Morgunblaðið - 18.05.2000, Side 68
i8 FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ÍDAG
SKAK
llmsjón llelgi Áss
OréUirssnn
im
Hvítur á leik.
MEÐFYLGJANDI staða
kora upp á milli alþjóðlega
meistarans og undrabarns-
ins Lukes McShane, hvítt,
(2438) og Roys Phillips
(2257) í lokahelgi deilda-
keppninnar bresku. 26. Df3!
Hf6 Aðrir leikir hefðu litlu
bjargað þar sem eftir t.d.
26... Hxdl+ 27. Hxdl De8
vinnur hvítur með 28. Hxd7
og 26... Rxf6 gengur heldur
ekki upp sökum 27. Bxe5 27.
Hxd7! Hxf3 28. Hxd8 Hxd8
29. gxf3 cxb4 30. axb4 Hc8
31. Bxe5 og svartur gafst
upp.
Frá aðalfundi Hringsins.
Blómlegt starf
Hringsins
AÐALFUNDUR Hringsins var hald-
inn 12. apríl sl. að veitingastaðnum
Englar og fólk á Kjalamesi.
Starf félagsins var blómlegt á
liðnu starfsári. Auk hefðbundinnar
fjáröflunar bámst áheit og gjafir
frá ýmsum aðilum m.a.: Styrkur úr
jólagjafasjóði Guðmundar And-
réssonar gullsmiðs 700.000 kr.,
' fetyrkur frá Borgarráði 200.000 kr.,
dánarbúi hjónanna Óskars Söebeck
og frú 2.585.342 kr., frá Magneu
Svanhildi Magnúsdóttur til minn-
ingar um foreldra sína og systkini
l. 000.000 kr. og Menningarsjóði
Sjóvár-Almennra trygginga hf.
250.000 kr. vegna óskráðrar sögu
kvenna í Reylgavík á þessari öld.
Auk þess bámst ýmsar gjafír að
upphæð tæpar tvær milljónir króna.
Félagið veitti ýmsa styrki á árinu,
m. a. til sjúkra bama auk tækjagjafa
, til Barnaspítala Hringsins.
Stjóm félagsins fyrir næsta
starfsár er þannig skipað: Borghild-
ur Fenger, formaður, Áslaug B.
Viggósdóttir, varaformaður, Ragn-
heiður Sigurðardóttir, ritari, Gréta
Siguijónsdóttir, gjaldkeri og Lauf-
ey Gunnarsdóttir, meðstjómandi. I
varastjórn sitja: Anna L. Tryggva-
dóttir, Ingibjörg Jónasdóttir, Kol-
brún Jónsdóttir og Sjöfh Hjálmars-
dóttir.
Síðar á þessu ári verður gefin út
saga Hringsins í 95 ár sem Björg
Einarsdóttir hefur skráð en félagið
var stofnað árið 1904.
Fyrirhugað er að opna heimasíðu
fyrir Hringinn í september nk. en
það verður nánar auglýst þegar
nær dregur.
Hringurinn þakkar landsmönn-
um fyrir þann velvilja sem þeir hafa
sýnt starfsemi félagsins, segir í
fréttatilkynningu frá stjórninni.
Morgunblaðið/Þorkell
Ný stjórn Islandsdeildar
Amnesty Internatio
Á AÐALFUNDI íslandsdeildar
Amnesty International 29. apríl sl.
var Huld Magnúsdóttir, kynningar-
og gæðastjóri, kjörin formaður
deildarinnar.
Aðrir sem kjörnir voru í stjórn-
ina eru: Einar Símonarson, lög-
fræðingur, Egill Helgason, blaða-
maður, Hafdís Ingadóttir, BA í
mannfræði, Kristín J. Kristjáns-
i dóttir, viðskiptafræðingur, Krist-
rún M. Heiðberg, blaðamaður, og
Viðar Lúðvíksson, héraðsdómslög-
maður. Framkvæmdastjóri deildar-
innar er Jóhanna K. Eyjólfsdóttir.
