Morgunblaðið - 06.06.2000, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 06.06.2000, Blaðsíða 36
36 ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 2000 MORGU NBLAÐIÐ LISTIR N orrænt tríó flytur ný verk í Salnum SÆNSKU listamennirnir Susanna Levonen mezzósópran, Bernt Wil- helmsson píanóleikari og Magnus Irving flaut uleikari halda tríótón- leika í Salnum í Kópavogi í kvöld, þriðjudagskvöld, kl. 20.30. Þre- menningamir frumflytja tvö ný verk á þessum tónleikum. Fyrra verkið er eftir íslenska tónskáldið Svein Lúðvík Björnsson við ljóðið Landet som icke ár (Land- ið sem ekki er til) eftir Edith Södergran. Verkið er skrifað fyrir mezzósópran og flautu og er samið að beiðni NOMUS. Síðara verkið sem frumflutt verður er För nára (Of nálægt) eftir sænska tónskáldið Sven Ahlin fyrir mezzósópran, flautu og píanó. Ljóð- ið er eftir Wislawa Szymborska og þýtt á sænsku af Per Ame Bodin og Roger Fjellström. Auk þessara verka verður á efn- isskránni nýr sönglagaflokkur, Babbeloni eftir sænsk-slóvakíska tónskáldið Pavol Simai, auk sónötu í F-dúr op. 8 eftir Edvard Grieg, Fantasíu í b-moll eftir Wilhelm Stenhammar, Songs by the sea eftir Gösta Nyström, söngvar eftir Toivo Kuula og nokkur þjóðlög frá Finn- Iandi, Sviþjóð og Islandi. Tónleikarnir em styrktir af NOMUS. Tónleikaferð um Norðurlönd Tríóið er nýstofnað, en meðlimir þess hafa unnið saman tvö og tvö í langan tíma. Susanna og Bernt voru á tónleikaferðalagi um Eystrasaltslöndin í janúar á þessu ári og hafa leikið saman inn á upp- tökur fyrir sænska tónlistarútvarp- ið og einnig fyrir eistneska og lettn- eska útvarpið. Tríóið leggur áherslu á að flytja nýja norræna tónlist, ásamt hefðbundnari tónlist frá Norðurlöndunum. Tónleikarnir verða einnig haldn- ir á ísafirði, Akureyri, í Bergen, Tampere, Gautaborg og Stokk- hómi. Morgunblaðið/Kristinn Sænsku listamennirnir Susanna Levonen, Bernt Wilhelmsson og Magn- us Irving á æfingu í Salnum. Myndbanda- sýningar í LI í TENGSLUM við sýninguna Nýr heimur - stafrænar sýnir í Listasafni íslands, eru mynd- bandasýningar í sal 2, í þeim hluta sýningarinnar sem nefnist íslensk og erlend myndbönd og eru sýn- ingar kl. 12 og kl. 15. í dag verður sýnt verkið One Minute Sculptur- es, 1997 eftir Erwin Wurm. Erwin Wurm fæddist 1954 í Bruck og er búsettur í Vínarborg. Sérsýningar á verkum hans hafa m.a. verið í Wiener Secession, 1990 og 1991; Kunstverein Ham- burg 1993; Kölnischer Kunstver- ein 1994; The Contemporary Arts Center, Cincinnati og FRAC Lim- ousin, Limoges, 2000. Spurninga- skrá um jólaboð ÞJÓÐHÁTTADEILD Þjóðminja- safns íslands hefur nýlega gefið út og sent til heimildarmanna sinna spurningaskrá 99 um jólaboð ásamt aukaspurningu um minnisvísur. Skráin um jólaboð er hluti af átaki nokkurra þjóðfræðastofnana á Norðurlöndum í heimildaöflun um hátíðahald á öldinni, en stefnt er að því að gefa út samnorrænt greina- safn með niðurstöðum úr rannsókn- unum á næsta ári. Mikilvægt er að heimildarmenn úr sem flestum hér- uðum svari skránni og er hún ætluð fólki á öllum aldri, segir í fréttatil- kynningu. Ennfremur segir að ef menn vilja leggja þessari söfnun lið eða vita um einhverja sem kynnu að búa yfir fróðleik um minnisvísur og jólaboð séu þeir vinsamlegast beðnir um að hafa samband við þjóðháttadeild Þjóðminjasafns. Spumingar um jólaboð og minnis- vísur eru aðgengilegar á heimasíðu