Morgunblaðið - 19.04.2000, Síða 36
36 MIÐVIKUDAGUR 19. APRÍL 2000
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Almætti o g
einsöngvar-
ar í Hall-
grímskirkju
Mótettukór Hallgrímskirkju ásamt ein-
söngvurum og Kammersveit Hallgríms-
kirkju flytur Jóhannesarpassíuna eftir Jó-
hann Sebastían Bach undir stjórn Harðar
7
Askelssonar í kvöld og á föstudaginn langa.
Þorvarður Hjálmarsson fór í Hallgríms-
kirkju og forvitnaðist um verkið hjá flytj-
endunum og stjórnandanum.
Morgunblaðið/Jim Smart
Mótettukór Hallgrímskirkju æfir Jóhannesarpassíuna.
Morgunblaðið/Jim Smart
Gunnar Guðbjörnsson er kominn heim í stutta heimsókn til að taka þátt í
flutningi Jóhannesarpassíunnar.
EINSÖNGVARAR á tónleikunum
verða þau Gunnar Guðbjömsson ten-
ór sem syngur hlutverk guðspjalla-
mannsins, Davíð Ólafsson bassi sem
syngur hlutverk Jesú, Benedikt Ing-
ólfsson bassasöngvari sem fer með
hlutverk Pflatusar, Marta G. Hall-
dórsdóttir sópran, Sigríður Aðal-
steinsdóttir altsöngvari og Loftur
Erlingsson bassi. Þau Davíð og Sig-
ríður em að koma fram með kórnum í
fyrsta skipti og þá er þetta ennfrem-
ur í fyrsta skipti sem Gunnar Guð-
bjömsson syngur guðspjallamanninn
í Jóhannesarpassíunni, en um þessar
mundir er hann að syngja í uppfærsl-
um Ríkisóperunnar í Berlín á Töfra-
flautunni eftir Mosart, og ópera
Wagners Tristan og ísold undir
stjóm hins kunna tónlistarmanns
Dam'els Barenboims.
Vanalegar hvflir hlutverk guð-
spjallamannsins á herðum tveggja
söngvara en Gunnar syngur það einn.
Auk þess flytur Gunnar aríur í verk-
inu, svo óhætt er að segja að hann
ráðist ekki á garðinn þar sem hann er
lægstur. Síðastliðið sunnudagskvöld
söng Gunnar undir stjórn Dam'els
Bareinboims í Tristan og ísold, og á
þriðjudaginn eftir páska hefur hann
æfingar á Don Giovanni undir stjórn
Daníels. Svo verkefnin era ærin. Eg
spurði Gunnar að því hvað hann hefði
að segja okkur um hlutverk sitt og
verkið?
„Verkið er frábært! Það er ekkert
annað um það að segja,“ svaraði
Gunnar. „Alltaf þegar maður syngur
Bach þá segir maður að þetta sé eitt
stórkostlegasta verk sem Bach skrif-
aði, en þau era það öll svo þetta er
alltaf sannleikur. Þetta er í fyrsta
skipti sem ég glími við þennan guð-
spjallamann en í annað sinn sem ég
glími við guðspjallamann yfirleitt. En
þessi er dálítið frábragðinn hinum að
því leyti til að hann er lengra kominn
í tónlistarlegri þróun Bachs og orðinn
aUmiklu flóknari og kröfumar eru
meiri. Og sagan er mun dramatískari
en Jólaóratórían, svo þetta er mjög
stórt skref fyrir mig að fara í þetta
verk. Þetta er gaman og það hvílir
mikið á herðum mínum af því að ég
syng líka aríur í verkinu, en þær hef
ég reyndar sungið áður með Mótettu-
kómum fyrir einum átta áram þegar
ég var enn tiltölulega nýr í þessum
bransa. En núna er maður virkilega
að fara út í djúpu Bach-laugina.“
Vandrötuð spor
Davíð Ólafsson er Keflvfldngur og
lauk áttunda stigi frá Söngskólanum í
Reykjavík vorið 1997. Samhliða
söngnámi lauk Davíð íslensku- og
kennsluréttindaprófi frá Háskóla ís-
lands. Hausið 1997 hóf Davíð nám við
óperudeild Tónlistarskólans í Vínar-
borg og lýkur prófi þaðan nú í vor.
Davíð hefur gert samning við ópera-
húsið í Lúbeck í Þýskalandi og mun
syngja þar næstu tvö árin. I Jóhann-
esarpassíunni fetar Davíð í fótspor
frelsarans sjálfs.
