Morgunblaðið - 08.04.2000, Síða 77

Morgunblaðið - 08.04.2000, Síða 77
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. APRÍL 2000 77 ÞJÓNUSTA/FRÉTTIR AFMÆLI KVENNADEILD, KVENLÆKNINGADEILD; Kl. 18.30- 20. SÆNGURKVENNADEILD: Kl. 14-21 (feður, syatkini, ömmur og afar). VSUSSTAÐASPÍTALI: Kl. 18.30-20. SUNNUHLÍÐ hjúkrunarheimili í Kópavogi: Heimsóknar- thni kl. 14-20 og eftir samkomulagi. ST. JÓSEFSSPÍTALI HAFNj Alla daga kl. 15-16 og 19- 19.30. SJÚKKAHÚS SUÐURNESJA, KEFLAVÍK: Heimsóknar- tími a.d. kl. 15-16 og kl. 18.30-19.30. Á stórhátíðum kl. 14- 21. Símanr. sjúkrahússins og Heilsugæslustöðvar Suður- nesjaer 422-0500. AKUREYRI - SJÚKRAHÚSIÐ: Heimsóknartími alla daga kl. 15.30-16 og 19-20. Á bamadeild og hjúkrunardeild aldraðra Sel 1: kl. 14-19. Slysavarðstofusími frá kl. 22-8, s. 462-2209._____________ bilanavakt____________________________________ VAKTÞJÓNUSTA. Vegna bilana á veitukerfi vatns og hitaveitu, s. 552-7311, kl. 17 til kl. 8. Sami sími á helgi- dögum. Rafmagnsveitan bilanavakt 568-6230. Kópavog- ur: Vegna bilana á vatnsveitu s. 892-8215. Rafveita Hafh- arfjarðar bilanavakt 565-2936 SÖFN ÁRBÆJARSAFN: Safnhús Árbæjar eru lokuð frá 1. sept- ember en boðið er upp á leiðsögn fyrir ferðafólk á mánu- dögum, miðvikudögum og fostudögum kl. 13. Einnig er tekið á móti skólanemum og hópum sem panta leiðsögn. Skrifstofa safnsins er opin frá kl. 8-16 alla virka daga. Nánari upplýsingar í síma 577-1111._________________ ASMUNDARSAFN í SlGTÚNl: Opið a.d. 13-16. BÖRGARBÓKASAFN REYKJAVÍKUR: Aðalsafn, Þing- holtsstræti 29a, s. 552-7155. Opið mán.-fim. kl. 9-21, fóst- ud. kl. 11-19, laugard. kl. 13-16. _________________ BÖRGARBÓKASAFNH) í GERÐUBERGI 3-5, mán.-fim kl. 9-21, föst 11-19, laugard. og sunnud. kl. 13-16. S. 557- 9122._______________________________________________ BÚSTAÐASAFN, Bústaðakirkju, mán.-fim. 9-21, fóst 12- 19, laugard. kl. 13-16. S. 553-6270.________ SÓLHEIMASAFN, Sólheimum 27, s. 553-6814. Ofangreind söfn og safhið í Gerðubergi eru opin mánud.-fím. kl. 9- 21,fóstud. Íd. 11-19, laugard. kl. 13-16. ORANDASAFN, Grandavegi 47, s. 552-7640. Opið mán. kl. 11-19, þrið.-fóst kL 15-19. SEUASAFN, Hólmaseli 4-6, s. 587-3320. Opið mán. kl. lí 19, þrið.-mið. kl. 11-17, fun. kl 15-19, föstud. kl. 11-17. FOLDASAFN, Grafarvogskirkju, s. 567-5320. Opið mán.- fim. kl, 10-20, fost kl. 11-19, laugard. kl. 13-16._ BÓKABÍLAR, s. 553-6270. Viðkomustaðir víðsvegar um borgina. __________ BÓKASAFN DAGSBRÚNAR: Skipholti 60D. Safnið verð- ur lokað fyrst um sinn vegna breytinga. BÓKASAFN KEFLAVÍKUR: Opið mán.-fóst 10-20. Opið laugd. 10-16 yfir vetrarmánuði. BÓKAKAFN KÓPAVOGS, Fannborg 3-5: Mánud.-fimm- tud. kl. 10-21, fóstud. kl. 10-17, laugard. (1. okt-30. april) kl. 13-17. ____________ BÓKASAFN SAMTAKANNA '78, Laugavegi 3: Opið mán.