Morgunblaðið - 19.04.2000, Side 31

Morgunblaðið - 19.04.2000, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. APRÍL 2000 31 LISTIR Morgunblaðið/Aldís Hafsteinsdóttir Leikverkið Arfiir verður frurasýnt á skírdag. Páskasýning Myndlistar- klúbbs Hvassaleitis í TILEFNI þess að Reykjavík er ein af menningarborgum Evrópu árið 2000 opnar Mynd- listarklúbbur Hvassaleitis páska- sýningu í íþróttasal Hvassaleitis- skóla við Stóragerði laugardaginn 22. apríl kl. 13.30. A sýningunni verða myndir sem hafa verið málaðar með vatnslitum, olíu, akryl og pastel ásamt blýantsteikningum. I Myndlistarklúbbi Hvassaleit- is er hópur áhugafólks um myndlist, sem kemur saman einu sinni í viku í Hvassaleitisskóla og málar undir leiðsögn leiðbein- anda, sem síðastliðið ár var Sig- urður Örlygsson listmálari. Klúbburinn hefur starfað síðan 1978 og er því 22 ára á þessu ári. Klúbbfélagar hafa haldið margar sýningar frá stofnun og oftast annað hvert ár. Klúbbfé- lagar eru í dag um 25 manns og í stjórn hans eru Einar Gunn- laugsson, Agatha Kristjánsdóttir og Sigrún Dagbjartsdóttir. Sýningin verður opin opnunar- daginn, páskadag og annan í páskum til kl. 18.30. Leikfé- lagSól- heima sýnir Arf Hveragerðj. Morgunblaðið. LEIKFÉLAG Sólheima í Grímsnesi frumsýnir á sumardaginn fyrsta leikverkið Arf. Sýningin er unnin í samvinnu við fjöllistahópinn HEY en hann skipa þau Brynhildur Björns- dóttir, Skúli Gautason og Gunnar Sigurðsson, sem jafnframt er leik- stjóri sýningarinnar. Leikverkið Arfur segir sögur af sérstöku fólki í bland við vangaveltur um uppruna okkar, menningararfinn og tengsl við náttúruna. Saga Sólheima spinnst inn í verkið enda hafa íbúar Sólheima löngum mátt glíma við skilningsleysi rétt eins og persónur þær sem verkið fjallar um. Leik- verkið er samið af Brynhildi Björns- dóttur og Gunnari Sigurðssyni í kringum þjóðsögur og önnur rit. Mikil tónlist er í sýningunni en Skúli Gautason sér um þann þátt sýning- arinnar. Að sögn leikstjórans, Gunn- ars Sigurðssonar, er það draumur hvers leikstjóra að fá að leikstýra á stað sem Sólheimum. „Þetta er þriðja sýningin sem ég set upp hér en leikfélag hefur verið starfandi hér síðan 1932. Félagið hefur sett upp sýningu á hverju ári í hátt í 40 ár og margt af heimilisfólkinu hefur tekið þátt í fjölmörgum sýningum. Hér er því í hópnum alvant fólk jafnt sem fólk sem aldrei hefur komið nálægt leikstörfum áður. Ég er alltaf jafn hissa yfir þeim hæfileikum sem hér leynast en hér er sungið, spilað og langar rullur lærðar utanbókar eins og ekkert sé. Síðan er náttúrulega kostur að hér hlýða mér allir og leik- arahópurinn er þolinmóður og góð- ur.