Morgunblaðið - 06.06.2000, Side 1
STOFNAÐ 1913
128. TBL. 88. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Ávarp Bill Clintons, forseta Bandarrkjanna, í rússnesku dúmunni
Framvindan í Rússlandi
ræður miklu um 21. öldina
Vel var tekið á móti Bill Clinton við komuna til Úkraínu í gær. Hér er
hann ásamt Natalíu Vojnarovsku, ungri, úkraínskri námskonu, á Torgi
heilags Mikjáls í Kænugarði en þar komu tugþúsundir manna saman til
að fagna forseta Bandaríkjanna.
Frakkland
Kjörtímabil
forseta
verði stytt
París. AFP.
JACQUES Chirac, forseti Frakk-
lands, lýsti í gær stuðningi sínum við
hugmyndir um að breyta stjórnar-
skránni og stytta kjörtímabil forseta
úr sjö árum í fimm. Kvaðst hann
mundu styðja frumvarp Lionels
Jospins forsætisráðherra þess efnis
á þingi en ráðgert er að bera það
undir þjóðaratkvæði í septemberlok.
Skoðanakannanir sýna, að tveir
þriðju franskra kjósenda eru hlynnt-
ir þessari breytingu en Chirac var til
skamms tíma andvígur henni.
Stjórnmálaskýrendur segja, að hon-
um hafi snúist hugur er hann áttaði
sig á, að Jospin, sem er líklegur and-
stæðingur hans í forsetakosningun-
um 2002, ætlaði að gera breytinguna
að sínu helsta kosningamáli.
Stuðningsmenn breytingartillög-
unnar segja, að hún muni binda enda
á það ástand, að forsetinn og ríkis-
stjómin séu fulltrúar andstæðra
stjómmálaafla en andstæðingar
hennar segja, að forsetinn geti orðið
allt of valdamikill eigi hann ávallt
skoðanabræður í ríkisstjórninni.
----------------------
Morð í Krist-
jánssandi
Ósló. Morgunblaðið.
LÖGREGLAN í Kristjánssandi í
Noregi var kölluð út í gær vegna
dráps á tveimur manneskjum, í ann-
að sinn á tveimur vikum.
Að þessu sinni var um að ræða
mann og konu, sem fundust látin af
skotsáram í bílastæðishúsi við fram-
haldsskóla í borginni. Bendir flest til,
að maðurinn hafi skotið konuna og
síðan sjálfan sig með veiðiriffli, sem
fannst á staðnum. Var maðurinn
kennari við skólann og konan fyrr-
verandi unnusta hans.
Fyrir tveimur vikum varð norska
þjóðin öll fyrir miklu áfalli er í ljós
kom, að tvær stúlkur, átta og tíu ára,
höfðu verið myrtar i Kristjánssandi
en leit að morðingja þeima hefur enn
engan árangur borið. I síðustu viku
var síðan sex ára gamall drengur
myrtur á eynni Smola.
■ Banadi/32
-----------------
Manntjón í
jarðskjálftum
Jakarta. AP.
AÐ minnsta kosti 58 manns létust og
meira en 500 slösuðust í tveimur öfl-
ugum jarðskjálftum, sem urðu á
eynni Súmötru í Indónesíu í fyrrinótt.
Óttast er, að tala látinna sé miklu
hærri enda hafa samgöngur og
fjarskipti farið úr skorðum og litlar
fréttir era enn af ástandinu í mörgum
byggðarlögum. Fyrri skjálftinn var
7,9 á Richter-kvarða og sá síðari 6.
Skjálftamir ollu miklum skemmdum,
t.d. í borginni Bengkulu þar sem
mörg hús hrandu. Varð sjúkrahús
borgarinnar svo illa úti, að ekki var
talið óhætt að nota það og var því
reynt að hlynna að sjúklingunum og
slösuðu fólki á bílastæðinu.
■ Stýrir/2 og 31.
Tsjernobyl-kjarn-
orkuverinu í Ukr-
aínu verður lokað
15. desember
Moskvu. Reuters, AP.
BILL Clinton Bandaríkjaforseti
hélt í stutta heimsókn til Ukraínu í
gær og af því tilefni var tilkynnt að
kjarnorkuverinu í Tsjernobyl yrði
lokað um miðjan desember.
Aður en Clinton fór til Ukraínu
ávarpaði hann dúmuna, neðri deild
rússneska þingsins, fyrstur banda-
rískra forseta, eftir að hafa rætt við
Vladímír Pútín Rússlandsforseta.
Forsetinn sagði í ávarpinu að
einkaframtakið væri farið að
blómstra í Rússlandi og gróska
væri í efnahagnum sem væri þó enn
of háður útflutningi hráefna og
þyrfti á meiri fjárfestingum að
halda.
Clinton hvatti til þess að Rúss-
land fengi aðild að Heimsviðskipta-
stofnuninni (WTO) og sagði að deila
Rússa og Bandaríkjamanna um eld-
flaugavarnir snerist aðallega um
tæknileg ágreiningsefni. Hann
kvaðst vongóður um að hægt yrði
að leysa hana.