„Þetta er fyrsta óratórían sem ég
tek þátt í á Islandi og á alheimsvísu,"
segir Davíð. „Og mér finnst það mik-
ill heiður að fá að taka þátt í þessu.
Ég hef verið við nám í Vín síðastliðin
þijú ár og er að fara að vinna í Þýska-
landi og þetta er ágæt æfing fyrir það
sem framundan er, en það er óratór-
íuveisla í Norður-Þýskalandi, vona
ég. Hlutverk Jesú er erfitt en von-
andi syng ég það fallega. Maður
hugsar sér Jesú mildan og blíðan, en
þetta er skrifað fyrir bassa og flutn-
ingurinn fer fram í stórri kirkju svo
maður þarf stundum að byrsta sig.
Maður reynir að gera sér í hugarlund
hvernig almættið starfar og það er
ekki mjög auðvelt! Hvað getur maður
sagt fleira? Jesú er almættið og ég er
fulltrúi hans í verkinu. Maður er
búinn að sjá svo marga Jesúsa bæði í
kvikmyndum og í óratóríum, og það
nálgast þetta engir tveir menn eins.
En ég safnaði skeggi og reyni að vera
svolítið blíður á svip og má ekkert
aumt sjá lengur. Við Kristur eigum
svosem ýmislegt sameiginlegt. Ég er
smiðssonur og ég er þijátíu og eins
árs gamall, svo ég er á sama aldri og
hann var þegar hann var krossfestur.
Ég var síðast að smíða í morgun. En
án gamans, það er mjög vandmeðfar-
ið að setja sig spor almættissins."
Sigríður Aðalsteinsdóttir er fædd
og uppalin í Reykjavík en búsett í
Keflavík. Hún lauk prófi frá Söng-
skólanum í Reykjavík vorið 1995 þar
sem kennarar hennar vou þær Elísa-
bet F. Eiríksdóttir og Þuríður Páls-
dóttir. Árið 1995 hélt Sigríður í fram-
haldsnám til Vínarborgar, haustið
1996 hóf hún nám við óperadeild
Tónlistarskólans í Vín, þaðan sem
hún lauk námi sem óperasöngvari í
janúar síðastliðnum. Sigríður hefur
komið fram á tónleikum bæði hér á
landi og í Austurrfld, meðal annars á
styrktarfélagstónleikum íslensku
óperannar haustið 1997. Hún söng
alt-hlutverkið í Messíasi eftir Hendel
með Schola Cantoram og ungversku
Kammerfílharmóníunni í Mara
Enzerdorf í Vín síðastliðinn vetur.
Sigríður mun á þessu ári meðal ann-
ars syngja hlutverk Mereedes í
Carmen hjá Þjóðaróperanni í Vín og
koma fram á ljóðatónleikum á vegum
Listasafns Sigurjóns í sumar.
„Ég syng altaríumar tvær í verk-
inu, gullfallegar og mjög erfiðar ar-
íur,“ segir Sigríður. „Þetta era mikil-
vægir staðir í stykkinu, sérstaklega
seinni arían sem ég syng áður en
Jesú gefur upp andann. Þetta er mik-
il dramatík og tæknilega erfitt fyrir
söngvara. Að syngja Bach er senni-
lega besta æfing fyrir röddina sem
hægt er að hugsa sér.“
Sviðsmyndin í huga
tónleikagesta
Jóhannesarpassían verður flutt í
heild sinni á tónleikunum og tekur
flutningur hennar tvær klukkustund-
ir. Sviðsmyndin verður til í huga tón-
leikagesta, segir Hörður Askelsson,
en þó munu dæmi þess að verkið hafi
verið sviðsett og flutt þannig. I ein-
söngvarahópnum sem tekur þátt í
flutningnum nú, era flestir að glíma
við þetta verkefni í fyrsta skipti. Það
er heilmikill áfangi í lífi hvers söngv-
ara að syngja svona verk, era söngv-
ararnir sammála um. Þá spillir það
ekki fyrir að verkið er flutt á föstu-
daginn langa, en það er sá dagur sem
verkið var samið fyrir, enda flutt
þann dag í kirkjum víða um heims-
byggðina. Hörður segir það ánægju-
legt að geta kallað saman hóp ungra
söngvara og veita þeim tækifæri sem
þetta. í leiðinni er athygli fólks vakin
á nýjum söngvuram sem era að feta
sig fram í sviðsljósið.
Benedikt Ingólfsson er fæddur á
Akureyri þar sem hann stundaði nám
í orgelleik í sjö ár. Hann lauk BA-
prófi í heimspeki frá Háskóla íslands
árið 1993. Benedikt hefur lokið átt-
unda stigi í söng frá Tónskóla Sigur-
sveins þar sem aðalkennari hans var
John Speigth að undanteknum einum
vetri þar sem Benedikt naut leið-
sagnar Signýjar Sæmundsdóttur.
