Morgunblaðið - 18.05.2000, Side 2
2 FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
I
FRÉTTIR
Greiðlega gengur að landa úr skipum af „svarta listanum“
Fá ekki löndun úr
annarri veiðiferð
Morgunblaðið/Kristján
Um leið og Börkur NK lagðist að bryggju í Krossanesi í gærmorgun hófst löndun úr skipinu.
SKIP sem komið hafa af kolmunna-
veiðum hafa öll fengið löndun hjá
þeim verksmiðjum sem verkfall
bræðslumanna nær ekki til. For-
maður Alþýðusambands Austur-
lands segir að ekki sé tekið hart á
löndun skipa sem voru á veiðum
þegar verkfallið skall á en séð verði
til þess að þau geti ekki landað ef
þau haldi aftur til veiða eins og útlit
er fyrir að sum þeirra geri.
Samninganefndir starfsfólks átta
fískimjölsverksmiðja á Norður- og
Austurlandi beindu í fyrradag þeim
tilmælum til annarra verkalýðsfé-
laga sem hafa hafnarverkamenn
innan sinna raða að ekki verði land-
að úr skipum sem landa að jafnaði
hjá þeim fiskimjölsverksmiðjum
sem verkfallið beinist gegn.
28 á „svarta listanum“
Með beiðni samninganefndar Al-
þýðusambands Austurlands er beð-
ið um að ekki verði landað úr eftir-
töldum 28 skipum: Sunnuberg NS,
Börkur NK, Beitir NK, Birtingur
NK, Bergur Vigfus NK, Súlan EA,
Þorsteinn EA, Hólmaborg SU, Jón
Kjartansson SU, Guðrún Þorkels-
dóttir SU, Jóna Eðvalds SF, Húna-
röst SF, Þórshamar GK, Þórður
Jónasson EA., Björg Jónsdóttir ÞH,
Hákon ÞH, Orn KE, Sveinn Bene-
diktsson SU, Ásgrímur Halldórsson
SF, ísleifur VE, Huginn VE, Gull-
berg VE, Bjarni Ólafsson AK,
Grindvíkingur GK, Svanur RE, Sig-
urður Jakobsson ÞH, Guðmundur
Ólafur ÓF og Arnþór E A.
Þrátt fyrir þessa beiðni var í gær
og fyrradag landað úr nokkrum
þessara skipa, landað var úr Beiti í
Vestmannaeyjum, Berki á Akureyri
og Hólmaborg á Fáskrúðsfirði.
Sigurður Ingvarsson, formaður
Alþýðusambands Austurlands,
sagði í gær að félögin á þessum stöð-
um þyrftu ákveðinn tíma til að taka
afstöðu til málsins. Á honum var að
heyra að ekki yrði farið í harðar að-
gerðir til að stöðva landanir skipa
sem voru á kolmunnaveiðum þegar
verkfallið kom til framkvæmda.
„Fari þau hins vegar aftur til veiða
verður komið í veg fyrir löndun úr
þeim hvar sem er,“ sagði Sigurður.
Sagði hann að til væru löglegar leið-
ir til þess enda væri löglega til verk-
fallsins boðað og fyrirtækjunum
óheimilt að koma sér undan þvi.
Taldi hann líklegt að hafnarverka-
menn um land allt mundu aðstoða
verkfallsfólk við að koma í veg fyrir
verkfallsbrot en ef það brygðist
myndu verkfallsverðir fara á stað-
inn til að stöðva löndun. Tók Sigurð-
ur fram að þetta ætti einnig við um
löndun úr þessum skipum í erlend-
um höfnum.
Fyrir lá í gær að einhver af skip-
unum á „svarta listanum" héldu aft-
ur til kolmunnaveiða, þrátt fyrir yf-
irlýsingar samninganefndanna um
að stöðva löndun úr þeim. Þannig
var útlit fyrir að Beitir, Börkur og
Hólmaborgin færu aftur á miðin.
Freysteinn Bjarnason, útgerðar-
stjóri Sfidarvinnslunnar hf. í Nes-
VIÐA var kuldalegt á landinu í
gær, snjókoma á Vestfjörðum og til
fjalla norðanlands, en rigning eða
slydda víða á Austurlandi. Á Vest-
fjörðum var víða alhvít jörð í gær-
morgun og hálka á Holtavörðu-
heiði og Steingr/msfjarðarheiði.
Þá var skafrenningur á Hrafnseyr-
arheiði.
Á Holtavörðuheiði lentu bflstjór-
ar á vörufiutningabflum í vandræð-
um vegna hálku og snjó og sendi
Vegagerðin bfl á staðinn til aðstoð-
ar. Ekki er vitað til að slys hafi
orðið vegna hálkunnar á þessum
heiðum, en alvarlegt slys varð á
kaupstað, sagði ekki ákveðið hvað
gert yrði en vakti athygli á að mögu-
legt væri að láta Beiti veiða lítið
magn til að landa á Norðfirði svo
unnt yrði að halda gangandi til-
raunavinnslu á kolmunna sem þar
er unnið að.
I gær samþykkti Verkalýðsfélag
Fáskrúðsfjarðar að afgreiða ekki
skip sem eru á „svarta listanum". I
ályktun félagsins er vísað til lag-
anna um stéttarfélög og vinnudeilur
þar sem segir að óheimilt sé að
ganga í störf þeirra sem eru í verk-
falli.
Fjarðarheiði seinnipartinn í gær
vegna hálku og krapa á veginum.
