Morgunblaðið - 18.05.2000, Side 58
58 FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Innheimtustjóri
Laus er til umsóknar staða innheimtustjóra EUROPAY íslands.
Innheimtustjóri er deildarstjóri InnheimtudeiLdar, sem heyrir
undir Áhættustjórn. Hann hefur umsjón með og ber ábyrgð á
innheimtustarfsemi félagsins.
Starfssvið:
Stýrir skipulagi innheimtumála og fylgir þeim eftir. Hefur samskipti við
viðskiptavini. Hefur samskipti við lögmannsstofu félagsins vegna innheimtumála.
Annast skýrslugerð um innheimtumál og fleira.
Hæfniskröfur:
Innheimtustjóri þarf að vera sjálfstæður í störfum, talnaglöggur, í senn
einarður og laginn samningamaður og geta tekið viðskiptalegar ákvarðanir
með tilliti til hagsmuna félagsins. Innheimtustjóri þarf að vera vanur tölvum
og kunna skil á flestum þeim forritum sem notuð eru í viðskiptaumhverfinu
í dag og þá sérstaklega Excel og Word. Reynsla í notkun tölva í AS-400
umhverfi er kostur.
Menntunarkröfur:
Gerð er krafa um viðtæka starfsreynslu á sviði innheimtumála og/eða menntun
á háskólastigi.
Umsóknarfrestur er til 26. maí nk. og ber að skila umsóknum til Þorvaldar
Þorsteinssonar forstöðumanns Áhættustjórnar, sem veitir nánarí upplýsingar,
ásamt Finnbirni Agnarssyni innheimtustjóra.
EUROCARD
MasterCard'
ÁRMÚLA 28-30 • 108 REYKJAVÍK
SÍMI: 550 1500 • SÍMBRÉF: 550 1601
NETFANG: europay@europay.is
Fiæðslumiðstöð
Reykjavíkur
Laus störf í grunnskólum Reykjavíkur
skólaárið 2000-2001
Kennarar
Selásskóii, sími 567 2600.
Sérkennari.
Aimenn kennsia á yngra stigi.
Leikskólakennari til að starfa með yngstu
nemendunum.
Leitað er að fólki sem:
/ Á gott með að vinna með öðrum,
/ Hefur skipulagshæfileika,
/ Hefuráhuga á þróunarstarfi.
í Selásskóla eru nemendur í 1.—7. bekk.
Boðið er upp á gott starfsumhverfi og metnað-
arfullt starf.
Upplýsingar gefur skólastjóri.
Umsóknarfrestur er til 7. júní nk.
Umsóknir ber að senda í skólana.
Laun skv. kjarasamningum kennarafélaganna við Launanefnd sveitar-
félaga.
• Fríkirkjuvegi 1 • ÍS-101 Reykjavík, • Sími: (+354) 535 5000
• Fax: (+354) 535 5050 • Netfang: fmr@rvk.is
Friðrik Skúlason ehf.
Vegna aukinna umsvifa leitar Fridrik Skúlason ehf.
ad nýjum starfsmönnum:
1. Tölvunarfræðingur - kerfisfræðingur
Leitað er að tölvunarfræðingi í krefjandi forritun. Krafist er haldgóðrar stærðfræði-
kunnáttu. Umsækjendur skulu hafa góða þekkingu á forritunarmálunum C og
smalamáli (assembler).
Þekking á stýrikerfunum DOS, Unix/Linux og Windows 95/98/NT/2000 er æskileg.
Eingöngu umsækjendur með a.m.k. 2 ára starfsreynslu og útskrifaðir tölvunarfræð-
ingar frá HÍ eða sambærilegu námi koma til greina. Þekking á tölvuveirum er ekki
skilyrði.
2. Forritarar - kerfisfræðingar
Leitað er að forriturum með þekkingu á C, C++, SDK og MFC. Einnig er óskað eftir
forriturum með staðgóða þekkingu á VxD og VDD ásamt stýrikerfisviðbótum (Plug-
Ins/Extentions) fyrir Windows. Kostur er að viðkomandi hafi einnig þekkingu á Java
forritun en ekki skilyrði. Viðkomandi þurfa að geta starfað sjálfstætt að fjölbreyttum
verkefnum innan fyrirtækisins. Þekking á stýrikerfunum DOS, Unix/Linux og Wind-
ows 95/98/NT/2000 er æskileg. Þekking á tölvuveirum er ekki skilyrði. Umsækjendur
skulu hafa a.m.k. 2 ára reynslu af hugbúnaðargerð og vera úrskrifaðir kerfisfræðing-
ar eða hafa sambærilega menntun.
