Morgunblaðið - 06.06.2000, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 06.06.2000, Blaðsíða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Tvö þtísund kíló- metra skíðaganga Reykjanesbæ boðið til viðræðna um svokallað nikkelsvæði Byggingasvæðið gæti rúmað 430 íbúðir UTANRÍKISRÁÐUNEYTIÐ hefur sent bæjaryfir\'öldum í Reykjanes- bæ erindi þar sem þeim er boðið svokallað nikkelsvæði til leigu til 99 ára með framleigurétti til annarra 99 ára en varnarliðið á Keflavíkurflug- velli hafði áður viðbúnað á þessum landskika. Fjallað verður um bréfíð á fundi bæjarstjórnar í dag, en Skúli Þ. Skúlason, forseti bæjarstjómar, á von á því að samþykkt verði að ganga til viðræðna við ráðuneytið. Á sínum tíma hafði bandaríska vamarliðið olíubirgðastöð á svæðinu, þarna era fimm olíutankar og tvær gamlar spennustöðvar en svæðið er afmarkað með ryðgaðri hermanna- girðingu. Segir Skúli að svæðið sé mikil lýti á umhverfinu. „Við höfum verið að kappkosta að fá svæðið hreinsað til þess að geta farið að nýta það til uppbyggingar.“ Hluti af svæðinu er að vísu ónýt- anlegur vegna nálægðar við flugvöll- inn en Skúli segir að miðað við það nýtingarhlutfall sem menn hafi reiknað út megi gera ráð fyrir íbúð- arbyggð á 22,3 hekturam lands og ætla mætti að þar rúmuðust 430 íbúðir og húsagötur. Auk þess gætu níu hektarar farið undir iðnaðarlóðir og um 2 hektarar undir opinberar byggingar. Allt í allt séu því nýtan- legir u.þ.b. 35 hektarar eða um 48,6% af heildarstærð svæðisins, sem er 69 hektarar. Þó að þétting byggðar sé mikilvæg íyrir bæjaryfirvöld segir Skúli höf- uðatriðið að hreinsa þá sjónmengun og þá mengun í jörðu sem fyrir er á svæðinu. Ekki verði byrjað að byggja fyrr en menn séu sáttir við hreinsun svæðisins. NORÐMENNIRNIR Rune Gjeld- nes og Torry Larsen luku á laugar- dag tæplega tvö þúsund kílómetra langri skíðagöngu yfir Norðurpól- inn. Þeir era fyrstu mennirnir, sem ganga án aðstoðar frá Síberíu yfir Norðurpólinn og áfram til Kanada. Þeir komu til Kanada skömmu fyrir hádegi á laugardag eftir að hafa verið 109 daga á leiðinni og gekk á ýmsu á lokasprettinum. Þeir höfðu klárað allan mat og síðustu metrana vora þeir einnig vatnslausir. „Við voram að í 24 tíma og 200 metram áður en við komum í mark varð fyrir okkur risastór vök, sem tafði okkur í nokkra tíma,“ sagði Larsen í samtali, sem birtist á heimasíðu tv2 í Noregi. Gjeldnes og Larsen vora sótth- á flugvél til Cape Discovery í Kanada. Flogið var með mennina til Resolute í Kanada. Áður en stigið var upp í vélina var borðuð kaka á ísnum og drukkið kampavín. Ekki hleypt í áætlunarflug án þess að fara í sturtu „Síðan förum við í sturtu, við fáum ekki leyfi til að fara í áætlunarflug fyrr en við höfum farið í sturtu,“ sagði Larsen hlæjandi. „Þá getum við flogið til Ottawa." Gjeldnes og Larsen, sem lögðu af Larsen og Gjeldnes voru ánægð- ir þegar þeir komust í mark eft- ir 109 daga á skíðum í allt að 40 stiga frosti. stað frá Svarnaja Semlja 16. febrúar og þurftu að brjótast áfram í allt að 40 stiga frosti, vora ekki aðeins búnir með nestið er takmarkið nálgaðist. Sími þeirra var að verða rafmagns- laus þegar þeir hringdu á föstudag til að boða komu sína til Kanada á laugardeginum. Vélin, sem átti að sækja þá, hafði aðeins verið leigð til föstudags og um tíma leit út