Morgunblaðið - 19.04.2000, Page 62

Morgunblaðið - 19.04.2000, Page 62
62 MIÐVIKUDAGUR 19. APRÍL 2000 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens Grettir Ljóska Ferdinand Smáfólk i dag hciti ég Kládía. TOMORROW MY NAME U)ILL PE 0PHELIA..A5 MV CHARACTER 6R0WS ANP MY BEAUTV IWCREA5E5, 50 U)ILL MV NAME5 CHAN6E... -y- Mér væri ekki meira sama þó þú hétir Ófelfa 1 THINK MAVBE 50 LUILL MV PE5K! Á morgun verð ég Ófelía. Þegar persóna mfn stækkar og verður fallegri þá breytist nafnið einnig. Ég hugsa að þannig fari einnig fyrir borðinu mfnu. BREF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 A hvaða leið er íþrótta- forystan? Fyrirspurnir til forseta ÍSÍ Frá Jóni Otta Jónssyni: í ALLMÖRG ár hafa boltaíþróttafé- lög og íþróttabandalög ástundað leigu á erlendum íþróttamönnum. Eg hef ekki skilið þörflna á að styrkja þannig liðin í keppni um ís- landsmeistaratitla. Með þessu er íslenskum íþrótta- mönnum ýtt frá keppni og mögu- leikum á að hreppa titlana. Þar að auki er gífurlegum fjármunum sóað. Nú fyrir skemmstu keyrði um þver- bak þegar kvennalið IBV varð Is- landsmeistari í handknattleik. I liði IBV voru fjórar erlendar leigustúlk- ur, þrautþjáifaðar og með mikið út- hald. Þar með var brotið blað í ís- lenskri íþróttasögu, að hálferlent lið hampar íslandsmeistaratitli. Vafa- samur sómi fyrir IBV. Ég spyr forseta ÍSÍ. Er þetta eft- irsóknarverð þróun? Þessi mögu- leiki hefur verið og er enn tjl staðar. Knattspyrnulið Leifturs á Ólafsfirði er að mestu skipað útlendingum. Leiftur hafði möguleika á að ná Is- landsmeistaratitli sl. sumar. Ég vil spyrja forseta ÍSÍ. Finnst íþrótta- forystunni þetta vera heppilegt eða heiðarlegt fyrirkomulag gagnvart innlendu íþróttafólki, sem leggur á sig mikla fyrirhöfn í þjálfun og ástundun og á þetta mest við um boltafólk? Tugum ef ekki hundruð- um milljóna króna er eytt í tilgangs- lausa græðgi í titla. Ég fylgdist með úrslitaleikjum IBV og Gróttu-KR í sjónvarpinu. Þar kom greinilega fram hve er- lendu stúlkurnar í liði ÍBV höfðu mikið úthald og snerpu. Gróttu-KR stúlkurnar töpuðu niður unnum leikjum þar sem þær stóðust ekki úthaldskraft erlendu stúlknanna. Sama útkoma var einnig í viðureign ÍBV og FH í undanúrslitunum. An erlendu stúlknanna hefði ÍBV stein- legið fyrir FH-liðinu. Að vísu var ein erlend stúlka með Gróttu-KR, en það má sín lítils gegn fjórum hjá IBV. í raun hefðu FH og Grótta-KR átt að keppa til úrslita í handknatt- leik kvenna. Hvernig það hefði farið er að sjálfsögðu óráðin gáta! Mér skilst að þetta útlendingadekur boltaíþróttasambandanna þriggja KSÍ, HSÍ og KKÍ sé með löglegum hætti. Ég vil því leggja spurningu fyrir forseta ÍSÍ. Hversu langt skal ganga í þessa átt? Verður þróunin sú að yflrfylla liðin af erlendum málaliðum? Enn ein spurning til for- seta ÍSÍ. Mun stjórn ÍSÍ senda AI- þingi áskorun um að fella framkom- ið frumvarp um að leyfa iðkun hnefaleika? Flutningsmenn nefna þetta ólympíska hnefaleika. Ólymp- ískir hnefaleikar eru eins og villi- mannahnefaleikarnir, nær eingöngu barsmíðar á höfuð mótherjans. Er ekki óþarfi að beina ungu fólki að slíkri iðkun þegar fyrir hendi er fjöldi góðra og fallegra íþrótta- greina eins og t.d. fimleikar - glíma - sund - frjálsíþróttir - skíði - skautar - badminton og borðtennis svo nokkuð sé nefnt. Ömurleg staðreynd er að meðal áróðursmanna fyrir hnefaleikum eru tveir þjóðþekktir menn, þeir Ómar Ragnarsson fréttamaður og Bubbi Morthens tónlistarmaður, sem báðir eru ágætir hæfileikamenn á öðrum sviðum. Það er kannski bor- in von að fara fram á það við þá að hætta þessum stuðningi við hnefa- leikana. A.m.k. er afstaða þeirra í þessu máli þeim ekki til vegsauka. Það yrði skondin uppákoma ef til þess kæmi að þörf yrði á að stofna nýtt íþróttasamband íþróttafélaga til þess að halda Islandsmeistara- mót í boltagreinum fyrir íslendinga! JÓN OTTIJÓNSSON, íþróttaáhugamaður og fyrrver- andi forystumaður í sundstarfi. Sáttur? Frá Guðmundi Erni Jónssyni: KONA NOKKUR í Þýskalandi var með óeðlilega stórt nef. Hún var ósátt við nefið og fór í sjúkratrygg- ingarnar og fór fram á að þær borg- uðu fyrir hana nefaðgerð. Sjúkra- tryggingarnar sendu hana í staðinn í meðferð hjá sálfræðingi þar sem hún átti að læra að sættast við nefið. Skemmst er frá því að segja að hún sættist ekki við nefið og sjúkra- tryggingarnar enduðu á að þurfa að borga bæði fyrir meðferðina hjá sál- fræðingnum og fyrir nefaðgerðina. Ráðherrann okkar, Árni Mathies- en, er í sömu sporum og þýsku sjúkratryggingamar. Hann talar sí- fellt um að sættir verði að nást um stjórnun fiskveiða. Samt hafnar hann öllum hugmyndum um breyt- ingar, því að í rauninni vorkennir hann okkur sem erum honum ekki sammála, og það sem hann á við með sáttum er að við verðum að læra að sættast við gjafakvótann. Fyrir Árna Mathiesen mun fara eins og þýsku sjúkratryggingunum, því við erum að berjast af hugsjón, fyrir sjálft réttlætið, en ekki fyrir auðæfum okkur sjálfum til handa. Sagan kennir okkur að það er mun öflugri hvati en græðgin. GUÐMUNDUR ÖRN JÓNSSON, Laugalind 1, Kópavogi. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teijast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.