Morgunblaðið - 19.04.2000, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 19.04.2000, Qupperneq 4
4 MIÐVIKUDAGUR 19. APRÍL 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Samkeppni í millilandaflugi hefur aukist umtalsvert frá því í fyrra Ymsir möguleikar eru á lágum fargjöldum U) Samanburður á lægstu vor- og sumarflugfargjöldum til Evrópu Fargjald fram og til baka með flugvallarskatti . Samvinnu- Urval- ferðir GO Flugleiðir Utsýn - Landsýn London kr.10.000 18.700 18.670 19.705 Kaupmannahöfn 19.320 17.450 18.400 18.305 Berlín - 17.090 27.410 20.735 Mílanó 19.320 14.900 - - Palma 20.485 - - 31.995 Barcelona 18.155 17.060 - - Edinborg 15.825 - - - Glasgow - 32.210 - - París - 33.860 27.900 - Alicante 21.650 32.060 - - Bilbao 18.155 32.060 - - Frankfurt - 33.090 27.930 21.855 Faro 20.485 - - 32.405 Fulltrúar Nýkaups áttu fund með Sam- keppnisstofnun Vilja reglur um verð- kannanir FORSVARSMENN Nýkaups fund- uðu í gær með fulltrúum Samkeppn- isstofnunar vegna verðkönnunar Neytendasamtakanna og ASI, sem birt var fyrir helgi, en í henni var missagt að vöruverð í Nýkaup hefði hækkað um 5,1% þegar það hafði í raun lækkað. Guðmundur Sigurðsson, forstöðu- maður samkeppnissviðs Samkeppn- isstofnunar, sagði í samtali við Morgunblaðið að á fundinum hefðu forsvarsmenn Nýkaups velt upp þeirri spurningu hvort Samkeppnis- stofnun gæti sett einhverjar reglur um gerð og birtingu verðkannana og að þeir hygðust senda stofnuninni formlegt erindi um það á næstu dög- um. Leiðbeinandi reglur Að sögn Guðmundar hefur þessi möguleiki ekkert verið ræddur inn- an stofnunarinnar. „Við eigum eftir að leggja mat á það hvort það er hlutverk okkar að setja svona reglur," sagði Guðmund- ur. „Að lítt athuguðu máli sýnist mér að ekkert standi í vegi fyrir því að það verði gert, en það verða þá aldrei annað en leiðbeinandi reglur.“ -------------------- Farmenn samþykkja að fara í verkfall FARMENN innan Sjómannafélags Reykjavíkur hafa samþykkt að boða til verkfalls á miðnætti að- faranótt 1. maí ef ekki semst fyrir þann tíma. Þetta kom fram í sam- tali Morgunblaðsins við Jónas Garðarsson, formann Sjómannafé- lagsins, í gær. Jónas sagði að 70 manns hefðu tekið þátt í atkvæðagreiðslunni, 68 hefðu samþykkt að boða til verk- falls en 2 greitt atkvæði gegn því. Alls eru um 100 farmenn í Sjó- mannafélagi Reykjavíkur og því var kosningaþátttakan um 70%. Jónas sagði að niðurstöður kosn- ingarinnar sýndu að farmenn hefðu fullan hug á að fylgja kröfum Sjómannafélagsins eftir, en félagið mun funda með SA í dag. FERÐALÖNGUM sem hyggja á ferðir til Evrópu í sumar á eigin veg- um bjóðast nú fleirl og ódýrari mögu- leikar en fyrr á að komast fljúgandi til evrópskra borga. Að ýmsu er þó að hyggja þegar lægstu tilboð eru skoð- uð. Ekki eru alltaf öll sæti á lágmarks- verði, tíðni ferða er misjöfn, skilyrði um dvalar- og bókunartíma sömuleið- is, og í sumum tilfellum er ekki flogið beint til áfangastaðar. Þó geta forsjál- ir ferðalangar nýtt sér ýmisleg tæki- færi sem í boði eru til að komast á ódýran hátt til Evrópu í sumar. Með aukinni samkeppni hafa far- gjöld í millilandaflugi farið lækkandi. Flugleiðir hófu í ársbyrjun að bjóða ódýrar kvöld- og næturferðir til London og Kaupmannahafnar og nokkrum dögum seinna kynntu Sam- vinnuferðir/Landsýn nýtt íyrirkomu- lag á flugþjónustu sem nefnist Flug- írelsi. I kjölfarið auglýsti ferða- skrifstofan Úrval-Útsýn ferðir til 9 erlendra borga á sérstöku tilboðs- verði. Nú hefur flugfélagið Go, dótt- urfyrirtæki British Airways, blandað sér í samkeppnina og býður m.a. ódýrari fargjöld til London en áður hefur þekkst. Lágfargjaldaflugfélagið Go byrjar áætlunarflug til íslands 26. maí nk. og lægsta verðið sem þar er í boði er flugmiði til London á tíu þúsund krón- ur báðar leiðir með sköttum. Um helmingur sæta verður seldur á því verði og skilyrðin eru þau að bókað sé fyrirfram og að dvalið sé aðfaranótt sunnudags erlendis. Auk þess er ekki hægt að gera breytingar á pöntuninni eftii' á. í boði verða einnig dýrari flug- sæti fyrir þá sem vilja hafa meii-i frelsi í sinni