“ Um 28 leikarar taka þátt í sýn- ingunni fyrir utan atvinnuleikarana tvo. I leikfélaginu eru ekki einungis fatlaðir einstaklingar heldur taka aðrir íbúar og starfsmenn Sólheima einnig þátt í sýningunni. Eins og áð- ur er sagt verður leikverkið frumsýnt á sumardaginn fyrsta en í sumar verður sérstök hátíðarsýning í Þjóðleikhúsinu í tilefni 70 ára af- mælis Sólheima. Frumsýningin á skírdag markar upphaf hátíðahald- anna. T öfra»tundlir * VIS* Borgaóu meö VISA þú gætir hitt á töfrastund! Einbýlis- og raðhús J ÍL þí j / • >■ - r Suðurmýri - Seltjarnarnes - einbýli með bílskúr Einbýl- ishús á tveim hæðum með bílskúr. Húsið er 170 fm og 27 fm bílskúr. Húsið verður afhent tilbúið undir tréverk að innan en fullbúið að utan með grasi á lóð. Möguleiki á allt að 5 svefnherbergjum. Afhending í maí 2000. Verð 19,8 millj. Asendi - aukaíbúð Mjög gott 204 fm einbýlishús sem er kjallari, hæð og ris. I kjallara er góð 3ja herb. íbúð m. sérinn- gangi. Vandaðar innréttingar. Gott hús. Frábær staðsetning. Verð 22 millj. Dimmuhvarf - við Vatns- endablett Nýtt og fallegt timburhús á einni hæð. 4 svefnherb. Björt og rúm- góð stofa. Gott eldhús. Stórt baðher- bergi. Frábær staðsetning nálægt Elliða- vatni. Raufarsel - raðhús Vorum að fá í einkasölu mjög gott 195 fm raðhús á tveimur hæðum m. innb. bilskúr. 4 stór svefnherb. Rúmgott eldhús. Bjartar og góðar stofur. Skjólgóður suðurgarður. Gott skipulag. í risi er ca 60 fm rými með fullri lofthæð tilb. til innr. Verð 19,4 millj. Áhv. 3,4 millj. 4ra herb. og sérhæðir FJARFESTING FASTEIGNASALA eht Sími 5624250, Borgartúni 31 Mururimi - parhús Vorum að fá í einkasölu sérlega glæsilegt 206 fm par- hús á tveimur hæðum með innb. bílskúr. Mjög vandaðar innréttingar og gólfefni. Einstaklega vel skipulögð og góð eign. Verð 19,8 millj. Áhv. 6,8 millj. Opið mánud.-föstud. frá kl. 9-18. Hilmar Óskarsson, Sigurður Jónsson, Guðjón Sigurjónsson. Lögfr.: Pétur Þ. Sigurðsson hrl. ATVINNUHUSNÆÐI VANTAR Höfum trausta kaupendur að ýmsum gerðum atvinnu- ________húsnæðis - Allt kemur til greina ÞAJRFrTaðTsELJA? VILTU BREYTA TIL? Skoðum og verðmetum samdægurs Ekkert skoðunargjald 3ja herb. Fróðengi - sérinngangur Mjög góð 99 fm íbúð á jarðhæð með sérinngangi. 2 rúmgóð svefnherbergi. Björt og rúmgóð stofa. Sérverönd. Parket. Dúkur. Falleg íbúð í nýlegu fjölbýlishúsi. Flétturimi - innang. í bíl- geymslu Mjög vönduð og glæsileg 100 fm íbúð á 2. hæð í góðu húsi. 2 svefnh. Stór og björt stofa. Sérlega vandaðar innréttingar. Parket. Flísar. Þvottaherb. i íbúð. Verð 11,9 millj. Áhv. 4 millj. 2ja herb. Hringbraut - nýtt í sölu Ný uppgerð 66 fm íbúð í góðu þríbýlishúsi. Rúmgott svefnherb. Mjög stór stofa. Uppgert eldhús. Gluggi á baði. Vinnu- aðst. aukalega. Parket á gólfum. Nýjar vatnslagnir og klóak. Endurnýjað raf- magn. Blikahóiar - glæsieign Vorum að fá í einkasölu sérlega glæsilega 89 fm íbúð í góðu lyftuhúsi. Nýjar innrétt. á baðherb. og eldhúsi. Nýtt parket og flís- ar. Nýlegt gler og gluggar. Yfirfarið rafm. Sameign öll nýlega standsett. Mjög góð- ur kostur fyrir vandláta. Laus strax. Nýtt í Staðahverfi - stæði í bflgeymslu Ný íbúð með glæsileg- um innréttingum í lyftuhúsi. (búðin er ca 100 fm. Þvottahús í íbúð. Fallega flísa- lagt baðherbergi með góðri innréttingu. Gott stæði í bílgeymslu fylgir. Verð 12,4 