Morgunblaðið - 19.04.2000, Side 2

Morgunblaðið - 19.04.2000, Side 2
2 MIÐVIKUDAGUR 19. APRÍL 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Ferð forseta fslands til Washington Dorrit Mouss- aieff með í för DORRIT Moussaieff, vinkona Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Islands, fer með honum í opinber- um erindagjörðum til Banda- ríkjanna í lok þessa mánaðar. Greint var frá þessu í fréttum rík- issjónvarpsins í gærkvöld. Ólafur Ragnar Grímsson verð- ur, ásamt fleiri þjóðhöfðingjum Norðurlandanna, viðstaddur opn- un víkingasýningar í Smithsonian- safninu í Washington 27. apríl og er þjóðhöfðingjunum einnig boðið til hádegisverðar í Hvíta húsinu í boði bandarisku forsetahjónanna. í ferðinni heimsækir Ólafur Ragn- ar einnig vísindastofnanir í New York og endar svo ferðina á ís- lenskri kvikmyndahátíð í Los Ang- eles. Fréttamaður spurði Ólaf Ragn- ar hvort Dorrit Moussaieff yrði í fylgdarliði hans í ferðinni. „Ég vil kannski ekki orða það beint þann- ig að hún yrði í fylgdarliði mi'nu, en hún ætlar að fara með mér i þessa ferð. Hún á mikið af vina- fólki, bæði í Washington og Los Angeles, og reyndar einnig í New York. Sumt af þessu fólki hefur einnig boðið okkur að koma til sín,“ sagði Ólafur Ragnar. Hann sagði að Dorrit Moussaieff yrði viðstödd suma atburði í ferð- inni og aðra ekki. „Mér finnst það vera mjög ánægjulegt að hafa hana með mér og gera dvölina ánægjulegri og skemmtilegri. Ég vona einnig að hún muni gera fs- landi gagn í þessari ferð,“ sagði Dorrit Moussaieff forsetinn. Einnig var haft eftir Ólafi Ragnari að þó að Dorrit Moussaieff hafi verið viðstödd ýmsa hálfopinbera viðburði sem hann hafi sótt, eins og tónleika og ýmis samkvæmi, þá megi e.t.v. líta svo á að þetta sé í fyrsta sinn sem hún verði viðstödd opinbera við- burði af þessu tagi. Samgönguráðherra hafnar nýjum flugvelli BORGARRÁÐ samþykkti í gær að setja á laggimar sérfræðihóp sem hefur það hlutverk að kynna þá kosti sem í boði eru varðandi framtíðamýt- ingu Vatnsmýrarinnar og staðsetn- ingu Reykjavíkurflugvallar, en stefnt er að atkvæðagreiðslu um málið síðar. Sturla Böðvarsson samgönguráð- herra sagði í samtali við Morgunblað- ið að borgarstjóri hefði óskað eftir því að samgönguráðuneytið tæki þátt í að undirbúa kynninguna. „Ég taldi eðlilegt að verða við þeirri ósk, því ég tel mikilvægt að al- menningur fái réttar upplýsingar um mikilvægi flugvallarins íyrir innan- landsflugið," sagði Sturla. „Ég hef hins vegar alfarið hafnað því að þriðji valkosturinn um flugvöll komi til greina, að nýr flugvöllur verði byggð- ur. Ég tel eingöngu að um sé að ræða tvo kosti, annars vegar að hafa hann áfram í Vatnsmýrinni og hins vegar að flytja hann til Keflavíkur.“ Sturla sagði að bygging nýs flug- vallar myndi líklega kosta um 20 milljarða og að hann teldi ekki rétt að leggja út í slíkar framkvæmdir og láta aðrar framkvæmdir sitja á hakanum. Sturla sagði að flutningur flugvall- arins til Keflavíkur væri mun ódýrari kostur en að byggja nýjan flugvöll. Samkvæmt skýrslu, sem unnin hefði verið af Hagfræðistofnun Háskóla Is- lands árið 1997, kostaði um 3 til 4 milljarða að flytja flugvöllinn. Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Álit samkeppnis- og ríkisaðstoðardeildar ES A vegna kvörtunar Mannverndar Gagnagrunnslögin samrýmast samkeppnisreglum EES LÖGIN um miðlægan gagnagrunn á heilbrigðissviði og sérleyfi til handa Islenskri erfðagreiningu til gerðar og starfrækslu grunnsins eru í sam- ræmi við samkeppnisreglur samn- ingsins um Evrópska efnahags- svæðið samkvæmt niðurstöðu sam- keppnis- og ríkisaðstoðardeildar Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA). Eftirlitsstofnunin greindi heilbrigð- isráðuneytinu frá þessari niður- stöðu í gær. Samtökin Mannvemd sendu ESA kvörtun í maí á seinasta ári en