Morgunblaðið - 18.05.2000, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 2000 37
LISTIR
Morgunblaðið/Kristinn
Þau leika í Sjálfstæðu fólki. Ragnheiður Guðmundsddttir, Helga Vala Helgadóttir og Páll Sigþór Pálsson.
Barátta Bjarts
í brennidepli
IVOR hafa borist fregnir af
því að breskur leikhópur hafl
sett á fjalirnar nýja breska
leikgerð á Sjálfstæðu fólki og
sýnt hana yfir 30 sinnum við góðar
undirtektir áhorfenda og gagnrýn-
enda. Þessi sýning er nú komin
hingað upp til íslands og verður
sýnd í Möguleikhúsinu við Hlemm
næstu fjögur kvöld, frá fimmtudegi
til sunnudags. Leikarar í sýning-
unni eru sex, þar af þrír íslenskir,
þau Helga Vala Helgadóttir, Páll
Sigþór Pálsson og Ragnheiður
Guðmundsdóttir. Aðrir leikarar í
sýningunni eru Mick Stroebel, Cat-
erine Neal og Geoff Gibbons. Þau
Páll og Ragnheiður stunduðu bæði
nám í leiklist í London, hún út-
skrifaðist frá Arts Educational fyr-
ir tveimur árum og hann frá Guild-
hall School of Music and Drama
fyrir einu ári. Bæði hafa þau starf-
að sem leikarar í London síðan og
segjast ekki vera á heimleið í bráð.
„Eg á enskan kærasta og líkar vel
að búa í Englandi,“ segir Ragn-
heiður. Hún segir að markaðurinn
sé óneitanlega stærri en sam-
keppnin sé líka margfalt meiri. „Ég
hef verið að leika í barnaleiksýn-
ingum og haft vinnu af því. Svo hef
ég verið að leika í auglýsingum og
vinna aðra vinnu inn á milli. Þetta
er líf leikarans í London,“ segir
hún. Páll tekur undir þetta og seg-
ist hafa leikið í nokkrum uppfærsl-
um á undanförnu ári. „Það gengur
hins vegar ekki jafn vel að fá borg-
að fyrir það. Sjálfstætt fólk er
fyrsta verkefnið þar sem maður
fær borgað almennilega fyrir og
getur einbeitt sér að verkefninu.
Þetta hefur verið mjög skemmtileg
vinna,“ segir hann.
Helga Vala Helgadóttir er út-
skrifuð úr Leiklistarskóla íslands
1998 og hefur leikið með Leikfélagi
Akureyrar og Möguleikhúsinu.
Hún fór beinlínis út til Englands til
að taka þátt í sýningunni og segir
það hafa verið mjög skemmtilega
reynslu en óneitanlega hafi hún
þurft að hafa mest fyrir því að leika
á ensku. „Ég var ekki vön því og
þurfti að leggja mig mjög mikið
fram til að ná hinum að því leyti.“
Þau segja að það hafi verið hálf-
gerð tilviljun að þau réðust í þetta
verkefni. „Leikhúsið sem stendur
að sýningunni er gamalgróið
farandleikhús, New Perspectives,
með aðsetur í námubænum Mans-
field í Nottinghamskíri í miðaust-
urhluta Englands. í kynningu leik-
hússins til væntanlegra íslenskra
áhorfenda segir m.a. að „leikfélagið
flytji sýningar sínar í þorpum og
bæjum þessa hluta Englands.
Leikfélagið heimsækir ráðhús,
samkomusali og aðar opinberar
byggingar og leitast við að skapa í
þeim afslappað og yfirlætislaust
samband við áhorfendur svo þeir
verði virkari þátttakendur í sýning-
unni. Miðaustur-England ein-
kennist af námugreftri og landbún-
aði, en báðar þessar greinar hafa
átt undir högg að sækja á seinni
hluta aldarinnar og íbúarnir hafa
ekki átt þess kost að sækja leikhús
til stórborganna. New Perspectives
er styrkt og rekið til að færa þess-
um samfélögum nútímaleikhús sem
höfðar til aðstæðna þeirra en flytur
einnig nýtt og utanaðkomandi and-
rúmsloft á einangruð svæði.“
Þau Helga Vala, Páll og Ragn-
heiður segja það hafa verið mjög
sérstaka reynslu að koma í mörg
þessara þorpa og leika fyrir íbúana.
„Þarna kom fólk með mat með sér
Breski leikhópurinn
New Perspectives með
þrjá íslenska leikara
innanborðs sýnir nýja
leikgerð á Sjálfstæðu
fólki í Möguleikhúsinu
næstu fjögur kvöld.
og efndi til tombólu eftir sýninguna
um hverja matarskál. Síðan borð-
aði fólkið saman og bauð okkur
með sér. Þeim fannst verkið og
sýningin mjög sérstök og talsvert
öðruvísi en annað sem þau höfðu
séð. A öðrum stöðum hefur vel efn-
að millistéttarfólk hreiðrað um sig í
fallegum sveitaþorpum sem hefur
allt annan bakgrunn. Það hafði allt
aðra sýn á verkinu og ræddi sýn-
inguna á öðrum nótum." Þau eru
sammála um að þessi hlið á bresku
samfélagi sé gjörólík því umhverfi
sem þau hafi kynnst í London.