fyrir að þeir þyrftu að bíða matarlausir eftir að verða sóttir fram á sunnudag. A síðustu stundu tókst að tryggja að þeir yrðu sóttir á laugardag. Kári Stefánsson ein af „stjörnum Evrópu“ Almannavarnaæfíngin Samvörður 2000 hefst á morgun Skemmtiferðaskipi bjargað við Horn Vettvangsæfíngin, sem á að gerast úti fyrir Homi, fer fram á Faxaflóa- svæðinu. Farið verður með alla sjúklinga í Varmárskóla í Mosfellsbæ en mikið verður að gera á svæðinu gervöllu við björgun á fólki og flutninga á þvi í land. BANDARÍSKA viðskiptaritið Bus- inessweektelur Kára Stefánsson, forstjóra Islenskrar erfðagreining- ar, vera í hópi 50 manna er tekist hefur að breyta ásjónu Evrópu, en þá menn kallar blaðið „stjömur Evrópu". í greininni er fjallaö um hæga þróun í átt til myndunar eins sam- eiginlegs markaðar í Evrópu undir forystu stjórnmálamanna sem semji sín á milli bak við luktar dyr. Þessi þróun hafi verið hægfara undan- farna áratugi og útaf fyrir sig óspennandi. Annað hafi verið uppi á teningn- um undanfaraa mánuði á þessu rík- asta efnahagssvæði heimsins. Með tilkomu evmnnar hafi bylgja sam- runa og yfirtöku fyrirtækja, sem engin fordæmi væra fyrir, átt sér stað í álfunni. Businessweek segist hafa valið 50 Evrópumenn sem nýr breyti- kraftur í álfunni kristallist í. I þess- um hópi er Kári Stefánsson, en hann er einn 11 manna í flokki upp- hafsmanna nýbreytni í álfunni. Auk hans eru í flokknum Frakkinn Bruno Bonnell, forsljóri Infogames Entertainment, landi hans Anne Asensio, hönnuður hjá General Motors, Hollendingurinn John De Mol, forstjóri Endemol Entertain- ment, Þjóðverjinn Stefan Rover, forsljóri Brokat Infosystems, Frakkinn Marc Lassus, stjórnarfor- maður Gemplus, spánski mats- veinninn Ferran Adria hjá E1 Bulli, Bretinn Tim Jackson, forstjóri Car- lyle Internet Partners, ítalinn Tom Ford, aðalhönnuður Gucci- samsteypunnar, Bretinn Mike Lynch, forstjóri Autonomy og Þjóð- verjinn Mathias Entenmann, for- stjóri Paybox.net. Á hópi 50-menninganna eru sjö menn sagðir hafa skapað stórveldi hver á sínu sviði, en þeir eru Chris Gent, forstjóri Vodafone AirTouch í Bretlandi, John Bond, stjórnarfor- maður HSBC Holdings í Bretlandi, Daniel Bernard, stjórnarformaður Carrefour-verslanakeðjunnar í Frakklandi, John Browne, forstjóri BP Amoco í Bretlandi, JUrgen Schrempp, stjórnarformaður DaimlerChrysler í Þýskalandi, Weraer Seifert, forstjóri Deutsche Börse í Þýskalandi og Juan Villa- longa, forstjóri spænska fjarskipta- fyrirtækisins Telefónica. TÆPLEGA fimmtán hundrað manns frá sautján löndum taka þátt í almannavarnaræfingunni Sam- verði 2000 sem hefst hér á landi á morgun. Atburðarásin í æfingunni er að þessu sinni um björgun í hafs- nauð og er hún þrískipt. Fyrsti hlut- inn felst í fyrirlestrum og málstofu um björgun í hafsnauð, annar hlut- inn er vettvangsæfing um helgina sem tæplega fjórtán hundrað manns frá sjö löndum taka þátt í og á mánudag verður síðan haldinn fundur þar sem fjallað verður um þann lærdóm sem draga má af æf- ingunni. Æfingin er haldin undir merkjum Samstarfs í þágu friðar (Partner- ship for Peace: PfP) en Samvörður var fyrst haldinn hér á landi 1997. Kom fram í máli Halldórs Ásgríms- sonar utanríkisráðherra á kynning- arfundi sem haldinn var í gær að til- urð æfinganna mætti rekja til þeirrar stefnu stjórnvalda