Morgunblaðið - 18.05.2000, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 18.05.2000, Qupperneq 10
10 FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Nýbreytni í fískveiðistjórnun á alaskaufsa Samvinna vinnslu og veiða árangursrík SAMVINNA bandarískra sam- keppnisfyrirtækja í vinnslu og veið- um á alaskaufsa hefur skilað góðum árangri, að sögn Charles Bundrants, forseta Trident Seafoods Corp, stærsta bandaríska sjávarútvegsfyr- irtækisins, sem er 100% í eigu Bandaríkjamanna og sérhæfir sig í veiðum, vinnslu og markaðssetn- ingu. Bundrant ræddi um reynslu bandarískra fyrirtækja af mismun- andi fiskveiðistjórnun og framtíð sjávarútvegs í Alaska á ráðstefnu Amerísk-íslenska verslunarráðsins á Hótel Loftleiðum í gær og sagði að samvinnufyrirkomulagið væri ekki fullkomið en aðalatriðið væri að gæta þess að hagræðingin kæmi öll- um viðkomandi jafnt til góða. Charles „Chuck“ Bundrant stofn- aði fyrirtækið 1973 og byrjaði með eitt skip á krabbaveiðum, en fyrir- tækið á nú meira en 45 skip, þar á meðal fimm verksmiðjuskip og þrjá vinnslutogara. Til að mæta ófyrir- sjáanlegum sveiflum á fiskistofnum og mörkuðum hefur fyrirtækið lagt áherslu á fjölbreytni og veiði, vinnur og dreifir gífurlega miklu magni af sjávarafurðum til veitingahúsa, dreifingarfyrirtækja og heildsala vítt og breitt um Bandaríkin og víð- ar. Fiskurinn er allur veiddur undan ströndum Alaska, Washington og Oregon en fyrirtækið er með sjö fiskvinnslustöðvar í Alaska, fjórar í Washingtonríki, eina í Newport og aðra í Ucluelet í Bresku Kólumbíu í Kanada. Trident byrjaði fljótlega að vinna alaskalax og sfld en vegna mikillar þorsk- og ufsaveiði í Beringshafi var byggð fiskvinnslustöð fyrir botnfisk á Akutan í Aleuta-eyjaklasanum í Alaska 1982. Síðan hefur starfsemin aukist jafnt og þétt en vinnslan er sem fyrr einkum í Alaska. Samvinna í kjölfar nýrra laga 1998 voru fiskveiðistjórnunarlög samþykkt á bandaríska þinginu. Tilgangurinn var að reyna að koma í veg fyrir auka sókn erlendra skipa með því að eyrnamerkja landvinnsl- unni stærri hluta í veiðum á Alaska- ufsa, fækka vinnslutogurum, fjölga hlutfalli Bandaríkjamanna í veiðun- um með það að leiðarljósi að í októ- ber 2001 verði Bandaríkjamenn að eiga og stjórna a.m.k. 75% banda- ríska fiskveiðiflotans og stöðva ótak- markaða sókn í ufsann með þvi að heimila bæði sjóvinnslunni og land- vinnslunni að starfa saman með hag- ræðingu í huga. Fyrrnefnd samvinna varð að veru- leika í kjölfar þessara laga. Fyrir- tækin með vinnsluskipin skiptu með sér kvótanum i lok árs 1998 og hófu samstarf í janúar í fyrra en vinnslu- fyrirtækin gerðu með sér samkomu- lag um vinnsluna og var byrjað að starfa samkvæmt því á þessu ári. Fiskveiðistjórnun í Bandaríkjun- um er svæðisbundin og fer Norður- Kyrrahafsfiskveiðistjómunan-áðið, sem skipað er fulltrúm iðnaðarins, Alaska og ríkisstjómar Bandaríkj- anna, með stjórnunina á botnfisk- veiðum við Alaska samkvæmt lögum frá 1976. Þá var ákveðið að ekki mætti veiða meira en tvær milljónir tonna á ári í Beringshafi og hefur veiðin aldrei farið yfir það mark þótt sérfræðingar hafi síðar talið að veiða mætti tvöfaldan þann afla. Bundrant segir að verndunarsjónarmiðin í byrjun hafi komið iðnaðinum til góða því botnfiskstofnar við Alaska væru áfram sterkir. Ennfremur segir hann að eftirlit ríkisstjórnar Banda- ríkjanna, 100% með 125 feta löngum skipum og stærri og 30% með 60 til 125 feta löngum, frá 1990 hafi haft mikið að segja. Hagræðing fyrir alla Bundrant segir að skipting ufsa- kvótans við Alaska milli rétthafa sé af fúsum og frjálsum vilja hvers og eins. Auðvelt hefði