Morgunblaðið - 18.05.2000, Side 1
STOFNAÐ 1913
113. TBL. 88. ÁRG.
FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Pútín
vill auk-
in völd
Moskvu. Reuters.
VLADÍMÍR Pútín, forseti Rúss-
lands, lagði til í gær að gerðar yrðu
róttækar breytingar á rússneska
stjórnkerfmu til að styrkja tök hans
á landinu.
Pútín sagði í fyrsta sjónvarps-
ávarpi sínu frá því hann tók formlega
við forsetaembættinu í vikunni sem
leið að hann vildi fá vald til að víkja
héraðsstjórum landsins úr embætti.
Þá lagði hann til að héraðsstjóramir
fengju ekki sjálfkrafa sæti í efri deild
þingsins, sambandsráðinu.
Verði tillögurnar samþykktar
verða þetta mestu breytingar á rúss-
neska stjórnkerfinu frá því að Borís
Jeltsín breytti stjórnarskránni árið
1993 eftir að hafa beitt hervaldi til að
kveða niður uppreisn þingmanna.
Pútín sagði að markmið sitt væri
ekki að minnka völd héraðsstjór-
anna, heldur að efla ríkisvaldið.
„Þetta þýðir að við munum búa í
sameinuðu og öflugu ríki, sameinuðu
Rússlandi."
Nokkrum klukkustundum áður
hafði dúman, neðri deild þingsins,
staðfest tilnefningu Míkhaíls Kasj-
anovs, frjálslynds hagfræðings, í
embætti forsætisráðherra með 325
atkvæðum gegn 55. Þótti atkvæða-
greiðslan til marks um að forsetinn
nyti mikils stuðnings á þinginu.
■ Nýr sigur/26
-----*-*-«----
Hermdarverkum
afstýrt
Bin Laden
sagður á
bak við
samsærið
New London. AP.
BILL Clinton Bandaríkjaforseti
sagði í gær að yfirvöld í Jórdaníu
hefðu hjálpað bandarískum rann-
sóknarmönnum að afstýra hermdar-
verkum hóps hryðjuverkamanna,
sem tengdust Sádi-Arabanum Os-
ama bin Laden og hefðu skipulagt
sprengjuárásir á Bandaríkjamenn
um síðustu áramót.
„í samstarfi við Jórdana í desem-
ber hindruðum við áform um að
koma fyrir öflugum sprengjum á
stöðum þar sem Bandaríkjamenn
kynnu að safnast saman á gamlárs-
dag,“ sagði Clinton. „Við komumst
að því að samsærið tengdist hermd-
arverkamönnum í Afganistan og
samtökum Osama bin Ladens,
mannsins sem ber ábyrgð á
sprengjuárásunum árið 1998 á
sendiráð okkar í Tansaníu og Kenýa,
sem kostuðu Bandaríkjamenn og
hundruð Afríkumanna lífið.“
Forsetinn bætti við að skömmu
eftir að samsærið var afhjúpað hefðu
bandarískir tollverðir fundið
sprengiefni sem reynt hefði verið að
smygla til Bandaríkjanna. „Þetta var
samskonar sprengiefni og bin Laden
notaði á öðrum stöðum.“
/
Oeirðir í
Breskir hermenn fella nokkra skæruliða í Sierra Leone
Kaup-
mannahöfn
LÖGREGLAN í Kaupmannahöfn
beitti táragasi og hundum til að stía
sundur stuðningsmönnum tyrk-
neska knattspyrnuliðsins Galatas-
aray og enska liðsins Arsenal þegar
þeim laust saman fyrir úrslitaleik
UEFA-bikarkeppninnar í gærkvöld.
Tuttugu manns særðust í átökunum,
þar af fimm aivarlega. Um þúsund
Tyrkir og nokkur hundruð Eng-
lendinga höfðu safnast saman á
Ráðhústorginu þegar átökin hófust.
Um 20 manns voru handteknir.
Leiknum lauk með markalausu
jafntefli en Galatasaray hampaði
UEFA-bikarnum eftir að hafa sigr-
að með 4 mörkum gegn einu í víta-
spymukeppni. Þetta er í fyrsta sinn
sem tyrkneskt lið sigrar í Evrópu-
keppni í knattspymu og hundmð
þúsunda manna streymdu út á götur
í Tyrklandi til að fagna sigrinum.
■ Sigurinn/B4
Handtöku skæru-
liðaleiðtogans fagnað
lægt heimili hans í Freetown í gær-
morgun og afhent hann vopnuðum
sveitum sem eru hliðhollar stjórn
landsins. Að sögn sjónarvotta var
Sankoh afklæddur og barinn áður en
hann var færður í herbúðir í borg-
inni. Hann var síðan fluttur með
þyrlu á „öruggan stað“ þar sem hann
var í gæslu breskra hermanna eftir
að þúsundir borgarbúa söfnuðust
saman við herbúðirnar og hótuðu að
drepa skæruliðaleiðtogann. „Þessi
maður er djöfull og á ekki skilið að
lifa,“ sagði einn borgarbúanna.