-fim. kl. 20-23. Laugard: kl. 14-16. BÖRGARSKJALASAFN REYKJAVÍKUR, Tryggvagötu 15: Opið mánudaga til föstudaga kl. 9-12 og kl. 13-16. Sími 563-1770. Sýningin „Mundu mig, ég man þig“ á 6. hæð Tryggvagötu 15 er opin alla daga kl. 13-17 og á fimmtudögum kl. 13-21. Aðgangur ókeypis.____ BYGGÐASAFN ÁRNESINGA, Húsinu á Eyrarbakka: Op^ iÓ alla daga frá kl. 10-18 til ágústloka. S: 483-1504. BYGGÐASAFN HAFNARFJARÐAR: Sívertsen-hús^ Vesturgötu 6,1. júní - 30. ágúst er opið alla daga frá kl. 13-17, s: 555-4700. Smiðjan, Strandgötu 60,16. júní - 30. september er opið alla daga frá kl. 13-17, s: 565-5420. Siggubær, Kirkjuvegi 10,1. júní - 30. ágúst er opið laug- ard.-sunnud. kl. 13-17. Skrifstofur safnsins verða opnar alia virka daga kl. 9-17. BYGGÐASAFNIÐ í GÖRÐUM, AKRANESI: Opið kl. 13.30-16.30 virka daga. Sími 431-11255. EJARSKIPTASAFN LANDSSÍMANS, Loftskeytastöðinni v/Suðurgötu: Opið á þriðjud., fimmtud. og sunnud. frá kl. 13-17. Tekið er á móti hópum á öðrum timum eftir sam- komulagi. ERÆÐASETRH) í SANDGERÐI, Garðvegi 1, Sandgerði, sími 423-7551. Bréfsími 423-7809. Opið alla daga kl. 13-17 og eftir samkomulagi. GAMLA PAKKHÚSIÐ í Ólafsvík er opið alla daga í sumar _frákl. 9-19.________ GOETHE-ZENTRUM: Lindargötu 46, Reykjavík. Opið þriðjud. og miðvikud. kl. 15-19, fimmtud., fóstud. og laugardaga kl. 15-18. Sími 551-6061. Fax: 552-7570. HAFNARBORG, menningar og listastofnun Hafnarfjarðar opin alla daga nema þriðjud. frá kl. 12-18. KJARVALSSTAÐIR: Opið daglega frá kl. 10-18. Safiia- leiðsögn kl. 16 á sunnudögum. ÍANDSBÓKASAFN ÍSLANDS _ HÁSKÓLABÓKASAFN: Opið mán.-fimmtud. kl. 8.15-22. Föstud. kl. 8.15-19 og laugd. 9-17. Sunnud. kl. 11-17. Þjóðdeild lokuð á sunnud. og nandritadbild er lokuð á laugard. og sunnud. S: 525- _5600. Bréfs: 525-5615. LISTASAFN ÁRNESINGA, Tryggvagötu 23, Selfossi: Opið eftir samkomulagi. S. 482-2703.________ LISTASAFN EINARS JÓNSSONAR: Safnið er opið laug- ard. og sunnud. frá kl. 14-17. Höggmyndagarðurinn er opinn alla daga. LISTASAFN ÍSLANDS, Fríkirkjuvegi. Sýningarsalir, kaffistofa og safnbúð: Opið daglega kl. 11-17, lokað mánudaga. Skrifstofa safnsins og upplýsingar um leið- sögn: Opið alla virka daga kl. 8-16. Bókasafn: Opið þriðj- ud.-fóstud. kl. 13-16. Aðgangur er ókeypis á miðvikudög- um. Uppl. um dagskrá á internetinu: http//www.natgall.is BÍSTAÍAFN KÓPAVOGS - GERÐARSAFN: Opið dag- legakl.ll-17nemamánud.Á íímmtud. eropiðtUkl.19. USTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR- Safnið er opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-17. Upplýsingar f síma 653-2906. UÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR: Borgartúni 1. Opið alladagafrikl. 13-16. Sími 663-2630. LYFJAFRÆÐISAFNIÐ: Neströð, Seltjarnaniesi. Lokað yfir vetrarmánuðina. Hópar geta skoðað safnið eftir samkomulagi. MINJASAFN AKUREYRAR, Minjasafnið á Akureyri, Að- alstræti 58, Akureyri. S. 462-4162. Opið frá 16.9.