ferðatilhögun. Framhaldsflug er mögulegt með flugfélaginu Go Go mun fljúga frá London til Kefla- víkur öll mánudags-, fimmtudags-, fóstudags-, og sunnudagskvöld og er brottfor til baka kl. 2 um nótt. Flugfé- lagið býður aðeins upp á beint flug til London, en þaðan er hægt að taka annað flug með félaginu til annarra borga og bætist þá verðið á því flugi við flugmiðaverðið til London. Ef far- þegi ætlar t.d. til Mílanó kostar flugið til London 10.000 kr. og frá London til Mílanó 9.320 kr., þannig að í heildina kostar flugfargjaldið frá Islandi til Mílanó 19.320 með flugfélaginu Go. Lægsta fargjaldið sem í boði er hjá Flugleiðum er 14.900 krónur án skatta til Kaupmannahafnar, London, Barc- elona, Mílanó, Berlín, Dusseldorf, Hamborg og Zúrich. Fargjöld til Kaupmannahafnar eru eingöngu í boði frá 28. maí til 9. september, og flogið er daglega. Til London gildir verðið 16. maí til 5. september á þriðjudögum, miðvikudögum og fóstudögum. Til hinna staðanna er flogið vikulega. Lágmarksdvöl er 7 dagar og bóka þarf með viku fyrirvara. Samvinnuferðir/Landsýn hófu í árs- byrjun að bjóða svokallað Flugfrelsi. Engir skilmálar eru um lengd ferða, hægt er að breyta miða gegn breyt- ingagjaldi og fá hann endurgreiddan í samræmi við ákvæði forfallatrygging- ar. Einnig er hægt að fljúga heim frá öðrum áfangastað en flogið er tíl. Ferðir til Kaupmannahafnar og Lond- on eru allar í morgunflugi og er flogið tvisvar í viku. Aðeins er þó boðið upp á lágmarksverð á u.þ.b. helmingi sæta, en verðhækkunin nemur í flestum til- fellum 1.000-1.500 krónur á hvert fargjald aðra leiðina. Þessar ferðh' SL he^jast 22. maí. Urval-Útsýn býður einnig upp á sérstakar tilboðsferðir tO borga í Evrópu í sumar. Ódýrustu fargjöldin eru til Kaupmannahafnar, en þangað er flogið daglega, og til London, en þangað er boðið upp á ferðir einu sinni í viku og er brottför á þriðjudög- um. Lágmarksdvöl er að jafnaði ein vika. Morgunblaðið/Baldur Sveinsson Frábært fermingartilboð Orðabók og spil saman í pakka SCRABBLE Takmarkað magn Aðeins í verslunum Máls og menningar Síðumúla og Laugavegi MAL OCí MENNING ÍSLENSK ORÐABÓK FVRIlt SKÓI.A ÖG SKRIlN’l OFUR Fullt verð: 10.970 kr. Tilboðsverð: 6.980 kr. Mál og mennfng! malogmðnnlng.lsl Laugavegi 18 • Síml 515 2500 • Sföumúla 7 • Síml 510 2500 Hér má sjá hvernig ytri hreyflar á B747-breiðþotu ná út fyrir akstursbrautina sem er 45 m á breidd. Breiðþoturnar sópa jarðvegi inn á brautir SÓPA þarf akstursbrautir á Kefla- víkurflugvelli eftir að þotur með mikið vænghaf aka þar um við flugtak og lendingu, t.d. Boeing 747-þotur, þar sem ytri hreyflar þeirra ná út fyrir 45 m breiða brautina. Björn Ingi Knútsson flugvallarstjóri segir þetta ekki valda beinum skemmdum heldur fyrst og fremst óþægindum. Nokkuð er um að B747-breið- þotur fari um Keflavíkurflugvöll. Þotur frá Cargolux koma fjórum sinnum í viku og á sumrin fljúga breiðþotur Atlanta frá Keflavík. Þessar þotur eru búnar fjórum hreyflum. Vænghaf 747-þotna er rúmir 88 metrar en hreyflarnir eru hins vegar nokkru innar á vængn- um. Flugbrautirnar eru um 60 metrar á breidd og meðfram þeim öryggissvæði en akstursbrautir milli flugstöðvar og flugbrauta eru 45 metra breiðar. Utan við þær er malarborinn jarðvegur og þegar breiðþotur fara um akstursbrautir standa ytri hreyflar þeirra út fyrir brautina. Þeir geta þá þyrlað möl og sandi inn á brautina. Flugmenn beðnir að nota ytri hreyflana sem minnst Björn Ingi segir flugmenn beðna um að nýta sem minnst ytri hreyfl- ana þegar farið er um aksturs- brautir en engu síður rótist alltaf einhver jarðvegur inn á þær. Þvi þurfi að sópa brautirnar oftar vegna þessa. Einnig er nokkuð um að jarðvegur sópist til á sjálfum flugbrautunum en minna sé um það þar sem þær eru breiðari. Björn Ingi segir þetta vel þekkt vandamál á flugvöllum og hér sem annars staðar eigi þetta ekki að- eins við 747-þotur heldur og aðrar breiðþotur, m.a. þær sem annist flutninga fyrir varnarliðið. Þær fari hins vegar oftar um breiðari akstursbrautir en liggi að Leifs- stöð.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.