3. Háskólamenntaður einstaklingur
Leitað er að einstaklingi með háskólamenntun, t.d. í bókasafnsfræðum eða sam-
bærilegri menntun, til að taka að sér verkefni er snúa að meðferð gagna, gagnasöfn
og frágangur þeirra innan fyrirtækisins. Viðkomandi þarf að vera skipulagður í
vinnu-brögðum og geta starfað sjálfstætt. Haldgóð tölvuþekking er skilyrði.
í boði er spennandi alþjóðlegt starfsumhverfi, góð vinnuaðstaða, endurmenntun og
þjálfun ásamt hugsanlegum kauprétti. Laun eftir samkomulagi.
Umsóknir skulu berast Friðriki Skúlasyni ehf., pósthólf 7180, 127 Reykjavík, fyrir
26. maí. Nánari upplýsingar veita Grétar Þór Grétarsson eða Eiríkur Þorbjörnsson í
síma 561 7273 eða í tölvupósti: gretarg@complex.is eða eirikur@complex.is.
Heimasíða: www.complex.is
Friðrik Skúlason ehf. (FRISK Software International) er alþjóðlegt öryggis- og þekkingarfyrirtæki á sviði
veiruvarna fyrir tölvur og tölvukerfi. Fyrirtækið framleiðir veiruvarnarforritið Lykla-Pétur (F-PROT), ritvillu-
vörnina PÚKA 2000 og ættfræðiforritið ESPÓLÍN. Fyrirtækinu er skipt í þrjár deildir, skrifstofu, sölu og þjón-
ustu ásamt hugbúnaðardeild. Hugbúnaðardeildin skiptist í veirurannsóknir, forritun og prófun.
Einnig er starfandi ættfræðideild í samstarfi við íslenska erfðagreiningu. Hjá fyrirtækinu starfa yfir 30
manns. Friðrik Skúlason ehf. er í samstarfi við fyrirtæki í mörgum löndum og með viðskiptavini um allan
heim. Erlendir samstarfsaðilar, sem nýta tækni FRISK Software International í sínum kerfislausnum, eru
m.a. F-Secure Corporation, Command Software Systems og perComp Verlag. Yfir 90% af veltunni er vegna
viðskipta á erlendum mörkuðum. Fyrirtækið er í fremstu röð í heiminum á sviði veiruvarnaforrita og hefur
meira en 10 ára reynslu á því sviði.
Tækjamenn
Óskum eftir að ráða tækjastjóra á hjólaskóflu
í malbikunarstöð í Hafnarfirði.
Bílstjórar
Óskum eftir að ráða meiraprófsbílstjóra á
„trailer" og tankbíl.
Nánari upplýsingar gefa Sigurður eða Sigþór
í síma 565 2030.
Maibikunarstöðin Hlaðbær-Colas hf.,
Markhellu 1, Hafnarfirði,
sími 565 2030.
Blaðbera vantar í
Ármúla, Síðumúla og Skeifuna
^ Upplýsingar í síma 5691122
Morgunblaðið leggur áherslu á að færa lesendum sínum vandaðar og áreiðanlegar
fréttir og upplýsingar. Morgunblaðið er eina dagblaðið á íslandi sem er í
upplagseftirliti og eru seld að rneðaltali rúmlega 54.000 eintök á dag.
Höfuðstöðvar Morgunblaðsins eru i Kringlunni 1 í Reykjavík þar sem eru yfir
300 starfsmenn. Á Akureyri er starfrækt skrifstofa i Kaupvangsstræti 1.
Morgunblaðið kom fyrst út 2. nóvember 1913.
Árvakur hf. er útgefandi Morgunblaðsins.
Organisti
Laust er til umsóknar starf organista við Odda-
kirkju. Oddi erfornfrægur sögustaður á Rang-
árvöllum. Oddaprestakall nær yfir Rangárvelli
neðanverða, Hellu, auk nokkura bæja í Ása-
og Djúpárhreppi. Sóknarbörn eru um 800 tals-
ins. í kirkjunni er 10 radda týpu orgel, smíðað
1991 af Björgvini Tómassyni.
Upplýsingar um starfið veita sr. Sigurður Jóns-
son, sóknarprestur, í síma 487 5135 og Grétar
Hrafn Harðarsson, formaður sóknanefndar,
í síma 487 5241. Skriflegar umsóknir, með
upplýsingum um menntun og starfsferil,
óskast sendarfyrir 1. júní nk. til formanns
sóknarnefndar, Þrúðvangi 8, 850 Hellu.