Morgunblaðið - 18.05.2000, Side 69
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 2000 69
I DAG
BRIDS
Umsjón (luömnntlur
l'áll Arnai'Min
SU VAR tíðin að Acol-spil-
arar vöktu á laufi með 5-5 í
svörtu litunum og var þá
hugmyndin sú að tvímelda
spaðann á eftir til að sýna
skiptinguna. Þessi aðferða-
fræði er orðin úrelt enda
fráleitt að það þurfi að
taka þrjá sagnhringi að
segja makker frá fimmlit í
spaða. En hér er spil frá
1970, sem kom upp í
keppni í London. Þar opn-
uðu allir á einu laufi í suð-
ur:
Suður gefur; NS á
hættu.
Norður
* 105
v G
* KG9832
* KD32
Vestur Austur
♦32 *K864
»109876542 vÁK
♦864 *ÁD10
* 10987
+-
Vestur
3 hjörtu
Suður
AÁDG97
vD3
♦ 5
4.ÁG654
Norður Austur
4 lauf
5 lauf
4 hjörtu
Dobl
Suður
1 lauf
4 spaðar
Allir pass
Þetta var algeng niður-
staða sagna og yfirleitt
kom vestur út með hjarta
og austur skipti síðan yfir í
tromp í öðrum slag.
Hvernig er nú best að
spila?
Augljóslega þarf að gera
spaðann góðan (með svín-
ingu og einni trompun),
auk þess sem trompa þarf
hjartadrottninguna. Yfir-
leitt tóku menn á laufkóng
J öðrum slag og svínuðu
spaðatiu. Svínuðu svo aftur
í spaða, tóku spaðaás og
sáu leguna. Nú verður að
trompa spaða og spila svo
tígli úr borði. En austur á
einfalt svar við'því: Hann
trompar bara aftur út.
Þann slag verður að drepa
í borði, síðan þarf að
trompa tígul og trompa
hjarta. En nú er sagnhafi
staddur í borði og hefur
ekki ráð á að trompa ann-
an tígul. Tapað spil.
Martin Hoffman var
meðal þátttakenda og
hann var sá eini sem vann
fimm lauf. Hann spilaði
einnig spaðatíu úr borði í
þriðja slag, en yfirdrap
með gosa! Þá innkomu
notaði hann til að trompa
hjartadrottninguna. Síðan
svínaði hann aftur í spaða,
tók ásinn og trompaði
spaðann frían. Lagði svo
niður hátt lauf í borði og
spilaði tígli. Nú hafði hann
fullt vald á trompinu og
gat lagt upp.
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar
um afmæli, brúð-
kaup, ættarmót og
fleira lesendum sín-
um að kostnaðar-
lausu. Tilkynningar
þurfa að berast með
tveggja daga fyrir-
vara virka daga og
Þriggja daga fyrir-
vara fyrir sunnu-
dagsblað. Samþykki
afmælisbarns þarf að
fylgja afmælistil-
kynningum og/eða
nafn ábyrgðarmanns
og símanúmer. Fólk
getur hringt í síma
569-1100, sent í
bréfsíma 569-1329,
eða sent á netfangið
ritstj @mbl.is.
Einnig er hægt að
skrifa :
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
Arnað heilla
Í7A ÁRA afmæli. 30. nóv-
I V/ ember sl. varð sjötug
Rósa Þorsteinsdóttir, Iða-
völlum 6, Grindavík. Eigin-
maður hennar er Kristján
Finnbogason. I tilefni þess
bjóða þau ættingjum og vin-
um til fagnaðar kl. 20 föstu-
daginn 19. maí í Veitinga-
húsinu Jenný við Bláa lónið.
ÁRA afmæli. í dag,
I v/ fimmtudaginn 18.
maí, verður sjötugur Sig-
urður Hjartarson, bakara-
meistari og kaupmaður,
Álfaskeiði 96, Hafnarfirði.
Eiginkona hans er Bára
Jónsdóttir. Þau eru stödd
erlendis á afmælisdaginn.
A A ÁRA afmæli. í dag,
Uv fimmtudaginn 18.
maí, verður sextug Álfheið-
ur Bjarnadóttir, Funafold
67, Reykjavfk. Eiginmaður
hennar, Sævar Guðmunds-
son, rennismiður, verður
sextugur 9. ágúst nk. Hjónin
eru erlendis.
7 A ÁRA afmæli. í dag,
O \/ fimmtudaginn 18.
maí, verður fimmtugur
Björn Gústafsson, verk-
fræðingur, Klapparbergi
25, Reykjavík. Eiginkona
hans er Herborg ívarsdótt-
ir, hjúkrunarfræðingur.
Þau taka á móti gestum í sal
Múrarameistarafélagsins í
Skipholti 70, í dag milli kl.
20-22.
Raddirframtíóar
Stundum þegar maður þarf að gefa frá sér
hljóð lengi þá fær maður bara tár í augun.
BJarkl Páll, Kvarnarborg.
LJOÐABROT
VIÐ VALAGILSA
Hefur þú verið hjá Valagilsá
um vordag í sólheitri blíðu?
Kolmórauð, freyðandi þeytist hún þá
og þokar fram stórbjörgum gilinu frá,
sem kastast í ólgandi straumfalli stríðu.
Orgar í boðum, en urgar í grjóti,
engu er stætt í því drynjandi róti.
Áin, sem stundum er ekki í hné,
er orðin að skaðræðisfljóti.
Hefur þú gengið að gilinu þá
til gamans, á meðan þú bíður?