verið að koma íyrirkomulaginu á varðandi vinnslu- skipin en þar hefði kvótanum verið skipt með tilliti til veiða viðkomandi fyrirtækja. Morgunblaðið/Kristinn Charles Bundrant fylgist með á ráðstefnunni í gær en fyrir framan hann er Magnús Gústafsson, forstjóri Coldwater Seafood Corp. í Bandaríkj- unum, sem flutti erindi um framboð og eftirspurn á mörkuðum fyrir sjávarafurðir. Skiptingin varðandi vinnsluna var flóknari en aðalatriðið var að vinnsla og útgerð högnuðust jafnt á hagræð- ingunni. Viðmiðunarárin voru 1995, 1996 og 1997 og áttu sjö fiskvinnslur og um 90 skip rétt á að vera með í samstarfi. Samkvæmt lögunum frá 1998 gat útgerð gert samning við vinnslu og þegar samvinna hafði ver- ið ákveðin var fundið út hvað við- komandi eining átti að fá mikinn kvóta miðað við fyrrnefnd ár. Nær allur flotinn gerði samning við einhverja af hinum sex vinnslu- stöðvum í landi í ársbyrjun og segir Bundrant að fyrirkomulagið hafi heppnast vel. Hægt væri að haga veiðum eftir veðri og styttri veiði- ferðir með áherslu á sókn í stærri ufsa skiluðu meiri gæðum. Hann segir að samvinna vinnslu- skipanna 20 hafi útrýmt samkeppni um fiskinn og hagrætt veiðum og vinnslu með tilliti til stöðunnar hverju sinni. Því hefðu aðeins 14 af 20 skipum með leyfi til veiða stundað veiðamar á liðnu hausti. Framkvæmd vinnslunnar á sjó hefur einnig breyst. Veiðarnar taka lengri tíma en áður og þó kvótinn hafi minnkað hafi veiðitímabilið lengst, fór úr 75 dögum 1998 í 151 dag 1999. Að sögn Bundrants er ákveðin vernd líka fólgin í lengra fiskveiðitímabili. Nýja stjórnunar- kerfið geri vinnsluskipum lika kleift að einbeita sér að framleiðniaukn- ingu en hún hefði aukist um meira en 20% í fyrra. Gæði hefðu einnig aukist og meðafli hefði minnkað, þó hann hefði aldrei verið mikill á ufsa- veiðunum. Meirihluti hlynnt- ur sölu léttra vína í matvörubúðum RÚMLEGA 56% landsmanna eru hlynntir því að leyft verði að selja létt- vín og bjór í öðmm verslunum en sér- stökum vínbúðum, t.d. í matvöra- verslunum, en þó þannig að léttvín og bjór verði aðskilið frá öðmm vömm. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem að Gallup gerði að beiðni ÁTVR til að kanna viðhorf almennings til fyrirtækisins. Tæplega 38% em því mjög andvígir eða frekar andvígir að leyfa sölu léttra vína og bjórs í mat- vöraverslunum. Þegar spurt var hvort að fólk væri því fylgjandi eða andvígt að leyfð yrði sala á sterkum vínum auk hinna létt- ain á sömu forsendum í matvömversl- unum, sögðust tæplega 17% vera því fylgjandi en tæplega 79% em mjög eða frekar andvígir. Aukin ánægja með ÁTVR Könnunin fór fram um mánaða- mótin mars/apríl og í úrtald vora 1096 einstaklingar á aldrinum 20-75 ára af öllu landinu. Nettósvöran var tæp 69%. í könnuninn var m.a. spurt hvort viðkomandi væri ánægður eða óánægður með núverandi fyrirkomu- lag áfengissölu á íslandi. Nálægt 54% era mjög eða frekar ánægðir með fyr- irkomulagið og eru nú fleiri ánægðir en í viðhorfskönnun í nóvember 1996, en þá vora tæplega 49% ánægðir með áfengissölu ATVR. Tæplega 28% voru mjög eða frekar óánægðir. I könnuninni var fólk beðið að taka afstöðu til þess hvaða afleiðingar yrðu af lækkun verðs á léttvíni og bjór. Tæp 27% töldu verðlækkun leiða til almennrar aukinnar neyslu, 30% töldu lækkun ekki hafa mikil áhrif á neysluna, en rúm 43% töldu að verð- lækkun á léttari áfengistegundum myndi leiða til tilfærslu á neyslu frá sterkum vínum yfir í léttvín og bjór. Þá var fólk spurt að því hversu stór hluti heimabragg væri af heildar- neyslu þeirra á áfengi. Tæplega 77% sögðust ekki neyta heimabraggs, en 17,6% sögðu neyslu heimabraggs