Þjóðminjasafnsins fyrir þá sem vilja svara þeim þar. Slóðimar eru www.natmus.is/ deildir/jolabod.htm og www.nat- mus.is/deildir/minnisvisur.htm Listaháskóla fslands slitið í fyrsta skipti „Byggjumskút- una um leið o g við erum að sigla henniu FYRSTA skólaári Listaháskóla ís- lands lauk á laugardag með hátíðar- samkomu í Salnum. Fyrstu nemend- urnir vora þá brautskráðir frá skólanum. Við athöfnina undirrituðu rektor skólans, Hjálmar H. Ragnarsson, og menntamálaráð- herra, Björn Bjarnason, samning um rekstur leiklistar- og mynd- listarmenntunar á næsta skólaári. Ráðherra sagðist binda vonir við að Listaháskólinn ætti eftir að gegna stærra hlutverki í listalífi landsins en Listahátíð í Reykjavík hefði þó gert í 30 ára sögu sinni. „Aí verkum mínum sem menntamálaráðherra hefur mér fundist einna ánægjuleg- ast að íylgjast með þróun Listahá- skóla íslands," sagði hann eftir að hafa skrifað undir samninginn. Skólinn var settur hinn 10. sept- ember og tók þá myndlistardeild til starfa. Um 180 nemendur stunduðu nám við deildina í þremur árgöng- um, en jafnframt starfrækti skólinn fornámsdeild þar sem 39 nemendur vora skráðir. Auk þessa vora við skólann 22 erlendir skiptinemar frá samskiptaskólunum innan Nor- dplus- og Erasmus-áætlananna. Skiptinemar frá Listaháskólanum vora alls 21 og dvöldu þeir í hinum mismunandi löndum Evrópu. 45 nemendur útskrifuðust frá skólanum með fullgilt próf, 44 með BA-gráðu í hönnun eða myndlist og einn með lokapróf - diploma. Þessir nemendur fengu sína framhalds- menntun fyrstu tvö árin innan Myndlista- og handíðaskóla íslands en féllu undir væng Listaháskólans þegar myndlistardeildin var stofnuð í haust. Þeir flokkast þannig eftir sérsviðum: Níu útskrifast í málun, fjórir í fjöltækni, sjö í skúlptúr, fimm í grafík, sjö útskrifast í graf- ískri hönnun, átta í textíl og fjórir í keramiki. Hæstu einkunnir fyrir lokaverk- efni hlutu: Ásdís Elva Pétursdóttir, Brynja Emilsdóttir, Elísabet Jóns- dóttir, Ingibjörg Magnadóttir, Jó- hannes Atli Hinriksson og Þórhildur Elín Elínardóttir, öll með 9,5. Hæstu einkunnir fyrir BA-ritgerð hlutu: Þórhildur Elín Elínardóttir með 9,5 og Ásdís Þórarinsdóttir, Elísabet Jónsdóttir, Guðmunda Hergeirs- dóttir, Guðni Gunnarsson, Ingibjörg Magnadóttir og Ólöf Helga Guð- mundsdóttir, öll með einkunnina 9,0. Þá er skólinn aðili að samstarfi evrópskra listaháskóla um meist- aranám í listgrafík og útskrifast þrír nemendur af þeirri braut í vor, þar af einn íslenskur, Arnar Geir Ómarsson. Útskriftin fer fram í Bourges í Frakklandi. Þrjár umsóknir um hvert pláss Umsóknarfrestur um skólavist í myndlistardeild næsta vetur er ranninn út og í máli rektors við at- höfnina kom fram að inntökunefndir eru nú um það bil að ljúka störfum. Alls bárast 180 umsóknir um skóla- vist, 86 á hönnunarsviði og 94 á myndlistarsviði. Þetta er mikil aukn- ing frá því sem verið hefur við Myndlista- og handíðaskólann, og lætur nærri að þrjár umsóknir séu um hvert laust pláss. „Þetta hefur gerst þrátt fyrir að inntökukröfurn- ar hafi verið hertar og skólagjöld sett á. Þessi mikli áhugi á inngöngu í skólann sýnir að skólinn hefur sann- að sig á þeim vettvangi sem mestu máli skiptir, þ.e.a.s á meðal nemend- anna,“ sagði Hjálmar. Ráðið verður í stöður fýrstu pró- fessoranna við skólann á næstu dög- um. Hjálmar sagði að með því væri stigið mikilvægt skref í uppbygg- ingu