-31.5. á sunnudögum milli kl. 14-16. Einnig eftir samkomulagi fyrir hópa. Skrifstofur opnar virka daga kl. 8-16. MINJASAFN AUSTURLANDS, Safnahúsinu Laufskógum 1, Egilsstöðum er opið alla daga nema mánudaga kl. 11- 17 til 1. september. Alla sunnudaga frá kl. 14-17 má reyna sig við gamalt handbragð í tóvinnu undir leiðsögn eldri borgara. Safnbúð með minjagripum og handverks- munum. Kaffi, kandís og kleinur. Sími 471-1412, netfang minaust@eldhom.is. MINJASAFN ORKUVEITU ReyKjavíkur v/rafstöðina v/ Elliðaár. Opið á sunnudögum ld. 15-17 og eftir samkomu- lagi.S. 567-9009. MINJASAFN SLYSAVARNAFÉLAGS ÍSLANDS Þor- steinsbúð við Gerðaveg, Garði. Safnið er opið maí-sept kl. 13-17 alla daga. Hægt er að panta hjá saínverði á öðr- um tímum í síma 422-7253. IÐNAÐARSAFNIÐ Á AKUREYRI, Dalsbraut 1 er opið írá 1. júní tíl 31. ágúst kl. 14-18, en lokað á mánudögum. Sími 462-3550 og 897-0206. MYNTSAFN SEÐLABANKA/ÞJÓÐMINJASAFNS, Ein- holti 4, sími 569-9964. Opið virka daga kl. 9-17 og á öðrum tíma eftir samkomulagi. NÁTTÚRUFRÆÐISTOFA KÓPAVOGS, Digranesvegi 12. Opið miðvikud. og laugd. 13-18. S. 554-0630. NÁTTÚRUGRIPAS AFNIÐ, sýningarsalir Hverfisgötu 116 eru opnir sunnud. þriðjud. fimmtud. og laugard. kl. 13.30-16. NESSTOFUSAFN. Yfir vetrartímann er safnið opið sam- kvæmt samkomulagi. NORRÆNA HÚSIÐ. Bókasafnið opið mán.-sun. 12-17. Lokað 20.4-24.4. (páskar) Sýningarsalur opinn þri.-sun. kl. 12-17, lokað mán. Lokað 21.4. og 23.4. Kaffistofan op- in mán.-laug. kl. 8-17, sun. kl. 12-17. Lokað 21.4. og 23.4. Skrifstofan opin mán.-föst kl. 9-16, lokað 20.-24.4. Sími 551-7030, bréfas: 552-6476. Tölvupóstun nh@nordice.is - heimasíða: hhtp://www.nordice.is. RJÓMABÚIÐ á Baugsstöðum. Safnið er opið laugardaga og sunnudaga til ágústsloa frá 1.13-18. S. 485-3369. SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR, Bergstaóastræti 74, s. 551-3644. Sýning á uppstillingum og landslagsmyndum. Stendur til marsloka. Opin laugardaga og sunnudaga Id. 13.30-16. SJÓMINJASAFN ÍSLANDS, Vesturgötu 8, Hafnarfirði, er opið laugard. og sunnud. frá kl. 13-17 og eftir samkomu- lagi. S: 565-4242. Skrifstofa Lyngási 7, Garðabæ, s: 530- 2200, netfang: aog@natmus.is. SJÓMINJA- OG SMIÐJUSAFN JÓSAFATS HINRIKS- SONAR, Súðarvogi 4. Opið þriðjud. - laugard. frá kl. 18- 17. S. 581-4677. SJÓMINJASAFNH) Á EYRARBAKKA: Hópar skv. samkl. UppLís: 483-1165,483-1443. SNORRASTOFA, Reykholti: Sýningar alla daga kl. 10-18. Sími 435-1490. STOFNUN ÁRNA MAGNÚSSONAR, Ámagarði v/Suður- götu. Handritasýning er opin þriðjudaga tií fóstudaga kl. 14-16 til 15. maí. STEINARÍKIÍSLANDS Á AKRANESI: Opið alla daga kl. 13-18 nema mánudaga. Sími 431-5566. ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS: Opið alla daga nema mánu- dagakl. 11-17. AMTSBÓKASAFNIÐ Á AKUREYRI: Mánudaga til fóstu- daga kl. 10-19. Laugard. 