Morgunblaðið - 18.05.2000, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ
W-
m
9
:
P
S
FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 2000 49
UMRÆÐAN
hægt að kalla annað en beina hækk-
un frá smíðaverði. Við bætist svo
kostnaður við heimsiglingu sem
ætla má að sé á annan tug milljóna
króna. En þá kemur rúsínan, sem
tekur öllu öðru fram!
Peim á Hafró er algjörlega óskilj-
anlegt, þrátt fyrir ofangreindar
staðreyndir, hvemig hægt er að
komast að því að skipið sé dýrara en
reiknað var með - sérstaklega þeg-
ar þess er gætt að „frekar mætti
með rökum sýna fram á kostnaðar-
lækkun." Þá kemur til hin snilldar-
lega niðurstaða, að dagsektirnar
(140 milljónir króna) séu fundið fé
og komi auðvitað til lækkunar á
heildarkostnaði skipsins!
Við þennan boðskap hljóta fleiri
en ég að staldra. Er Hafró virkilega
að segja að enginn ávinningur - og
alls ekki fjárhagslegur - sé af því að
koma umræddu rannsóknarskipi í
rekstur sem allra fyrst? Hingað til
hef ég haldið að dagsektir væru
réttlættar með því að bæta hluta
þess skaða sem kaupandi verður
fyrir af því að hann getur ekki nýtt
dýrt tæki á umsömdum tíma. Með
því að skipið á ekki að vera óarð-
bært leikfang heldur fjárfesting
sem byggist á þeirri vissu að rann-
sóknir skili að fullu því sem í þær er
lagt, þá skipti máli að það geti sem
fyrst gert gagn (svo ekki sé talað um
fjármagnskostnað á smíðatíma sem
sífellt lengist).
Nú vaknar maður upp við að þeir
á Hafró virðast ekki horfa svona á
málið. Það er því eðlilegt að draga
þá ályktun að best sé fyrir þjóðina
að fá ekkert hafrannsóknaskip eða
þá hitt, að tafir og dagsektir verði
svo gríðarlegar að þær greiði að
stórum hluta niður smíðakostnað.
Auðvitað er engum ætlaður svona
kjánaskapur. En þegar menn ganga
of langt til að verja veikan málstað
þá geta þeir lent í hafvillum og
steyta loks á skeri raunveruleikans.
Ekki reiknað með
töfum hér á landi
í athugasemdum Hafró er greini-
lega allt gert til að sýna lága kostn-
aðartölu við smíði skipsins í Chile.
Síðan er gerður samanburður ef það
hefði verið smíðað innanlands og fá
þeirþá út 2,0 til 2,1 milljarð króna.
Ekki eru tök á að fara frekar ofan í
þessar staðhæfingar enda forsendur
óljósar.
Það er þó huggun harmi gegn að
Hafró reiknar ekki með að tafir
hefðu orðið á smíði skipsins ef það
hefði verið byggt hér innanlands og
það afhent á umsömdum tíma. Þetta
er vissulega verðug viðurkenning
Hafrannsóknaskip
Getur verið að ekki
sé ávinnur af því spyr
Ingólfur Sverrisson,
að koma hafrannsókna-
skipinu sem fyrst
í rekstur?
fyrir íslenskan skipaiðnað. Gallinn
er hins vegar sá að þá koma ekki til
neinar óvæntar „tekjur“ vegna
dagsekta sem „lækka“ kostnaðinn
við smíðina. Rennur þá ógleði á ein-
hverja.
Óragir íslendingar
Svo virðist sem Islendingar læri
ekkert nema af því einu að reka sig
hastarlega á; fátt er svo fjarstæðu-
kennt að ekki sé rétt að hætta miklu
til og þá helst margir í einu.
Fróðir menn hafa sagt mér, að
norskir útgerðarmenn bíði nú
spenntir eftir að vita hvernig ís-
lenskum starfsfélögum þeirra fjöl-
mörgum sem gert hafa samninga
um smíði nýrra skipa í Kína og víðar
reiðir af. Þeir eru svo heimóttarlegir
að vilja hafa vaðið fyrir neðan sig og
ekki er vitað um neina smíðasamn-
inga Norðmanna við þá kínversku.
Þeir bíða eftir reynslu íslenskra sem
eru hins vegar hugumstórir og taka
áhættu við hæfi. Þeir norsku ræða á
meðan við innlendar skipasmíða-
stöðvar og kanna alla valkosti áður
en alvarlegar ákvarðanir eru tekn-
ar.
Sú mikla glansmynd sem gefin er
af skipasmíðum Kínverja er bæði al-
varleg og brosleg í sama mund. AI-
varleg vegna þess að miklu er hætt
og aðrir valkostir ekki skoðaðir, sbr.
það að ekki er leitað tilboða annars
staðar, brosleg þegar íslenskur eft-
irlitsmaður hjá kínverskum þarf að
sýna þeim myndir úr skipum frá ís-
landi til að útskýra um hvað var
raunverulega samið varðandi frá-
gang íbúða o.þ.h. (sjá Mbl. 10.05.).
Hvernig gengur að fylgja slíku eftir
er svo annað mál.
Vonandi verður ekkert stórslys í
þessum ævintýralegu viðskiptum,
en á það minnt að þeir sem hafa
samið við íslenskar skipasmíða-
stöðvar hafa undantekningarlítið
lýst ánægju með viðskiptin.
Höfundur er deildarstjóri
hjá Samtökum iðnaðarins.
VINTERSPORT
Mikið úrval af
fallegum dömu-
göllum úr góðu
micro efni.vind og
vatnsheldnir.
Fleiri litfr til
Bíldshöfða • 110 Reykjavfk • 510 8020 • www.intersport.is
Eftir langan dag er fátt belra en að slaka
á i heitu lóninu, bor&a góðan mat og njóta
umhverfisins. Morgundagurinn verður betri
ef þú lætur (oér líða vel í dag.
0 pið o I I o daga vikunnar* 420 8800 « lagoon
b I u e I a g o o n . i s « www.bluelogoon.is IC' |f t A N Ö