Morgunblaðið - 18.05.2000, Page 28
)*?
28 FIMMTUDAGUR 18. MAI 2000
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Búist við stjórnarskiptum f Slóveníu f vikunni
Ovíst um lang’lífí
nýrrar stjórnar
I Slóveníu hefur verið stjórnarkreppa und-
anfarið, sem nú virðist vera að rakna úr,
skrifar Sigrún Davíðsdóttir sem er stödd
þar í tilefni af opinberri heimsókn Davíðs
Oddssonar forsætisráðherra.
YÐ erum búin að helga okk-
ur bæinn, sagði Davíð
Oddsson forsætisráðherra
með glettnissvip er hann
benti samferðamönnum sínum á
skjaldarmerki Portoroz, strandbæj-
arins á Miðjarðarhafsströnd Slóven-
íu. Svo skemmtilega vill til að í
skjaldarmerki bæjarins er „íslenski
fáninn", fáni í íslensku fánalitunum,
nema hvað blái liturinn er ögn ljós-
ari. Að öðru leyti virtist fátt líkt með
íslenskum fiskibæ og Portoroz, ekki
síst með það í huga að í gær skein
Miðjarðarhafssólin glatt á forsætis-
ráðherra og samferðamenn hans
meðan norðangarrinn nísti Reykvík-
inga og aðra landsmenn.
Hinn slóvenski starfsbróðir for-
sætisráðherra, Janez Dmovsek, á þó
ekki jafn auðvelt með að helga sér
stjórnartaumana. Hann sér þessa
dagana fyrir endann á átta ára
stjórnarferli sínum, ekki af því að
hann hafi tapað kosningum, heldur
sökum pólitískra hræringa.
Drnovsek getur hins vegar litið með
nokkru stolti yfir stjórnarferil sinn,
því efnahagur landsins nálgast nú
efnahag Evrópusambandslanda eins
ogprikklands og Portúgals.
í heimabæ hans þar sem hann hélt
upp á afmæli sitt í gækvöldi vantar
þó ekkert upp á vinsældir hans eins
og sjá mátti, þegar á annað þúsund
bæjarbúa hylltu hann á torginu og
vinsælai- poppstjömur sungu honum
til heiðurs. Lesin voru upp heilla-
óskaskeyti frá Clinton Bandaríkja-
forseta, Gerhard Schröder, kanslara
Þýskalands, og fleiram, en Davíð
Oddsson ávarpaði afmælisbarnið á
staðnum við góðan fögnuð áheyr-
enda, enda margir sér meðvitandi
um að Islendingar vora einna fyrstir
til að viðurkenna Slóveníu 1991.
Flokkur forsætisráðherra, Frjáls-
lyndi demókrataflokkurinn, er
stærsti flokkurinn í þinginu. I apríl
1992 myndaði hann miðjustjórn og
eftir kosningar um haustið myndaði
hann stjórn með Kristilega
demókrataflokknum. Eftir kosning-
ar í febrúar 1997 kom Þjóðarflokkur-
inn inn í stjórnina. Undir stjóm
Dmovsek hefur efnahagur landsins
tekið stakkaskiptum, farið frá óða-
verðbólgu niður á evrópskt stig. All-
ur bragur er góður, víða verið að
byggja og gera upp hús, ferðamenn
skila sér og skilyrði útflutningsat-
vinnuveganna góð.
Almennt var landið vel undir það
búið að lýsa yfir sjálfstæði 1991.
Landið er einsleitt hvað íbúa varðar
og þar urðu ekki alvarleg stríðsátök
eins og í öðram fyrrverandi lýðveld-
um Júgóslavíu. Þótt í Slóveníu hafi
aðeins búið 8 prósent af heildaríbúa-
fjölda Júgóslavíu komu 25 prósent
þjóðarframleiðslu þaðan. A þessum
granni hefur síðan áfram verið
byggt. Ibúar era um tvær milljónir,
um þrjú prósent þeirra eru af ítölsk-
um upprana.
Stjórn Drnovseks varð undir í
þinginu er greidd vora atkvæði um
vantraust á stjómina í byrjun apríl.