Benedikt hefur sungið með ýmsum
kóram og smærri sönghópum, þeirra
á meðal Háskólakómum, Mótettukór
Hallgrímskirkju og nú syngur Bene-
dikt í Schola Cantroram og madr-
ígalakvartettinum Grímu. Hann hef-
ur komið fram sem einsöngvari með
þessum hópum og víðar. I Jóhannes-
arpassíunni bregður hann sér í hlut-
verk þrælmennisins Pflatusar.
„Pílatus kemur mest við sögu um
miðbik verksins," segir Benedikt.
„Pílatus er býsna áhugaverður þrátt
fyrir að texti hans sé knappur og
nokkuð afmarkaður. Pílatus er
stjórnmálamaður, eiginlega hálf-
gerður drallusokkur sem lætur und-
an þrýstingi lýðsins þó það sé honum
greinilega þvert um geð. Hann er
mannlegur líka, það er augljóst að
Jesú vekur áhuga hans og það örlar
jafnvel á heimspekilegum skoðunum
í orðræðu þeirra.“
Þá era ótaldir einsöngvararnir
Loftur Erlingsson og Marta G. Hall-
dórsdóttir.
Marta Guðrún Halldórsdóttir lauk
einsöngvaraprófi frá Tónlistarskól-
anum í Reykjavík árið 1988 og stund-
aði framhaldsnám í Munchen um
fimm ára skeið. Hún hefur haldið ein-
söngstónleika og komið fram á tón-
listarhátíðum víða, svo sem á Bach-
fest í Munehen, á listahátíðum í
Reykjavík, Búdapest og í Noregi. Þá
hefur Marta verið tíður gestur á
Sumartónleikunum í Skálholti þar
sem hún hefur tekið þátt í frumflutn-
ingi íslenskra verka. Marta Guðrún
hefur einnig farið með hlutverk í óp-
eram og söngleikjum hjá Leikfélagi
Akureyrar, Þjóðleikhúsinu og Is-
lensku óperanni.
Loftur Erlingsson nam söng í
Söngskólanum í Reykjavík hjá As-
rúnu Davíðsdóttur og Guðmundi
Jónssyni. Þá nam Loftur söng við
The Royal Northem College of Mus-
ic í Manchester og The National Op-
era Studio í London, auk þess að
sækja einkatíma hjá Sigurði Demetz.
Loftur hefur haldið einsöngstónleika,
komið fram með kóram og tekið þátt í
flutningi ýmissa stærri kórverka.
Meðal hlutverka Lofts er Kalmann í
Tunglskinseyjunni eftir Atla Heimi
Sveinsson sem framsýnd var í Pek-
ing í Kína í mars árið 1997.
Mikið ævintýri
„Þetta er stór viðburður hjá okkur
sem stöndum að þessu,“ segir Hörð-
ur Áskelsson. „Það er upplifun að
vera þátttakandi í svona flutningi.
Margir þræðir þurfa að fléttast sam-
an til að þetta gangi upp, og sem bet-
ur fer hafa hlutimir tUhneigingu til
að ganga, þó dagana á undan sé mað-
ur bæði á báðum áttum og tauga-
strekktur. En gleðin sem fylgir þessu
er mikil og sérstaklega verður hún
ósvikin hér í Hallgrímskirkju. Að
flytja Jóhannesarpassíuna á föstu-
daginn langa verður mikið ævintýri
fyrir heimafólkið hér.“
Mótettukór Hallgrímskirkju hefur
nú verið starfandi í sautján ár en
hann var stofnaður af Herði Áskels-
syni haustið 1982. Félagar í kómum
eru um sextíu talsins á ýmsum aldri.
Kórinn flytur aðallega kirkjuleg kór-
verk án undirleiks frá öllum tímabil-
um tónlistarsögunnar, en leggur sér-
staka áherslu á tónlist tengda
Hallgrími Péturssyni og sálmum
hans. Auk þess flytur kórinn stærri
kórverk ýmist með hljómsveit eða
orgeli. Á döfinni er að flytja nýja
Hallgrímspassíu eftir Hafliða Hall-
grímsson á hausti komanda.
Mótettukórinn syngur við helgiat-
hafnir í Hallgrímskirkju og heldur
árlega jólatónleika og vortónleika.
