Morgunblaðið - 08.04.2000, Qupperneq 75
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
LAUGARDAGUR 8. APRÍL 2000 7 5
Morgunblaðiö/Bjorn Bjomsson
Nýbyggingar við Vesturfarasetrið.
Bryggja gerð við
V esturfarasetrið
Morgunblaðið/Bjöm Bjömsson
Valgeir Þorvaldsson, Sturía Böðvars-
son og Jón Birgir Jónsson ráðuneytis-
stjóri undirrita samninginn.
Sauðárkróki. Morgunblaðið.
STURLA Böðvarsson
samgönguráðherra ásamt
Jóni Birgi Jónssyni ráðu-
neytisstjóra og Jóni Leví
frá Siglingamálastofnun
heimsóttu Vesturfarasetr-
ið á Hofsósi síðastliðinn
miðvikudag. Tilefni heim-
sóknarinnar var undirrit-
un samnings um framlag
ráðuneytisins upp á fjórar
milljónir til gerðar
bryggju við setrið og munu
framkvæmdir við smíðina
hefjast mjög fljótlega.
I samningnum segir að
setrið annist gerð bryggj-
unnar sem tengist því hlut-
verki stofnunarinnar að sýna á
sem gleggstan hátt þær aðstæður
sem ríktu á þeim tíma sem ferðir
íslendinga til Vesturheims stóðu
yfir.
Til framkvæmdarinnar leggur
ráðuneytið fjórar milljónir á yfir-
standandi ári, enda komi staðfest
mótframlag sem tryggi verklok.
í lokagrein samningsins segir:
„Með framlagi samkv. 2. gr. vill
samgönguráðuneytið leggja sitt af
mörkum til eflingar Vesturfara-
setursins á Hofsósi, sem er hlurti
af þeirri áætlun íslenskra stjóm-
valda að gera staðinn að sérstök-
um minningar og þjónustustað
fyrir fólk af íslenskum ættum sem
býr í Norður-Ameríku."
Valgeir Þorvaldsson, fram-
kvæmdastjóri Vesturfaraseturs-
ins, sagði að hér væri merkum
áfanga náð, nú yrði svo fljótt sem
auðið yrði byrjað á smíði bryggj-
unnar sem mun verða fram undan
aðalhúsi setursins, um það bil 30
metra löng. Hann sagði þessi
framkvæmd mundi nýtast á ýms-
an hátt, bæði í tengslum við setrið
og einnig fyrir þá aðila sem vildu
taka ferðafólk og aðra þá sem fara
vildu í siglingu frá Hofsósi.
Gerði Valgeir ráð fyrir að fram-
kvæmdum yrði lokið einhvemtíma
íjúní.
Miklar framkvæmdir
við setrið
Miklar framkvæmdir eru nú á
athafnasvæði setursins, og er þeg-
ar búið að reisa nýtt hús, en í því
mun verða sýningarsalur, bóka-
safn setursins og ættfræðiþjón-
usta og íbúð fræðimanns. Er unnið
við þessar framkvæmdir þessa
dagana af fullum krafti og stefnt
að því að húsið verði einnig tekið í
notkun um mitt sumar, en þá verð-
ur opnuð sýning tengd mormóna-
kirkjunni í Utah.
Félag stofnað
um dagvist
MS-félagsins
Á FUNDI stjórnar MS-félagsins
um síðustu áramót var ákveðið að
athuga hvort ekki væri hentugra
fýrir félagið að stofna sérstakt félag
fyrir dagvist félagsins. Eftir að allir
kostir og gallar höfðu verið metnir
var síðan ákveðið á fundi í febrúar
að félagið stofnaði sjálfseignastofn-
un um dagvistina sem yrði rekin
sjálfstætt og undir sérstakri stjórn.
Akveðið var að sjálfseignastofn-
unin tæki við rekstrinum 1. apríl
2000.
Tilgangurinn með þessum breyt-
ingum er að aðskilja betur annars
vegar starfsemi og markmið félags-
ins og hins vegar rekstur dagvistar-
innar.
Áhrif félagsins á dagvistina eru
eftir sem áður fyrir hendi enda
verður félagið eftir sem áður eig-
andi húsnæðins, félagið ákveður
hverjir sitji í stjórn auk þess sem
formaður félagsins hefur seturétt á
stjórnarfundum í sjálfseignarstofn-
uninni.
í stjórn sjálfseignarstofnunarinn-
ar eru þrír aðalmenn og þrír til vara.