millj. Nýjar íbúðir Brúnastaðir - raðhús Erum að hefja sölu á nokkrum 193 fm raðhúsum á tveimur hæðum m. innb. bílskúr. Hús- in verða afhent fokheld en fullbúin að ut- an með grófjafnaðri ióð. Teikningar og nánari upplýsingar hjá sölumönnum. Bakkastaðir - sérhæðir Nýtt i sölu. Mjög glæsiiegar 130 fm sérhæðir í sex íbúða húsi. (búðimar verða afhentar tilbúnar til innréttinga en fullfrágengnar að utan. Teikningar og nánari upplýsing- ar á skrifstofu. Atvinnuhúsnæði - fyrirtæki Akralind - nýtt Glæsilegt rúml. 1.000 fm iðnaðar- og skrifstofuhús- næðí á tveimur hæðum. 4 innkeyrslu- dyr og mikil lofthæð niðri. Mögulegt að skipta rými í minni einingar. Hús- næði afhendist tilb. til innréttinga eða lengra komið. Barðastaðir - verslunar- húsnæði Nýtt í söiu. Fimm 67 fm rými í nýrri verslunarmiðstöð. Hentugt fyrir hárgreiðslustofu, sólbaðstofu, söluturn með vídeóleigu, tannlækni. í húsinu verður þekkt matvöruverslun og bensínstöð. Miðhraun - Garðabæ Nýtt og glæsilegt 280 fm iönaðarhúsnæði með mikilli lofthæð og góðum innkeyrslu- dyrum. Einnig fylgir 90 fm skrif- stofurými á efri hæð. Húsinu verður skilað með frágenginni lóð og mal- bikuðu plani. Sérlega vel staðsett í hrauninu við Hafnarfjörð. Höfðabakki Mjög gott verslunar-, þjónustu- og skrifstofuhúsnæði til sölu. Jarðhæð er 117 fm og efri hæð er 247 fm. Húsnæðið er í dag innréttað sem skrifstofuhúsnæði með nokkrum góðum skrifstofum og rúmgóðum samkomusal. Dugguvogur - skrifstofuhús - Nýkomið í sölu 72 fm verslunarrými á jaröhæð í litlum verslunarkjarna. Gott rými með kæliklefa og góðri aðstöðu f. vörumóttöku. Sérlega hentugt fyrir ýmiss konar smíðar eða þjónustu. ( húsnæðinu er starfrækt tiskbúð i dag. Áffhólsvegur - verslunarhús- næði Nýkomið i sölu 72 fm versl- unarrými á jarðh. í litlum verslunarkjama. Gott rými með kæliklefa og góðri að- stöðu f. vörumótt. Sériega hentugt fyrir ýmiskonar smáiðnað eða þjónustu. I húsnæðinu er starfrækt fiskbúð í dag. Fífurimi - sérhæð m. bíiskúr Glæsiieg efri sérhæð ásamt góðum bíl- skúr. 3 rúmgóð svefnherb. Rúmgott eld- hús. Björt stofa. Gott skiþulag. Mjög vandaðar innréttingar og gólfefni. Verð 13,9 millj. Áhv. 6 millj. Engjasel - bílgeymsla Góð 105 fm íbúð á annarri hæð með góðri bíl- geymslu. Sameign og hús eru ný stand- sett. Stutt í skóla, hentar mjög vel fyrir barnafólk. Verð 10,9 millj. Barðastaðir 9-11 - glæsileg lyftuhús - stæði í bflgeymslu Stórar og glæsilegar 3ja-4ra herb. og „penthouse“-íbúðir í nýjum 6 hæða lyftuhúsum. (búðirnar verða afhentar fullbúnar með glæsilegum innréttingum en án gólfefna nema á þvottahúsi og baði verða flísar. Rúmgóð svefnherb. Góðar stofur. Allar íbúðir með sér- þvottahúsi. Góð staðsetning. Stutt á golfvöllinn. Einstakt útsýni. Fyrstu íþúðirnar verða af- hentar í ágúst. Byggingaraðili er Byggingafélag Gylfa og Gunnars. Teikningar og nán- ari upplýsingar hjá sölumönnum. Gott skipulag. Frábær staðsetning. ALLT SEM ÞARF!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.