15-15. LISTASAFNIÐ Á AKUREYRI: Opið alla daga frá kl. 14- 18. Lokað mánudaga. NÁTTÚRUGRIPASAFNH) á Akureyri, Hafnarstræti 81. Opið skv. samkomulagi yfir vetrartímann. Hafið sam- band við Náttúrufræðistofnun, Akureyri, í síma 462- 2983. NONNAHUS, Aðalstræti 54. Opið a.d. kl. 10-17 frá 1. júní - 1. sept Uppl. í síma 462-3555. NORSKA HÚSIÐ í STYKKISHÓLMI: Opið daglega í sum- arfrákl. 11-17. ORÐ DAGSINS Reykjavík sími 551-0000. Akureyri s. 462-1840. SUNDSTAÐIR SUNDSTAÐIR í REYKJAVÍK: Sundhöllin er opin v.d. kl. 6.30- 21.30, helgar kL 8-19. Opið í bað og heita potta alla daga. Vesturbæjarlaug er opin v.d. 6.30-21.30, helgar 8- 19. Laugardalslaug er opin v.d. 6.50-21.30, helgar 8-19. Breiðholtslaug er opin v.d. kl. 6.50-22, helgar kl. 8-20. Grafarvogslaug er opin v.d. kl. 6.50-22.30, helgar kl. 8- 20.30. Árbæjarlaug er opin v.d. kl. 6.50-22.30, helgar kl. 8-20.30. Kjalameslaug opin v.d. 17-21, helgar 11-15. Á frídögum og hátíðisdögum verður opið eftir nánari ákvörðun hveiju sinni. Upplýsingasími sunstaða í Reykjavíker 570-7711. SUNDLAUG KÓPAVOGS: Opin virka daga 6.30-22. Laugd. og sud. 8-18 (vetur) 8-19 (sumar). GARÐABÆR: Sundlaugin opin mán.-föst 7-20.30. Laugd. og sud. 8-17. Sölu hætt hálftíma fyrir lokun. HAFNARFJÖRÐUR. Suðurbæiarlaug: Mád.-föst 7-21. Laugd. 8-18. Sud. 8-17. Sundhöll Hafnaríjarðar: Mád.- fóst 6.30-21. Laugd. og sunnud. 8-12. VARMÁRLAUG í MOSFELLSBÆ: Opið virka daga kl. 6.30- 7.45 og kl. 16-21. Um helgar kl. 9-18. SUNDLAUGIN í GRlNDAVÍK:Opið alla virka daga kl. 7- 21 og kl. 11-15 um helgar. Sími 426-7555. SUNDLAUG KJALANESS: Opin v.d. 6.45-850 og 14-22, helgar 11-18. SUNDMIÐSTÖÐ KEFLAVÍKUR: Opin mánud.-Bstud. U. 7-21. Laugard. kl.8-17. Sunnud. kl. 9-16. SUNDLAUGIN Í GARÐI: Opin mán.-fóst. kl. 7-9 og 15.30- 21. Laugardaga og sunnudaga. kl. 10-17. S: 422-7300. SUNDLAUG AKUREYRAR er opin v.d. kl. 7-21. Laugard. og sunnud. kl. 8-18. Sími 461-2532. SUNDLAUG SELTJARNARNESS: Opin mán.-fóst 7- 2050. Laugard. og sunnud. kl. 8-1750. JAÐARSBAKKALAUG, AKRANESI: Opin mán.-fóst 7- 21, laugd. og sud. 9-18 S: 431-2643. BLÁA LÓNIÐ: Opið v.d. kl. 11-20, helgar ld.10-21. UTIVISTARSVÆÐI HÚSDÝRAGARÐURINN cr opinn alla daga kl. 10-17. Lok- að á miðvikudögum. Kaffihúsið opið á sama tima. Fjöl- skyldugarðurinn er opinn sem útivistarsvæði á vetuma. Simi 5757-800.___________________________ SORPA SKRIFSTOFA SORPU er opin kl. 8.20-16.15. Endur- vinnslustöðvar eru opnar a.d. kl, 12.30-19.30 en lokaðar á stórhátíðum. Að auld verða Ánanaust, Garðabær og Sævarhöfði opnar kl. 8-19.30 virka daga. Uppl.sími 520- 2205. Byggingaplatan WDK®€® sem allir hafa beðið eftir VIROC*byggingaplatan er fyrir veggi, loft og gólf VIROCbyggingaplatan er eldþolin, vatnsþolin, höggþolin, frostþolin og hljóðeinangrandi VIROC*byggingaplötuna er hægt að nota úti sem inni VlROC®byggingaplatan er umhverfisvæn VIROC®byggingaplatan er platan sem verkfræðingurinn getur fyrirskrifað blint. ÞÞ &co LeitiS frekari upplýsinga Þ.