Á aðalfundinum var samþykkt
áætlun fyrir deildina. Áætlun Is-
landsdeildarinnar er byggð á heild-
aráætlun Amnesty International,
sem samþykkt var á heimsþingi
samtakanna í Troia í Portúgal á
síðasta ári.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Þeir sýndu
manndóm
á Alþingi
KJARTAN J. Jóhannson
læknir sat á Alþingi á ár-
unum 1953-1963, ef ég
man rétt. Eitt af þeim mál-
um sem hann kom í gegn-
um þingið var bann við
boxi eða hnefaleikum eins
og það var stundum kallað.
Sem lækni var Kjartani
það vitanlega fullljóst hvað
þau höfuðhögg, sem fylgja
þessum ljóta leik, geta
verið hættuleg. Mér er nú
ekki Ijóst hvað þeim aum-
ingja alþingismönnum,
sem raun ber vitni, hefur
komið til að lögleiða þessi
slagsmál á nýjan leik. Hins
vegar fmnst mér það þó
ánægjulegt, að á Alþingi
okkar Islendinga skuli þó
vera meirihluti, þó naumur
sé, fyrir því að banna þessi
ólæti. Mér finnst, þrátt
fyrir allt, afgreiðsla þessa
máls sýna það svart á
hvítu, að ekki er unnt að
lauma hvaða ósóma sem er
gegnum okkar háa Al-
þingi. Guði sé lof fyrir það.
Hér er þó ljósglæta í
myrkrinu.
Guttormur Björnsson.
Skattgreiðsla
forseta Islands
ÞORLEIFUR hafði sam-
band við Velvakanda og
var með smá fyrirspurn
varðandi skattgreiðslu for-
seta íslands. Þar sem sam-
þykkt hefur verið að hann
skuli greiða skatt eins og
aðrir landsmenn, má hann
þá ekki hafa meiri afskipti
af landsmálum, eins og
aðrir skattborgarar?
Bflar á nagla-
dekkjum í borginni
MÉR finnst alveg hræði-
legt að sjá alla þessa bíla í
borginni aka enn um á
nagladekkjum. Borgaryf-
irvöld virðast ekkert gera í
málinu. Þetta er algjör
sóðaskapur. Ég labbaði
niður Laugaveginn laug-
ardaginn 13. maí sl. og það
var um það bil þriðji hver
bíll á nagladekkjum. Er
ekki ástæða til þess að
borgaryfirvöld fari að gera
eitthvað í málinu?
Hörður.
Tapað/fundid
GSM týndist
GSM-sími, Nokia 3210,
tapaðist fyrir framan Bón-
us í Faxafeni mánudaginn
15. maí sl. Síminn var í
svörtu leðurhulstri. Eig-
andinn, 13 ára drengur,
var búinn að safna fyrir
símanum í allan vetur og
er hann mjög miður sín yf-
ir tapinu. Upplýsingar í
síma 555-3494.
Gullarmband
tapaðist
GULLARMBAND tapað-
ist, sennilega fyrir utan
verslunina Nóatún við
Hamraborg eða í strætis-
vagni númer 61, þriðju-
daginn 16. maí sl. Skilvís
finnandi vinsamlegast hafí
samband í síma 554-6992
eftir kl. 16.30.
Strákahjól tapaðist
SCOTT Team 250 24 blátt
strákahjól tapaðist frá
Háaleitisbraut sunnudags-
kvöldið 14. maí sl. Upplýs-
ingar í síma 581-2552.
Lyklakippa og rauð-
hærð dúkka fundust
LYKLAKIPPA með sex
lyklum fannst í Karfavogi í
síðustu viku. Einnig fannst
rauðhærð, bláeygð fegurð-
ardúkka með trefil, einnig
í Karfavogi, laugardaginn
13. maí sl. Upplýsingar í
síma 553-6781.
Dýrahald
Kettlinga vantar
nýtt heimili
FJÓRA kassavana kettl-
inga vantar nýtt heimili.
Upplýsingar 564-2697 eða
869-4035.
GALLABUXNA
TILBOÐ
Víkverji skrifar...