Þá hafði það gerst að Þjóðarflokkur-
inn hafði sameinast kristilegum
demókrötum og þessir tveir flokkar
ásamt jafnaðarmönnum standa nú í
stjórnarmyndun. Sá sem fenginn
Sue höfð almenningi til sýnis
Hún heitir Sue og er stærsta og heillegasta beina-
grind Tyrannosaurus-risaeðlu sem fundist hefur. Al-
menningi gafst í gær kostur á að líta hana augum á
safni í Chicago-borg í Bandarikjunum. Að sögn yfír-
manna safnsins komu 10.000 manns að sjá Sue á
fyrstu klukkustundunum eftir að sýningin opnaði.
Beinagrindin er talin vera um 65 milljóna ára
gömul og fannst f Suður-Dakóta árið 1990. Talið er
að dýrið hafi vegið um sjö tonn í lifanda lífi og hafi
að hámarki getað gengið á um 10 km hraða. Sue
var rándýr og hefur því lifað á dýrum sem hafa
ekki verið mjög snör í snúningum.
Fimmtudagskvöld
Stórsöngvarinn
Bjarni Arason
skemmtir í kvöld
ásamt Grétari
Örvarssyni
Ó'
.^Á\*
Sjómanna-
dagurinn 4. júní
Ragnar Bjarnason og
Stefán Jökulsson
leika fyrir dansi
Glæsilegur matseðill
Borðapantanir í síma
568 0878
Föstudags- og
laugardagskvöld
Loksins
í Reykjavík...
PKK!
r’ %í ; '■
Norðlensk stemmning
með þessari frábæru
hljómsveit frá Akureyri.
Aðgangur kr. 600.
NJ0TTU LIFANDÍ T0NLISTAR I NYJU UMHVERFI!
Keuters
Davi'ð Oddson forsætisráðherra æfði bogfiini á þriðjudag í opinberri
heimsókn sinni til Slóveníu sem nú stendur yfir.
hefur verið til að fara fyrir þeirri
stjórn er Andrej Bajuz.
Ný stjórn - hugsanlega milli-
bilsástand
Bajuz er enn óreyndur í stjómmál-
um og reyndar að mörgu leyti
óreyndur sem Slóveni. Hann er
reyndar fæddur í Slóveníu 1943, en
tveimur áram síðar fluttu foreldrar
hans til Austurríkis og þaðan til
Argentínu, þar sem hann hefur dval-
ist mestan hluta ævinnar. Hann er
hagfræðingur, hefur unnið sem slík-
ur og kom inn í slóvenskt þjóðlíf sem
ráðgjafi um einkavæðingu bankanna.
Hann mun að öllum líkindum halda
svipaðri efnahagsstefnu og stefna á
aðild að NATO og ESB rétt eins og
fyrirrennari hans, sem hefur búið vel
í haginn fyrir Slóvena á þessu sviði.
Bajuz er af mörgum álitinn nokk-
urs konar málamiðlun milli flokk-
anna, sem taka við og það hefur ekki
verið þrautalaust fyrir hann að kom-
ast í stól forsætisráðherra. Fyrir-
komulagið á myndun nýrrar stjórnar
getur verið flókið ferli í Slóveníu og á
það hefur mjög reynt í þetta skiptið.
Margar kosningar hafa verið í þing-
inu, Bajuz var hafnað þar í tvígang
áður en hann var samþykktur í þriðja
sinn. Búist er við að ráðherralisti
Bajuz verði samþykktur í vikulokin,
en enn er ekki að fullu útséð um til-
urð stjómar hans.
I haust er búist við að kosningar
verði. Margir reikna með því að
stjóm Bajuz muni ekki sitja lengur
en fram að kosningum. Vegur
Drnovsek hefur farið vaxandi í skoð-
anakönnunum og þessi hægláti
stjómmálamaður hefur því ríka
ástæðu til að vera bjartsýnn á að það
komi í hans hlut að mynda stjórn að
loknum kosningum.
Dúman staðfestir skipun Kasjanovs
Nýr sig’ur
fyrir Pútín
Moskvu. AFP.