skólans. Þá verður ráðið í stöðu kennslustjóra í vikunni. Nýtt og gjörbreytt námsskipulag tekur gildi fyrir fyrsta árs nema í myndlistardeild á næsta skólaári og er forseti deildarinnar, Kristján Steingrímur Jónsson, aðalhöfundur þess. Ný braut innan hönnunar- sviðsins, hönnun nytjahluta, tekur til starfa undir stjórn Katrínar Pét- ursdóttur og skorarskipting innan , Morgunblaðið/Halldór Kolbeins 45 nemendur brautskráðust frá Listaháskóla íslands uin helgina. Björn Bjarnason menntamálaráðherra og Hjálmar H. Ragnarsson rekt- or undirrita samning um rekstur leiklistar- og myndlistardeildar á næsta skólaári. myndlistarsviðsins verður lögð nið- ur. „Inntökukröfurnar hafa verið skýrðar og felldar að þeim viðmiðun- um sem framhaldsskólarnir búa við. Má meðal annars nefna, að gerðar verða auknar kröfur um kunnáttu fólks í íslensku og erlendum tungu- málum frá því sem nú er,“ sagði Hjálmar. Eitt stærsta viðfangsefnið í vetur hefur verið undirbúningur að stofn- un leiklistardeildar næsta haust. Starfrækslu Leiklistarskóla Islands verður þá hætt og Listaháskólinn tekur yfir menntun þeirra nemenda sem þar stunda nú nám. „Ragnheið- ur Skúladóttir leikkona, sem var val- in úr hópi mjög hæfra umsækjenda til að gegna stöðu forseta deildarinn- ar, hefur lagt fram tillögu að skipu- lagi og kennsluskrá fyrir deildina og er nú unnið að ráðningu kennara og starfsfólks. Sú ákvörðun var tekin að bíða með að taka inn nemendur á fyrsta ár þangað til næsta vor. Nem- endur verða því alls 24, á öðra, þriðja og fjórða ári. Leiklistardeildin verður til húsa á Sölvhólsgötu 13, þar sem Leiklistarskóli íslands er nú. Leikhús skólans verður til húsa á sama stað, í aðstöðu sem nýbúið er að innrétta og endurbyggja og kem- ur í stað nemendaleikhússins í Lind- arbæ,“ sagði rektor. Ihröðum byr I máli hans kom einnig fram að uppbygging Listaháskólans er í hröðum byr, „og má segja að við séum að byggja skútuna um leið og við erum að sigla henni. Það er ekki alltaf auðvelt að halda sjó með slíku vinnulagi en á móti kemur að snerp- an verður rneiri og enginn tími fyrir hik eða kvíða. Tillögur um uppbygg- ingu háskólanáms í arkitektúr liggja fyrir og er það ennþá stefna skólans að byggja upp slíkt nám þó svo að Háskóli Islands hafi lagt fram tillög- ur um slíkt hið sama. Þá verður það sífellt brýnna að þróa hönnunar- námið eftir þeim brautum sem nú- tíma markaðssamfélag gerir kröfur um, og er það aðeins tímaspursmál hvenær það verður klofið frá hinu myndlistarnáminu og stofnuð sér- stök hönnunardeild. Markmiðið er að Listaháskólinn geti veitt mennt- un í öllum þremur deildum sjónlista, þ.e. í myndlist, hönnun og arkitekt- úr, og nýtt sér þann mikla ávinning sem fæst af sambýli þessara systur- greina innan veggja sömu stofnun- arinnar. Undirbúningur að stofnun tónlist- ardeildar gengur hægt og er kominn stutt á veg, en í áætlun um upp- byggingu Listaháskólans frá því í mars í fyrra er stefnt að því að tón- listardeildin taki til starfa haustið 2001. Sú áætlun er reyndar gerð með skýrum fyrirvara um að skólan- um verði áður fundið varanlegt hús- næði. Ætlun mín er að taka upp þráðinn að nýju við undirbúninginn að stofnun tónlistardeildarinnar í haust og vonast ég til að þá náist að skapa málefnalegri umræðu og hug- myndafrjórri en þá sem við hingað til höfum fengið að heyra.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.