Morgunblaðið - 19.04.2000, Qupperneq 59
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 19. APRÍL 2000 59
AFMÆLI
FRÉTTIR
TRYGGVI
HELGASON
Tryggvi Helgason til
heimilis í Elli- og hjúkr-
unarheimilinu Grund,
áður Austurbrún 2 hér í
borg, bróðir undirrit-
aðs, verður 100 ára í
dag, 19. apríl og hefur
því lifað nálega alla
þessa öld og víða má sjá
spor hans meðal þjóðar-
innar, en flestir eða allir
samferðamenn hans og
samstarfsmenn frá
fyrri tíð eru nú fallnir
frá. Langar mig til að
rekja hér nokkur atriði
úr lífi hans og styðst þar
mest við munnlega frásögn Tryggva
og eigið minni.
Tryggvi Helgason er frá Lykkju á
Akranesi, fæddur þar 19. apríl árið
1900, á sumai-daginn fyrsta. Hann er
4. í röðinni af 13 börnum hjónanna
Guðrúnar Illugadóttur frá Stóra-
Lambhaga, Skilmannahreppi, og
Helga Guðbrandssonar frá Klafa-
stöðum í sama hreppi.
Tryggvi fór snemma að taka þátt í
lífsbaráttu fjölskyldunnar eins og þá
tíðkaðist meðal alþýðufólks og var
sex sumur í sveit, frá 10 til 15 ára ald-
urs. Hann var öll árin hjá Þorvaldi
bónda og hreppstjóra í Belgsholti í
Melasveit, sem var ókvæntur, en
systir hans var innan stokks hjá hon-
um á þessum árum. Þetta var talið vel
stætt heimili og heimilisbragur góð-
ur, en allan tímann var Tryggvi þó
vakinn um kl. 7 á morgnana til að
vinna og kaupgjaldið var naumast
annað er brýnustu lífsnauðsynjar.
Tryggvi var í barnaskólanum á
Akranesi frá 10 ára til 14 ára aldurs
eins og skólaskyldan var þá og í ungl-
ingaskólanum hluta úr vetri. A næsta
ári fór Tryggvi til Reykjavíkur til að
leita sér atvinnu og var eitt sumar við
fiskverkun á Kirkjusandi, líklega hjá
Islandsfélaginu. Upp frá þessu fór
Tryggvi á fiskiskútur, sem gerðar
voru út frá Reykjavík og var á skút-
um flestar vertíðir næstu þrjú árin
eða svo en um það leyti var skútuút-
gerð í Reykjavík að ljúka. Á næstu
árum var Tryggvi einkum á togurum
hér, og eina vertíð var hann á enskum
togara frá Grimsby. Á vetrarvertíð-
inni 1922 var hann landformaður á
mb. Heru Ak., sem gerð var út frá
Sandgerði. Þegar kallað var til róðrar
15. febrúar þennan vetur var einn sjó-
mannanna forfallaður. Samkvæmt
ráðningarsamningi Tryggva mátti
kalla hann á sjóinn í slíkum tilvikum,
en ekki kom til þess í þetta sinn án
þess að vitað væri um ástæðu til þess.
I þessari sjóferð fórst Hera með allri
áhöfn, 7 mönnum.
Á árunum 1924 og ’25 tók Tryggvi
saltfisk til þurrkunar hjá Kveldúlfi og
Alliance, fyrra árið á fiskireit sem
hann leigði á Kii’kjusandi, en síðara
árið á sjávarkambi í landi Lamba-
staða á Seltjarnarnesi, og systkini
hans unnu hjá honum við þetta, eink-
um síðara árið. Tölu-
vert var upp úr þessu
að hafa og kom það sér
vel fyrir fjölskylduna,
sem þá var að flytja bú-
ferlum af Skaganum til
Reykjavíkur. Ekki gat
orðið framhald á þess-
ari starfsemi.
