Morgunblaðið - 06.06.2000, Blaðsíða 80

Morgunblaðið - 06.06.2000, Blaðsíða 80
ptagmiÞliifetfe Maestro MORGUNBLAÐW, KRINGLUNNl 1,103 REYKJAVÍK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA5691122, NETFANG: RITSTJmBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1 ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 2000 VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK. Um 40% samdráttur Alþjóðahafrannsóknaráðið, ICES, hefur lagt til að leyfilegur hámarks- afli norsk-íslensku síldarinnar verði 753 þúsund tonn 2001 og yrði hlutur 'Rafrænt við- skiptanám 200 börn á háskóla- bekk NÁMSKEIÐ í heimspeki og þýsku fyrir börn á aldrinum sex til fjórtán ára hófust í gær í Háskóla Islands á vegum Opins háskóla og mun þetta vera í fyrsta sinn sem börn sækja nám í HÍ. Nær tvö- hundruð börn sækja námskeið í þessum tveimur greinum, en inn- an skamms hefjast einnig nám- skeið í frönsku, spænsku og dönsku og er fullbókað á öll nám- skeiðin nema nokkur sæti eru laus í dönsku. Um sextíu börn á aldrinum sex til tólf ára byrjuðu á tveggja vikna þýskunámskeiði í gær. Kennsla miðast við byrjendur og er reynt að vekja áhuga barnanna á þýsku og einkennum þýskumæl- andi landa með leikjum, söngvum, myndum, stuttum sögum og kennslu í einfaldri málnotkun. Rúmlega eitthundrað börn á aldrinum sjö til fjórtán ára taka þátt í vikunámskeiði í heimspeki. I lok námskeiðsins verður haldið opið málþing þar sem nemendur kynna viðfangsefni og niður- stöður hópanna. FYRSTU nemendur með BS-gráðu voru brautskráðir frá Háskólanum í Reykjavík sl. laugardag, en skólinn tók til starfa haustið 1998. I ræðu Guðfinnu S. Bjarnadóttur rektors við útskriftina kom fram að næsta vetur er ætlunin að bjóða upp á meistaranám í rafrænum viðskipt- um, þar sem áhersla verður lögð á samþætta sérfræðikunnáttu í báðum deildum skólans; tölvunarfræði og viðskiptafræði. Skólayfirvöld undir- ,rituðu á dögunum samning við menntamálaráðuneytið, sem felur í sér 3.800 fermetra stækkun skólans. I Nemendur/lO Morgunblaðið/Kristinn Þýskunámskeið fyrir böm á aldrinum 6-12 ára hófst í gær á vegum Opins háskóla. Hér leiðbeinir Jens Mertens börnum í kennslustofu í Ámagarði. Hafrannsóknastofnun leggur til verulega skerðingu afla úr flestum nyljastofnum Utflutningstekjur gætu lækkað um 10 milljarða Hafrannsóknastofnun leggur til að þorskaflahámark á næsta fiskveiði- ári verði 203.000 tonn eða 47.000 tonnum lægra en á fiskveiðiárinu 1999/2000. Gangi allar tillögur Haf- rannsóknastofnunar eftir um há- marksafla á næsta fiskveiðiári getur útflutningstapið orðið um 10 millj- arðar króna eða ríflega 10% áætlaðs útflutningsverðmætis sjávarafurða á þessu ári, að sögn Ásgeirs Daníels- ... sonar, hagfræðings hjá Þjóðhags- *■"' ^stofnun. Arni Mathiesen sjávarút- vegsráðherra kallaði niðurstöðurnar vonbrigði og sagði að stefnt væri að því að ákvörðun um heildaraflamark næsta fiskveiðiárs lægi fyrir um miðjan júlí. Aætlað er að í ársbyrjun 2000 hafi veiðistofn þorsks verið 756.000 tonn en í fyrra var hann talinn vera 1.031.000 tonn. Samkvæmt afla- reglu, sem heimilar veiði á 25% af veiðistofni, verður aflahámarkið 203.000 á næsta fiskveiðiári og .