Liðsmenn uppreisnarhreyfingai-
Sankoh (RUF) hafa verið sakaðir um
að hafa drepið þúsundir manna og af-
limað fjölmarga vamarlausa borgara
í átta ára uppreisn sinni. Sankoh var
dæmdur til dauða fyrir stríðsglæpi
árið 1998 en honum var veitt sakar-
uppgjöf samkvæmt friðarsamningi,
sem var undirritaður fyrir tæpu ári.
Robin Cook, utanríkisráðherra
Bretlands, fagnaði handtöku Sankoh
og kvaðst vona að hún greiddi fyrir
friði. „Uppreisnarmennirnir eru nú
án leiðtogans og það vekur vonir um
að okkur takist að koma á friði og
stöðva sókn þeirra.“
80 friðargæsluliðum sleppt
Embættismenn í grannríkinu Líb-
eríu sögðu hins vegar að handtakan
myndi torvelda tilraunir þeirra til að
fá uppreisnarmennina til að sleppa
friðargæsluliðum sem hafa verið í
haldi þeirra. Yfirmaður friðargæslu-
liðsins sagði þó í gærkvöldi að um 80
friðargæsluliðanna hefðu verið leyst-
ir úr haldi og leyft að fara yfir landa-
mærin til Líberíu. Um 270 friðar-
gæsluliðar eru enn í haldi upp-
reisnarmannanna.
Hermaður á alþjóðaflugvellinum í
Freetown sagði að fjórir uppreisnar-
menn hefðu fallið þegar liðsmenn
RUF réðust á breska hermenn um 16
km austan við flugvöllinn. Talsmaður
Sameinuðu þjóðanna sagði að m'ger-
ískur friðargæsluliði og sex hermenn
í stjórnarher Sierra Leone hefðu
beðið bana í öðrum bardaga við upp-
reisnarmenn norðan við Freetown.
Freetown. Reuters, AFP, AP.
ÞÚSUNDIR íbúa Freetown,
höfuðborgar Vestur-Afríku-
ríkisins Sierra Leone,
streymdu út á götur í gær og
fógnuðu handtöku skæruliða-
leiðtogans Foday Sankoh
sem hefur verið kennt um
óöldina í landinu. Breskir
hermenn börðust í fyrsta
sinn við uppreisnarmenn ná-
lægt alþjóðaflugvellinum í
Freetown og felldu nokkra
þeirra.
Sankoh hafði verið í felum í
Freetown í tíu daga þegar
hann náðist. Ostaðfestar
fregnir herma að fyrrverandi
hermaður hafi náð honum ná-
AP
Reiðir borgarbúar flytja skæruliðaleið-
togann Foday Sankoh til bandamanna
stjórnarhersins í Sierra Leone eftir að
hafa fundið hann nálægt heimili hans í
Freetown.
Atlögu Serbíustjórnar gegn fjölmiðlum mótmælt í Belgrad
Aðgerðunum líkt við
upphaf borgarastríðs
Belgrad, Haag. AP, Reuters, AFP.
STJÓRN Serbíu lét í gær til skarar
skríða gegn serbneskum fjölmiðlum
sem taldir eru vera á bandi stjómar-
andstöðunnar í landinu og skipaði
lögreglusveitum að loka skrifstofum
dagblaðs og ljósvakamiðla sem höfðu
gagnrýnt Slobodan Milosevic Júgó-
slavíuforseta og stjóm hans. Hafa
aðgerðir Milosevics verið fordæmd-
ar harðlega heima fyrir og á alþjóð-
legum vettvangi og sögðu leiðtogar
serbnesku stjórnarandstöðunnar að
með aðgerðunum hefði forsetinn í
raun lýst yfir neyðarástandi í Serbíu.
Líkti Vladan Batic, einn leiðtoga
stjórnarandstöðunnar, aðgerðunum
við upphaf borgarastríðs í landinu.
Fjölmenn mótmæli í Belgrad
Allt að 30.000 stjórnarandstæð-
ingar söfnuðust saman í miðborg
Belgrad í gærkvöld til að mótmæla
aðgerðunum og lokuðu götum að
ráðhúsinu og þinghúsinu. Mótmælin
vom friðsamleg í fyrstu en til átaka
kom milli stjómarandstæðinga og
lögreglumanna á tveimur stöðum ná-
lægt fundarstaðnum. Óeirðalögregl-
an stöðvaði einnig göngu stuðnings-
manna knattspymufélags í borginni
þegar þeir reyndu að fara í miðborg-
ina til að taka þátt í mótmælunum.
í bítið í gærmorgun réðust tugir
lögreglumanna inn í byggingu
Studio B sjónvarpsstöðvarinnar í
hjarta Belgrad og gerðu eignir
stöðvarinnar upptækar. Sama bygg-
ing hýsir óháðu útvarpsstöðvamar
B2-92 og Radio Index ásamt dag-
blaðinu Blic, og fjölmennt lið óein-
kennisklæddra lögreglumanna
meinaði starfsmönnum þeirra að
fara inn í bygginguna. Stjórnin sak-
aði fjölmiðlana um að hvetja til til-
raunar til að steypa henni af stóli.
MORGUNBLAÐK) 18. MAÍ 2000