Morgunblaðið - 18.05.2000, Page 26

Morgunblaðið - 18.05.2000, Page 26
26 FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Forsætisráðherra Japans biðst afsökunar vegna umdeildra orða um helgi þjóðarinnar „Er alltaf að reyna að segja réttu hlutina“ Ttfkýó. AP, AFP. YOSHIRO Mori, forsætisráðherra Japans, baðst í gær afsökunar á fundi efri deildar þingsins á því að hafa sagt Japana vera „heilaga þjóð“ en orða- lagið þykir minna á áróður hernaðarsinnanna sem steyptu landinu út í styrjöld er lyktaði með algerum ósigri 1945. Mori harmaði að orðaval hans hefði valdið misskilningi en vísaði hins veg- ar á bug kröfum stjórnarandstöðunnar um að hann segði af sér. Stórblöð í Japan gagnrýndu ráðherrann hart fyrir ummælin sem féllu er Mori tók þátt í fundi þeirra þingmanna stjórnarflokksins, Frjálslynda lýðræðisflokksins, er styðja shintotrúna sem byggist á forfeðradýrkun og fullvissu um guðleg- an uppruna keisaraættarinnar. „Japan er land Guðs, með keisarann sem þungamiðju," sagði Mori á mánudag. Hann seg- ist nú eingöngu hafa sem forsætisráðherra landsins verið að leggja áherslu á „sjálfsforræði almennings og frelsi í trúmálum" en einnig „ei- lífa þjóðmenningu Japana“. Ihaldsblaðið Yomiuri sagði í forystugrein í gær að ummæli Moris væru „vanhugsuð“ og minnti hann á að hvert orð sem maður í hans stöðu léti út úr sér hefði mikla þýð- ingu. Asahi Shimbun lét í ljós efasemdir um að hann væri hæfur til að gegna embættinu. Búist er við að þingkosningar verði í landinu 25. júní og því meiri hiti í stjórnmálum landsmanna en ella. Shinto var hampað mjög í valdatíð þjóðernis- og hernaðarsinnanna fyrr á öldinni og var þá rík- Reuters Forsætisráðherra Japans, Yoshiro Mori, hneigir sig eftir afsökunarbeiðnina í efri deild þingsins í gær. Hann neitaði á hinn bóg- inn að segja af sér. istrú. Einn af flokkunum í stjórn Moris, Komeito, nýtur stuðnings nýbúddistahreyfingarinnar Soka Gakkai en mjög var þrengt að henni á tím- um þjóðernissinna. „Þetta eru ótrúleg afglöp,“ sagði Junichi Kyogoku, prófessor í stjórnmálafræði við Tókýó- háskóla. „Sumir stjórnmálamenn eru afskaplega heimóttarlegir og skortir mjög alþjóðlega sýn.“ Sjálfur gerði Mori fyrr í vikunni grín að vanda sínum. „Ég er alltaf að reyna að segja réttu hlut- ina. En fólk virðist ekki túlka réttilega það sem ég segi. Ég er farinn að horast út af þessu,“ sagði hann en ráðherranum er vel í skinn komið. Mori er þekktur fyrir að missa út úr sér óheppileg um- mæli. Hann hefur meðal annars líkt alnæmis- sjúklingum við óvelkomna gesti og sagt að eyjan Okinawa væri undir stjórn kommúnista. I grannlöndum Japana var einnig látin í ljós óánægja. „Ummælin sýna að Japan nútímans er í grundvallaratriðum óbreytt frá tímum gamla heimsveldisins," sagði helsta dagblað Suður- Kóreu, Hankyoreh Shinmun. Mori á við fleiri vandamál að etja. Hann hefur höfðað mál gegn mánaðarritinu Uwasa no Shinso, nafnið merkir Sannleikur að baki orð- rómi, sem fullyrðir að hann hafi verið handtekinn árið 1958 er lögregla réðst inn í vændishús. Heimtar ráðherrann 10 milljón jen, um sjö millj- ónir króna, í skaðabætur en ritið segist standa við frásögnina. Kosningar í Zimbawe MDC fer fram álögbann Harare. AP, AFP, Reuters, Daily Telegraph. ÞINGKOSNINGAR í Zimbabwe, sem fram eiga að fara 24.