ÞORGRÍMSSON & CO ÁRMÚIA 29 S: SS3 8640 8 568 6100 ANNA ÞORSTEIN SDÓTTIR Það leiðir af sjálfu sér, að þeir sem víða fara, kynnist mörgum. Ekki er þó sjálfgefið, að allt þetta fólk sé manni að skapi, því að svo margt er sinnið sem skinnið. Og vitanlega kynnumst við aldrei nema fáum að nokkru ráði, þótt við umgöng- umst marga. Hún Anna Þorsteins- dóttir, sem lengi var prests- og prófastsfrú í Heydölum í Breiðdal, er orðin hálfníræð. Hvað tíminn flýgur! Fyiir réttum 15 árum fagnaði hún sjötugsafmæli á heimaslóðum, og var þá margt gesta á prestssetrinu í miðri sveit. Þegar þetta var gegndi ég kennslustörfum við barnaskóla sveitarinnar, sem þá var til húsa í Staðarborg. Þar hafði Anna kennt áður og einnig eiginmað- ur hennar, séra Kristinn Hóseasson. Anna og maður hennar buðu okkur hjónum til sín þau jól, sem við áttum heima á Breiðdalsvík og veittu vel. Er jiess gott að minnast. Eg sá Onnu fyrir fáum dögum á fundi hjá Ættfræðifélagi íslands. Hún er manneskja, sem lætur aldur- inn ekki buga sig. Er virk og áhuga- söm um andleg mál. Einnig hefur hún sinnt handverki, eins og bókb- andi með góðum árangri um langt árabil. Ellin hefur ekki verið henni neitt þung, fremur en skáldinu sem orti forðum um það efni. Og ríkir eru þeir, sem eiga sér áhugamál, hvað sem aldrinum líður. Ég enda þetta afmælisspjall með erindi, sem ég flutti Önnu á heimili hennar að Heydölum, á sjötugs- afmælinu, 8. apríl 1985, og mér finnst enn eiga við: Anna, þú átt afmæli aprfldagaðvanda. Það er komið þíðviðri; þér skal óðinn blanda. Gakktu lífs á götunni glöðoghressíanda. -Vörðum hús og heimili heilladísir standa. Önnu óska ég allra heilla á þessum tímamótum í ævi hennar. Auðunn Bragi Sveinsson, fyrrverandi kennari og skólastjóri. í dag laugardaginn 8. apríl verður 85 ára gömul heiðurskonan Anna Þorsteinsdóttir, fyrrum prófastsfrú að Heydölum í Breiðdal, nú húsmóð- ir í Reykjavík. Anna fæddist þann 8. apríl 1915 að Óseyri við Stöðvarfjörð þar sem hún ólst upp ásamt sex systkinum sem öll eru látin. Systkini hennar voru Skúli, Pálína, Friðgeir, Halldór, Björn og Pétur. Anna er dóttir hjónanna Þorsteins Þ. Mýr- manns útvegsbónda og borgara á Óseyii við Stöðvarfjörð og Guðríðar Guttormsdóttur húsmóður. Faðir Guðríðar var séra Guttonnur Vig- fússon í Stöð í Stöðvarfirði. Kona hans var Þórhildur Sigurðardóttii' frá Harðbak á Sléttu. Foreldrar Þor- steins Mýrmanns voru Þorsteinn Þorsteinsson og kona hans Valgerð- ur Sigurðardóttir. Foreldrar Þor- steins Þorsteinssonar voru Þor- steinn Þorsteinsson og kona hans Sigríður Jónsdóttir Þorsteinssonar prests að Kálfafellsstað. Foreldrar Valgerðar Sigurðardóttur voru Sig- urður Eiríksson af Skálafellsætt og kona hans Valgerður Þórðardóttir. Anna lauk barna- skólaprófi árið 1927,12 ára að aldri, og prófi frá Húsmæðraskólan- um á Hallormsstað 1934. Hún sótti nám- skeið í tungumálum og fleiri greinum á árun- um 1932-1944. Anna var húsmóðir að Heydölum í Breiðdal frá 1947-1987. Hún var aðstoðarkennari við húsmæðraskólann á Hallormsstað og við