að auka hlut íslands í alþjóðlegu öryggis- og varnarmálasamstarfi. Sagði hann það sérstakt við þessa æfingu að hún væri eina æfingin af þessu tagi sem fram fer undir stjórn borgara- legrar stofnunar, þ.e. Almanna- varna ríkisins en æfingin var skipu- lögð í samstarfi við varnarliðið í Keflavík og Atlantshafsbandalagið (NATO). Gamla Akraborgin dubbuð upp í hlutverk skemmtiferðaskips Sem fyrr segir er æfingin þrí- skipt. Gert er ráð fyrir að 80-100 manns muni sækja ráðstefnu um björgun til sjós sem hefst á morgun og koma þátttakendur frá sautján löndum: Bandaríkjunum, Belgíu, Bretlandi, Danmörku, Eistlandi, Egyptalandi, Grikklandi, írlandi, íslandi, Ítalíu, Króatíu, Noregi, Lit- háen, Póllandi, Rússlandi, Svíþjóð og Þýskalandi. Vettvangsæfingin sem fram fer á laugardag og sunnudag er gífurlega viðamikil og kynntu þau Sólveig Þorvaldsdóttir og Árni Birgisson frá Almannavörnum ríkisins fyrir- komulag hennar á fundinum í gær en Sólveig, sem er framkvæmda- stjóri AVRIK, fer með æfinga- stjórn. Æfðai- verða björgunaraðgerðir vegna skemmtiferðaskips í hafs- nauð og verður skólaskipið Sæbjörg (gamla Akraborgin) dubbað upp í hlutverk skemmtiferðaskipsins Monte Carlo. Æfingin fer fram á Faxafióasvæðinu en á að gerast úti fyrir Horni á Vestfjörðum. Gert er ráð fyrir því að bjarga þurfi 300 manns frá borði og hlynna að þeim í landi. Æfð verða viðbrögð við háska um borð í skipinu, s.s. slökkvistörf, reykköfun, varúðarráðstafanir vegna eiturefna, aðhlynning slas- aðra, flutningur slasaðra og óslas- aðra frá borði í land, móttaka og ummönnun slasaðra í landi. Almenningi gefst kostur á að skoða búnaðinn sem nota á Heildarfjöldi íslenskra þátttak- enda er um 800 manns og þar af eru um 300 sjálfboðaliðar sem munu leika sjúklinga í æfingunni, þ.e. þá sem bjarga á úr hafsnauð. Um fjöratíu Bandaríkjamenn taka þátt í æfingunni auk tvö hundruð fulltrúa varnarliðsins í Keflavík og eru m.a. fluttar til landsins sérstaklega tvær Chinook-björgunarþyrlur til að nota í æfingunni. Frá Rússlandi koma 131 þátttak- andi en þetta er í fyrsta sinn frá átökunum í Júgóslavíu á síðasta ári sem Rússar eiga samstarf við NATO. Koma Rússarnir með mikið magn ýmissa tækja og tóla, m.a. tvær Ilyushin 76 herflutningavélar, tvær þyrlur og færanlegan neyðar- spítala sem varpað verður niður í fallhlífum. Framlag Pólverja felst einkum í þátttöku áhafnar sjúkra- skipsins Wodnik, Danir leggja m.a. til varðskipið Vædderen og frá Eistlandi og Litháen kemur hópm' lækna og hjúkrunarliðs. Eins og áður segir hefst æfingin á morgun með ráðstefnu sem haldin verður í Rúgbrauðsgerðinni í Borg- artúni. Ráðstefnan er öllum opin og einnig gefst almenningi á morgun tækifæri til að skoða þann búnað, sem notaður verður í vettvangsæf- ingunni, á milli kl. 16 og 20 við hafn- arbakkann í Reykjavík og í skýli Landhelgisgæslunnar við Reykja- víkurflugvöll. Þjónusta númer eitt! Til sölu Audi A6 2400 nýskr. 21.01.1999, sjálfsk., leðurinnr., toppl., viðarkl., 17 tommu álfeígur og ekinn 32.000 km. Asett verð 3.690.000. Athlskipti áódýrari. Nánari uppl. hjá Bflaþingi Heklu, sími 569 5500. Opnunartfmi: Mdnud. - föstud. kl. 9-I8 laugardagar kl. I2-I6 BÍLAÞING HEKLU fjý'n’io c' H 'urfop Laugavegi 174,105 Reykjavík, sími 569-5500
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.