Morgunblaðið - 08.04.2000, Page 85
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 8. APRÍL 2000 85
Rússapopp
Sjór, Kavíar
Mumintroll
REC-Records
Rússland
ÞAR SEM forsetakosningar eru
nýyfirstaðnar í Rússlandi er við
hæfi að kíkja á fremstu poppsveit
landsins um þessar mundir. Hún
heitir Mumintroll eða „Múmínálf-
arnir“ og kemur frá skítabænum
Vladivostoc, einni stærtu hafnar-
borg Rússlands. Þar er lítið við að
vera nema gráar blokkir, eymd og
vonleysi en krakkarnir í Mumintroll
rifu sig upp og urðu að vinsælustu
hljómsveit stærsta lands veraldar.
Sveitin var stofnuð 1992 undir
forystu söngvarans og lagasmiðsins
Olesja Ljashenko sem er mikið
kvennagull og snillingur. Mumin-
Þ'oll spila nýbylgjuskotna popptónl-
ist í anda „brittpoppsins“, Olesja er
með hárgreiðslu eins og Gallagher-
bræður en rússneska harkan og
skíturinn leynir sér ekki. Eftir að
hljómsveitinn fór að njóta vinsælda
í heimalandinu flutti hún til Eng-
lands, bæði til að reyna fyrir sér og
sleppa við mafíuruglið sem fylgir
því að vera frægur í Rússlandi.
Mumintroll eiga aðeins rússneska
aðdáendur og skjótast því alltaf til
heimalandsins að spila. Undirritað-
ur vart svo heppin að sjá hljóm-
sveitina á stórum
tónleikum á íþróttaleikvangnum í
Pétursborg og sjaldan hef ég orðið
vitni að annarri eins stemmningu.
Hver einasta sála kunni texta þeirra
orð fyrir orð og söng hástöfum með.
Salurinn ætlaði að tryllast af fagn-
aðarlátum þegar þau stigu á sviðið
og þeim linnti ekki fyrr en þau fóru
af því. Þetta var líkara gömlu Bítla-
stemmningunni en venjulegri tón-
leikastemningu, hljómsveitinn var í
feikna stuði og sviðsframkoma 01-
esja er svöl og kraftmikil blanda af
Beck og Jarvis Cocker. Mumintroll
hafa gefið út tvær breiðskífur sú
fyrri heitir „Sjór“ og sú seinni
„Kavíar“. „Sjór“ er ögn skemmti-
legri en báðar eru góðar poppplötur
og tilvaldar fyrir stíf vodkadrykkj-
Nýjar og spennandi vorvörur
á Kringluauka um helgina.
<
4"’,'
•:J
upartý. Lögin þeirra eru ft-ábær og
límast auðveldlega við heilann,
þetta er tónlist sem væri vinsæl um
allan heim ef heimurinn væri ekki
enskuplebbi. Þetta er hressileg
stuðtónlist, kannski ekki neitt ýkja
sérstök en hún er rússnesk og það
gefur henni dulúð og hörku.
Ragnar Kjartansson
NOA
NOA
KRINGLUNNI S: 553 3536
afslíllir
íl ollum sledum veina
nrujúaldslskkaoa
Arctic Cat Powder Special Y2K Millenium
Sleði nr. 839 af 2000 framleiddum.
Nýskr. 02.1999, 600cc, 106 hö.
Verð: 1.090. þús.
Útsöluverð: 760. þús.
Arctic Cat Powder Special 700
Nýskr. 11.1999, 700cc, 114 hö.
Verð: 1.090. þús.
Útsöluverð: 760. þús.
ARCTIC CAT
Lynx Rave 670
Nýskr. 05.1997, 700cc, 109 hö.
Verð: 830. þús.
Útsöluverð: 580. þús.
Yamaha VMax 700 XT
Nýskr 01.1999, 700cc, 120 hö.
Verð: 890. þús.
Útsöluverð: 620. þús.
Yamaha V - Max 4cyl
Nýskr. 12.1994, 800cc, 153 hö.
Verð: 680. þús.
Útsöluverð: 480. þús.
Opifl um helgina
Laugardag: 10-1B
Snnnudag: 12-17
Grjóthálsi 1 • 575 1230
i
60IT FðlK McCANN-ERICKSON • SlA • 1012»