NEÐRI deild rússneska
þingsins, Dúman, staðfesti í
gær með miklum meirihluta
skipun hins 42 ára gamla
Míkhaíls Kasjanovs í em-
bætti forsætisráðherra.
Hann hlaut 325 atkvæði, 55
voru á móti og 15 sátu hjá.
Umræður um málið voru
stuttar og er niðurstaðan
talin mikill sigur fyrir
Vladímír Pútín forseta.
Kasjanov er fæddur í Moskvu,
hefur starfað í fjármálaráðuneyt-
inu undanfarin sjö ár, varð fjár-
málaráðherra fyrir ári og er hann
talinn markaðshyggjumaður. Hann
hefur sérhæft sig í að semja við er-
lenda lánardrottna um skuldir
Rússa en hefur fremur litla
reynslu af stjórnunarstörfum.
Kasjanov er sagður vera hollur Pú-
tín og ekki líklegur til að reyna að
grafa undan stöðu hans með bak-
tjaldamakki en verði forsetinn að
víkja eða veikist tekur forsætis-
ráðherra við starfi hans samkvæmt
ákvæðum stjórnarskrár.
Pútín hefur undanfarna mánuði
sjálfur gegnt embætti forsætisráð-
herra jafnframt forsetaembættinu.
Hann sór formlega eið sem forseti
7. maí en Kasjanov hefur í reynd
sinnt ráðherrastarfinu fyrir hann.
Nýi forsætisráðherrann fær tvær
vikur til að mynda stjórn og hélt
hann þegar til fundar við Pútín eft-
ir atkvæðagreiðsluna. Heimildar-
menn úr röðum ráðgjafa Pútíns
segja að hann ætli að leggja lín-
urnar í starfi ríkisstjórnarinnar og
Kasjanov muni aðeins fá það hlut-
verk að framfylgja stefnu forset-
ans.
Umbótasinnar vora klofnir í af-
stöðunni til Kasjanovs. Jabloko,
flokkur Grígorís Javlínskís, var á
móti en aðrir umbótasinnar, miðju-
menn og kommúnistar
greiddu nær allir atkvæði
með honum. Sumir af full-
trúum vinstrisinna létu þó í
ljós áhyggjur af þvf að
Kasjanov vissi meira um
gang mála á alþjóðlegum
fjármálamörkuðum en
vandamálin sem hrjáðu
venjulega Rússa. Stjórn-
málaskýrendur segja meðal
annars að Kasjanov sé
jarðbundinn og jafnvel kaldrifjaður
skriffinnur er hafi ekki minnsta
áhuga á hugmyndafræði.
Pútín hefur heitið því að berjast
gegn ofurvaldi nokkurra auðmanna
er ráða í sameiningu yfir flestum-
fjölmiðlum, orkufyrirtækjum og
bönkum Rússlands og auðguðust
flestir með því að misnota pólitíska
aðstöðu sína. Bent hefur verið á að
Kasjanov sé í nánum tengslum við
að minnsta kosti einn þeirra og
skipun hans geti verið merki um að
Pútin sé mjög háður auðkýfingun-
um. Hann muni því eiga erfitt með
að beita sér af hörku gegn þeim.
Áhersla á samstöðu
Kasjanov flutti hálftíma ræðu í
Dúmunni í gær fyrir atkvæða-
greiðsluna og greindi þar frá
stefnu sinni og áformum. Hann
lagði áherslu á að bæta þyrfti efna-
hagsástandið og hvatti alla em-
bættismenn til að sameina kraft-
ana í þeirri baráttu. Hann varaði
fólk einnig við of miklum vænting-
um.
„Ekki einu sinni mjög öflug, hæf
ríkisstjórn getur leyst viðfangsefni
þjóðarinnar án stuðnings alls sam-
félagsins," sagði hann. Síðar sagði
hann að mörg vandamál væri ekki
hægt að leysa ,jafnvel þótt nægir
fjármunir væra fyrir hendi en svo
er ekki“.
Míkhaíl
Kasjanov