Um ástæður þess að fyrir valinu
varð að gera nýja leikgerð eftir
Sjálfstæðu fólki segir í kynningu
leikhússins: „Gavin Stride, list-
rænn stjórnandi New Perspectives,
vildi finna framandi og spennandi
land þar sem aðstæður myndu
samt skírskota til fólksins heima
fyrir. Eftir að hafa skoðað mögu-
leika á samstarfi við Tansaníu,
Lettland og Katalóníu varð ísland
svo fyrir valinu. Gavin fór fyrst til
Reykjavíkur 1998 og heillaðist af
þorpslegu yfirbragði höfuðborgar-
innar og sterkum tengslum fólksins
við landið sjálft. Honum var bent á
verk Halldórs Laxness og féll kyll-
iflatur. Barátta Bjarts í Sumarhús-
um fyrir sjálfstæði og hvað þess
konar bardagi getur kostað, rollu-
búskapur, kjör fólksins og magnað-
ur söguþráður frábærs rithöfundar
voru ómótstæðileg. Sýningin er af-
rakstur langs ferils. Við höfum ekki
reynt að koma bókinni allri á svið
eða að útskýra íslenska menningu
fyrir Englendingum. Verkið er
samvinna Charles Way, höfundar
leikgerðarinnar og leikstjóra, við
leikara, tónlistarstjóra og útlits-
hönnuði. Við höfum reynt að skapa
samstarfsgrundvöll fyrir nýtt
tungumál og nýjar sögur milli
tveggja þjóða og okkur fannst eðli-
legt að koma með söguna aftur
þangað sem hún á upptök sín.“
Þau Helga Vala, Páll og Ragn-
heiður eru sammála um að það sé
mjög spennandi að koma með sýn-
inguna til Islands. „Það verður
mjög spennandi að vita hvernig ís-
lenskir áhorfendur taka þessari
bresku túlkun á Sjálfstæðu fólki.
Áherslurnar eru aðrar en í sýning-
unum tveimur sem voru í Þjóðleik-
húsinu í fyrra. I fyrsta lagi er þessi
sýning miklu styttri, tveir klukku-
tímar, en hin var sex tímar. Það
hefur auðvitað áhrif á hvað er hægt
að komast yfir mikið af sögunni,"
segir Helga Vala.
„I þessari sýningu er aðaláhersl-
an á baráttu hins fátæka lítilmagna
við yfirvaldið. Þetta er alþjóðlegt
þema sem áhorfendur í Englandi
geta mjög auðveldlega sett sig inn
í. Hins vegar er margt í sögunni
séríslenskt sem er fróðlegt og
framandi fyrir breska áhorfendur.
Þar höfðum við líka stórt forskot á
ensku leikarana og gátum útskýrt
ýmislegt fyrir þeim um íslenskar
aðstæður sem þau þekktu ekki.
Veðrið er einn þáttur og myrkrið
og einangrunin á veturna er annar
þáttur. En sýningin er samt ekki
menningarsöguleg kynning á ís-
landi. Þetta er sjálfstæð leiksýning
unnin upp úr frábærri skáldsögu
sem höfðar til fólks á ýmsan og oft
mjög ólíkan hátt,“ segir Páll.
Sýningunni var mjög vel tekið í
Bretlandi og fékk mjög góða um-
fjöllun í fjölmiðlum. Gagnrýnandi
The Guardian lét svo um mælt að
Independent People væri ein af
fjórum áhugaverðustu sýningunum
á fjölunum í Bretlandi í lok apríl.
Og gagnrýnandi leikhúsblaðsins
The Stage sagði að þetta væri
„raunveruleg leiklist flutt við krefj-
andi aðstæður og sýningin ætti vel-
gengni skilda“.
Sýningarnar fjórar í Möguleik-
húsinu eru jafnframt síðustu sýn-
ingarnar á verkinu og þau þre-
menningarnir segja það verðugan
endapunkt á þessari skemmtilegu
vinnu að ljúka henni hér uppi á Is-
landi. „Það gæti ekki verið betra.“
..líttu á verðið!
Verð nú aðeins
799.000
Nýr bíll á verðl notaðs!
KIA Príde er fullbúinn fólksbíll á verði sem flestir kannast við á notuðum
bílum en ekki glænýjum bílum. KIA Príde erknúinn 1330cc vél sem
skilar 73 hestöflum, 5 gíra og með rafeindastýrðri EGI fjölinn-
sprautun. KIA Príde kemur með eftirfarandi staðalbúnaði
sem sýnir svo ekki verður um villst að hér fæst mikið
fyrir peningana:
Samlitir stuðarar, vökvastýri, snúningshraðamælir, loftpúði
f. ökumann, afturhurð og bensínlok opnanleg innanfrá,
2 höfuðpúðar, bílbeltastrekkjarar,, þurrkutöf,barnalæsingar,
þokuljós að aftan, litað gler, hiti í afturrúðu, geymsluvasar
í framhurðum, útvarp og segulband,4 hátalarar, rafmagns-
loftnet, stafræn klukka, hreyfiltengd þjófavörn, rafmagn
í rúðum að framan, hliðarspeglar stillanlegir innanfrá.