Morgunblaðið - 18.05.2000, Síða 15

Morgunblaðið - 18.05.2000, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGIÍR 18. MAÍ 2000 15 AKUREYRI Rúmlega 5 milljóna króna tap af rekstri Hafnasamlags Norðurlands á síðasta ári Mun lakari af- koma en árið áður Morgunblaðið/Kristján Miklar framkvæmdir hafa verið í gangi við vesturkant Fiskihafnarinn- ar. Við Slippkantinn liggur rússneski togarinn Omnya, sem bundinn hefur verið við bryggju á Akureyri í tæp þrjú ár. Ekki hafa fengist greidd hafnagjöld af skipinu undanfarna mánuði og er ekkert vitað um áform eigenda skipsins. TAP varð af rekstri Hafnasamlags Norðurlands, HN, á síðasta ári upp á 5,1 milljón króna, sem er mun lak- ari afkoma en árið áður, þegar starf- semin skilaði 7,6 milljóna króna hagnaði. Þetta kom fram í máli Björns Magnússonar, formanns stjórnar HN, á aðalfundi samlagsins á Akureyri í gær. Heildartekjur HN á síðasta ári námu tæpum 124 milljónum króna og hækkuðu um 3% frá fyrra ári. Rekstrargjöld voru rúmar 73 millj- ónir króna, sem er rúm 21% hækkun milli ára og munar þar mest um auk- in útgjöld til reksturs hafnamann- virkja. Afskriftir voru rúmar 35 milljónir króna og nettó fjármagns- gjöld rúmar 20 milljónir króna. Eins og komið hefur fram varð mikið tjón á austurbakka Fiskihafn- arinnar á síðasta ári, þegar unnið var við dýpkun hafnarinnar. Dælt var undan stálþilinu, sem seig niður á um 60 metra löngum kafla og skemmdi bæði þekjuna og lagnir. I máli Björns kom fram að búið er að semja um bætur upp á tæpar 8 millj- ónir króna vegna þessa óhapps. Einnig urðu skemmdir á bryggju við byggingu Útgerðarfélags Akur- eyringa hf., er efni skolaði undan landvegg bryggjunnar. Var gert við bryggjuna til bráðabirgða. Þá kom upp eldur í einum rafmagnsskúrn- um á Togarabryggjunni þegar raf- búnaður brann yflr. Kostnaður vegna brunans nam rúmlega 1,1 milljón króna og verður bættur af tryggingafélagi HN. A minni dráttarbáti samlagsins skemmdist skrúfubúnaður. Við upp- gjör tjónsins kom í ljós að báturinn var ótryggður allt síðasta ár en tjón- ið nam rúmum 600 þúsund krónum. Á síðasta ári var gerð breyting á deiliskipulaginu í Krossanesi í tengslum við flutning allrar olíu- afgreiðslu þangað. Þá er verið að vinna deiliskipulag af Fiskihafna- svæðinu, frá ÚA og norður að Glerá. Jafnframt hefur verið ákveðið að láta gera forathugun á umhverfís- og öryggismálum HN. Óvissa með rússneska togarann Omnya Á aðalfundinum kom fram að slæm tíðindi væru af rússneska tog- aranum Omnya, sem legið hefur við bryggju á Akureyri frá árinu 1997. Marel Trading sagði sig frá öllum afskiptum af skipinu frá og með 1. desember sl. og hafa engin hafna- gjöld fengist greidd frá þeim tíma og ekkert er vitað um áform eig- enda. Hafnagjöld eru um 150 þús- und krónur á mánuði. Þá kom fram á fundinum að samningar hafa tekist við olíufélögin sem eru með afgreiðslu á Oddeyr- inni um flutning á starfseminni út í Rrossanes. Er það í samræmi við gildandi skipulagshugmyndir, bæði hvað varðar vöruhafnarsvæðið og hafnarsvæðið í Krossanesi. Jafn- framt var um það samið að hin nýja birgðastöð félaganna yrði stækkuð frá því sem nú er og gerð að inn- flutningshöfn. Kostnaðarhlutdeildin vegna þessa samnings skiptist milli Akureyrarbæjar og HN og tekur mið af áætluðum tekjuauka hvors aðila vegna aukinna umsvifa í olíu- ílutningum. Heildarkostnaður við flutninginn er um 120 milljónir króna og er kostnaðarhlutdeild HN 2/3. Einnig kom fram að endurskoðun á þjónustusamningi við Akureyrar- bæ var mikið til umræðu í stjórninni og þegar sýnt var að engum árangri yrði náð, var samningnum sagt upp á miðju síðasta ári. Það sjónarmið