Morgunblaðið - 06.06.2000, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 06.06.2000, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 2000 35 LISTIR Utlagar 20. aldarinnar LEIKLIST Leikfélag Sólheima ARFUR-SÖGUR AF SJÁLFSTÆÐU FÓLKI Handrit: Gunnar Sigurðsson, Bryn- hildur Björnsdóttir. Tónlistar- sljórn: Skúli Gautason. Leikmynd: Gerhard Koenig. Lýsing: Skúli Gautason. Leikstjóri: Gunnar Sig- urðsson. Meðleikarar: Skúli Gauta- son, Brynhildur Björnsdóttir. SÓLHEIMAR í Grímsnesi voru stofnaðir af Sesselju Hreindísi Sig- mundsdóttur árið 1930. Ári síðar var stofnað leikfélag á staðnum svo Leikfélag Sólheima er eitt af elstu starfandi áhugaleikfélögum lands- ins. Hefur starfsemi félagins verið blómleg og á hverju ári hafa verið sett upp eitt eða fleiri leikverk og þátttakan ávallt verið mikil. Að þessu sinni er verkefnið óvenju metnaðarfullt enda tilefnið ærið og hefur hópurinn undir stjórn leik- stjóra síns og meðstjórnenda frum- samið leikverkið Arfurinn þar sem fléttað er saman sögum af þekktum útlögum Islandssögunnnar og bar- áttu Sesselju Sigmundsdóttur við fordóma í samfélaginu gagnvart fotl- Sýning framlengd Listhús Ofeigs SÝNINGIN Konur og menn, skúlptúrverk Daníels H. Sig- urðssonar, í Listhúsi Ófeigs, Skólavörðustíg 5, verður fram- lengd til 7. júní. [istaUtíft í Þriðjudagur 6. júm. Listahátíð Broadway. Kl. 21. Ladysmith Black Mambazo - sönghópur frá Suður Afríku. Þjóðleikhúsið. Kl. 20.30. Englar alheimsins. 4. sýning Café- teatret á Smíðaverkstæðinu. www.artfest.is. Nýtt spil • ÍSLENSKA fuglaspilið er fjöl- skylduspil eftir Óskar J. Sandholt. Spilið er samið í þeim tilgangi að auðvelda börnum að læra að þekkja algenga íslenska fugla og hljóðin þeirra. Höfundur ljós- mynda er Jóhann Óli Hilmarsson. Fuglaspilið er hentugt kennslu- tæki um þrjátíu algenga fugla sem að staðaldri verpa hér á landi. Spilið má nota á ýmsa vegu, sem minnisspil, myndabingó, hljóða- bingó auk þess sem fara má í spurningaleiki út frá hljóðum eða myndum. Blöðungur með fróðleik um fuglana fylgir spilinu. Ljós- myndir eru notaðar í spilinu og geisladiskur með hljóðum fugl- anna fylgir. Tveir til fjórir geta spilað samtímis og geta þátttak- endur verið frá fjögurra ára aldri. Islenska fuglaspilið er árangur þróunarverkefnis sem styrkt var af Verkefna- og orlofssjóði Kennara- sambands Islands. Umbrot og hönnun fór fram hjá Æskunni ehf. en Kassagerð Reykjavíkur hf. ann- aðist prentvinnslu. Dilbert á Netinu vg'mbUs _ALLTjAE^ EITTH\SA£> fJÝTT uðum er hún stofnaði Sólheima og hélt ótrauð áfram því starfi sem hún trúði svo staðfastlega á. „í 70 ára sögu Sólheima hefur ver- ið háð barátta gegn fordómum og manngildi og mannrækt sett í önd- vegi. Sesselja stóð vörð um „útlag- ana“ og í leikverkinu verður fjallað um þær hliðstæður sem fatlað fólk, sem þó er hæfúeikafólk á mörgum sviðum, á með áðurnefndum útlög- um.“(tilvitn. leikskrá) Þetta er viðfang sýningarinnar og verður ekki annað séð en því séu gerð skilmerkileg skil, sýningin er lífleg og falleg á að horfa, gaman og alvara í bland. Einstök atriði eru gullfalleg og nefni ég sérstaklega atriði um Eyvind og Höllu þar sem dans Höllu var hrífandi. Meðstjómendur í sýningunni eru leikaramir og tónlistarfólkið Bryn- hildur Björnsdóttir og Skúli Gauta- son. Þau gegna hlutverki sögumanna og leiða verkið áfram, í upphafi er fluttur texti úr Sólon Islandus Dav- íðs Stefánssonar, um hinn fræga flökkumann Sölva Helgason. Helst var að finna að Skúli og Brynhildur héldu nokkuð aftur af sér og er það skiljanlegt en kom engu að síður nið- ur á tengslum þeirra við áhorfendur og skorti nokkuð á að gera frásögn- ina jafnáhugaverða og efni stóðu til. Handrit sýningarinnar er einnig fremur sundurlaust, tengingar milli atriða lausar í reipum og stokkið úr einu í annað og í lokin leysist sýning- in upp og verður að kynningu á liststarfsemi þeiira sem þátt taka í sýningunni. í sjálfu sér skemmtilegt uppbrot en engan veginn rökrétt niðurlag á leiksýningu. Verður að benda á þetta þrátt fyrir sérstakar forsendur sýningarinnar þar sem ljóst er að henni er sett sú umgjörð að byggja á því sem leikendur em færir um, og hver og einn fær að njóta sín með það sem hann gerir best. Þannig urðu söngatriðin mörg hver bæði einlæg og hjartnæm og gleðin sem skein af andlitum leik- enda var fölskvalaus og margfalt meira virði en hnökralaust og kór- rétt leikverk getur nokkurn tíma orðið. Sameiginleg þátttaka vist- manna og starfsmanna ásamt böm- um þeirra síðarnefndu var einnig til marks um þann góða anda sem ríkfr á Sólheimum og sýningin miðlar honum eðlilega og áreynslulaust. Það er hennar stærsti kostur og fyr- ir það eitt á hún fullt erindi til allra með réttmætan boðskap sinn. Er rétt að minna á að í kvöld kl. 20 hefst sérstök hátíðarsýning á Arfinum í Þjóðleikhúsinu og vill undirritaður hvetja alla til mæta. Kvöldinu yrði vel varið með þeim hætti. Hávar Sigurjónsson j&Columbia Sportswear Company© ...og mundu nú að klæða af þér hitann! Þó þú farir í stuttermaskyrtu þarftu ekki endilega að rara til Afríku Elkhom skyrta - Kr. 3.990.- Þú þarft ekki einu sinni skæri til að stytta þær Convertible buxur - Kr. 5.990.- Ef þér leiðist farðu þá þangað sem veðrið nentar fötunum Elkhom stuttbuxur -Kr. 3.990.- Fiskar dulbúnir sem skór River Trainer - Kr. 6.990.- Klæjar ykkur í iljarnar að komast í hitann? Þið verðið svöl í þessum... Slate-Slide sandalar - Kr. 6.990,- Gert Boyle stjómarformaður Columbia HREYSTI ÆFINGAR - ÚTIVIST - BÓMULL --Skeiftjnni 19 - S. 5681717 -
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.