I dag er síðan spáð norðan og
norðvestan 10-18 m/s, slyddu eða
snjókomu norðan til og slyddu með
köflum austanlands. Víða er búist
við vægu frosti norðanlands, en
annars staðar 0 til 9 stiga hita og
hlýjast suðaustanlands.
Á föstudag er spáð léttskýjuðu
víðast hvar á landinu, en rigningu
vestanlands um kvöldið. Suðlægar
og hlýrri áttir eiga að ríkja um
helgina með vætu sunnan- og vest-
anlands, en annars verður skýjað
með köflum og yfirleitt þurrt.
Stóra fíkniefnamálið
Aðalmeð-
ferð verði
flýtt
HÆSTIRÉTTUR hefur fellt úr gildí
þá ákvörðun dómara við Héraðsdóm
Reykjavíkur að hefja ekki aðalmeð-
ferð stóra fíkniefnamálsins svo-
nefnda fyrr en í haust, að loknu rétt-
arhléi sem stendur yfír í júlí og
ágúst. Ákæruvaldið kærði ákvörðun
dómarans og hefur Hæstiréttur úr-
skurðað að aðalmeðferð málsins
skuli hefjast fyrir réttarhlé.
Ákæruvaldið kærði ákvörðun
Héraðsdóms Reykjavíkur 12. maí sl.
um að aðalmeðferð málsins skuli
hefjast 11. september nk. kl. 9.15 og
krafðist þess að lagt yrði fyrir hér-
aðsdómara að hefja aðalmeðferð inn-
an hæfilegs tíma, en þó ekki síðar en
15. júní nk.
Hæstiréttur féllst ekki á þá rök-
semd héraðsdómara fyrir frestun-
inni að aðalmeðferð myndi hafa í för
með sér verulega röskun á sumar-
leyfum. Gæti það ekki talist viðhlít-
andi ástæða til að fresta aðalmeðferð
málsins lengur en nauðsyn bæri til.
Hins vegar væri ekki unnt að leggja
mat á hvort héraðsdómara mætti j
véra fært að hefja aðalmeðferð innan
þess tíma, sem sóknaraðili krefðist.
Var því kröfu ákæruvaldsins hafnað
að því leyti.
---------------
Samiðn
semur við
ríkið
SAMIÐN og samninganefnd ríkisins
skrifuðu undir nýjan kjarasamning
vegna félagsmanna sem starfa hjá
ríkinu aðfaranótt sl. þriðjudags.
Gildir samningurinn frá 1. maí 2000
til 31. mars árið 2004.
Að sögn Þorbjörns Guðmundsson-
ar hjá Samiðn var samið um nýtt
launakerfi sem hefur það að mark-
miði að félagsmenn í Samiðn hjá rík-
inu búi við hliðstæð launakjör og
kollegar þeirra á almenna markaðn-
um.
„Samningurinn opnar möguleika á
gerð fyrirtækja- eða stofnanasamn-
inga. Við erum mjög sáttir við þenn-
an samning og teljum að hann muni
geta skapað stofnunum tækifæri til
þess að keppa um vinnuaflið,“ sagði
Þorbjörn.
Á næstu vikum verður hafist
handa við að raða í þetta nýja launa-
kerfi og á þeirri vinnu að vera lokið
innan tveggja mánaða. Þar verður
m.a. tekið mið af umfangi verkefna,
hæfni, menntun, reynslu, góðum
árangri, sjálfstæði og frumkvæði í
starfi. Almennar launahækkanir í
samningnum eru sambærilegar þeim
samningum sem þegar hafa verið
gerðir á almenna vinnumarkaðinum-
Viðræður standa enn yfir á milli
Samiðnar og Reykjavikurborgar og
er fundur boðaður í dag. Einnig
standa vonir til að takast muni að
ljúka virkjanasamningum á næstu
dögum.
Fleiri kærðir í fíknieí namálinu
Akærðir fyrir
pening-aþvætti
EFNAHAGSBROTADEILD ríkis-
lögreglustjóra mun að lokinni rann-
sókn sinni á fjármálahlið stóra fíkni-
efnamálsins svonefnda ákæra fyrir
peningaþvætti á annan tug manna til
viðbótar þeim 19 sakbomingum sem
ákærðir eru af hálfu ríkissaksóknara
fyrir innflutning, sölu og dreifingu
fíkniefnanna.
Peningaþvættið sem ákært er fyrir
varðar við ný peningaþvættisákvæði
almennra hegningarlaga þar sem
brot gegn þeim geta varðað allt að tíu
ára fangelsi. Afrakstur af fíkniefna-
brotunum er talinn nema hundruðum
milljóna króna. Útgáfa ákæranna er
hafin og verða þær birtar sakbom-
ingum á næstu dögum og vikum.
Að sögn Jóns H. Snorrasonar, sak-
sóknara hjá rfldslögreglustjóra, var
peningaþvættisákvæðið sett í hegn-
ingarlög gagngert til að refsa þeim
sem taka þátt í skipulagðri brota-
starfsemi í fíkniefnaviðskiptum.
Vorhret veldur bíl-
stjórum vandræðum
Sérblöð í dag
12 tói/U jí
Viðskiptablað
aösins
Sérbtað um viðskipti/atvinnulíf
Morgunblaðinu
f dag fylgirtíma-
ritið 24-7.
Útgefandi:
Alltafehf.
Ábyrgðarmaður:
Snorri Jónsson.
íprúwr
Draumur „Islendingaliðanna*
úti/Bl
Anna María leggur skóna á hill-
una/Bl
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is