vera lítinn hluta neyslu sinnar og 3,2% sögðu hana vera um helming. Að sögn 2,4% aðspurðra er heimabrugg stór hluti heildameyslu þeirra á áfengi. Morgunblaðið/Gollj Fjallgöngumennirnir tileinka Flugbjörgunarsveitinni í Reykjavflí McKinley-leiðangurinn. Frá vinstri: Bjarni Garðar Nicolaison, Ásmundur ívarsson, Friðjón Þórleifsson og Haukur Parelius. Magnús Aðalmundsson vantar s á myndina. Islenski McKinley-leiðangurinn hafinn FIMM íslenskir fjallgöngumenn héldu utan í gær til að hefja leiðang- ur sinn á Mount McKinley, hæsta fjall N-Ameríku, 6.194 m. Leiðang- urinn er tileinkaður fímmtíu ára afmæli Flugbjörgunarsveitarinnar í Reykjavík 24. nóvember á þessu ári. Leiðangursmenn eru Ásmundur ívarsson, Friðjón Þórleifsson, Magnús Aðalmundsson og Bjarni Garðar Niccolaison úr Flugbjörg- unarsveitinni í Reykjavík og Hauk- ur Parelius úr Hjálparsveit Skáta í Garðabæ. Framundan hjá fjallgöngumönn- unum er strembin ganga og hæðar- aðlögun í miklum kulda sem fjallið er frægt fyrir. Leiðangursmenn ætla að gefa sér þijár vikur á fjall- inu til að komast á tind þess fyrri- hluta næsta mánaðar. MIÐSTJÓRN Alþýðusambands ís- lands samþykkti í gær ályktun þar sem segir að ef ekki takist að ná tök- um á verðbólgu hér á landi sé mikil hætta á að kjarasamningum verði sagt upp í upphafi næsta árs. í kjara- samningunum sem gerðir hafa verið á síðustu mánuðum er að finna trygg- ingaákvæði þar sem reiknað er með að verðbólga lækki. Akvæðið verður því virkt gangi þetta ekki eftir. „Miðstjóm Alþýðusambands Is- lands varar eindregið við hættunni á mikilli verðbólgu. Samkvæmt nýjustu verðlagsmælingum hefur verðbólga hér á landi síðustu 12 mánuðina verið 5,9% og sex mánaða verðbólguhrað- inn um þessar mundir er 5,3%. Þess- ar tölur era gersamlega úr takti við ástandið í helstu viðskiptalöndum okkar. Þær era einnig úr takti við Miðstjórn ASÍ varar við afleiðingum mikillar verðbólgu Hætta á að kjarasamn- ingum verði sagt upp meginmarkmið og forsendur þeirra kjarasamninga sem gerðir hafa verið á vettvangi ASÍ. Miðstjóm ASÍ minnir stjómvöld á að markmiðið um lækkun verðbólgu er innbyggt inn í tryggingarákvæði nýgerðra kjarasamninga þannig að mikið er í húfi. Miðstjóm telur einsýnt að takist ekki að ná föstum tökum á verðbólgunni á næstu örfá- um mánuðum sé mildl hætta á því að verðbólgumarkmið kjarasamning- anna muni ekki nást og að samning- um verði sagt upp í upphafi næsta árs. Þrátt fyrir miklar væntingar til launahækkana í nýgerðum kjara- samningum, sérstaklega í ljósi mikilla launahækkana á opinbera markaðn- um og mikils launaskriðs, ákváðu fé- lögin innan ASÍ einu sinni enn að horfa til stöðugleika efnahagsh'fsins og taka höndum saman með atvinnu- rekendum um að koma verðbólgunni niður og treysta kaupmátt. Þetta var gert í trausti þess að stjómvöld legðu einnig sitt af mörkum. Nýjustu verðlagsmælingar sýna að mikið vantar upp á að allir aðilar efna- hagslífsins taki þátt í baráttunni gegn verðbólgunni. Það vantar t.d. mikið upp á að verðlag innfluttra vara end- urspegli það háa gengi sem nú er á ís- lensku krónunni og verðbreytingar í innflutningslöndunum. Seðlabankinn hefur hækkað vexti markvisst á síð- ustu mánuðum til þess að hamla gegn verðbólgu. Hækkun á gengi krónunn- ar sem ætti að lækka verð á innflutn- ingi hefur ekki skilað sér sem skyldi til launafólks og neytenda. Miðstjóm ASÍ lýsir eftir markviss- um aðhaldsaðgerðum af hálfu stjórn- valda í stað ómarkvissra aðgerða sem auka þensluna eins og lækkun inn- flutningsgjalda á dýram bílum og lækkunar tekjuskatts á hátekju- hópa.“
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.