Mikilvægi Rússlands
„Framtíð Rússlands er mjög
mikilvæg fyrir aðrar þjóðir,“ sagði
Clinton. „21. öldin mun að miklu
leyti ráðast af því hvort rússnesku
þjóðinni tekst að byggja upp nú-
tímalegt, öflugt og lýðræðislegt
land sem verður hluti af lífi annarra
ríkja heims.“
Forsetinn ræddi einnig málfrelsi,
varði loftárásir Atlantshafsbanda-
lagsins á Kosovo og sagði að gagn-
rýni sín á hemaðaraðgerðir Rússa í
Tsjetsjníu byggðist einkum á
ÁFRÝJUNARRÉTTUR í Santiago,
höfuðborg Chile, tilkynnti í gær,
að Augusto Pinochet, fyrrverandi
einræðisherra í landinu, hefði ver-
ið sviptur friðhelgi. Rétturinn
komst raunar að þessari niður-
stöðu 23. maí sl. og var þá skýrt frá
henni en það var fyrst í gær, að
hún var gerð opinber. Greiðir hún
áhyggjum af mannfalli meðal
óbreyttra borgara.
Ávarpið tók 45 mínútur og því
var sjónvarpað beint út um allt
Rússland. Flestir þingmannanna
klöppuðu kurteislega en ljóst var að
margir þeirra voru lítt hrifnir af
fyrir málsókn gegn Pinochet fyrir
mannréttindabrot en lögfræðingar
hans ætla að áfrýja úrskurðinum
til hæstaréttar landsins. Nokkur
hdpur andstæðinga Pinochets
fagnaði úrskurðinum í gær, þar á
meðal þessar konur, sem misstu
einhveija ástvini sína í valdatíð
Pinochets.
ávarpinu. Þjóðernissinninn Vladím-
ír Zhírínovskí reis upp þegar Clint-
on gekk af ræðupallinum og hróp-
aði á ensku: „Ekki skipta þér af
innanríkismálum okkar! Áfléttu
refsiaðgerðunum gegn írak!“
Nokkrir af hófsamari þingmönn-
Basel. AFP.
URBAN Backström, forseti Ai-
þjóðagreiðslujöfnunarbankans,
BIS, sagði í gær á fundi með 49
seðlabankastjórum, að ástæða væri
til að hafa áhyggjur af skyndilegri
gengislækkun á verðbréfamarkaði.
Backström, seðlabankastjóri í
Svíþjóð, sagði á ársfundi BIS, sem
er eins konar seðlabanki seðlabank-
anna, að þótt vel áraði í heims-
búskapnum, væri ástæða til að hafa
áhyggjur af tvennu: of háu hluta-
bréfaverði og hallanum á greiðslu-
jöfnuði Bandaríkjanna. Varaði hann
fyrirtæki og fjölskyldur við að taka
lán til að kaupa hlutabréf eins og
verðið væri nú og sagði, að „mjúk
lending“ í þessum efnum væri eng-
an veginn örugg. Unnt væri þó að
greiða fyrir henni með réttum
ákvörðunum í peninga- og fjármál-
um dúmunnar gagnrýndu Clinton
fyrir að gera ekki greinarmun á
árásum NATO á Júgóslavíu í fyrra
og hernaðaraðgerðum Rússa í
Tsjetsjníu. „Þetta sýnir að hann
skilur ekki ástandið í landi okkar,“
sagði Borís Gryzlov, leiðtogi Ein-
ingar, sem styður Pútín. Hann
áréttaði þá afstöðu rússneskra
stjórnvalda að hernaðaraðgerðirnar
í Tsjetsjníu væru innanríkismál
Rússa en loftárásir NATO hefðu
gengið í berhögg við þjóðarétt.
Tsjernobyl lokað
Clinton heimsótti Borís Jeltsín,
forvera Pútíns í forsetaembættinu,
áður en hann hélt í sex klukku-
stunda heimsókn til Ukraínu, síð-
asta viðkomustaðarins í Evrópuferð
forsetans. Heimsóknin náði há-
marki þegar hann ávarpaði tugþús-
undir manna á torgi í Kiev og hvatti
Ukraínumenn til að auka tengsl sín
við Evrópusambandið og NATO.
Leoníd Kútsjma, forseti Ukraínu,
tilkynnti í tilefni af heimsókninni að
kjarnorkuverinu í Tsjernobyl yrði
lokað fyrir fullt og allt 15. desember
næstkomandi. Clinton sagði að
Bandaríkjastjórn myndi leggja til
78 milljónir dala, andvirði sex millj-
arða króna, til að koma í veg fyrir
geislavirkni í kjarnorkuverinu og
tvær milljónir dala, andvirði 150
milljóna króna, til að auka öryggi
annarra kjarnorkuvera í Úkraínu.
Pútín, sem nú er í opinberri
heimsókn á Italíu, skoraði í gær á
Evrópusambandið og NATO að
taka höndum saman við Rússa og
koma upp sameiginlegu eldflauga-
varnakerfi. Er litið á yfirlýsinguna
sem viðbrögð við þeim áætlunum
Bandaríkjamanna að koma slíku
kerfi upp hjá sér.
■ Náðu ekki samkomulagi/32
um. Þá spáði hann því, að vextir
yrðu hækkaðir í ýmsum ríkjum.
Andrew Crockett, framkvæmda-
stjóri BIS, varaði einnig við „harðri
lendingu" vegna allt of hás verðs á
hlutabréfum og sagði, að hallinn á
greiðslujöfnuði Bandaríkjanna gæti
ekki gengið til lengdar. í skýrslu
BIS segir, að mikil óvissa sé um
það hvort efnahagslífið í heiminum
standi nú frammi fyrir löngu vaxt-
arskeiði eða hvort veruleg hætta sé
á samdrætti.
MORGUNBLAÐIÐ 6. JÚNÍ 2000
Pinochet sviptur friðhelgi
Fundur Alþjóðagreiðsluj öfnunarbankans
Ahyggjur af
„harðri lendingu“