-25. júní nk., eru ólögmætar að mati Hreyfingar fyrir lýðræðislegri breytingu, MDC, stærsta stjómarandstöðuflokks landsins. MDC fór þess á leit við dómstóla í gær að bann yrði lagt við kosningunum þar sem skv. stjórnarskrá Zimbabwe verði kjördæmaskipting að liggja fyrir áður en boðað sé til kosninga. Að sögn David Coltart, lagalegs ráðgjafa MDC, er nú ómögulegt fyrir frambjóðendur stjórnarand- stöðunnar að taka þátt í kosning- unum í júní. Hver frambjóðandi verður að geta sýnt fram á stuðn- ing tíu kjósenda úr sínu kjördæmi. Kjörskrár séu hins vegar úreltar og kjördæmaskipting liggi ekki fyrir, en skila þarf inn umsóknum fyrir 29. maí, þegar sérstakir dóm- stólar úrskurða um kjörgengi frambjóðenda. „Annað hvort hefur ríkisstjórnin mislesið stjórnarskránna eða að hér er um að ræða kaldhæðnislega brellu til að gera stjórnarandstöð- unni jafn erfitt fyrir og mögulegt er,“ sagði Coltart. Sérstök nefnd, sem endurútreiknar kjördæma- skiptingu, skilaði ríkisstjórninni drögum að skýrslu sinni sl. mánu- dag, en að sögn Wilson Sandura hæstaréttardómara er hálfur mán- uður í að endanlegar niðurstöður liggi fyrir. 40 manna eftirlitssveit til Zimbabwe Don McKinnon, framkvæmda- stjóri Breska samveldisins, fund- aði með Robert Mugabe, forseta Zimbabwe, á þriðjudag og sagði hann að þrátt fyrir áhyggjur sam- veldisríkjanna af þeim hótunum sem kjósendur hefðu verið beittir af landtökumönnum undanfarna mánuði, þá teldi hann engu að síð- ur að frjálsar og lýðræðislegar kosningar gætu farið fram í Zimbabwe í júní. Mugabe samþykkti í vikunni að samveldisríkin sendu 40 manna eftirlitssveit til að fylgjast með kosningabaráttunni og sagði McKinnon Mugabe hafa fullvissað sig um að dregið yrði úr ofbeldis- verkum. McKinnon sjálfur hefði látið í ljós áhyggjur af ofbeldis- verkunum sem nú hafa kostað marga úr röðum stuðningsmanna stjórnarandstöðunnar lífið. Einn lést m.a. í gær eftir átök við liðs- menn stjórnarflokks Mugabes, ZANU-PF, á þriðjudaginn, en McKinnon kvaðst engu að síður sannfærður um að Mugabe væri full alvara. MDC er öllu tortryggnara gagn- vart ríkisstjórninni sem flokkurinn telur ábyrga fyrir ofbeldisverkun- um. Mugabe færði sér ótta lands- manna í nyt til að tryggja flokki sínum áfram öruggan þingmeiri- hluta. Að sögn Welshman Ncube, framkvæmdastjóra MDC, mun flokkurinn af þessum sökum ekki standa fyrir fjölmennum kosninga- fundum. Menn óttist nefnilega að útsendarar ZANU-PF skipuleggi árásir á kosningafundi MDC. Hefur öruggl forskot MDC er talinn ein mesta ógn við stjórnarflokk Mugabes á 20 ára stjórnartíð hans m.a. vegna erfiðs efnahagsástands. Forsetakosning- ar fara hins vegar ekki fram í landinu fyrr en 2002 og því er Mugabe öruggur í sæti sínu a.m.k. þangað til. Flokkur hans hefur hins vegar, að sögn breska dagblaðsins Daily Telegraph, nú þegar ákveðið for- skot því forsetinn skipar sjálfur 30 af 150 þingmönnum Zimbabwe, auk þess sem allar sjónvarps- og útvarpsstöðvar landsins séu ríkis- reknar og útvarpi því daglega áróðri stjórnarinnar. AP Don McKinnon, framkvæmdastjóri Breska samveldisins og Robert Mugabe, forseti Zimbabwe á fundi. Friðarferlið í Miðausturlöndum Vonir bundnar við leyniviðræður Stokkhólmi. AFP. SÆNSKIR embættismenn lýstu í gær bjartsýni á að leynilegar við- ræður Palestínumanna og ísraela, sem fram hafa farið í Stokkhólmi, muni leiða til samkomulags um framtíðarskiptingu lands milli þjóð- anna. Forsætisráðherra ísraels, Ehud Barak, rauf einnig þögn ísra- elskra ráðamanna um viðræðurnar í gær og sagði að vonir stæðu til þess að þær leiddu til endanlegs friðar- samkomulags. Mikil leynd hefur hvílt yfir við- ræðunum, sem eiga sér stað jafn- hliða opinberum viðræðum, og hef- ur mjög lítið spurst út um efni þeirra eða árangur. Fjölmiðlar í Israel hafa sagt að fyrsti leynifund- urinn í Stokkhólmi hafi verið hald- inn sl. sunnudag. Hermt er að inn- anríkisráðherra ísraels, Shlomo Ben-Ami, stýri viðræðunum fyrir hönd Israela og að meðal palest- ínsku samningamannanna sé forseti þings Palestínumanna, Ahmed