Morgunblaðið - 19.04.2000, Page 16

Morgunblaðið - 19.04.2000, Page 16
16 MIÐVIKUDAGUR 19. APRÍL 2000 MORGUNBLAÐIÐ LANDIÐ Morgunblaðið/Jón Eggertsson Hótelálman er viðbygging við gistiheimilið sem Eygló hefur rekið í nokkur ár. Viðbygging Hótels Höfða tekin í notkun TEKIN hefur verið í notk- un viðbygging við Hótel Höfða í Olafsvlk. í við- byggingunni eru 18 hótel- herbergi með öllum þæg- indum og veitingasalur. Nýja hótelálman var opnuð við sérstaka athöfn síðastliðinn laugardag. Um 180 gestir samíbgn- uðu Eygló Egilsdóttur hótelstjóra, klippt var á borða og Sturla Böðvars- son samgönguráðherra ávarpaði samkomuna. Eygló er bjartsýn á reksturinn, enda segir hún að viðbótin hafi fengið frábærar viðtökur. Morgunblaðið/Jón Eggertsson Eygló Egilsdóttir hótelstjóri og Sigurður Elinbergsson, maður hennar, fengu blóm og heillaóskir við opnun hótelsins. Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir Nemendur á barnfóstrunámskeiði á vegum Þórshafnardeildar RKÍ ásamt kennurunum Hjördísi Gunnarsdóttur og Erlu Jóhannesdóttur. Barnfóstrunámskeið Rauða krossins Þórshöfn - Áhugasamt barnagæslufólk tók þátt í barn- fóstrunámskeiði á vegum Þórshafnardeildar RKI. Það voru tíu stúlkur og einn drengur á þessu 16 tíma nám- skeiði svo foreldrar á Þórshöfn eiga völ á ágætlega hæfum bamapíum á næstunni. Einn nemandinn fann það út að nú gætu þau gert hærri kaupkröfur fyrir barngæsluna þar sem þau væm menntuð í greininni! Barnfóstrunámskeið hefur verið árviss viðburður um nokkurt skeið hjá Þórshafnardeild RKÍ og alltaf verið vel þegið. Kennarar á námskeiðinu voru Hjördís Gunn- arsdóttir hjúkrunarfræðingur og Erla Jóhannesdóttir, sem bæði hefur almenna kennara- og leikskóla- kennaramenntun. í lok námskeiðs leysti Þórshafnardeildin nemend- urna út með gjöf sem var bakpoki merktur Rauða krossinum og innihélt búnað til fyrstu hjálpar. Morgunblaðið/Egill Egilsson Frá fundinum sem haldinn var í Vagninum á Flateyri. Ákveðið að hanna heimasíðuna flateyri.is Flateyri - Nýlegavar boðað til fund- ar í Vagninum á Flateyri. Tilgangur fundarins var að kanna áhuga heimamanna á gerð heimasíðu fyrir önfirskt samfélag þar sem samfélag- ið er kynnt hvað varðar sögu, nátt- úru og hvers kyns uppákomur. Eiríkur Finnur Greipsson spari- sjóðsstjóri kynnti fyrir fundarmönn- um hugmyndir samstarfshóps um hugsanlegt innihald og tilgang síð- unnar. Með tilkomu síðunnar myndi skapast sá möguleiki að kynna íyrir áhugasömum húsnæðismál, félags- mál og upplýsingar varðandi smá- báta sem gerðir eru út frá Flateyri. Þegar hafa bændur í Önundarfirði lýst áhuga sínum hvað varðar þátt- töku í þessari síðu þar sem gott tæki- færi gefst til að kynna þjónustu þeirra. Nokkrir aðilar hafa þegar sett upp sínar eigin heimasíður og með tilkomu síðunnar sjá menn sér hag í að tengjast í eina heimasíðu. A fundinum var ákveðið að ráða Högna Sigurþórsson, myndlistar- kennara við Grunnskóla Önundar- fjarðar, verkefnisstjóra heimasíð- unnar. Á myndinni er hópurinn samankominn og ef myndin prentast vel má sjá ótal tilbrigði við sama munstrið. Saumað „út í óvissuna“ Höfn - Gríðarlegur áhugi er með- al kvenna á Hornafirði um búta- saum. Fjölmenn námskeið hafa verið haldin á Höfn á liðnum ár- um og sýningar í kjölfar þeirra. I vetur hefur hópur kvenna hist einu sinni i mánuði i þeim til- gangi að sauma, læra hver af annarri og fá félagsskap. Um síðustu helgi hittist hópur- inn og höfðu konurnar þá fengið þau skilaboð að kaupa efni án þess að vita hvers konar verkefni átti að vinna. Var þeim síðan öll- um úthlutað samskonar munstri, og átti hver og ein að sauma úr sínu efni eftir þessu munstri og sannarlega urðu þarna til fjöl- breyttar myndir úr þessu öllu saman. Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson Flutt var Qölbreytt dagskrá þar sem fram kom fólk á öllum aldri allt frá sex ára til fímmtugs sem allt er nemendur Tónskólans. 60% nemenda Brúarásskóla í tónlistarnámi Norður-Héraði - Sextíu prósent nemenda Grunnskólans á Brúar- ási eru í tónlistarnámi við Tón- skóla Norður-Héraðs sem einnig er á Brúarási. Auk þess eru nokkrir foreldrar og fullorðið fólk úr sveitinni að læra söng og hljóðfæraleik við Tónskólann. Tvær unglingahljómsveitir eru starfandi við skólann. Einnig hafa foreldrar nemenda ásamt fleirum sett saman popphljóm- sveit sem æfir reglulega og kem- ur fram við sérstök tækifæri. Listamennirnir voru á öllum aldri Á dögunum var sveitungunum boðið til tónleika sem nemendur héldu. Þar var flutt fjölbreytt dagskrá þar sem fram kom fólk á öllum aldri, allt frá sex ára til fimmtugs, allt nemendur Tón- skólans. Leikið var á fjölda hljóðfæra, svo sem píanó, gítar, blokkflautu, altflautu, þver- flautu, hljómborð og klarinett, auk þess sem þrír nemendur í söng sungu fyrir gesti. Efnis- skráin var fjölbreytt; allt frá Blokklingunum til verka eftir Haydn og Mozart. Einnig komu fram tvær ungl- ingahljómsveitir sem starfandi eru við skólann ásamt popp- hljómsveit foreldra og fleiri sem flutti tvö lög, House of the Ris- ing Sun og Pípuna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.