gestamóttöku þar á árunum 1934- 1936, að undanskildum hluta af vetri sem hún starfaði sem vefnaðarkenn- ari hjá Sambandi austfirskra kvenna. Barnakennari víða á árun- um 1939-1970 og skólastjóri á Stöðv- arfirði 1965-1966. Anna var forstöðu- kona mötuneytis stúdenta 1943-1944. í stjórn Austfirðingafé- lagsins í Reykjavík 1944-1946, hreppsnefnd Breiðdalshrepps 1958- 1962, sóknarnefnd Heydalasóknar 1964-1970 og ritari Sambands aust- firskra kvenna 1967-1970. Anna var jafnframt formaður slysavarnadeild- arinnar Einingar í Breiðdal og Skóg- ræktarfélags Breiðdæla um skeið. Meðstofnandi kvenfélagsins Hlífar í Breiðdal og formaður um árabil. Anna starfaði sem formaður barna- verndarnefndar Breiðdalshrepps frá 1966-1982. Anna Þorsteinsdóttir giftist hinn 31.12.1944 Kristni Hóseasyni presti og prófasti í Heydölum, fæddum þann 17.2.1916. Foreldrar hans voru hjónin Hóseas Björnsson, húsa- smíðameistari, og Ingibjörg Bessa- dóttir, húsmóðir, Höskuldsstaðaseli, Breiðdal. Kjörbörn þeirra Önnu og Kristins eru: Hallbjörn fæddur 5.1. 1953, vélstjóri í Reykjavík, ókvæntur og barnlaus og Guðríður fædd 22.5. 1955, húsmóðir í Garðabæ, maki: Óskar Sigurmundason, þeirra böm eru: Anna Kristín og Andri Valur. Anna Þorsteinsdóttir er ein af þessum kraftmiklu konum sem vek- ur athygli viðstaddra fyrir orðfæmi, líflega framkomu og létta lund. Hún er kona sem geislar af frásagnar- gleði og hefur frá mörgu að segja enda man hún tímana tvenna. Skóla- ganga Önnu hófst hjá afa hennar séra Guttormi Vigfússyni. Hjá hon- um lærði hún að lesa og skrif'a en frekari tilsögn fékk hún heima eins og venja var á þeim tíma. Hugur Önnu hneygðist snemma til bókar en sá tími sem gafst til lestrar var lítill og segir hún svo frá: „Ég þótti víst heldur þung til vinnu, enda sveikst ég um þegar ég gat og notaði hverja stund til að lesa. Ég las fram eftir öll- um nóttum og hafði bók í barminum þegar ég sat yfir lambánum“. Það tíðkaðist ekki á þeim tíma að mennta ungar stúlkur og sumarið 1930 var hún send í kaupavinnu. Um sumarið hafði hún gott kaup en naut sjálf ekki uppskerunnar því hún lánaði eldri bróður sínum launin svo að hann gæti farið í skóla. Það fór þó svo, að Anna lét til sín taka í mennta- málum og átti kennslan hug hennar og hjarta í liðlega þrjátíu ár. Anna bjó lengstum á Stöðvarfirði og á Heydölum í Breiðdal. Að Heydölum hélt hún myndarheimili með Kristni í tæplega fjörutíu ár. A prestsheimilinu var afar gestkvæmt og þeim ekki í kot vísað er þangað rötuðu. Árið 1987 luku presthjónin INNRÖMMUNW O .l vistinni á Heydölum og héldu til höf- uðborgarinnar. Þegar þangað kom settist Anna ekki í helgan stein held- ur tók til við skriftir. Af mikilli elju- semi hefur Anna safnað saman og skrifað niður þjóðlegan fróðleik.