Qor- ei. Fundimir í Stokkhólmi hafa valdið gremju innan hinna opinberu samninganefnda þjóðanna og sagði fyrrverandi aðalsamningamaður Palestínumanna, Abed Rabbo, af sér á mánudag vegna óánægju með að leyniviðræðurnar færu fram. Fulltrúar í hinni opinberu samn- inganefnd ísraela lýstu í gær óánægju með að umboð þeirra væri afar takmarkað miðað við umboð leynilegu samningamannanna. Isra- elskir ráðamenn hafa staðfest að til viðræðnanna hafi verið stofnað eftir að mistókst að ljúka drögum að endanlegu friðarsamkomulagi þjóð- anna 13. maí eins og stefnt hafði verið að. Undirbúa leiðtogafund Innanríkisráðherra ísraels sagði í samtali við The Jerusalem Post í gær að viðræðum ísraela og Palest- ínumanna í Stokkhólmi væri ætlað að undirbúa jarðveginn fyrir leið- togafund þjóðanna í Bandaríkjunum í sumar. „Þetta eru ekki viðræður sem hafa það að markmiði að leiða til endanlegs friðarsamkomulags, heldur er hlutverk þeirra að skapa forsendur fyrir því að halda leið- togafund í Bandaríkjunum," er haft eftir Ben-Ami. Hann sagði að Bill Clinton Bandaríkjaforseti myndi taka þátt í viðræðunum og má búast við því að þar verði reynt til hlítar að jafna ágreining þjóðanna. Tveir Bret- ar komust óstuddir á pólinn TVEIR foringjar úr sjóher Bretlands urðu í gær fyrstu Bretamir til að ganga á norður- pólinn frá Kanada án þess að fá vistir á leiðinni. Þeir neyddust til að skammta sér mjög naumt fæði síðustu viku ferðarinnar sem tók 70 daga. Annar mann- anna, Charlie Paton, féll tvíveg- is í vök, tvo daga í röð, og í ferð- inni kviknaði í tjaldi ferða- langanna. Mennirnir eru þriðji leiðangurinn sem nær að kom- ast á norðurpólinn án aðstoðar og matvælasendinga í ferðinni. Upphaflega voru mennirnir fjórir en tveir þeirra voru sóttir út á ísinn 12. apríl þar sem þeir vora örmagna og kalnir á út- limum. Hart barist í Jaffna TÍGRARNIR, skæruliðahreyf- ing tamílskra aðskilnaðarsinna á Sri Lanka, gerðu í gær sprengjuárásir á flugvöll í Jaffna-héraði á norðurhluta eyjunnar. Jaffna-hérað er ein- angrað landleiðina vegna fram- sóknar skæruliða síðustu vikur. Öflug sprenging varð á aust- urströnd Sri Lanka í gær við Buddah-hof og létust a.m.k. 17 og 63 særðust. Ekki er vitað hverjir stóðu að baki spreng- ingunni en hún er talin tengjast borgarastríðinu í landinu. Mjög harðir bardagar hafa geisað í Jaffna-héraði síðustu viku. Tígrarnir hófu á mánudag harðar árásir á stöðvar hersins í héraðinu og lýstu því um leið yfir að lokaorrustan um héraðið væri hafin. Kosningar kærðar ÍGOR Aremýev, formaður Yabloko flokksins í Pétursborg og frambjóðandi í kosningum um embætti ríkisstjóra borgar- innar, sagði eftir yfirburða sig- ur Vladímírs Jakovlevs, núver- andi ríkisstjóra, að um kosningasvik hefði verið að ræða. Yakovlev fékk 72.7% at- kvæða, en Artemýev einungis 14,7% samkvæmt óstaðfestum úrslitum kosninganna á sunnu- dag. Hótun um kjarnorku- árás gabb TVEIR Rússar hafa verið dæmdir til eins árs fangelsis- vistar eftir að hafa á Netinu gef- ið sig út fyrir að vera sviksamir yfirmenn í kjarnorkuflug- skeytasveitum rússneska hers- ins sem hefðu uppi áætlanir um að þurrka út borgir Evrópu, að því er Itar-Tass fréttastofan greindi frá. I skilaboðum sínum sögðust mennirnir vera yfir- menn við hemaðarlega mikil- væga flugskeytastöð, sem væru nú á ystu nöf vegna erfiðra lífs- skilyrða eftir fall Sovét- ríkjanna. Þeir hefðu því hug á að senda kjarnorkusprengjur á ýmsar borgir Evrópu yrði ekki orðið við kröfum þeirra. Gabbið barst inn á borð bandarísku al- ríkislögreglunnar og lögreglu í Austurríki sem báðu rússnesk yfirvöld að kanna málið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.