Þegar hér var komið
sögu, gerðist Tryggvi
starfsmaður hjá tog-
araútgérðinni Sleipni
hf., sem Blöndahlsfeðg-
ar Magnús og Sigfús
veittu forstöðu og gerði
út 2-3 togara. Þeir
komu sér upp útgerðarstöðinni Haga
á Melunum. Tryggvi mun fyrst hafa
verið aðstoðarverkstjóri með Elíasi
Högnasyni (bróður séra Sveinbjarn-
ar), sem var aðalverkstjóri og því
næst varð Tryggvi verkstjóri á neta-
verkstæði sömu aðila, sem var til
húsaíHaga.
Tryggvi hætti störfum hjá Sleipni
árið 1930 og þá um sumarið, alþingis-
hátíðarárið, stjómaði hann skemmti-
báti, sem hafður var á Þingvallavatni
þetta sumar. Um haustið fór hann
norður í land og var til heimilis í Hrís-
ey næstu þrjú árin eða svo og fékkst
þá aðallega við útgerð á litlum þilfar-
sbáti til botnfisk- og síldveiða. Frá
Hrísey fluttist hann svo til Akureyrar
árið 1933 og stundaði þar ýmsa vinnu,
ýmist á landi eða sjó og á stríðsárunum
var hann mikið á stórum skipum, bát-
um eða togurum, sem að mestu voru
gerð út frá Akureyri og sigldu með af-
lann til Bretlands. Þótt margir voveif-
legir atburðir gerðust í siglingum Is-
lendinga á þessum árum, komust skip
Akureyringa jafnan heil í höfn.
Upp úr stríðinu stóð Tryggvi
ásamt nokkrum af félögum sínum,
mest sjómönnum, að kaupum á ein-
um af Svíþjóðarbátunum svo nefndu,
90 smálesta báti, sem skírður var
Auður, og gerðist forstöðumaður út-
gerðarinnar og mun hann hafa haldið
því áfram í einn áratug, en þá var bát-
urinn seldur. Um það leyti sem út-
gerð þessi hófst fóru síldveiðar fyrir
Norðurlandi að hrynja og barðist út-
gerðin á Auði því lengst af í bökkum,
en þó munu allir kröfuhafar fyrirtæk-
isins hafa fengið sitt að lokum. Meðan
Tryggvi var með þessa útgerð, var
hann stundum, einkum á síldveiðum á
sumrin, háseti á Auði, en að öðru leyti
mun hann oft á þessum árum hafa
borið skarðan hlut frá borði.
En þáttur Tryggva Helgasonar í
kaupum og útgerð Auðar voru ekki
einu afskipti hans af útgerðarmálum
á þessum árum, því þegar ríkisstjóm-
in, nýsköpunarstjómin, hafði fmm-
kvæði að kaupum á togumm eftir
stríðið, átti Tryggvi frumkvæði að því
í bæjarstjóm Akureyrar, þar sem
hann var bæjaríúlltrúi, að bærinn
beitti sér fyrir kaupum á einhverjum
af þessum togurum. Mikil andstaða
var við þessa hugmynd, ekki síst frá
ýmsum af helstu ráðamönnum bæj-
arins, en vegna ötullar framgöngu
Tryggva og fleiri bæjarfulltrúa, náð-
ist meirihluti fyrir tillögunni. Síðan
fóm kaupin fram í fyllingu tímans og
vom þrír togarar keyptir þá og sá 4.
síðar. Hlutafélag var stofnað, er hlaut
nafnið Útgerðarfélag Akureyringa
hf. að frumkvæði bæjarstjómar og
með þátttöku bæjarsjóðs og er félag-
ið enn í íúllum rekstri eins og kunn-
ugt er. Síðan hafa flestir Akureyring-
ar talið, að hér hafi verið stigið mikið
heillaspor fyrir bæjarfélagið og íbúa
þess, þar á meðal menn, sem beittu
sér gegn málinu í byrjun. Trj'ggvi var
í upphafi kjörinn í stjórn Útgerðarfé-
lagsins og síðan var hann lengst af
endurkjörinn meðan hann var búsett-
ur áAkureyri.