-- Hún hefur mikið yndi af því að segja frá öllu þvi sem viðkemur lifnaðar- háttum fólks eins og þeir voru í hennar ungdæmi. Anna hefur verið óþreytandi að leita uppi og safna saman ljóðum eftir séra Guttorm, afa sinn ásamt því að skrifa æviþætti um foreldra sína, ömmu og afa. Margt af því sem hún hefur fest á blað er varðveitt í Þjóðarbókhlöð- unni og er hún enn að bæta við það safn. Anna hefur tekið saman mörg minningarbrot um samferðafólk sitt. Skrifin eru ómetanlegar heimildir^,. um líf og störf fólks um síðustu alda- mót og hafa sumar greinarnar birst í dagblöðum og tímaritum. Anna er hagmælt mjög og skrifar skemmtilegar sögur sem tengjast lífi hennar og minningum. Sumar þess- ara sagna hafa birst á prenti og fleiri á hún í fórum sínum sem bíða síns tíma. Hana munar heldur ekki um að setja saman stökur við ýmiss tæki- færi eða senda kærum vinum ljóða- bréf. Sumt af því sem hún hefur sam- ið birtist í bókinni Raddir að austan-ljóð Austfirðinga (1999). Mörg af hennar bestu ljóðum eru ort til ástvina eða annarra sem hún hef- ur átt samleið með. Sumarið 1983 lá Anna á Landsspítalanum og naut. þar góðrar umönnunnar starfsfólks." Það er gjarnan hennar siður að þakka fyrir sig með ljóði og svo var einnig í það sinn: Fylgi ykkur gleði í göfugum starfa gæfan ei bregðist þá mest liggur við. Starf sem að unnið er öðrum til þarfa andanum lyftir á hærra svið. Ryð má á skjöld ykkar fagran ei falla friðarins Guð ávallt til ykkar sér. Hafið nú þökk fyrir umönnun alla og uppörvun sem að veittuð þið mér. Anna er ennþá, þó komin sé hátt á níræðisaldur, ern og sístarfandi. Hún hefur alla tíð unnið mikið í höndum þó svo hún vilji sjálf ekki hampa því verki né telji sig hann- yrðakonu. Vinir og venslafólk hafa fengið að njóta þeirrar eljusemi og liggur margt fallegt og nytsamlegt handverk eftir hana. Anna lætur þjóðmál sig miklu varða og hefur ákveðnar skoðanir á þeim málum sem eru efst á baugi á hverjum tíma. Hún lætur sig ekki vanta á þingpalla ef málefni sem þar er verið að fjalla um eru henni hugleikin. Anna fylgist mjög vel með og liggur ekki á skoð- unum sínum hvort sem umræðuefn- in eru háalvarleg eða á léttum nót- um. ** Anna er mikil nútímakona. Hún ræktar sjálfa sig bæði líkamlega og andlega en nýlega lauk hún nokk- urrra vikna tölvunámskeiði. Hún er farin að nýta sér tæknina við sín hugðarefni, skriftirnar, á milli þess sem hún bregður sér á veraldarvef- inn. Margir mættu hafa lífssýn henn- ar að leiðarljósi. Hún telur það hei- laga skyldu hvers manns að gera það sem getan leyfir til að njóta lífsins. Má með sanni segja að viðhorf Önnu, viljastyrkur og sterkur persónuleiki hafi fleytt henni yfir mörg boðaföllin. Nafna hennar og dótturdóttir sem er hennar besta vinkona sagði eitt sinn: „Hún Anna-amma er sú frábærasta manneskja sem ég hef kynnst" og» erum við sem þekkjum hana sam- mála fullyi-ðingu barnsins. Klara Sigurmundadóttir, Lára Halldóra Eiríksdóttir. Fallegir borðdúkar og servíettur í gjafakössum ( |)psftuinfjtibi'u)iu
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.