hefur ítrekað verði sett fram að HN kaupi þá þjónustu af bænum sem hagkvæmt er. Björn sagði að hvað sem öllum ágreiningi liði væri brýnt að aðilar máls næðu samkomulagi um endurskoðun samningsins, því upphaflega var hann gerður til eins árs árið 1997. Ársfundur Hafnasamlags sveitarfélaga á Akureyri Framkvæmdir við vesturkant Fiskihafnarinnar eru komnar vel á veg, lokið var við dýpkun Fiskihafn- arinnar og fjarlægðir rúmlega 83 þúsund rúmmetrar úr höfninni. Þá er verið að ljúka við að reka niður 120 metra stálþil á vesturkantinum. Rétt til setu á aðalfundi HN eiga fulltrúar í sveitarstjórnum sameig- enda. Atkvæðisréttur sameigenda er Akureyrarbær 5 atkvæði, Grýtu- bakkahreppur, Svalbarðsstrandar- hreppur, Glæsibæjarhreppur og Arnarneshreppur 1 atkvæði hver hreppur. Á aðalfundi HN kom fram að næsti ársfundur Hafnasamlags sveitarfélaga verður haldinn á Ak- ureyri 12.-13. október nk. Aðalmál ársfundarins verður frumvarp til nýrra hafnalaga sem verið er að vinna í nefnd sem samgönguráð- herra skipaði um síðustu áramót. 33 skemmtiferðaskip til Akureyrar í sumar Búist við 19 þúsund farþegum ALLS hafa verið boðaðar komur 33 skemmtiferðaskipa til Akureyrar í sumar og má reikna með að farþegar með þessum skipum verði um 19 þús- und talsins. Mikill fjöldi áhafnar- meðlima er einnig á skipunum og verða þeir um 9.000, sem þýðir að rétt rúmlega tveir farþegar eru á hvern áhafnarmeðlim. Fyrsta skemmtiferðaskipið, Vict- oria, siglir inn á Pollinn við Akureyri mánudaginn 12. júní en það síðasta á árinu er væntanlegt þriðjudaginn 12. september. Tvö af skipunum, Maxim Gorkiy og Albatros, koma þrisvar til Akureyrar í sumar, nokkur skip koma tvisvar og önnur eiga hér að- eins eina viðkomu. Hinn 5. júlí verður þröng á þingi á Pollinum en þá verða þar þrjú skip á sama tíma, Royal Princess, Sapphire og Arkona. Heildarstærð þeirra skemmti- ferðaskipa sem heimsækja Akureyri í sumar er rúmlega 655 brúttótonn, sem er um 40% aukning frá fyrra ári. Stærsta skemmtiferðaskipið sem kemur í sumar er Oriana, en það er tæp 700 þúsund brúttótonn. Stærsti togari sem alla jafna landar á Akm-- eyri er Baldvin Þorsteinsson og er rúm 1.900 tonn, sem þýðir að það þarf 36 slíka togara til að ná stærð Orina. Komum skemmtiferðaskipa hefur fjölgað jafnt og þétt undanfarin ár. Árið 1990 komu 15 skemmtiferðaskip til Akureyrar en nú 10 árum síðar eru þau 33 og er aukningin um 120%. Tiltekthjá KA-mönnum FORS V ARSMENN KA boðuðu til hreinsunardags nú í vikunni á fé- lagssvæði sínu og mætti vaskur hópur leikmanna úr yngri og eldri deildum félagsins ásamt stjórnar- mönnum. Tóku þeir vel til hendinni og hreinsuðu upp allt rusl. SOCO trillur - liprar og léttar - ■■ vogir cru okkor fag - Síðumúla 13, sími 588 2122 www.eltak.is TRILLUR • Léttu þér vinnuna • Gerðu iangar vega- lengdir stuttar og þungar vörur iéttar • Sterk plastgrind og öflug hjól með legum * Operu- galakvöld í Freyvangi ÓPERUDEILD Tónlistarskólans á Akureyri heldur vortónleika í Frey- vangi föstudagskvöldið 19. maí. Tón- leikarnir hefjast kl. 20.30. Að þessu sinni verður þoðið upp á veislu af ein- söngs- og fjölsöngsatriðum úr ýms- um óperum og verða sum þeirra sviðsett. Morgunblaðið/Kristján Aðalsafnaðarfundur Aðalsafnaðarfundur Akureyrarsóknar verður haldinn miðvikudaginn 24. maí nk. í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju og hefst hann kl. 20.00. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Önnur mál. Sóknarnefndin Bókaðu í síma 570 3030 og 460 7000 • n,eJ flttfvaUarsköttam FLUGFELAG ISLANDS Fax 570 3001 • websales@airiceland.is •www.1lugfelag.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.