sam- tökin töldu að íslenska ríkið hefði í nokkrum atriðum brotið skyldur sínar skv. EES-samningnum með gildistöku gagnagrunnslaganna. Kvörtun Mannverndar laut aðallega að því að ákvæði laganna brytu gegn samkeppnisreglum EES-samnings- ins og reglum samningsins um frjáls þjónustu- og vöruviðskipti, auk þess sem gerð og starfræksla grunnsins væri útboðsskyld á öllu EES-svæð- inu. Fram kemur í bréfaskiptum heilbrigðisráðuneytisins og ESA, sem fylgja álitsgerð samkeppnis- og ríkisaðstoðardeildarinnar, að ESA tók gagnagrunnsmálið til athugunar snemma á seinasta ári m.t.t. sam- keppnisreglna EES og hafði óskað eftir greinargerð og skýringum ráðuneytisins áður en kvörtun Mannvemdar barst stofnuninni. Enginn rökstuðningur fylgir nið- urstöðu samkeppnis- og ríkisaðstoð- ardeildar ESA en í álitinu segir að stofnunin telji ástæðulaust að aðhaf- ast frekar í þessu máli á grundvelli EES-samningsins. Tekið er fram að ef breytingar verða á lagaumhverfi eða aðstæðum geti stofnunin endur- skoðað þessa afstöðu sína. Guðríður Þorsteinsdóttir, skrif- stofustjóri í heilbrigðisráðuneytinu, segist vera mjög ánægð með að Eft- irlitsstofnun EFTA hafi komist að þeirri niðurstöðu að gagnagrannur- inn og veiting rekstrarleyfisins séu í samræmi við samkeppnisreglur samningsins um Evrópska efna- hagssvæðið. Aðspurð hvort um endanlega nið- urstöðu væri að ræða sagði Guðríð- ur að heimilt væri að áfrýja áliti ESAtil EFTA-dómstólsins. ESA vísaði persónuverndar- þætti málsins frá sér Pétur Hauksson, læknir og for- maður Mannverndar, segir niður- stöðuna koma á óvart ef litið sé til umsagnar Samkeppnisstofnunar um gagnagrunnsfrumvarpið á sín- um tíma. Að sögn Péturs hefur Mannvernd ekki fengið niðurstöðu ESA í hendur heldur eingöngu til- kynningu heilbrigðisráðuneytisins um hana og allan rökstuðning vanti með niðurstöðunni. Hann segir að Mannvernd muni fara fram á skýr- ingar og nánari athugasemdir frá ESA, sem hafi verið með þetta mál til athugunar frá því á síðasta ári. „Við ætlum að kanna áfrýjunar- möguleika og fara ítarlega yfir þetta,“ segir hann. Pétur bendir einnig á að þessi nið- urstaða snúi eingöngu að sam- keppnisþætti gagnagrannsmálsins. Mannvernd hafi einnig óskað eftir áliti ESA á persónuvemdarþætti málsins o.fl „Þá niðurstöðu fengum við fyrir nokkru þar sem ESA vísaði því frá sér vegna þess að þeir töldu samkeppnina vera um þjónustu en ekki vörur og það félli ekki undir þeirra svið. Það er athyglisvert vegna þess að málið snýst um sölu á erfðafræðirannsóknum og því má spyrja hvort DNA sé vara eða þjón- usta. Þetta er vægast sagt mikið álitamál." Að sögn Péturs ætlar Mannvernd að halda baráttu sinni áfram og era samtökin nú að undirbúa marg- þætta málsókn á hendur íslenskum stjórnvöldum vegna gagnagranns- málsins. Jarðstöðin hreinsuð og merkt STÆRRI jarðstöðin sem stendur við útvarpshúsið í Efstaleiti er óðum að taka á sig páskabúninginn, enda verður að hreinsa hana og laga eins og aðra mannanna hluti áður en há- tíðin gengur í garð. Hann var að þvo hana með há- þrýstidælu, maðurinn í krananum, í góða veðrinu í gær, og hefur þvott- urinn eflaust engin áhrif haft á skil- yrði hennar til móttöku sjónvarps- útsendinga, en efni frá sambandi evrópskra sjónvarpsstöðva, Evró- vision, næst hingað til lands gegnum diskinn atarna. Væntanlega verður flötur stöðv- arinnar fannhvítur eftir þvottinn, en það ætti ekki að vara lengi, því til stendur að koma fyrir innan tíðar á henni merki Ríkisútvarpsins. Ætti það þar með ekki að fara framhjá neinum sem leið á um Efstaleitið. Að sögn útvarpsstjóra, Markúsar Arnar Antonssonar, þykir tilvalið að nýta jarðstöðina, sem stendur á áberandi stað, til að bera merki stofnunarinnar, en ekkert slíkt hef- ur hingað til staðið við útvarpshúsið.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.