Snemma á Akureyrarámm sínum
var Tryggvi kosinn formaður Sjó-
mannafélags Eyjafjarðar og síðan sí-
fellt endurkjörinn og gegndi hann
formannsstarfinu alls samfleytt um
fjömtíu ár. Við stofnun félagsins var
ástand kjaramála sjómanna þannig,
að þeir vora eingöngu ráðnir upp á
hlut og varð útkoman þannig þegar
lítið fiskaðist, að sjómenn stóðu uppi
allslausir eftir vertíðina. Þetta var
ástæðan til þess, að Tryggvi beitti sér
strax sem formaður sjómannafélags-
ins fyrir því, að sjómenn fengju
ákveðna lágmarkstryggingu í formi
umsaminna lágmarkslauna. Útgerð-
armenn, a.m.k. sumir þeirra, bmgð-
ust hart við þessu, sem var nýmæli í
slíkum samningum. Þetta var á tím-
um Norðurlandssíldarinnar og ver-
tíðin framundan svo útvegsmenn sáu
þann kost vænstan að semja um
sanngjarna kauptiyggingu eftir fárra
daga vinnustöðvun. Tryggvi var einn-
ig um margra ára skeið í stjórn Sjó-
mannasambands Islands og í samn-
inganefnd þess og félags síns. Sagði
Torfi Hjartarson mér, að þótt
Tryggvi hefði verið fastur fyrir í
samningum, hefði verið gott að vinna
með honum, einkum við að skera á
hnútinn þegar lokin nálguðust.
Tryggvi starfaði einnig lengi í Sósíal-
istaflokknum og Alþýðubandalaginu
áAkureyri.
Á seinni hluta starfsævi sinnar
starfaði Tryggvi mikið, auk framan-
greindra félagsstarfa, í nefndum og
ráðum á vegum hins opinbera, en þó í
tengslum við félagsstörfin, svo sem
byggðanefnd, sem Gísli Guðmun-
dsson, alþingismaður veitti forstöðu,
verðlagsnefnd um fiskverð og síldar-
útvegsnefnd.
Eins og áður greinir átti Tryggvi
Helgason engan kost á skólagöngu að
heitið gæti umfram það sem skóla-
skyldan bauð, en hann nýtti sér eftir
föngum skóla lífsins eftir ýmsumleið-
um, enda minnið sérstaklega traust
og námsgáfur góðar, enda vora nám-
seinkunnir hans í skólanum á Akra-
nesi með því hæsta er þar þekktist.
Tryggvi Helgason var um langt
árabil í sambúð með Sigríði Þor-
steinsdóttur frá Reykjavík eða þar til
hún lést 1982. Tryggvi eignaðist eitt
barn með Valgerði Jónsdóttur, son-
inn Hákon, cand. mag. í sögu,
menntaskólakennara í Reykjavík.
Sigurður M. Helgason.
Utivistarferðir um
bænadaga og páska
FERÐAFÉLAGIÐ Útivist efnir
til fjölmargra ferða um bænadaga
og páska.
Fyrst er að nefna helgarferð í
Bása á Goðalandi við Þórsmörk.
Þetta er skemmtiferð við allra
hæfi þar sem í boði verða styttri
og lengri gönguferðir og kvöld-
vökur.
Á sama tíma er ný skíðaferð á
dagskrá þar sem ekið verður
austur að Fljótsdal, innsta bæ í
Fljótshlíð, og gengið þaðan upp í
efsta skálann í Tindfjöllum og gist
í tvær nætur. Á sunnudeginum
verður gengið á skíðum inn á
Tindfjallajökul m. a. stefnt á
hæstu hnúkana ef færi gefst, Ými
og Ýmu.
Tvær lengri skíðagönguferðir
verða í boði, annars vegar er ný
skíðaferð á Fimmvörðuháls sem
ekki er í prentaðri ferðaáætlun,
en hins vegar skíðaganga suður
Kjöl.
