Morgunblaðið - 18.05.2000, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 2000 51
UMRÆÐAN
Fagleg sjónarmið
ráða ferðinni
Ljósmæðrafélag ís-
lands bauð nýverið til
landsins bandaríska
bama- og nýbura-
lækninum Marsden
Wagner sem til
margra ára var yfir-
maður mæðra- og ung-
bamadeildar Alþjóða-
heilbrigðisstofnunar-
innar. Ummæli hans
um inngrip í fæðingar
hérlendis hafa vakið
viðbrögð íslenskra
fæðingarlækna. Hildur
Harðardóttir fæðing-
arlæknir segir í sam-
tali við Mbl. 10.5. sl.
„að fagleg sjónarmið verði að ráða
ferðinni og ekki megi fórna öryggi
til þess eins að verðandi mæður
geti haft hlutina algerlega eftir sínu
höfði“, þegar hún svarar gagnrýni
hans sem fram kom í Mbl. föstu-
daginn 5.5. Ég get fullvissað Hildi
um að Marsden Wagner og Ljós-
mæðrafélagi íslands gengur ekkert
annað til en að beita faglegum
vinnubrögðum. Einnig er ég sann-
færð um að þær mæður sem vilja
hafa áhrif á sínar fæðingar vilja
ekki leika sér að öryggi, né heldur
ljósmæður sem aðstoða þær. Ör-
yggisumræðan hefur lengi verið
bæði ófagleg og ómarkviss, ekkert
síður hér en víða erlendis og hefur
oft orðið að hræðsluáróðri í stað
upplýsinga um það sem best er vit-
að á hverjum tíma.
Fyrirsögnin á fréttinni gefur í
sjálfu sér tilefni til að ætla að um-
ræðan snúist um öryggi eða óör-
yggi og á þann hátt er villandi
skilaboðum komið á framfæri við al-
menning.
Marsden Wagner skoðaði opin-
berar íslenskar tölur og lagði út frá
þeim. Hann tengdi þessar niður-
stöður við alþjóðlega umræðu um
þróun fæðingarþjón-
ustu í heiminum.
Segja má áð tekist
sé á um tvö líkön sem
lýsa viðhorfum til fæð-
inga og hafa áhrif á
þau þjónustuform sem
við þróum. Annað er
„fæðing er eðlilegur
lífeðlisfræðilegur at-
burður þangað til ann-
að kemur í ljós“ og hitt
er „engin fæðing er
eðlileg fyrr en hún er
afstaðin“. Hið fyrra er
oft tengt við hug-
Elínborg myndafræði ljós-
Jónsdóttir mæðra en hið síðara
við lækna. Það er að
mínu mati einföldun, mér finnst
þetta hafa meira með tímabil og
þróun að gera og eru báðar fag-
stéttir í báðum hópunum.
Undanfama áratugi hefur orðið
gífurleg tækniþróun á öllu sviði
mannlífsins, ekki síst í heilbrigðis-
þjónustu, og hefur fæðingar- og
nýburafræðin ekki farið varhluta af
henni. í dag höfum við því til að
dreifa mikilvægum tæknilegum úr-
ræðum bregðist móðir náttúra.
Tæknin er í sjálfu sér hvorki góð né
vond, það er hvernig hún er notuð
sem skiptir máli. Skylda hvers
fagaðila er að tryggja eins og kost-
ur er að íhlutanir hans séu til hags-
bóta fyrir skjólstæðinginn, a.m.k.
að þær séu ekki til skaða. Það er að
sjálfsögðu alltaf markmiðið en til
em margar leiðir og til að finna þá
bestu verðum við að skoða árangur/
útkomu. Um það snýst umræðan í
heiminum í dag og um það mun hún
snúast um ókomin ár, því við emm í
sífelldri þróun.