^234.000 tonn fiskveiðiárið 2001/2002, en áætlað er að veiðistofn fari úr 756.000 tonnum í ársbyrjun 2000 í 1.140.000 tonn í ársbyrjun 2003 og að hrygningastofninn fari úr 406.000 - tonnum í 586.000 tonn. Að mati Hafrannsóknastofnunar er breytilegur veiðanleiki þorsks frá ári til árs líklegasta skýringin á mun- inum á stofnmatinu nú og fyrir ári auk aukinnar sóknar í elsta fiskinn. Stofnmat þorsks um 20% lægra en gert var ráð fyrir í fyrra íslendinga nálægt 116 þúsund tonn- um. Heildaraflamark fyrir árið 2000 er 1,25 milljónir tonna og koma 194 þús. tonn í hlut íslands. Amóta sam- dráttur er boðaður í kolmunnaveið- um. Gert er ráð fyrir að um 1,1 millj- ón tonna veiðist í N-Atlantshafi í ár en ICES mælir með að kolmunnaafl- inn verði innan við 628 þús. tonn árið 2001. Margtjákvætt Jóhann Sigurjónsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar, segir að margt jákvætt sé í tillögum stofnun- arinnar og annað miður. „Horfur í loðnu eru ágætar, við erum með góð- ar horfur í sumargotssíldinni, við leggjum til mikla aukningu í afla- heimildum á grálúðu, rækjustofnar eru á niðurleið, karfastofnar í nokk- urri óvissu og sama má segja um ufsa og ýsu en tillögur okkar miða að því að stýra veiðunum með þeim hætti að langtíma hámarksnýting þessara stofna komist á ef hún er ekki þegar við lýði.“ Jóhann segir rannsóknir og stofn- mat háð óvissuþáttum, sem geti ým- ist verið upp á við eða niður á við. Stofnmat þorsks er um 20% lægra en gert var ráð fyrir í fyrra. „Eflaust veldur þetta vonbrigðum í greininni því menn hafa lagt mikið á sig við uppbyggingu stofnsins á undanförn- um árum. Aflareglunni hefur verið íylgt og teljum við það hafa verið mjög farsælt skref en einmitt vegna þess er svo komið að hrygningastofn og veiðistofn þorsks er ekki í bráðri hættu eins og horfur vora á fyrir fimm til sjö árum. Þó einhverjir hafi túlkað þetta sem bakslag í fiskveiði- ráðgjöf okkar eða fiskveiðistefnu er mikilvægt að átta sig á langtíma- hugsuninni í þessari nýtingarstefnu og séu þess meðvitaðir að meðal ann- ars vegna þessarar veiðistefnu séu þrír meðalstórir og jafnvel sterkari árgangar í farvatninu, sem koma strax inn í veiðarnar á næsta ári og sérstaklega árin þar á eftir.“ ■ Útflutningsverdmæti/40-41 Bæði veiðistofn/40-41 Nýheimsmynd kallará nýjan Atlas - iBook Grafít Skipholtl 21 UV flfm Síml 530 1800 J@A J0 Fax 530 1801 www.apple.ls Vilja efla vímuefnavarnir STARFSHÓPUR um vímuvarnir á vegum Akureyrarbæjar hefur lagt tillögur til eflingar og samræmingar forvarna gegn vímuefnanotkun fyrii- bæjarráð. í tillögunum kemur m.a. fram að starfshópurinn telur afar mikilvægt að ráðinn verði forvama- fulltrúi í fullt starf, samstarf verði víðtækt í forvörnum í bæjarfélaginu, sérstaklega verði hugað að afþrey- ingu og skemmtunum fyrir unglinga á aldrinum 16-19 ára og að skipulag hátíðarinnar „Halló Akureyri“ verði tekið til endurskoðunar. Starfshópurinn leggur til að gerð- ur verði samningur til þriggja ára, milli dómsmálaráðuneytis, Akureyr- arbæjar og annarra aðila sem leggja vilja fram fjármuni til ráðningar for- varnafulltrúa á Akureyri. Starf hans muni meðal annars felast í fræðslu, samstarfi við þá sem þegar sinna for- vörnum og vinnu á vettvangi. Lögð er rík áhersla á að fulltrúinn geti haf- ið vinnu í haust. Um aldurshópinn 16-19 ára segir hópurinn að mikilvægt sé að mynd- aður verði starfshópur sem komi til móts við tómstunda- og skemmtana- þörf unglinganna. Lögð er mikil áhersla á samstarf við framhalds- skólana, MA og VMA. Um „Halló Akureyri“ segir hópurinn að allt skipulag hátíðarinnar verði miðað við fjölskylduhátíð og hækkun sjálf- ræðisaldurs í 18 ár. Það felst meðal annars í því að aðgangur unglinga á eigin vegum að tjaldstæðum verði miðaður við 18 ár.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.