Jeppadeild Útivistar hefur
starfað með frá árinu 1995 og í
ferðaáætlun Útivistar em margar
jeppaferðir í boði. Páskaferð
jeppadeildar er fimm dagar frá
20. -24. apríl og er farið austur og
norður fyrir Hofsjökul.
Dagsferð verður á slórdag 20.
apríl þar sem gengið er á Búrfell í
Grimsnesi og er brottför kl. 10.30.
Búrfellið er tiltölulega auðvelt
uppgöngu og það er mjög gott út-
sýnisfjall.
Á föstudaginn langa 21. apríl er
dagsferð þar sem gengin er forn
þjóðleið, Stapagata úr Vogum, yf-
ir Vogastapa í Innri Njarðvík.
í allar lengri ferðir þarf að bóka
sig tímanlega á skrifstofu Útivist-
ar á Hallveigarstíg 1. Útivistarfé-
lagar greiða lægra fargjald en
aðrir og gildir sá afsláttur einnig
fyrir maka og börn félagsmanna.
Ferðir Útivistar em kynntar á
heimasíðu Útivistar, utivist.is
OPIÐ
YFIR
PÁSKA
Grétar Örvarsson og Bjarni Arason
skemmta á iniðvikudagskvöld
frá kl. 22 og föstudagskvöld
frá kl. 00 til 04.
Léttir sprettir skemmta
laugardagskvöld frá kl. 22 og
sunnudagskvöld frá kl. 24 til 04.
G.R.L. skemmtir á annan
í páskuin frá kl. 22
Aðgangur frá kl 23.00 kr. 600.
Miövikudagur: Opiö frá kl. 12 til 03. Skírdagur: lok.iö. I iistudagurinn
langi: I ok.iö til kl. 24, npiö til 04. I .uigaidagur: Opiö Ir.í kl. 12 lil 03.
Páskadagur: Lokað til kl. 24, opið til kl. 04. Annar í páskum: Opið frá kl 18 til 02,
A U G L V S 1 IM G A R ■■
FUNDIR/ MANIMFAGNAÐUR
Aðalfundur Verndar
Ein glæsilegasta verslunin
Við Laugaveg með kvenfatnað, Gala
tískuhús, til sölu
S Frábærttækifæri og miklir mögul. til aö auka
og/eða tengja saman við margs konar rekst-
ur.
y Viðskiptamannalisti og tímamót framundan.
y 1. fl. og einstakl. vandaðar innréttingar f.
2 versl.
y Auðveld til flutnings.
S Einnig er húsnæðið til sölu.
Hafið samband í síma 566 7273.
Steypumót/vinnupallar
Doka/Plettac
Til sölu ný og notuð steypumót og vinnupallar.
Formaco ehf.,
Gylfaflöt 24-30, sími 577 2050.
Sjúkraþjálfunarstofa
til sölu
Sjúkraþjálfunarstofa í miðborginni er til sölu.
Stofan er í fullum rekstri.
Áhugasamir sendi nafn og símanúmertil aug-
lýsingadeildar Mbl., merkt „Sjúkraþjálfun",
fyrir 26. apríl næstkomandi.
fangahjálpar verður haldinn í Skúlatúni 6
fimmtudaginn 27. apríl nk. kl. 18.00.
Dagskrá samkvæmt félagslögum.
Stjórnin.
Fundarboð
Framhaldsaðalfundur Styrktarfélags íslensku
óperunnar verður haldinn fimmtudaginn
27. apríl nk. kl. 18.00 í íslensku óperunni.
Fundarefni:
1. Lagðar fram tillögur að endurskoðuðum
samþykktumfyrir íslensku óperuna sbr. lög
nr. 33/1999.
2. Lagðar fram tillögur að samþykktum fyrir
Vinafélag íslensku óperunnar.
3. Önnur mál.
Stjórnin.