Háværar raddir víða um heim
telja að eðlileg fæðing sé í hættu
vegna ríkjandi viðhorfa, þ.e.a.s. of
mikillar tæknihyggju, og hafa töl-
fræðilegar niðurstöður verið notað-
Fæðingar
Ég veit að okkur gengur
öllum gott eitt til, segir
Elínborg Jónsdóttir, en
við sjáum misjafnar
leiðir að markinu
og eðlilegt er að við
ræðum þær.
ar í þeim rökstuðningi. T.d. er tíðni
keisaraskurðar alltaf að hækka,
sumir tala um faraldur, og sam-
kvæmt heimildum hefur hún hækk-
að hérlendis úr 12% í 17,6% frá
1989 til 1999. Margt hefur komið á
óvart sem tilefni er til að ræða, s.s.
að öryggi kvenna í eðlilegri fæðingu
sé ekki meira á sjúkrahúsi en heima
og að útkoma fyrir móður og barn
sé betri ef meðgangan og fæðingin
em í höndum ljósmæðra en lækna.
Ég veit að okkur gengur öllum
gott eitt til en við sjáum misjafnar
leiðir að markinu og eðlilegt er að
við ræðum þær. Umfjöllun um opin-
berar tölur hlýtur að vera eðlilegur
þáttur í þeirri umræðu og leit að
ástæðum fyrir útkomu sjálfsagt
framhald. Ymsar kenningar era á
lofti, margt er rætt og ritað og það
er skylda okkar að skoða viðhorf
okkar og vinnubrögð í sem víðustu
samhengi. Við hljótum að þola það
því þrátt fyrir allt er fjári margt
gott sem við geram.
Hildur segir að ekki sé hægt að
bera saman sjúkrahús þar sem
áhættufæðingar fari fram og fæð-
ingarheimili þar sem útvalinn hópur
með enga áhættu fæði. Mér vitan-
lega hefur það ekki verið borið
saman heldur sambærilegir hópar,
þ.e. konur í eðlilegri fæðingu á mis-
munandi stöðum. Það era niður-
stöður slíkra rannsókna sem liggja
að baki umræðunni.
Það er löngu ljóst að mikilvæ!
sálfélagslegra þátta hefur gróflei
verið vanmetið. Samt höfum við
ekki bragðist við sem skyldi. Um-
ræðan í dag endurspeglar að enn er
áherslan á líkamlega þætti og við
gröfumst bara dýpra niður í gömlu
hjólförin, eram sennilega farin að
spóla.
Marsden Wagner bendir á háa
tíðni inngripa í fæðingar á einu
sjúkrahúsi hérlendis, þar kemur
einnig fram að tíðni gangsetninga
er há. Þarna gæti verið samband,
því gangsetningum íylgir aukin
tíðni inngripa. Því þarf áhættan af
áframhaldandi meðgöngu að verá
meiri en áhættan af gangsetning-
unni til þess að hún sé réttlætanleg.
Gætum við ekki fundið þarna flöt til
að vinna með og reynt að bæta
árangur i stað þess að fara í vöm?
Látum gagnrýnina verða okkur til
góðs, við höfum valið.
Höfundur er Ijósmóílir.
W
C-Wmm
. ▼ Sockcrfri 1*
'\
Apclsin
Sockcrfrt , J/t
JO i btM*rH/*r hrutubtctittf
Apótekin
garde
Stretch gallabuxur
bómullarbu
stuttbuxur
kvartbuxur
Opið daglega
kl. 10-18,
laugardaga
kl. 10-14
tiskuverslun
v/Nesveg, Seltjarnarnesi.
Sími 561 1680 ““
Nýtt kortatímabil
Bandariskir bílar
Eigum ýmsar gerðir Chrysier, Dodge og Jeep bifreiða
nýjar og notaðar.
Chrysler CIRRUS 2,4L LX árg. 2000 kr. 1.890.000,-
Garðatorgi 3, 210 Garðabæ.
Sími: 565-6241, 863 0820, 893 7333 (Lúðvík).
Fax: 588-2670 • Netfang: netsalan@itn.is
Sýningarbíil á Staðnum. Opið: Mánudaga - Föstudaga10-18 • Laugardaga 10-16
Netsalan ehf
STk
MIKIÐ ÚRVAL AF
^ pOlóbolum og
STUTTERMASKYRTUM
I Á1990 KR. STK.