Kórinn hefur farið í fjölmargar tón-
leikaferðir innan lands sem utan og
heimsótti m.a. Kaupmannahöfn og
Lund í Svíþjóð vorið 1999. Þá hefur
kórinn tekið þátt í fjölda kirkjulegra
tónlistarhátíða, síðast í Gautaborg
haustið 1996 en þar vakti flutningur
kórsins á verki Jóns Nordals Óttu-
söngvai’ á vori mikla athygli. Þá
hljómar söngur kórsins á Listahátíð-
um í Reykjavík auk þess að hljóma á
Kirkjulistahátíðum í Hallgríms-
kirkju.
M-2000
Miðvikudagur 19. apríl.
Hafnarhúsið við Tryggvagötu.
Listasafn Reykjavíkur í Hafnar-
húsinu opnað.
Opnuð verður ný miðstöð lista
og menningar í Hafnarhús-
inu við Tryggvagötu á veg-
um Listasafns Reykja-
vikur. Fjöldi nýrra
* sýninga verður opnaður í
safninu af þessu tilefni og
frumsýnd ný heimildamynd um
Erró, en safni hans mun vera
búinn staður í Hafnarhúsinu til
frambúðar.
Myndlist
Opnuð verður yfirlitssýning á
úrvali þeirra listaverka sem eru í
eigu Listasafns Reykjavíkur í
Hafnarhúsinu. Sýningin mun eiga
sér fastan sess í safninu til fram-
tíðar en verður endurnýjuð í hlut-
um eftir því sem þörf krefur. Um-
gjörð sýningarinnar er einkum
skipulögð með fræðslustarf safns-
ins í huga og miðast jafnt við
skólafólk, ferðamenn og almenna
gesti.
Fabrice Hybert, einkasýning
Á eigin ábyrgð er yfirskrift
fyrstu einkasýningarinnar á opn-
unardegi Hafnarhússins. Mynd-
listamaðurinn Fabrice Hybert
(1961) er franskur og hefur vakið
mikla athygli á alþjóðavettvangi
undanfarin ár. Hybert vinnur
einkum með innsetningar og hug-
myndalist þar sem rýmið ákvarðar
innihald og framsetningu á hverj-
um stað.
Errd: Norður-Suður-Austur-
Vcstur
Heimildamynd um Erró verður
frumsýnd kl. 17:00 við opnun hins
nýja Listasafns Reykjavíkur í
Hafnarhúsinu þar sem Errósafn-
inu hefur verið búinn staður. Hinn
21. apríl verður íslensk útgáfa
sýnd á Stöð 2. Leikstjórn: Ari
Alexander Ergis Magnússon.
Myndin er framleidd af Ergis &
Islensku kvikmyndasamsteypunni.
www.reykjavik.is/listasafn.
www.reykjavik2000.is.
Miðasala Menningarborgar er í
Upplýsingamiðstöð ferðamála,
Bankastræti 2.
Litskyggnu-
sýningí Nor-
ræna húsinu
MAGNÚS Einarsson verður með
litskyggnusýningu í Norræna hús-
inu á morgun, fimmtudag, kl. 14:30.
Sýningin felur í sér 420 lit-
skyggnur af náttúra Islands á öll-
um árstíðum sem sýndar eru með
fjórum slide-sýningarvélum, auk
þess sem tónverkið Pláneturnar
eftir G. Holst stýrir því hvernig lit-
skyggnurnar birtast hver á fætur
annarri, segir í tilkynningu. Sýn-
ingin stendur í 53 mínútur. Áð-
gangseyrir er 1.000 kr.
Nýjar bækur
• ÓSÝNILEGA konan er eftir Sig-
urð Guðmundsson.
I fréttatilkynningu segir m.a.: „I
myndlistarmanninum og heims-
hornaflakkaranum Sigurði Guð-
mundssyni búa þrjár persónur sem
sífellt takast á: Kallinn Sigurður
Guðmundsson, Konan Sigurður
Guðmundsson og Hulstrið Sigurður
Guðmundsson. Þessar persónur lifa
lífi höfundar í eitt ár, takast á um
verk hans og allt sem fyrir augu ber
- horfa á líf hans augum kynjanna
þriggja. Þetta ár er höfundur stadd-
ur í Kína og sjálfur horfir hann sín-
um vestrænu augum á menninguna
þar eystra.
Kyngreining Sigurðar á sjálfum
sér og þeirri menning sem hann er
hluti af fæðir af sér óvenjulegar og
heimspekilegar myndir af tilvist
okkar - myndir sem oft era spaugi-
legar og á skjön við viðteknar hug-
myndir um veruleikann og tungu-
máljð.“
Útgefandi er Mál og menning.
Bókin er 182 bls., unnin í Svíþjóð.
Verð: 3.980 kr.