar Arnalds og Valgeir Skag-
fjörð framflytur lag klúbbsins „Það
verður fjör“ en hann á lag og texta.
Þeim aðilum sem hafa áhuga á að
komast að með atriði á uppákomum
Kringluvina er bent á að hafa sam-
band við Stefán Sturlu Sigurjónsson
hjá fyrirtækinu Gjörningar sem er
framleiðandi sýninganna.11
Umræðu-
fundur um
verk- og
tæknifræði
OPINN umræðufundur um verk- og
tæknifræði fyrir ungt fólk er hyggur
á háskólanám verður haldinn sunnu-
daginn 9. aprfl kl. 14 í stofu 101 í
Odda á vegum Samtaka iðnaðarins.
Á fundinum munu verk- og tækni-
fræðingar úr atvinnulífi og háskóla
spá í náms- og starfsmöguleika fólks
á þessu sviði á næstu áram. Þátttak-
endur verða Fjóla Jónsdóttir, verk-
fræðingur, dósent við verkfræðideild
HI, Frosti Bergsson, tæknifræðing-
ur, stjómarformaður Opinna kerfa,
Páll Jónsson, tæknifræðingur, for-
stöðumaður hjá Landssímanum og
Sigríður Einarsdóttir, verkfræðing-
ur, flugstjóri hjá Flugleiðum. Um-
ræðustjóri er Sigmundur Ernir
Rúnarsson, fréttamaður á Stöð 2.
Tvennir
tónleikar
Tónskóla
Signrsveins
TÓNSKÓLI Sigursveins D. Krist-
inssonar heldur tvenna tónleika
laugardaginn 8. aprfl.
Kl. 11 verða tónleikar Suzuki-
deildar í Grensáskirkju. Þar koma
fram 80 nemendur deildarinnar á
fiðlu, selló og píanó í einleik og hóp-
spili undir stjórn kennara sinna. Kl.
14 stígur 120 barna kór og blokk-
flautukór forskóladeildarinnar á svið
í Langholtskirkju undir yfirskrift-
inni „Músík og menningarborgir“.
Frá hverju landi menningarborg-
anna verður flutt lag í söng, leik,
dansi og hreyfingum við undirleik
strengsveitar, gítarsveitar og harm-
oniku. Stjórnendur eru kennarar
deildarinnar.