Þau eru: Fríða Sigurðardóttir
læknafulltrúi, Guðmundur Agústs-
son, lögmaður og fv. alþingismaður,
Sigurlaug Sveinbjörnsdóttir tauga-
læknir. Guðmundur hefur verið
kjörinn formaður stjórnarinnar.
Til vara eru: Halldór Frímanns-
son lögmaður, Kristján E. Einars-
son ljósmyndari, Sigríður Hrönn
Elíasdóttir, fv. sveitarstjóri.
Málningar-
styrkir Hörpu
í þriðja sinn
NÚ í VOR veitir Harpa hf., þriðja
árið í röð, styrki í formi málningar til
góðra verkefna á vegum líknarfé-
laga, sjálfboðaliða, þjónustufélaga,
menningarsamtaka og annarra
þeirra sem vilja hafa forystu um að
fegra og prýða umhverfi sitt. I fyrra
fengu 15 aðilar víða um land alls
2.500 lítra af málningu að verðmæti
ein milljón króna. Mikill fjöldi um-
sókna barst á sl. ári, segir í fréttatil-
kynningu.
í ár verða veittir málningarstyrki
að andvirði ein milljón króna. Hver
styrkur verður á bilinu 50 til 300 þús-
und krónur. Þeir aðilar sem hyggjast
sækja um styrk þurfa að skila uim
sókn til Hörpu hf. fyrir 15. apríl nk. í
umsókninni þarf að gera grein fyrir
verkefninu, senda mynd af viðkom-
andi mannvirki og skilgreina áætlað
magn málningar vegna verkefnisins.
Þriggja manna dómnefnd velur úr
umsóknum og tilkynnir um niður-
stöður um miðjan maí. Styrkþegar
sjá alfarið um kostnað við verkfram-
kvæmd.
Fyrirlestur
um breytingar
á alþjóða-
stjérnmálum
DR. LASSI Heininen, fræðimaður
við Norðurheimskautsstofnunina
við Háskóla Lapplands, í Rovan-
iemi í Finnlandi, flytur opinberan
fyrirlestur á vegum Stofnunar Vil-
hjálms Stefánssonar og Háskólans
á Akureyri, mánudaginn 10. apríl.
I fyrirlestri sínum, sem hann
nefnir „The European North at
the turn of the 21st century", mun
Lassi fjalla um hvaða breytingar
hafa átt sér stað í alþjóðastjórn-
málum norðurslóða í kjölfar kalda
stríðsins. Lassi er doktor í alþjóða-
stjórnmálum og hefur stundað
rannsóknir á stjórnmálaþróun
norðlægra ríkja. Auk þess er hann
stjórnarformaður Northern Res-
earch Forum, sem er samstarfs-
vettvangur stjórnmálamanna,
fræðifólks og áhugahópa á norð-
urslóðum.
Dr. Lassi Heininen dvelur hér-
lendis sem gistifræðimaður á
Stofnun Vilhjálms Stefánssonar.
Fyrirlesturinn verður haldinn
kl.16 í sal Háskólans á Akureyri í
Þingvallastræti og verður fluttur á
ensku. Öllum er heimill aðgangur.
.gumarbúðir í
Olveri að hefj-
ast í 60. sinn
SUMARBÚÐIR KFUM & K að
Ölveri í Melasveit eru nú að hefja
sitt 60. starfsár. Sumarbúðirnar
voru stofnaðar árið 1940 og hafa
starfað óslitið síðan en yerið starf-
ræktar frá árinu 1952 í Ölveri.
í tilefni af 60 ára starfsafmælinu
er ætlunin að hafa „opið hús“ í Öl-
veri frá klukkan 13-18 sunnudag-
inn 9. apríl þar sem fólki gefst
kostur á að koma í heimsókn og
kynna sér starfsemina, skoða
húsakynni Ölvers og njóta útivist-
ar. Heitt kakó og kaffi verður á
könnunni og boðið verður upp á
vöfflur. Einnig er ætlunin að byrja
að skrá í flokka sumarsins þennan
dag í Ölveri. „Starfsemi sumarbúð-
anna byggist á sjálfboðavinnu allt
árið um kring og er undirbúningur
fyrir hvert sumar mikill. Metað-
sókn var í sumarbúðirnar í fyrra-
sumar og dvöldu þá á fjórða
hundrað börn og unglingar í Ölveri
í 9 flokkum. Krakkarnir njóta lífs-
ins við ýmsa leiki, útivist, kvöld-
vökur og síðast en ekki síst fræð-
ast þau um kristna trú sem er
markmið sumarbúðanna,“ segir í
fréttatilkynningu.