- Stseröir 31M-44M
verð áður 2.826-, nú aðeins 1.995-
Grandagarði 2, Rvik, simi 580-8500. Opið virka daga 8-18 og laugard. 10-14
Fréttir á Netinu
ijþ mbl.is
OÐRU hverju kemur fyrir að Vík-
verji hefur alvarlegar áhyggjur
af framtíð íslenskrar tungu. Ekki
getur Víkverji státað af því að vera
neinn afburða íslenskumaður sjálfur,
en hann reynir þó að vanda sig.
Fyrr í vetur vakti Víkverji athygli
á því þegar blað birti kynningu á efni
næsta blaðs og talaði um að tiltekin
leikkona myndi „létta á sér“. Þarna
var augljóst að blaðamaðurinn kunni
ekki að nota þetta orðatiltæki og hélt
að það þýddi það sama og að segja
frá. Vera kann einnig að blaðamað-
urinn hafi ætlað að nota orðatiltækið
„að létta á hjarta sínu“. Heyra mátti
enn verra dæmi í fréttatíma sjón-
vai'psstöðvar fyrir skömmu, en þar
sagði fréttakona frá blaðamanna-
fundi sem nokkrir prestar í Reykja-
vík stóðu að þar sem lögð var áhersla
á að kirkjustarf væri líflegt og öflugt
í landinu. Fréttakonan ákvað að for-
vitnast um það hvort hver sem er
gæti farið inn í kirkju og tekið þátt í
því starfi sem þar færi fram. Síðan
sást hún ganga að kirkju, opna hana
og skoða sig um. Þessu lýsti frétta-
konan með þessum orðum: „Eins og
sjá má er kirkjan opin og hér getur
hver sem er komið inn og gert þarfir
sínar.“ Sem betur fer var enginn
sýndur gera þarfir sínar í kirkjunni,
enda má fullyrða að slíkt sé næsta fá-
títt.
XXX
UM síðustu helgi gerðu Verzlun-
armannafélag Reykjavíkur og
Landssamband íslenzkra verzlunar-
manna kjarasamning við Samtök at-
vinnulífsins. Samningurinn nær til
um 25.000 launþega og er síðasti
stóri kjarasamningurinn sem gerður
er í þessari lotu. Það verður ekki
annað sagt þegar á heildina er litið
en tekist hafi vel til við gerð kjara-
samninga á þessu vori. Flestum
samningum hefur verið siglt í höfn
án verulegra átaka. Samningarnir
fela í sér að stefnt er áfram að hæg-
um en öruggum kaupmætti. Reynsl-
an af síðustu samningum hefur fært
mönnum heim sanninn um að slík
leið er farsælust fyrir alla. Kaup-
máttur jókst þá um á annan tug
prósenta á tiltölulega skömmum
tíma. Það eina sem getur komið í veg
fyrir að nýgerðir samningar skili
sama árangri er að verðbólga verði
meiri en verið hefur síðustu ár. Því
miður virðist margt benda til að
ástæða sé til að óttast að svo verði.
XXX
RÚTUSLYSIÐ í Hvalfirði um
helgina sýnir mönnum enn og
aftur hversu vegurinn um Hvalfjörð
er hættulegur, bæði vegna gerðar
vegarins og vegna veðurs. Um helg-
ina náði vindhviða að velta rútu með
yfir 40 mönnum innanborðs á hliðina.
Sem betur fer slasaðist enginn alvar-
lega. Slys vegna hálku eða veðurs
hafa verið tíð í Hvalfirði, en eftir að
göngin voru opnuð gefst vegfarend-
um kostur á að sleppa við að aka fyr-
ir fjörðinn. Enginn vafi leikur á að
öryggi vegfarenda jókst mikið þegar
Hvalfjarðargöng voru tekin í notkun.
Talsvert hefur verið rætt um
slysahættu í göngunum sjálfum og
hafa eigendur ganganna lagt sig
fram um að draga úr henni. T.d. er
fyrirhugað að setja upp öryggis-
myndavélar í göngunum. Það væri
hins vegar fróðlegt ef gerð væri
rannsókn á því hversu mikið dregið
hefur úr slysatíðni í Hvalfirði eftir að
göngin voru tekin í notkun. Víkverja
kæmi ekki á óvart þó í ljós kæmi að
slysatíðni hefði minnkað verulega á
síðustu tveimur árum.