Því fyrst eftir miðnætti minnkar á,
og meðan er skemmtun gljúfrið að sjá,
hve grenjandi hrönnin við hrikaberg sýður.
Hanga þar skuggar á hroðaklettum,
hengdir draugar með svipum grettum.
Standberg við standberg þar hreykjast upp há
með hamrasvip, fettum og brettum.
Kom þú í gilið, en haf eigi hátt,
þeir í hömrunum þola það eigi.
Verði þér hlátur, þá heyrir þú brátt
þeir hljóða svo dimman úr hverri átt.
Þeir vilja, að allt nema áin þegi.
Þeir eru einvaldir í þvi gili,
ótal búa í svörtu þili,
gnísta tönnum við barinn botn
og byltast í grænum hyli.
Hannes Hafstein.
STJÖRNUSPA
eftir Franees Drake
*
NAUT
Afmælisbarn dagsins:
Pú ert varfærinn en vel
meinandi og því traustur og
góður vinur vina þinna.
Hrútur
(21.mars-19. apríl) "4*
Þú ert að brjótast í þeim mál-
um sem þér finnast þér of-
vaxin. En vertu þolinmóður
því sannleikurinn stendur
nær þér en þú heldur.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Hvar sem þú kemur rekurðu
þig á vegg þegar þú berð upp
spurningar þínar. Breyttu
um aðferð og vertu ögn þolin-
móðari í framsetningu. Þá
færðu svör.
Tvíburar
(21.maí-20.júní) M
Nú er ekkert sem heitir að þú
verður að taka til á skrifborð-
inu þínu og klára öll þau verk
sem þú hefur tekið að þér.
Annars fer allt úr böndunum.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þótt mörg verkefni hafi hlað-
ist upp hjá þér er engin
ástæða til að örvænta. Þú hef-
ur alla burði til að leysa þau
auðveldlega og tafarlaust.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Lærðu á reglurnar í samfé-
laginu og vittu að þær eru
ekki settar þér til höfuðs
heldur til þess að vernda fólk
gegn þeim sem ekki kunna að
virða rétt annarra.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Eitthvert sambandsleysi
veldur því að þú ert ekki í
þeim sporum sem þú vildir
helst standa. Þessu geturðu
samt auðveldlega breytt ef þú
bara vilt.
Vo£ XDk’
(23. sept. - 22. okt.) A 4*
Það er góð regla að skrifa nið-
ur verkefnalistann þegar
margt er á döfinni. Síðan er
að ganga skipulega til verks
og klára hvern hlutinn á fæt-
ur öðrum.
Sþorðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Það er ósköp notalegt að
finna það að aðrir geta glaðst
yfir velgengni manns. Sýndu
því öðrum það sama og taktu
þátt í þeirra hamingju.
Bogmaður # ^
(22. nóv. - 21. des.) Aky
Eitt og annað nýstárlegt mun
reka á fjörur þínar. Kannaðu
þessa hluti og dragðu síðan af
þeim lærdóm sem þú getur
nýtt þér til framtíðarinnar.
Steingeit
(22. des. -19. janúar) 4wH
Vertu bara þú sjálfur heldur
en að vera að apa eitthvað eft-
ir öðrum. Vertu ánægður
með þinn hlut þvi grasið er
ekkert grænna handan girð-
ingarinnar.
Vatnsberi
(20. jan. -18. febr.)
Varastu að láta hugmynda-
flugið hlaupa með þig í gönur.
Reyndu að koma skikki á
hiutina og skila því starfi sem
þér er ætlað.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars) W>
Það er margt að gerast í
kringum þig og þú mátt hafa
þig allan við að straumurinn
hrífi þig ekki með sér. Vertu
staðfastur og þá fer allt vel
hjá þér.
Stjömuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
gmnni vísindaiegra staðreynda.
Gerið góð kaup í
GUESIBÆ!
Fjöldi ólíkra verslana undir sama þaki
$
Graco
Glæsilegar kerrur í
mörgum útfærslum!
Úrvalið er
hjá okkur!
eJUo\jXa cý vÍXmæa,
S ( M I 553 3366
Opið á laugardögum frá kl. 11.00 til 16.00,
www.oo.is
Dior
Viltu líta vel út í sumar?
Þá er Body Light svarið.
Nýtt og endurbætt krem fyrir appelsínuhúð
frá Christian Dior. Kremið inniheldur Cola
jurtina sem kemur í veg fyrir fitumyndun.
Komið og fáið faglega ráðgjöf í versluninni.
Sígurborg Þórsdóttir Snyrti- og förðunar-
fræðingur verður í versluninni á rnorgun
föstudag og laugardag og veitir faglega
ráðgjöf.
SNVRTÍVÖRUVEPSLUNIN
(,l I SIIM SÍMI 568 5170
n feiði imenn!
| Þiö fáið altt í stangaveiðina hjá okkur |
Veiðihjól • Línur • Veiðistangir • Vöðlur • Vesti • Flugur • Spúna
Hnýtingarsett• Veiðihatta og margt, margtfleira.
Sendum í póstkröfu samdægurs.
UTILIF
Glæsibæ • Sími 545 1500 • www.utilif.is
B E T R I L I Ð A N
OPIÐ
alla virka daga 9:00-19:00
Lau 10:00-14:00
fT Opið í Lyf & heilsu, Ausfurveri allan sólarhringinn og Lyf & heilsu, Domus Medica alla virka daga 9:00-22:00
C?Lyf&heilsa J GLÆSIBÆ
UilÆSIBÆR
-með úrvalið íbænum!
Álfheimum 74