Almenn skráning í Ölver hefst
svo 10. apríl á skrifst. KFUM og K
á Holtavegi og hjá Axeli Gúst-
afssyni á Akranesi.
Hlýja handa
þinna sýnd í
bíósal MÍR
HLÝJA handa þinna, kvikmynd
sem var gerð í Georgíu 1972, verð-
ur sýnd í bíósal MÍR, Vatnsstíg 10,
sunnudaginn 9. apríl kl. 15. Leik-
stjórar eru Sjota og Nodar Mama-
gazde. Aðalhlutverk leikur Sofiko
Tsiaurelí.
í myndinni segir frá konunni Sí-
donju og hvemig ýmsir stórvið-
burðir í sögu Kákasusríkisins Geor-
gíu (Grúsíu) fléttast inn í ævi
hennar. Lýst er afdrifaríkum pólist-
ískum atburðum, hatrammri bar-
áttu bolsevika og mensivika á ár-
unum 1918-19, erfiðleikum í
endurreisnarstarfinu að borgara-
stríðinu loknu og síðar innrás Þjóð-j
verja í Sovétríkin sumarið 1941. I
upphafi kvikmyndarinnar er eigin-
maður Sídonju kvaddur í herinn og
verður hún þá að sjá bömum sínum
ein farborða. Hann gerist síðar lið-
hlaupi og snýi- heim.
Skýringar á ensku. Aðgangur
ókeypis og öllum heimill.
CITRIN
Inniheldur m.a.
carcina cambogia
og chromium
picolinate._________
Upplýsinga-
bæklingur
á fslensku!
Bráðhollur trefjadrykkur. Fullur af vítamínum og steinefnum.
Minna en 200 hitaeiningar í eínni máltíð. Fyrir þá sem vilja
heilbrigða þyngdarstjórnun. Fyrir þá sem vilja bragðgóða og
holla máltíð. Góður heima, í vinnunni, í ferðalagið eða hvar
og hvenær sem er. ______________________________
KYNNINGAR:
í dag, laugardag: Lyfja LágmÚla kl. 13-17.
Mánudag: Lyfja Hamraborg ki. 14-18.
Þriöjudag: Lyfja Setbergi ki. 14-18.
Afmælis-
ganga Uti-
vistar á Keili
FERÐAFÉLAGIÐ Útivist er 25 ára
á þessu ári og jafnframt em 25 ár lið-
in frá fyrstu ferð félagsins sem var 6.
apríl árið 1975. Þá var gengið á fjallið
Keili sem er orðið sannkallað Úti-
vistarfjall, en efnt hefur verið til
gönguferða þangað árlega frá þeim
tíma.
Sunnudaginn 9. apríl verður af-
mælisganga á Keili sem ætluð er fé-
lagsmönnum og öðram sem áhuga
hafa. Brottför er frá BSÍ, Umferðar-
miðstöðinni, kl. 10.30 og á leiðinni
verður stansað við kirkjugarðinn í
Hafnarfirði. Ekið verður út á Hösk-
uldarvelli og gengið þaðan með
Oddafelli áleiðis á fjallið, en áætlað
er að 3-4 klst. fari í gönguferðina. Að
henni lokinni verður boðið upp á
veitingar, m.a. heitt kakó, en þátt-
takendum er samt ráðlagt að hafa
með sér nesti og drykk til að nota í
fjallgöngunni.
Allir era velkomnir í gönguferð-
ina, en Útivistarfélögum og fjöl-
skyldum þeirra er boðið frítt í ferð-
ina, aðrir greiða 1.000 kr. (í rútunni).
Styrkur til
tungunjála-
náms á Italíu
STOFNUN Dante Alighieri vill
vekja athygli á því að til boða eru
styrkir til tungumálanáms á Ítalíu
sumarið 2000.
Um er að ræða styrki til eins
mánaðar náms við tungumálaskóla
í Camerino og Urbania. Auk þess
býr félagið yfir fjöldanum öllum af
upplýsingum um tungumálnám á
vegum Dante-stofnunarinnar í hin-
um helstu menningarborgum
Ítalíu.
OXFORD STREET
1 08 Reyk|avílc
Faxafeni 8 sími: 533 1555